Tíminn - 01.02.1975, Síða 1
vélarhitarinn
i frostí og kulda
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKULATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
ÆNGIRf
Áætlunarstaðir:
Blönduós — Sigluf jöröur
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Simar:
2-60-60 &
2-60-66
y
Sjávarútvegs-
ráðherra í
yfirheyrslu ?
gébé-Reykjavik Kári Snorrason,
framkvæmdastjóri rækjuverk-
smiðjunnar Særúnar hf. á
Blönduósi sagði f gær, aðhann og
áhöfnin á Nökkva HU 15, heföu
farið fram á það við setu-
dómarann i rækjumálinu, Sigurö
H. Stefánsson, að hann yfirheyrði
einnig s já varútvegsráðherra.
Sigurður sagði i gær, að yfir-
heyrzlum fyrir noröan væri nú
lokið, en hann tók áhöfn Nökkva
og nokkra að auki til yfirheyrzlu á
fimmtudag og föstudag, eftir aö
bann hafði verið sett viö þvi að
Nökkvi færi á rækjuveiðar.
— A þessu stigi málsins er erfitt
að segja til um hvert framhaldið
verður á rannsókninni, sagöi Sig-
urður en það verður reynt að
hraöa málinu eins og hægt er.
— Sigurður staðfesti einnig, að
þeir, sem viðriðnir eru málið á
Blönduósi heföu farið fram á að
sjávarútvegsráöherra yrði yfir-
heyrður út af máli þessu. Ekki
kvaðst Sigurður geta sagt um á
þessu stigi, hvort af þeirri yfir
heyrslu yröi. Þvi miöur náðist
ekki i ráðherra i gær til að fá
umsöcyn hanc
Kári Snorrason sagði, að það
væri oröið mjög heitt i fólki út af
málinu og að allir biðu spenntir
eftir þvi hvaö næst yrði gert. Það
var á fimmtudaginn, sem bann
var sett við því að Nökkvi héldi á
Frh. á bls. 15
Það þarf sannarlega að hyggja að háspennuiinunum i hvassviðri, særoki og ísingu, og þá er betra að
kunna til verka, ekki siður en uppi i reiða skipanna i vonzkuveðri á hafi úti. Hér sjáum við einn
viðgerðainanninn uppi istaurum háspennustrengs úti á Alftanesi. —Timamynd: Róbert.
7-800 MILLJONIR SPARAST
EF NOTUÐ ER SVARTOLÍA
— til þess að knýja togarana
BH-Reykjavik. — Athuganir hafa almennt tekin
leitt I ljós, að með því að nota
svartoliu i stað gasoliu I skut-
togurum má við núverandi
ástand spara árlega sem svarar
12.8 milljónum á skip og er miðað
við japanskan togara af minni
geröinni. Athuganir þessar voru
gerðar af nefnd á vegum
Sjávarútvegsráðun eytisins, og
hafa þær leitt i ljós, að til-
kostnaður við breytingar er
tiltölulega litill, þar sem spara
má feiknarlegar upphæðir, sér-
staklega ef notkun svartoliu yrði
upp á skuttogur-
um, en á þvi telur nefndin harla
litil tormerki. Þá hefur einnig
komið i ljós, að svartolia sú, er
Rússar hafa selt okkur, hefur
umtalsverð gæði umfram það,
sem I samningum greinir, og er
þvi hin heppilegasta til notkunar.
Þessar staðreyndir komu fram
á fundi sem efnt var til i gær með
eigendum og yfirmönnum á
japönsku skuttogurunum er til
landsins hafa verið keyptir. Var
fundurinn fjölsóttur, þrátt fyrir
samgönguerfiðleika ýmissa úr
þessum hópi, en eins og kunnugt
er hafa flestir skuttogararnir af
minni gerðinni heimahöfn fyrir
norðan og austan. Stóð Svartoliu-
nefndin svokallaða fyrir fundin-
um, sem haldinn var á Hótel Loft-
leiðum.
Frh. á bls. 15
Kjarvalsstaðir:
Enginn hefur dregið
umsóknir til baka
Gsal-Reykjavik. — Að undan-
förnu hafa orðið mikil blaða-
skrif um Kjarvalsstaði og eiga
þau skrif rót sina að rekja til
þess, að sýningarráö Kjar-
valsstaða neitaði Jakobi Haf-
stein um afnot af húsinu til
myndlistarsýningar. Fyrir
nokkru gerðist það svo, að
Félag islenzkra myndlistar-
manna hvatti félagsmenn sina
til að sniöganga Kjarvals-
staði, og eins kom fram i frétt-
um, að félagar FÍM, sem
ætluðu að sýna þar hafi
ákveðið að breyta þeim fyrir-
ætlunum.
Af þessu tilefni sneri Timinn
sér til Alfreðs Guðmundsson
forstöðumanns Kjarvalsstaða.
valsstaða.
— Tveir myndlistarmenn
hafa sótt uin Kjarvalsstaði,
eftir að FIM gerði sina
samþykkt, Baltasar og Halla
Haraldsdóttir — og enginn
þeirra sein áður höfðu fengið
loforð um afnot af Kjarvals-
stöðum til myndlistarsýninga.
hafa dregið þær umsóknir
sinar til baka. Alla vega hefur
enginn gert það formlega til
okkar, enn sein komið er.
Um þessar mundir stendur
yfir að Kjarvalsstöðum,
sýning á verkum Kjarvals og
er sýningin opin alla daga
neina mánudaga frá kl. 16-22.
Sagði Alfreð, að m.irgir
héldu að búið væri að taka þá
sýningu niður vegna þeirra
miklu blaðaskrifa, sem verið
hafa um Kjarvalsstaði að
undanförnu.
En sein sagt: sýning á verk-
um Kjarvals stendur enn yfir
og aðgangur er ókeypis.
Stykkishólmur:
Húsgagnagerðin Aton
segir upp starfsfólki
FB-Reykjavik. Nokkrir fjár-
hagsörðugleikar há nú starf-
semi Aton-húsgagn-jfyrir-
tækisins i Stykkishólmi. Þar
hafa starfaö 15 manns, en búið
er að segja upp 9 og eru þeir
þegar hættir, en hinir sex
hætta sennilega i lok febrúar.
Aton húsgagnagerðin hefur
starfað i Stykkishólmi i sex ár.
Framleiðir fyrirtækið hús-
gögn i mjög sérstökuin stil,
t.d. gamla ruggustóla, sem
flestir munu kannast við. Hef-
ur framleiðslan verið
töluverð, og öll hefur hún selzt
á innlendum markaði.
Dreifingaraöilinn i Reykjavik
er Jón Loftsson:
Missi nú 15 manns atvinnu
sina i Stykkishólmi
vegna þess, að þetta fyrirtæki
verði lagt niður, er það tölu-
vert alvarlegt mál fyrir
staðinn, að þvi Stykkishólms-
búar segja, enda eru þar nú
þegar 50 manns á atvinnu-
leysisskrá.
Samþykkt stjórnar Verkalýðsfélags Vopnafjarðar:
VERKBANN A NORGLOBAL ?
Jafnmargir atvinnulausir á svæði verka-
lýðsfélagsins og fó atvinnu við Norglobal
Vegna frétta um aö leyfa eigi er-
lendu vcrksm iðjuskipi loðnu-
bræðslu innan islenzku land-
helginnar kom stjórn verka-
lýðsfélags Vopnafjarðar saman
og gerði svofellda samþykkt hinn
25. janúar s.L:
„Stjórn verkalýðsfelags
Vopnafjarðar litur mjög alvar-
leguin augum þá ákvörðun
sjávarútvegsmalaráðherra að
leyfa stórvirku erlendu verk-
smiðjuskipi i leigu islenzkra
einkaaðila starfrækslu innan
landhelginnar á sama tima og
lagt hefur verið hart að verk-
smiöjum á Austur- og Norður-
landi að hraða undirbúningi
loðnumóttöku eftir föngum.
Stjórn verkalýösfélags Vopna-
fjarðar telur, að rfkisstjórnin ætti
að kynna sér atvinnuástand og at-
vinnuhorfur á næstu mánuðum i
þeim sjávarplássum, sem byggt
hafa afkomu sina að stórum hluta
á loðnubræðslu þennan árstima,
og skipuleggja siöan loðnu-
flutninga af miðunum til þeirra
verksmiðja, sem til eru i landinu
með starfrækslu flutningaskipa
þannig, að ætið hafi allar verk-
smiðjur nægilegt hráefni meðan á
veiðunum stendur.
Við efumst uin, að sjávarút-
vegsráðherra geti veitt 60 út-
lendingum atvinnuleyfi innan is-
lenzku landhelginnar á saina
tima og álika fjöldi verkafólks
gengur atvinnulaus á okkar
félagssvæði einu. Auk þess sem
atvinnuleysisvofan er nú tekin aö
láta að sér kveða viða um land i
rikara mæli en verið hefur á
undanförnum árum.
Stjórn Verkalýðsfélags Vopna-
fjaröar beinir þeirri áskorun til
stjórnar Alþýðusambands ís-
lands, að hún sjái til þess, að
engir samningar verði gerðir
fyrir það starfsfólk, erlent og is-
lenzkt, sem ætlunin er að láta
stela atvinnunni frá aðildar-
félögum Alþýðusambands Is-
lands á Norður- og Austurlandi.
Við munum fara þess á leit. að
stjórn Alþýðusambands Islands
kynni sér rétt okkar með boðun
verkbanns á skip þetta i huga.
Mánudaginn 27. janúar kemur
Alþingi Islendinga saman að nýju
(fundurinn var haldinn 25. jan.
Athugasemd Timinn') eftir
mánaðar jólaleyfi. Teljum við. að
eitt af fyrstu verkefnum þess
verði að fjalla um þá atburði. sem
hérerum rætt, hafi byggðastefnu
hugmyndin ekki fallið meö
vinstri stjórninni. Stjórn Verka-
lýðsfélags Vopnafjarðar vill
vekja athygli alþingismanna á
þeirri staðreynd, að væru loðnu-
flutningar vel skipulagðir,
þannig, að þær verksmiðjur, sem
til eru i landinu. hefðu ætið nægi-
legt hráefni, tæki það verk-
Frh. á bls. 15