Tíminn - 09.02.1975, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 9. febrúar 1975
Sunnudagur 9. febrúar 1975
Vatnsberinn: (20. jan. - 18. febr)
í dag dregur til úrslita I máli, sem þú hefur verio
efins um, hvernig mundi fara. Hér veröur um
málamiðlum aö ræða, og þú veröur sennilega
ekkert alltof hrifinn af úrslitunum, en það hefði
getað farið verr.
Fiskarnir: (19. febr. - 20. marz)
Það er eitt, sem þú skalthafa hugfast umfram
annað i dag, og það er þetta: Hver einasta til-
raun, sem þú gerir i dag til þess að komast
áfram kemur til með að bera árangur og verða
þér lærdómsrik.
Hrúturinn: (21. marz — 19. april)
I dag skaltu hafa það hugfast, aö það er afskap-
lega auðvelt að áfellast aöra og kenna þeim um
allt. En málið er bara ekki svona einfalt. Þér
bjóðast fleiri en eitt tækifæri til að gerast þátt-
takandi i einhvers konar bralli.
Nautið: (20. april - 20. mai)
Það kann að renna upp fyrir þér ljós i dag... og
þegar þú hefur gert þér staðreyndirnar ljósar,
veiztu það ef til vill, að allir eru að vinna að sin-
um málum, og þér ber aö gera slikt hið sama.
Tviburamerkið: (21. mai - 20. júní)
Það gæti oröið einhver breyting á hjá þér i dag,
og að öllum likindum stendur það i einhverju
sambandi við gamlan kunningja. Þú er önnum
kafinn, og það hindrar þig i aö gera það, sem þig
langar mest til aö gera.
Krabbinn: (21. júni - 22. júli)
Verkefnin viröast hlaðast upp hjá þér, og það er
þér fyrir beztu að reyna aö vinna þau jafnóðum,
ef þú vilt komast hjá að lenda i vandræðum með
allt saman. Fjölskyldumálin eru undir góðum
áhrifum þessa dagana.
Ljónið: (23. júli - 23. ágúst)
Þú færö einhver skilaboð, sem að öllum likind-
um valda breytingum á viöhorfum þinum til ein-
hvers málefnis. Hitt er annaö mál, að ef þú gætir
ekki itrustu varfærni, er nokkur hætta á, að þér
verði einhver skyssa á i starfinu.
Jómfrúin: 23. ágúst - 22. sept.)
Þaö litur út fyrir, að einhver vinur þinn sé sér-
lega langtniöri þessa dagana, og þú gerðir gott I
þvi aö fórna einhverjum tima hans vegna. Það
er eins og það riki einhver óvissa i sambandi við
vinnustaöinn.
Vogin: (23. sept. - 22. okt.)
Það er rétt eins og athyglin beinist skyndilega að
þér, og þess vegna skaltu vera viss um, aö
ástæðan til þess sé af jákvæðum toga spunnin.
Gremja kemur þér ekki að neinu liði, getur
skemmt aðstöðu þina.
Sporðdrekinn: (23. okt. - 21. nóv.)
Það, sem þú ert að aðhafast núna, orkar tvimæl-
is. Það getur svo sem vel verið, að þaö eigi fullan
rétt á sér, en þú ættir að gefa þessu svolitið fri og
nota tækifærið til að reyna að hafa uppbyggjandi
áhrif á aðra.
Bogmaðurinn: (22. nóv. - 21. des.)
Þú skalt ekki vera of bjartsýnn. Það eru nefni-
lega þó nokkrar likur á þvi, að þú hafir alls ekki
rétt fyrir þér, og þetta getur valdiö þér þó nokk-
urri gremju. Það er eitthvað dularfullt, sem
kemur i kjölfar nýs kunningja.
Steingeitin: (22. des. - 19. jan.)
Þaö er fjölskyldan, sem máli skiptir i dag, og þú
skalt kappkosta að leggja grundvöllinn að ýms-
um umbótum I þágu heimilisins. Þú skalt forð-
ast fólk, sem fer i skapið á þér, alveg sérstak-
lega I dag.
Til umboðsmanna
Tímans
Þeir umboðsmenn sem ekki hafa nú þegar sent
lokauppgjör fyrir árið 1974 eru vinsamlega
beðnir að gera fullnaðar skil nú þegar.
Skrifstofustjóri.
„Margt býr I þokunni”, smalinn og tröllin I fjöllunum. Teikning gerð 1957-58.
opnuð í Ásgrimssafni
Skólasýning
1 dag verður 12. skólasýning
Ásgrimssafns opnuð. Eins og
á hinum fyrri skólasýningum
safnsins er leitazt við að gera
hana sem fjölþættasta.
A sýningunni eru oliumál-
verk, vatnslitamyndir og
teikningar. Ásgrimur Jónsson
var mikill unnandi Islendinga-
og þjóðsagna, og er mikill
fjöldi þjóðsagnateikninga i
eigu safnsins, ásamt myndum
máluðum með vatnslitum.
Nokkrar þessara sagna-
mynda sýnir Ásgrimssafn
ætið á skólasýningum, og vill
með þvi gefa æskufólkinu kost
á að skyggnast inn i þann
furðuheim sem varð Ásgrimi
slikt yrkisefni i myndlistinni,
að stundum skyggði á annað
verkefni.
Sú tilraun Asgrimssafns
fyrir 12 árum aö halda sérsýn-
ingu fyrir skólafólk hefur gef-
izt mjög vel, og virðast þessar
sýningar njóta vaxandi vin-
sælda. Ýmsir skólar hafa gefið
nemendum sinum tómstund
frá námi til þess að skoða
listaverkagjöf Asgrims, hús
hans og heimili, sem er ein-
asta listamannaheimilið til
sýnis.I Reykjavik. Skólayfir-
völd borgarinnar hafa stuðlað
að heimsóknum nemenda I
söfn, enda virðist slik list-
kynning sjálfsagður þáttur I
námi uppvaxandi kynslóðar.
Sýningin er öllum opin
sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 1,30-4. Skólar
geta lika pantað ’sértima hjá
forstöðukonu Ásgrimssafns I
sima 14090. Aðgangur ókeypis.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti
74.
Búnaðarþing kanni skyldu-
tryggingu heyja, fénaðar og útihúsa
MÓ-Sveinsstöðum. A miðviku-
daginn var haldinn á Blönduósi
árlegur fundur stjórnar Búnaðar-
sambands Austur-Húnvetninga,
formanna allra hreppabúnaðar-
félaga i héraðinu og fulltrúa á
stéttarsambandsfund og búnað-
arþing. Auk málefna sambands-
ins voru ýmis önnur mál rædd og
ályktanir gerðar.
Með tilliti til þess, að sifellt ber
að höndum brunatjón á óvá-
tryggðu heyi og búfénaði, leit
fundurinn svo á, að hefja þurfi
skelegga baráttu fyrir þvi, að
bændur taki upp tryggingar I
auknum mæli. Beindi fundurinn
þvl til búnaðarþings að taka mál
þetta til meðferðar, með það fyrir
augum, að skyldutrygging verði
tekin upp á heyi, fénaði og öllum
útihúsum.
Þá hvatti fundurinn stjórnir
Búnaöarfélags Islands og Stéttar-
sambands bænda til að vera betur
á verði gagnvart óréttmætum á-
róðri, sem rekinn er gegn bænda-
stéttinni, og hafa ávallt á reiðum
höndum tölulegar staðreyndir um
gildi landbúnaðarins I þjóðarbú-
skapnum.
A miðvikudagskvöldið var siö-
an haldinn almennur bændafund-
ur á Blönduósi. Þar voru frum-
mælendur þeir Gunnar Jónasson,
forstöðumaður Byggingastofnun-
ar landbúnaðarins, og Ingvar G.
Jónsson byggingafulltrúi.
HÚSGAGNAVERZLUN REYKJAVIKUR
ARON
sófasettið
sett í sérflokki
Verð
Það er hagstœtt að verzla í
HÚSGAGNAVERZLUN REYKJAVÍKUR
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 11940