Tíminn - 02.02.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 2. febrúar 1975.
TÍMINN
Demant sendir fljótlega frá sér LP-plötu um Róbert bangsa sem
mörgum er hugleikinn. Á myndinni sjáum við einn af stofnendum
fyrirtækisins Demants hf. Jón ólafsson og leikarann Pétur Einarsson,
sem kemur fram á plötunnium bangsann oger ni.a. sÖgumaður.
Tlmamynd: G.K.
Demant hf:
Nýstofnað hljóm
plötufyrirtæki
— Change meoal stofnenda
FYRIRTÆKIÐ DEMANT HF.,
hefur sent Tfmanum fréttatil-
kynningu, en fyrirtækið er ný-
lega stofnaö. í tilkynningunni
segir, að tilgangur fyrirtækisins
sé hljóinplötuútgáfa, hljóm-
plötudreifing og einkaumboð
fyrir þær hljómsveitir og lista-
menn er hafi hljómplötugerð á
stefnuskrá sinni.
DEMANT er hagsmunafélag
stofnað af hljómsveitinni
Change, Jakobi Magússyni,
Ingigergi Þorkelssyni, Helga
Steingrimssyni, og Jóni ólafs-
syni, en þrir þeir siðasttöldu eru
jafnframt starfskraftar fyrir-
tækisins.
Demant vinnur nú að gerð
fjógurra hljómplatna og kemur
sú fyrsta á markaðinn siðari
hluta febrúarmánaðar, en það
er hljóinplata um Róbert
bangsa, sem margfrægur er
orðinn úr barnatimum út um
allan heim. Platan tekur einn
klukkutima i flutningi og á
henni koma fram margir lands-
kunnir listamenn, eins og t.d.
Halli og Laddi, Pálmi Gunnars-
son og leikararnir Pétur
Einarsson og Sigriður Hagalin.
I fréttatilkynningunni segir:
— Þetta er tvimælalaust
bezta platan um Róbert bangsa
og á henni eru 16 lög, auk þess
sem Pétur Einarsson segir sög-
una úr Leikfangalandi. Platan
er einkum ætluð börnum á aldr-
inum 2ja til 92ja ára.
Jakob Magnússon kom hingað
upp um jólin og vinnur nú að
upptöku tveggja laga plötu fyrir
Demant og eru fleiri plötur
væntanlegar frá honum i sum-
ar. Jakob er búsettur i London
og vinnur fyrir Demant þar
ásamt sinni vinnu, en Jakob er
talinn meðal beztu upprennandi
listamanna á sinu sviði, þar og
er reyndar fyrsti íslendingurinn
sem haslar sér völl erlendis sem
topp-popptónlistarmaður.
Af öðruin plötum sem eru i
bigerð hjá Demant, má nefna
hljómplötu íneð Ingva Steini, og
hljómsveitinni Dögg.
Nefna íná ennfremur að
Júdas stefnir að atvinnu-
mennsku og i þeirra hópi hefur
bætzt gitarleikari. Júdas munu
fara til útlanda um miðjan júni
n.k. til upptöku á frumsömdu
efni.
Af Change flytur Demant þær
fréttir, að þeir séu staddir er-
lendis og vinni að gerð nýrrar
LP-plötu, sem sé ætluð fyrir
alþjóðamarkað. Segir að i hópr-
inn sé kominn Björgvin Hall-
dórsson söngvari.
Fyrirtækið Demant hf. hefur
einkaleyfi fyrir alla þá lista-
menn og hljómsveit, sem nefnd-
ar hafa verið.
Knattspyrnudómara-
námskeið
Knattspyrnudómaraf élag Reykj avikur
gengst fyrir knattspyrnudómaranám-
skeiði, sem haldið verður i félagsheimili
Vals að Hliðarenda dagana 3.-9. febrúar
n.k. og hefst kl. 20.00.
Innritun fer frem um leið og námskeið
hefst.
K.D.R.
Tamning
Tek hesta i tamningu frá og með 1.
febrúar:
Einar Pétursson,
Barðastöðum, Staðarsveit, Snæfellsnesi.
VETRARUTSALAN
sem allir hafa
beðið eftir heldur
áfram á morgun í
4 verzlunum samtímis
TAKIÐ
VEL EFTIR!
I ] Við létum framleiða
Terelyne/ullarbuxur beint
á útsöluna í okkar vinsælustu
sniðum
I ] Herrapeysur ¦ Dömupeysur
Herraskyrtur - Dömublússur
Bolir - Gallabuxur • Vesti
[ | Kuldajakkar á herra og dömur,
loðfóðraðir úr flaueli og leðri
|"~| Kvenleðurjakkar - Herraleðurjakkar
D K|ólar - Pils - Kápur
| [ Föt með vesti
| | Stakir Tweedjakkar
| | Herra og dömuskór
? Hljómplötur
Látið ekki happ úr hendi sleppa!
40-60% AFSLÁTTUR
áfS^. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
tjp KARNABÆR
^¦¦F " tffKJARGOTU ? LAtir.AVFf.i ?OA LAUGAV6GI 66
Mk^Mm^