Tíminn - 02.02.1975, Qupperneq 1

Tíminn - 02.02.1975, Qupperneq 1
27. tbl. — Sunnudagur 2. febrúar 1975 — 59. árgangur. ÆNGIRr Áætlunarstaðir: Blönduós — Siglufjörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 & 2-60-66 $2 Könnun á reykingum skólabarna í Reykjavík: Níu ára börn þrælar nikótínsins FB-Reykjavfk. — Veriö er að vinna úr niöurstöðum könnun- ar á reykingum barna og ung- linga i skóium borgarinnar, sem gerð var á vegum borgar- læknisembættisins f ' Reykja- vik sl. vetur. Sérstökum spurningaiistum var dreift meðal allra skóiabarna á aldr- inum frá 9 ára til 17 ára, að báðum árum meðtöldum. Nið- urstöður könnunarinnar liggja ekki fyrir enn, en samt er Ijóst, að reykingar stúikna eru mun meiri, en búizt hafði ver- ið við, og að 2% af niu ára börnum segjast reykja. í Reykjavik eru um 1600 börn á þeim aldri samanlagt.. Á spurningalistanum eru börnin beðin uin að merkja við rétt svör meö krossi, og hvergi er getið þess, sem svarar, og ætti það að tryggja réttari út- komu, þegar viökomandi hef- ur ekki þurft að óttast að upp um hann kæmist, ef hann hef- ur reykt, en talið að enginn vissi um það. Fyrsta spurningin er um aldur þess sem svarar. Siðan er spurt að þvi, hvort viðkom- andi reyki sigarettur. Þriðja spurningin er um það, hversu margar sigarettur nemandinn reykir, reyki hann á hverjum degi, eða ef hann reykir oft, hversu margar á viku, og reyki hann ekki daglega, þá hversu margar sigarettur á mánuði. Fjórða spurningin er um það, hve mörg af bekkjarsyst- kinum skólabarnsins reyki, aðgreint stúlkur og piltar. 1 fimmtu spurningu er Samtimis þvi sem sambandið á milli reykinga og lungna- krabba og annarra hættulegra sjúkdóma verður æ Ijósara, færast reykingar I vöxt og nú er svo komið, að jafnvel nfu ára börn i skólum i Reykjavik eru farin að reykja. Tfma- mynd Róbert. grennslazt fyrir um reykingar á heimili, hvort þar sé reykt, og hverjir geri það. 1 sjöttu spurningu er spurt um það, hvort neinandinn áliti reykingar skaðlegar eða skaö- lausar. 1 sjöundu og siðustu spurn- ingunni, er svo spurt um það, hvers vegna reykingarnar hafi byrjað, hvort það hafi verið af forvitni, vegna þess að foreldrarnir reyktu, til þess að vera með félögum, sein reykja, eða vegna þess að fólki þyki það fint, (smart)? A spurningalistanum sést einn- ig, hvort sá, sein spurður er, er piltur eða stúlka. Erlent verkafólk á íslandi: Fjöldi Ástralíumanna og Nýsjálendinga í frystihúsunum hér SJ—Reykjavik. Erfitt hefur verið að fá fólk til starfa i frystihúsum úti á landi á vetrarvertið siðustu árin. Sumt af þvi fólki, sem fæst, hcfur reynzt óstöðugur vinnu- kraftur. Það hefur farið I vöxt að leitað væri eftir erlendu fólki i þessa vinnu. A.m.k. hundraö manns frá Ástraliu og Nýja Sjá- landi vinnur nú I frystihúsum á Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Svo við höfum komið okkur upp visi að „stétt erlends verkafólks”, sem fyrir löngu er orðin viður- kennd staðreynd i lifi margra Evrópuþjóða. Fólk þetta hefur reynzt vel i vinnu hér, þótt það kunni ekkert til fiskvinnu þegar það kemur. Meirihlutinn eru kon- ur og sumar koma ár eftir ár. Aö sögn Ágústs Oddssonar hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur skrifstofa fyrirtækisins i London annazt milligöngu uin ráðningu fólksins frá Astraliu og Nýja Sjálandi hingað til lands: — Þetta fólk er á ferð um Evrópu, sem það hefur i miklum metum sem menningarálfu. Flest er fólk- ið af enskuin og Irskum uppruna og hefur koiniö til Evrópu ,,að sjá gamla landið” og skoðar sig þá um viöar i leiðinni. Það ferðast oft I 4-6 mánuði á ári og fær sér vinnu einhvers staðar hinn hlut- ann úr árinu til að afla sér ferkari farareyris. London og Bretland er e.k. miðstöð þessa fólks, og þar æxlast það svo að það kemur jafnvel hingað á Evrópureisu sinni. Erlenda verkafólkið er á aldrinum 21 til 30 ára. Þeim er út- vegað húsnæði i þorpunum þar sem það vistast. Yfirleitt búa nokkrar stúlkur saman i ibúð og annast matseld fyrir sig sjálfar. „Þeim fellur ekki við okkar fæði”, var okkur sagt i einu frystihúsanna á Vestfjörðum, „og borða þvi ekki hér i mötuneyt- inu”. Að öðru leyti samlagast fólkið vel tslendingunuin og alls staðar þar sem við höfum haft spurnir af, er mjög vel af þvi lát- ið. A Tálknafirði eru 10 manns, þar af einn karlmaður, á Petreksfirði 17 stúlkur hjá tveim frystihúsum og á Súgandafirði munu vera a.in.k. 2Ö manns. Fyrstihússtjór- inn á Súgandafirði hefur að sögn lagt mikla áherzlu á að fá þetta fólk til starfa, en þar mun innlent vertiðarfólk hafa reynzt fremur illa fyrir nokkrum árum. Sagt er að svipur þorpsins á vertiðinni hafi breytzt til batnaðar. Við heyrðum einnig af áströlskum stúlkuin i fiskvinnu á Grundar- 'firði og i Hnifsdal, og þær munu raunar vera i hverju útgerðar- þorpi á Vestfjörðum. Kaupið er minnst 50.000 kr. á mánuði, en oftast sjálfsagt miklu meira, þvi vinna er á flestuin þessum stöðum. Skatta borga út- lendingarnir til jafns við innlenda starfsfólkiö. Flest um 30%, en 40% þeir sem bera mest úr být- um. HEILSUGÆZLUSTÖÐ í DOMUS MEDICA? Skipulag heimilislækninga í Reykjavík veldur þvi, að læknar fóst ekki til starfa FB-Reykjavik. — Nokkrar um- ræður hafa farið fram milli lækna og borgaryfirvalda um mögu- leika á þvi, að breyta þriðju hæð i Domus Medica i heilsugæzlustöð. Slik framkvæmd er háð fjárveit- ingu úr borgarsjóöi, og hefur hún ekki enn verið talin möguleg, að sögn Skúla Johnsen borgarlækn- is, — en málið er i gangi, og heil- brigðisráð borgarinnar hefur ver- iðað fjalia um það undanfarið, og mun taka það fyrir enn frekar á næsta fundi sinum. Að tilhlutan landlæknis og fleiri 14. janúar sl. kom fram sú al- menna skoðun, að hefja beri þeg- ar i stað tilraun með hópstarf lækna i tiltæka bráöabirgðahús- næði og jafnframt undirbúning byggingar og rekstrar slikra stöðva i Arbæjar- og Breiðholts- hverfum og viöar, þar sem þörf er mest. A þessum sama fundi mun ráðuneytisstjóri heilbrigöis- og tryggingamálaráðuneytisins hafa látið að þvi liggja, að sú fjárveit- ing, sem veitt var á siðustu fjár- lögum, merkt Árbæjarstöð, gæti orðið tiltæk til annarra og brýnni þarfa, yrði þess óskað eftir rétt- uin leiðum, enda mun mjög vafa- samt, að tilraunastarf, sem þetta yrði heppilega staðsett i Árbæjar- Framhald á bls. 27 HVAÐ GERA ÞAU í TÓMSTUNDUNUM? — HVAÐ GERA ÞAU í TÓMSTUNDUUNUM? NÝR GREINAFLOKKUR í TÍMANUM — NÝR GREINAFLOKKUR í TlMANUM TíMINN mun á næst- unni birta viðtöl við ýmsa þekkta menn i þjóðfélaginu/ og verður þar rætt um tómstunda- vinnu þeirra og hugðar- efni/ hvernig þeir verja frítíma sinum og hver viðhorf þeirra eru til slikra hluta yfirleitt. Hér er á ferðinni efni, sem mörgum lesendum mun þykja fróðlegt, því að svo margbreytileg sem störf manna eru, þá er tómstundav inna þeirra það ekki siður. Hjá sumum eru hugðar- efnin svo samofin dag- legum störf um, að erf itt virðist að greina á milli, hvað er hjáverk og hvað aðalstarf. Hjá öðrum hefur verk, sem fyrst var sinnt í hjáverkum og að nokkru til gamans, vaxið svo í höndum þeirra að það var áður en þeir vissu orðið aðal- starf. Sumir, sem vinna erilsöm störf á opinber- um vettvangi, eru svo heppnir að geta „klippt á þráðinn" — skrúfað fyrir áhyggjurnar, þeg- ar fri gefst frá daglegu amstri, aðrir hafa ef til vill aldrei haft þörf fyr- ir neina tilbreytingu, af því að starf þeirra full- nægði þeim algerlega. En þeir eru fáir. Það mun þvi kenna ýmissa grasa i þessum greinaf lokki, og vera má, að sumum lesend- um þyki ,sem ekki sé alltaf verið að tala um „hreinar" tómstundir — en hitt viljum við leyfa okkur að vona, að les- endum okkar þyki fróð- legt að kynnast því, hvernig viðmælendur okkar verja tómstund- um sínum. Þeir, sem hér verður rætt við, eru meðal ann- arra ólafur Jóhannes- son dómsmálaráðherra, dr. Finnbogi Guðmunds- son landsbókavörður, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, dr. Jakob Benediktsson, ritstjóri Orðabókar háskólans o g Vilhjálmur Hjálmarsson mennta- málaráðherra. Fleiri nöfn væri hægt að nefna, en þetta verður látið nægja að sinni. I DAG Oiatur Johannesson dómsmála- og við- skiptaiáðherra

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.