Tíminn - 02.02.1975, Blaðsíða 5

Tíminn - 02.02.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 2. febrúar 1975 TÍMINN 5 I Allur er varinn góður A Italiu rikir nú mikill spaghetti— og makkarónu- skortur. Fólk þar I landi ku þurfa aö standa I biðrööum og slást um góögætiö I búöunum, — allir nema Gina Lollobrigida. Óþekktur aödáandi leikkonunn- ar viröist hafa óttast aö heims- frægt mittismál hennar raskaö- ist, ef hún fengi ekki sinn dag- lega skammt af hveitilengjum, og þvi tók hann sig til og sendi henni 25 kiló af lostætinu I pósti. ★ ★ ★ Falleg stúlka í skrýtnu sæti! A húsgagnasýningu i Köln I Þýzkalandi á siðastliönu ári kom margt nýtt fram I hús- gagnaiðnaði, og þar á meðal þessi stóll. Það er húsgagna- teiknari frá Hamborg, Gunther Beckmann að nafni, sem hann- aöi hann. Beckmann-húsgögn vekja mikla athygli I Þýzka- landi og þykja alveg sérstök. Hann sýndi einnig svefnher- bergishúsgögn, þar sem rúmiö var á fjaörandi fótum, og á að vera mjög þægilegt. Þessi stóll „hvita blómið” er gerður úr leö- urliki og er sagöur mjög vinsæll einkum hjá ungu fólki. Vonandi gengur stúlkunni ekki mjög illa aö losa sig úr honum, en manni sýnist hún standa upp meö hann meö sér! ★ ★ ★ Á sund ofar skýjum! [) Þaö er engin ástæöa fyrir Feisal kóng I Saudi-Arabiu aö spara. Peningar streyma inn á banka- reikninga hans hvarvetna aö úr veröldinni og hann hefur enga hugmynd um i hvaö hann á að eyða olíumilljörðunum sinum, enda litil takmörk fyrir þvi sett i hvað karlinum dettur I hug aö spandera. Fyrir nokkru festi hann kaup á nýrri Boeing 707 þotu. Er veriö að ganga frá flugvélinni i verk- smiðjunum, en hún er sérstak- lega smiöuö fyrir oliukónginn og kemur ekki til meö að eiga sinn lika, fullgerö. Allt hugsanlegt óhóf veröur innréttað I þotunni. Þarveröa lOherbergi, sem gerö eru sem nákvæm eftirliking af nokkrum herbergja Feisals i konungshöllinni. Þar verður og litil sundlaug svo aö hans hágöfgi geti tekið sér bað i háloftunum ef svo vill verkast. Þarna verður einnig vinkjallari með dýrustu vinum sem hægt er að fá fyrir peninga, en þau munu ætluö gestum, þvi spá- maöurinn fyrirbýöur rétt- trúuöum aö neyta áfengis. Þá verða sjónvarpstæki I vélinni svo aö kóngur geti stytt sér stundir viö aö horfa á sjón- varpsútsendingar frá þeim löndum sem hann flýgur yfir hverju sinni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.