Tíminn - 06.02.1975, Síða 12

Tíminn - 06.02.1975, Síða 12
12 TíMINN Fimmtudagur 6. febrúar 1975 safnaðist fólkið saman í kirkjunni, þöglara og alvörugefnara en venjulega. Allir vissu, að nú átti að fara fram minningarguðþjónusta, helguð skipshöfninni á ,,Sveu". Fólk vék hljóðlega undan, þegar dökkklæddir syrgjendurnir gengu inn kirkjugólfið. Katrín og Jóhann voru meðal kirkjugestanna, og einhver vísaði þeim til sætis innarlega í kirkjunni. Katrín settist án þess að gefa því nokkurn gaum í hvers bekk þau voru komin. Fyrst fór fram venjuleg messugerð, þó heldur styttri en títt var. Síðan steig presturinn í stólinn og horfði um hríð þegjandi yfir söfnuðinn. Allir vissu, hvað næst mundi koma. Svo las hann nöfn sjómannanna, aldur og heimilisfang, hvert af öðru, og lýsti fráfalli þeirra, sem enginn nema guð einn vissi hvar og hvenær hefði að borið. Síðan lagði hann út af orðunum: „Hafið skilaði aftur hinum dauðu". Það var undurhljótt i litlu steinkirkjunni, og lág, titr andi rödd prestsins snerti streng í hvers manns brjósti. Andspænis þessum þunga harmi þurrkaðist stéttar- og virðingarmunur út. Dauðinn hafði sameinað alla. Loks hjaðnaði beiskjan i hug Katrínar, og tárin brutust f ram í stríðum straumum. Til annarrar hliðar sat Jóhann grátbólginn, hinum megin sat gamla kapteinsfrúin og grét sinn son. Þegar presturinn lauk ræðu sinni, var enginn sá í kirkjunni, sem ekki hafði tárazt, jafnvel hrukkóttar kinnar hans sjálfs voru tárvotar. „Látum oss biðja", mælti hann skjálfraddaður. Allur söf nuðurinn grúfði sig í bæn. Herðarnar kipptust til við ekkasogin. Að bæninni lokinni risu allir á fætur og sungu sálm — upprisusálm um sigur lífsins og Ijóssins yf ir dauðanum. Tónar orgelsins hljómuðu í kirkjunni, og fólkið tók undir. Fyrst voru raddirnar veikar og skjálf- andi, en styrktust eftir þvi, sem fleiri vers voru sungin, unz öldur söngsins flæddu af meira krafti, en nokkur dæmi voru til áður um hvítmálaða hvelfingu kirkjunnar, þar sem litla skipslikanið hékk. Með þessum sálmasöng lauk athöfninni, og söfnuður- inn þyrptist út úr kirkjunni. Fólk staðnæmdist um hríð á kirkjuhvolnum að gömlum hætti. En í dag heyrðisf ekki hávært samtal. Menn tóku aðeins í höndina á syrgjend- unum, og handtökin voru hlý og innileg. Síðan hélt hver til sinnar byggðar. Margt ókunnugt fólk, bæði karlar og kerlingar, ungir menn og hefðarfrúr, réttu þeim Katrínu og Jóhanni höndina í hluttekningarskyni, þar sem þau stóðu á hvoln- um meðal annarra kirkjugesta. Á heimleiðinni gengu þau hlið við hlið og mæltu ekki orð f rá vörum. Þegar þau voru háttuð um kvöldið, grétu þau bæði í hljóði. Lífið hafði ennþá einu sinni samhæft þau í hinni miklu deiglu sinni. Einar og Gústaf Gústaf kom að venju heim um haustið. En hann var orðinn þöglari og hljóðlátari en hann hafði verið. Hann og foreldrarnir minntust sjaldan á bróðurinn, sem aldrei framar var von til að kæmi að landi í Bátvíkinni. Gústaf var vinnumaður hjá Norðkvist um veturinn. Jóhann hafði of kælzt um haustiðog var nú svo lasburða, að hann hafði ekki lengur fótavist. Hann þjáðist af þrálátum þurrahósta — sams konar hósta og Beta forðum, hugsaði Katrín. Jóhann var orðinn fáskiptnari og fámálli en hann hafði þó verið i seinni tið, og það var eins og hann væri með öllu viðskila orðinn við heiminn og mennina. Hann sat aðgerðarlaus í rúmi sínu með kodda við bakið og fylgdi Katrínu með augunum f ram og aftur um herberg- ið. Honum þótti mest gaman að skoða myndir í bókum og blöðum, sem þau gátu fengið handa honum til þess að blaða í. Annars var það helzta dægradvöl hans að leika sér að eldspýtum og búa til alls konar skrípi með þeim á brekáninu sínu. Hann var jafnvel hættur að vilja sætindi, og Katrín varð að gæla við hann eins og barn til þess að koma ofan í hann fáeinum munnbitum af mat. Einar kom heim að áliðnum vetri. Hann var sjálfum sér líkur, aðeins veðurbitnari og karlmannlegri en hann hafði verið og með lítið Ijóst yf irskegg. Hann byrjaði að vinna hjá Larsson strax daginn eftir'heimkomuna. Hann var fámáll sem fyrr og ómannblendinn og sökkti sér nið- ur í bóknám í öllum tómstundum. Báðir sváf u drengirnir heima, en fóru til vinnunnar snemma á morgnana hvern dag sem unnið var. Ekki hafði Einar verið marga daga heima, þegar hann fór niður í búðina og keypti hnífapör, diska og bolla og annað, sem þurfti til heimilishalds. Þegar heim kom, raðaði hann þessu öllu á borðið, svo að móðir hans gæti skoðað það, þögull og þungbúinn að vanda. „Ætlar þú að gefa okkur allt þetta?" spurði Katrín hik- andi. „Já —hvaðannað?" rumdi hann. „Það er kominn tími til þess, að við förum að drekka og matast eins og annað fólk". ------ w . /Ég veit ^Það fer eftir þvi, hvoít með hann ) ætlar þú með J (það ekki.........,ég get startað honum. Fimmtudagur 6. febrúar 7.00 Morgunútvarp Veöur- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Sigriöur Eyþórsdóttir lýkur við að lesa söguna „Selinn Snorra” eftir Frithjof Sælen í þýöingu Vil- bergs Júllussonar (3). Til- kynningar kl. 9.30. Þing- fréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriöa. Við sjóinn kl. 10.25: Halldór Gíslason verk- fræöingur segir frá kynnis- för fiskmatsmanna til Bandarikjanna. Popp kl. 11.00: Gfsli Loftsson sér um þáttinn. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 A frívaktinni. Margrét Guömundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Um aöstööu fatlaöra barna, — fjóröi þáttur: Menntun og fleira Umsjónarmaður: Gisli Helgason. 15.00 Miödegistónleikar. Marilyn Horne syngur arlu úr óperunni „Semiramide” eftir Rossini. Hljómsveit Covent Garden óperunnar leikur undir, Harry Lewis stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 VeöUrfregnir). Tón- leikar. 16.40 Barnatimi: Eirikur Stefánsson stjórnar.Niu ára bekkur I Langholtsskóla flytur ýmislegt efni ásamt kennara sfnum, m.a. smá- leik eftir örn Snorrason: Stríöiö I kóngsgarði. 17.30 Framburðarkennsla i ensku 17.45 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Mælt mál.Bjarni Einars- son flytur þáttinn. 19.40 Einsöngur I útvarpssal: Halldór Vilhelmsson syngur lög eftir Markús Kristjáns- son, Pál Isólfsson, Arna Thorsteinson og Karl O. Runólfsson, Guðrún Kristinsdóttir leikur á planó. 20.05 Framhaldsleikritið „Húsiö” eftir Guömund Danlelsson gert eftir sam- nefndri sögu. Fjórði þáttur: í eigin garði. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og leikendur auk höfundar, sem fer með hlutverk sögu- manns.: Aron Carl Henningsen: Gísli HaUdórs- son. Ritstjórinn: Sigurður Karlsson. Tryggvi Bólstað: Guömundur Magnússon. Katrln Henningsen: Val- geröur Dan. Frú Ingveldur: Helga Bachmann. Jóna Geirs: Kristbjörg Kjeld. Aörir leikendur: Anna Kristln Arngrimsd., Guð- björg Þorbjarnardóttir, Geirlaug Þorvaldsdóttir og Baldvin Halldórsson. 21.00 Kvöldtónleikara. Adagio og Allegro op. 70 fyrir horn og planó eftir Schumann. Georges Barboteu og Geneviéve Joy leika. b. „Miniatures” op. 75a fyrir tvær fiölur og lágfiölu eftir Dvorák. Félagar I Dvorák- kvartettinum leika. 21.30 Þjóöflutningarnir, sem sænskir sagnfræðingar gleymdu.Sveinn Asgeirsson hagfræöingur flytur þýö- ingu sína á grein eftir Vil- helm Moberg. 22.00 Fréttir. 22.15 Veöurfregnir. Lestur Passiusálma (10) 22.25 Kvöldsagan: „1 verum”, sjálfsævisaga Theódórs Friörikssonar. Gils Guðmundsson les (25). 22.45 (Jr heimi sálarlifsins Þriöji þáttur Geirs Vil- hjálmssonar sálfræðings: Sállækningar. 23.15 Létt músik á sfökvöldi 23.45 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.