Tíminn - 05.02.1975, Side 1
lyftarinn
kominn
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKULATUNI 6 - SIMI (91)19460
Forseta
íslands
09
biskupi
boðið til
Kanada
HHJ-Rvik — Forseta tslands
hefur veriö boöið til Kanada
á sumri komanda til þess aö
taka þátt i hátiðahöldum þar
vestra vegna landnámsaf-
mæiisins.
Þá hefur biskupi tslands
verið boðið vestur i byrjun
október, en þá fer fram
þriðji þáttur landnámshá-
tiðahaldanna, sem hófust
með setningu þings Þjóð-
ræknisfélagsins fyrir
skömmu. Geir Hallgrlmsson
forsætisráðherra sótti þingið
ásamt konu sinni, eins og
Timinn hefur áður skýrt frá.
t för með þeim var Haraldur
Kröyer sendiherra og frú,
sem og Björn Bjarnason, að-
stoðarmaður ráðherra.
Það er og tiðinda að vest-
an, að Skúli Jóhannsson, for-
seti Þjóðræknisfélagsins,
hefur látið af störfum, en við
hefur tekið Stefán Stefáns-
son, sem nú skipuleggur
móttöku þeirra Islendinga,
sem hyggja á Kanadaför I
sumar, ásamt Ted Arnasyni,
formanni tslendingadagsins.
Forstöðumaður þess hluta
hátiðahaldanna, sem biskupi
hefur veriö boðið að sækja,
er dr. Páll Þorláksson.
tsland hefur eignazt nýjan
ræðismann I Winnipeg, þvi
að Grettir Jóhannsson hefur
hætt þvi starfi eftir 36 ár, en
við tók Alec Þórarinsson.
Aðstöðu-
missirinn
bagalegri
en tjónið
segir Guðmundur
Þórarinsson,
eigandi fiskverk
unarstöðvarinnar
sem brann í
Gerðum í fyrrinótt
Gsal-Reykjavik — Stórbruni
varö i Geröum á Suöurnesj-
um i fyrrinótt, þegar eldur
kom upp I fiskverkunarstöö
Guömundar Þórarinssonar.
Húsiö, sem var járnklætt
timburhús, brann til grunna,
en I húsinu var mikiö af full-
verkuöum saltfiski, sem
ónýttist I brunanum. Salt-
fisknum átti aö pakka um
morguninn, og er verömæti
hans taliö hafa veriö um
10-15 milljónir króna. Er þvi
Framhald á 14. siðu.
30. tbl. — Miðvikudagur 5. febrúar 1975 — 59. árgangur
ÆM6IH"
Áætlunarstaðir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
$2
Jafnvægi verður að ríkja
milli aflafjár og eyðslu
— sagði forsætisráðherra á fundi í gær, en vildi hins vegar ekki skýra frá því,
til hvaða ráða yrði gripið
HHJ-Rvik — Enn hefur rikis-
stjórnin ekki boðað til hvaöa ráða
veröi gripiö f efnahagsmálunum,
en á blaöamannafundi, sem Geir
Hallgrimsson forsætisráöherra
efndi til I gær, kom fram, aö lik-
legt væri, aö hinar fyrstu sæju
dagsins ljós skömmu eftir aö
gengiö hefur veriö frá fiskveröi.
Ekki vildi forsætisráöherra þó
segja neitt um þaö, hvaö felast
myndi i þeim aögeröum, en sagöi
aö allt kapp yröi lagt á aö hraöa
ákvöröun fiskverðs, enda mikiö
undir þvi komiö.
Geir sagði, að þær breytingar,
sem orðið hefðu á efnahag okkar
til hins verra að undanförnu,
væru meiri og hefðu gerzt með
skjótari hætti en dæmi væru til.
Höfuðorsök vandans taldi for-
sætisráðherra vera versnandi
viðskiptakjör og hið snögga verö-
fall, sem öllutn að óvörum hefði
orðið á höfðuútflutningsafurð-
um okkar.
Geir var spurður, hvort hann
teldi, að stjórnmálainenn hefðu
varað almenning við þvi i tæka
tið, hversu alvarlega væri komið
málum okkar. Hann kvaðst álita,
að svo væri, og nefndi, að ólafur
Jóhannesson viðskiptaráðherra
hefði t.d. varað við þvi hvert
stefndi, en svo væri að sjá sem al-
menningur hefði ekki viljað trúa
varnaðarorðum hans.
Forsætisráðherra sagðist telja
æskilegast, að rikisstjórnin gripi
ekki fram fyrir hendurnar á al-
menningi hvað neyzlu áhrærir, en
á hinn bóginn væri ljóst, að jafn-
vægi yrði að rikja á milli gjald-
eyrisöflunar og eyðslu þjóðarinn-
ar. Þannig verður að búa um
hnútana, að almenningur skilji,
að við verðum að halda okkur
innan þess ramrna, sem gjald-
eyristekjurnar skapa okkur,
sagði íáðherra.
Þá var á fundinum vikið að
málmblendiverksmiðjunni við
Hvalfjörð. Geir sagði, að liklega
yrði fruinvarp um það mál lagt
fram á þessu þingi.
Þá var rætt um útfærslu lögsög-
unnar I 200 mflur. Forsætisráð-
herra sagði, að útfærsla yrði ekki
ákveðin fyrr en hafréttarráðstef-
an hefði komið saman, 17. marz
til 10. mai, en taldi liklegt, að fært
yrði út einhvern
frá tiunda mai
Frh. á bls. 15
tima á bilinu
til þrettánda
Sveiflan til hins verra I efnahagsmálunum hefir komiö mjög snöggt, sagöi Geir Hallgrímsson á fundi
meö fréttamönnum f gær og þvi miöur hefur almenningur ekki viljaö trúa varnaöaroröum viöskiptaráö-
herra. Timamynd Róbert.
herra. llmamynd Kóbert.
Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður Félags ísl. iðnrekenda:
Atvinnuöryggi 10.500
manns í bráðrí hættu
— ef gengið verður skekkt enn meira en þegar er orðið
FB-Reykjavik. — Aö framleiöslu-
iönaöinum á tslandi starfa nú um
10.500 manns, eöa jafnmargt fólk
og viö fiskveiöar og fiskiönaö. Ef
gripiö veröur til einhverra til-
færslna, sem skekkja gengiö
ennþá meira en oröiö er, þá er ég
ekkert feiminn viö aö segja, aö
atvinnuöryggi alls þessa fólks er i
bráöri hættu. Ef færa á f jármagn-
iö til annars hópsins, þá sveltur
hinn, sagöi Daviö Scheving Thor-
steinsson, formaöur Félags Isl,
iönrekenda, I viötali viö Timann.
Davið sagði, að fyrir áramótin
heföi verið sagt upp fólki i þremur
iðnfyrirtækjum I Reykjavik. Væri
þar um að ræða milli 60 og 70
manns. Fyrirtækin hefðu sagt
upp fólkinu i öryggisskyni, þvi
ýmislegt hefði bent til, að þau
yrðu að hætta starfsemi sinni.
Rekstur fyrirtækjanna hefur enn
ekki stöðvazt, að sögn Davfðs, —
en hvað gerist nú, eftir dramatisk
viðtöl við Kristján Ragnarsson,
formann LttJ, i fjölmiðlum, veit
enginn. — Hinir atvinnuvegirnir
eru engu siður háðir gengisskrán-
MIKLAR RAFORKUFRAM-
KVÆMDIR Á AUSTURLANDI
Trjágróður á Eg'ilsstöðum stórskemmdur og margra ára verk
eyðilagt af völdum hláku
JK-Egilsstöðum. Nú siöustu daga
hefur veriö hláka hér um slóöir,
og hefur snjórinn sigiö allmikiö.
Fært var i gær út I Hjaltastaöa-
þinghá, á Reyöarfjörö og inn á
Velli, þar sem veriö var aö moka i
gær. Einnig hafa veriö mokaöar
aöalleiöir i þorpinu, en þaö er
mjög miklum erfiöleikum bundiö
ennþá, vegna fannfergis og mik-
illa ruöninga. Einnig er vanda-
mál, hvernig moka skuli svona
miklum snjó, án þess aö skemma
oliumölina, sem undir er. Þetta er
nýtt vandamál hjá okkur hér.
Ekki hafa orðið teljandi
skemmdir á húsuin hér I þorpinu
af fannfergi, en lóðir eru illa út-
leiknar, girðingar og snúrustaur-
ar brotið og sligað. Einnig hafa
oröið skemmdir á trjám og gróðri
Igörðuin. Og hætt er við að marg-
ir sjái i vor margra ára verk
eyðilagt. Það er sýnilegt nú, að
trjágróöur er alveg stórskemmd-
ur hér i þorpinu. Egilsstaðaþorp
er vel fallið til trjáræktar, og
hefur mikiö verk verið lagt I hana
hér i görðum á undanförnum ár-
um.
Vatnavextir hafa engir verið
hér um slóðir, það hefur ekki fylgt
nein rigning þessari hláku.
Hvergi hefur heyrzt hér um neitt
teljandi tjón af völdum vatns.
Þar sem allarloðnubræðsur eru
nú komnar I gang, haföi ég i gær
samband við Erling Garðar
Jónasson rafveitustjóra og spurði
hann uin ástandið i rafmagns-
málunum. Hann kvaö vera mikið
álag núna um þessar mundir og
allar vélar i gangi. Eigi að siður
hefur allt gengið vel, það sem af
er. Rennsli Grimsár jókst að
miklum mun i fyrrinótt, og var
hláka siðustu daga aðkoma fram.
Það hafði aukizt úr tveim rúm-
metruin i sjö rúmmetra, sem
þýðir það, aö nú getur virkjunin
framleitt tvö megavött allan sól-
arhringinn. Þegar rennslið i
henni var minnst um daginn, var
það einn rúinmetri, sein þýddi, aö
hægt var að láta virkjunina ganga
i 10—12 tima á sólarhring, og
framleiddi hún þá um 600 kw. Er-
ling Garðar sagði þvi ástandið
vera nokkuð gott núna, en eigi að
Frh. á bls. 15
ingunni en fiskveiðar og fiskiðn-
aður.
— Ég tel, að gengisskráningin
núna sé skökk. t fyrsta lagi er hún
skökk af þvi að grundvöllurinn
sem hún er reist á, er skakkur.
Sjávarútveginum, fiskveiðunum,
sem ráða miklu um gengisskrán-
inguna, er sleppt við ákaflega
mörg gjöld, nú þegar, sem gera
það að verkum, að afkoma þeirra
sýnist betri en hún raunverulega
er.
— Þetta álit ég siður en svo vera
fyrir fiskveiðarnar gert. Þetta er
þeim til bölvunar, vegna þess að
það gefur falska mynd af afkomu
þeirra og eykur kröfugerðina á
hendur þeim. Ofan á þetta bætist
svo, að nú kemur skýrsla Þjóð-
hagsstofnunarinnar og segir, að
þrátt fyrir þennan skakka grund-
völl sé ekki hægt að reka þennan
höfuöatvinnuveg áfram.
— t framleiösluiðnaðinum
vinna nú um 10.500 manns, og
veltan var yfir 30 milljarðar á s.l.
ári. Af þeirri upphæð er flutt út
fyrirrúma2milljarðaáárinu. En
með inngöngunni i EFTA og
niðurfellingu tolla er hinn stóri
heimamarkaðsiðnaöur nákvæm-
' lega jafnháður gengisskráningu
og útflutningsiðnaðurinn. Ég get
nefnt sem dæmi Hampiðjuna,
Kassagerðina og allan skipa-
smiöaiðnaðinn. Þaö er enginn
tollur á innfluttum vörum, sem
eru sambærilegar viö framleiðslu
þessara fyrirtækja, og fyrir þessa
aöila skiptir rétt skráning gengis-
ins höfuðmáli.
■ — Verði nú gripið til einhverra
tilfærslna, til þess að skekkja
gengiö ennþá meira, er atvinnu-
öryggi 10.500 manns i bráðri
hættu, sagði Davið Scheving
Thorsteinsson að lokum.