Tíminn - 06.02.1975, Qupperneq 4
TÍMINN
Fimmtudagur 6. febrúar 1975
Sá í blaði að lögreglan hafi ^
myrt hana
Astralska fyrirsætan Nancye
Cridland, sem er 24 ára gömul,
búsett i London, var ekki lítiö
hissa þegar mynd af henni birt-
ist i blaði og sagt var að hún
heföi verið skotin til bana á
grimmilegan hátt af fasistalög-
reglunni i Grikklandi.
Þetta áreiðanlega fréttablað
er gefið út i Aþenu og heitir
Avghi, sem útleggst Morgun-
roöi, og er málgagn kommún-
ista. A forsiðu blaðsins var
mynd af Nancye og var sagt, að
hún hefði verið nemandi i tækni-
skólanum I Aþenu og hefði lög-
reglan skotið hana til bana af
mikilli grimmd. Heimildarmað-
ur blaðsins, var unnusti stúlk-
unnar, Jhon Illiopulos.
En Nancye Cridland hefur
aldrei áður heyrt á þennan unn-
usta sinn minnzt, aldrei verið I
Grikklandi og aldrei stigið fæti
sinum inn fyrir dyr neins tækni-
skóla. Myndin sem kommablað-
ið birti af henni var tekin til að
auglýsa hárþvottaefni.
Þeir, sem skrifa um tizkufatnaö
gera stundum hálfgert grin að
þeim konum, sem þeim finnst
ekki hafa góðan smekk til að
velja sér föt við sitt hæfi. Stund-
um nefna þeir þá einhverjar
frægar konur sem dæmi um
ósmekklegan klæðaburð, eins
og t.d. Elizabeth Taylor,
Margréti prinsessu i Bretlandi,
systur Elizabethar drottningar
(sem þykir vist ekki klæða sig
sérlega „smart” heldur). En i
nýlegu blaði rákumst viö á upp-
talningu á þeim forsetfrúm (og
forsætisráðherrafrúm), sem
þykja sérstaklega vel klæddar.
Þar var efst á blaði sem bezt
klædda „fyrsta frú” eiginkona
Leone, Italska forsetans.
Donna Vittoria Leone er 46
ára gömul, og hér á myndinni
sjáum við hana I fallegri dragt,
sem teiknuð er af frægum
itölskum tizkuteiknara, sem
meira að segja er lika prin-
sessa, Irene Galitzine. Frú
Leone segist alltaf nota itölsk
föt, bæöi af þvi aö þau falli henni
bezt I geð, og svo auðvitað til að
styðja Italskan iðnað. Aðrir
Italskir hönnuðir og fatafram-
leiðendur, sem forsetafrúin
skiptir mikið við, nefnast Pino
Lancetti og einnig Renato
Balestra. — A þessum lista voru
næstar þær Anne Giscard
d’Estaing forsætisráðherrafrú i
Frakklandi og Imelda Marcos
frá Filipseyjum, forsetafrú.
★
Fær nú að ^
aka sjálf y
Nýjasta fréttin af Liz Taylor er
ekki um ástamál, auðlegð, á-
hyggjur vegna barna eða um
leiklist. Fréttin er sú, að leik-
konan, sem nú er 42 ára, er búin
aö taka bilpróf i fyrsta sinn á
ævinni og stóðst.það með prýði
og er búin að fá ökuskirteini. Til
þessa hafa ýmist einkabilstjór-
ar eða aðdáendur ekið Liz.
Ítalska forsetafrúin þykir bera af í klæðaburði
— Hvað er svona hlægilegt viö
að dansa rúmbu.
DENNI
DÆMALAUSI
„Taktu þetta létt Wilson. Brátt
verður þú farinn að slá gras og
reyta arfa aftur.”