Tíminn - 29.01.1975, Síða 12
12
TÍMINI'
Miövikudagur 29. janúar 1975.
Það er ekki að orðlengja það, að hann lærði að dansa,
og þess var ekki langt að bíða, að hann yrði eitt mesta
dansfiflið í byggðarlaginu. Hann varð þó aldrei jafnoki
Eiríks í listinni. En Gústaf átti líka miklum vinsældum
að fagna meðal unglinganna, enda gat ekki hjá því farið
um jafn fjörugan og gáskafullan pilt. En stundum gátu
ærslin orðið svo mikil, að fólki varð ekki um sel. Hann
hafði ekki vanizt á að reykja, og drykkjuskapur var
óþekkt fyrirbæri í Þórsey. En hann var ölvaður af æsku-
þrótti og hegðaði sér oft eins og hann væri drukkinn.
Hann blístraði og söng, sló taktinn á pottlok og mjólkur-
skjólur, hlóð snjókerlingar og hafði í frammi ótrúleg
skálkabrögð til þess að hræða fólk. Kvenfólkið vissi
aldrei hvað kunni að biða þess í f jósi eða hlöðu, ef sézt
hafði til ferða Gústafs á Klifinu einhvers staðar í
grenndinni.
Gústaf var að eðlisfari geðgóður piltur, en hann gat
líka reiðzt svo heiftarlega, að ekki var við lambið að
leika sér þar sem hann var. Það fékk Jóhann að reyna.
Gústaf hafði verið lengi að öngla saman fyrir byssu, sem
hann langaði ákaflega mikið til að eignast. Aurana
geymdi hann i dragkistuskúffunni. En dag nokkurn
komst hann að raun um, að slatti af peningunum var
horf inn.
,,Hver hefur tekið peningana mína?" öskraði hann.
,,Hvað ertu að segja, drengur?" sagði Katrín.
,,Ég er að spyrja að því, hver hafi stolið peningunum
mínum. Það er horfinn meira en helmingurinn".
,,Það getur ekki verið. Hverætti svo sem að hafa stolið
þeim?"
,,Ekki hafa peningarnir horfið af sjálfs dáðum. Og
horfnir eru þeir,— Ætli Eiríkur hafi ekki stolið þeim?
Hann getur reykt og þótzt vera fínn maður, ef aðrir
borga brúsann".
,, Eiríkur hef ur aldrei á ævi sinni stolið eyrisvirði, það
skal ég ábyrgjast", sagði Katrín.
,, Kannski þú haf ir þá hirt þá sjálf ? Þú ert hvort eð er
ekki alltaf svo nákvæm í reikninginum, sýnist mér".
,,Ef ég tek eitthvað traustataki, þá geri ég það með
ykkur vitund, og það veiztu vel. Þú hefur sjálfsgt
sólundað þessum aurum sjálfur".
,,Nei, það hef ég ekki gert, alls ekki...og það er
auðvitað hann þarna, sem hefur tekið þá. Bölvaður
karlskrattinn þarna úti í horninu, sem aldrei gerir
handarvik — það er hann, sem hef ur stolið peningunum
mínum! Nú veit ég það". Gústaf var orðinn svo
hamslaus af reiði, að hann steytti hnefana að Jóhanni,
þar sem hann sat í króknum við eldstóna.
,,Ég hef ekki snert þá", sagði Jóhann veikum rómi.
,,Hefurðu ekki snert þá? Hver trúir þér svo sem? —
Þú, sem aldrei hefur kunnað neitt annað en að Ijúga, og
nú ertu byrjaður að stela líka. Þú hef ur aldrei getað séð
fyrir börnunum þínum eins og aðrir menn, og mamma
hefur orðið að þræla nótt með degi. Og nú, þegar við
erum farnir að geta unnið fyrir kaupi, þá stelur þú þvi,
til þess að geta keypt sælgæti í búðinni".
,,Ég hef ekki tekið þessa peninga. Þú veizt það,
Katrín", sagði Jóhann og gat varla varizt gráti.
„Láttu föður þinn i friði. Hann hefur engu stolið",
sagði Katrín.
„Ég veit, pð hann hefur gert það, og enginn annar.
Hvaðan ætti hann að fá peninga til þess að kaupa fyrir
karamellur? Komdu með peningana undir eins eða ég
skal jafna um gúlana á þér, svo að um munar". Gústaf
þokaði sér nær og staðnæmdíst, hár og herðabreiður,
þrútinn af reiði, fyrir framan vesalings Jóhann, sem
hnipraði sig saman, skjálfandi af hræsðlu.
„Peningana á borðið! Ætlarðu kannski ekki að hlýða?"
Stórir, krepptir hnefarnir voru í ískyggilegri nálægt.
Jóhann hrökklaðist óttasleginn undan. Hann var ámóta
settur og varnarlaus mús í gildru, sem sér kló kattarins ‘
vofa yfir sér.
„Katrín!" hrópaði hann í örvæntingu.
„Já, hrðpaðu á kerlinguna. Það hefurðu hvort eð er
gert alla ævi", öskraði Gústaf. í sama vetfangi þreif
hann í öxl föður síns, hristi hann óþrymilega og hratt
honum fram á gólfið. Jóhann slengdist á grúfu, og
fáeinir koparskildingar hrutu upp úr vasa hans og ultu
sinn í hverja áttina. Nú varð reiði drengsins f yrst að æði.
,, Lítið þið bara á, þarna sjáið þið", öskraði hann..,, Ég
vissi það, að hann mundi haf a gert þetta. Og nú skaltu f á
að komast að raun um, að þetta er ekki neinn leikur".
Jóhann reyndi að rísa á fætur og forða sér, en hneig
strax útaf aftur. Gústaf ruddist að honum eins og
fellibylur, og það virtist ekki annað sýnna en nú væri
hinzta stund Jóhanns runnin upp.
Katrín hafði staðið eins og steinrunnin við borðið, en
nú kom hún til liðs við mann sinn. Samt var ekki laust
við, að jafnvel hún væri dálítið smeyk við hamfarir
drengsins. Skyldi hann leggja hönd á mig lika, spurði hún
sjálfa sig. Snöggvast sýndist sem hann myndi ekki
skirrast við því. Hann reiddi hnefana og gerði sig lík-
y A morgun: Hjálpin.
Miðvikudagur
29. janúar
7.00 MorgunútvarpVeður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30 8.15
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Himinn og jörð” eftir
Carlo Coccioli Séra Jón
Bjarman les þýðingu slna
(2).
15.00 Miðdegistónleikar Osian
Ellis og sinfóniuhljómsveit
leika Hörpukonsert eftir
Gller. Fllharmónlusveitin I
Los Angeles leikur
„Petrushka”, balletmúsík
eftir Stravinský.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið
17.10 Ctvarpssaga barnanna:
„Strákarnir, sem struku”
eftir Böðvar frá Hnlfsdal.
Valdimar Lárusson les (2).
17.30 Framburðarkennsla I
dönsku og frönsku
17.50 Tónleikar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Tjaldað I Evrópu Jónas
Guðmundsson rithöfundur
segir frá annar þáttur
20.00 Kvöldvaka Einsöngur
Einar Kristjánsson syngur
íslenzklög. b. Þorrablót að
fornu og nýju Guðmundur
Jósafatsson frá Brands-
stöðum segir frá. c. Bólu-
Hjálmar og önnur kvæði
eftir Sigurð Gislason
Baldur Pálmason les. d.
Brotajárn Hjörtur Pálsson
flytur frásögu eftir Þorstein
Björnsson frá Hrólfsstöðum
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passlusálma (3)
22.25 Leiklistarþáttur i umsjá
örnólfs Árnasonar
22.55 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.45 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Miðvikudagur
29. janúar
18.00 Björninn Jógi Bandarlsk
teiknimynd. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
18.20 Leyndardómar dýra-
rikisins Bandariskur
fræðslumyndaflokkur um
eiginleika og lifnaöarhætti
dýra. 1. þáttur Lifsbaráttan
Þýðandi og þulur Guðrún
Jörundsdóttir.
18.50 Filahirðirinn Bresk
framhaldsmynd. Flagð
undir fögru skinni Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.15 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Umhverfis jörðina á 80
dögum. Breskur teikni-
myndaflokkur, byggður að
hluta á samnefndri sögu
eftir Jules Verne. 4. þáttur.
Kerruna fyrir klárinn Þýð-
andi Heba Júliusdóttir.
20.55 Landsbyggðin Flokkur
umræðuþátta um málefni
dreifbýlisins. 4. þáttur.
Vesturland Þátttakendur:
Alexander Stefánsson,
Ólafsvik, Guðjón Ingvi
Stefánsson. Borgarnesi,
Sigurður Sigurðsson, Stóra-
Lambhaga og Valdimar
Indriöason, Akranesi. Um-
ræðunum stýrir Magnús
Bjarnfreðsson.
21.40 tsbrjóturinn Tséljúskin
Sovésk heimildamynd um
hrakninga skips I hafis árið
1934. Rakin eru tildrög
þessara atburða og lýst
björgun áhafnar og farþega.
Einnig er I myndinni rætt
við nokkra af þeim, sem hér
komu viö sögu. Þýðandi og
þulur Hallveig Thorlacius.
22.40 Dagskrárlok.