Tíminn - 14.02.1975, Page 1

Tíminn - 14.02.1975, Page 1
lyftarinn komínn HF HÖRÐUR GUNNARSSON SKULATÚNI 6-SIMI (91)19460 Iðnvaran 21% út- fíutnings Heilarútflutningur iðnaðar- vara árið 1974, nam 7.027.3 millj. kr. á móti 6.062.1 millj. árið á undan. Af heildarút- flutningi landsmanna neraur iðnaðarvöruútflutningurinn þetta árið 21% en var 25% I fyrra. Stærstu flokkarnir eru: Álogálmelmi 4.788.5millj. Vörurúrull 769.1millj. Niðursoðnar og niöurlagðar sjávarafurðir 491.2 millj. Loðsútuð skinn og ogvörurúrþeim 439.9 millj. Klsilgúr 329.3 millj. Af öðrum vöruflokkum má nefna, að málning og lökk voru flutt út fyrir 75.8 millj., fiskilinur og kaðlar fyrir 59,7 millj. og pappaöskjur fyrir 36.8 millj. Ef ullarvöruflokkurinn er athugaður kemur i ljós, að stærstu viðskiptalöndin eru, Sovétrikin með 308.7 m.kr. Danniörk með 161.2 m.kr. og Bandarikin með 101.5 m.kr. Útflutningur á ullarlopa og bandi hefur aukizt mjög mikið á árinu eða úr 100 mill- jónum árið 1973 i 237 mill- jónir 1974. Er hér um 136% aukningu að ræða reiknað i Isl. krónum. Magnið hefur á sama tima aukizt um 53%. Otflutningur á fiskilinum og köðlum hefur einnig auk- izt mjög s.l. ár og voru flutt úr 166 tonn fyrir 59.7 millj. kr. Árið 1973 nam þessi út- flutningur 41.5 tonnum og 8.9 millj. kr. Af þessum 166 tonnum fóru 107 tonn til Fær- eyja, 45 tonn til Danmerkur og 9 tonn til Noregs. Þess skal getið að hér er nær ein- göngu um að ræða fram- leiðsluvörur Hampiðjunnar hf. ÆNGIRf Áætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif Sjúkra- og leigufiug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 V. ÞRÁTT FYRIR ÓKOSTI, HEFUR GENGISFELLING ÖRVANDI ÁHRIF Á ATVINNULÍFIÐ — Meginmáli skiptir, að full atvinna haldist, sagði Ólafur Jóhannesson í umræðum á Alþingi A.Þ.-Reykjavik . Frumvarpiðum ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka tslands um gengis- breytingu, var samþykkt sem lög frá Alþingi i gær. Langar umræður urðu i neðri deild á miðvikudaginn og lýstu forsvars- menn stjórnarandstöðunnar sig þá andviga gengislækkuninni. Geir . Hallgrimsson forsætis- ráðherra fylgdi frumvarpinu úr hlaði og sagði i ræðu sinni, að rikisstjórnin hefði ákveðið að fara gengislækkunar leiðina fremur en millifærlsuleið eða að hækka skatta, þar sem að þessi leið tryggði bezt að full atvinna héldist. Einnig hefði þessi leið þann kost, að útflutningstekjur hækkuðu almennt og bætti sam- keppnisstöðu innlendrar atvinnu- starfsemi gagnvart innflutningi. Loks fæli þessi leið I sér óbreytta friverzlunarstefnu, sem væri ein meginforsenda lánstrausts á alþjóðavettvangi. Ólafur Jóhannesson viðskipta- ráðherra gerði grein fyrir þvi, hvers vegna hann hefði fallizt á gengislækkunarleiöina. Sagði hann, að millifærsluleiðin væri ekki framkvæmanleg, og ljóst, væri, að ef hún yröi farin, myndi hún leiöa til samdráttar i at- vinnulifi. Gengisfellingarleiðin myndi aftur á móti hafa örvandi áhrif á atvinnulífið, enda þótt ýmsir ókostir fylgi henni., Meginmáli skiptir að full atvinna haldist I landinu, sagði ólafur. Geir Hallgrimsson forsætis- ráðherra greindi frá þeim hliöar- ráöstöfunum, sem rikisstjórnin mun beita sér fyrir. Flutt verður frumvarp um ráðstöfun gengis- hagnaðar. Með þvi verður leitazt við að létta kostnaðarhækkanir fiskveiðiRotans. Jafnframt verða lagðar fram 75 milljónir króna til eflingar lifeyrissjóði sjómanna. Unnið verður að þvi að leysa tekjuskiptingarvandamál innan sjávarútvegsins og stefnt að þvi að koma upp hagkvæmara kerfi til að standa undir hækkuðum tryggingarkostnaði, oliukostnaði og erlendum verðhækkunum fisk- veiðiRotans eftir að kjör sjómanna hafa verið tryggð. Visitölukerfi launagreiðslna verður tekið til endurskoðunar, og launajöfnunarbætur veröa teknar til endurskoðunar. Sömuleiðis tryggingabætur. Verölagskerfi búvöru verður endurskoðað og loks mun rikis- stjórnin beita sér fyrir samdrætti I útlánaáformum fjárfestingar- lánasjóða og útgjöldum hins opin- bera. Sem fyrr segir gagnrýndu for- svarsmenn stjórnarandstöðunnar ákvöröun rikisstjórnarinnar um gengislækkun. Magnús Kjartans- son (AB) gagnrýndi sérstaklega Ólaf Jóhannesson viðskipta- ráðherra fyrir stjórn á innflutnings-og gjaldeyrismálum siðustu mánuði s.l. árs og sagði aö meira hófleysis heföi gætt I innflutningi á þvi timabili. ólafur Jóíhannesson viðskipta- ráðherra leiðrétti Magnús Kjartansson og sagði, aö fyrir lægi, að heldur hefði dregið úr innflutningi á siðustu mánuðum ársins 1974 og það, sem af er þessu ári, enda hefðu verið gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að hafa áhrif i þá átt. Nánar segir frá umræðum á þingsiðu blaösins. Winnipeg í Kanada: r íslenzkar vörur kynntar í tilefni landnámsafmælisins Fluttum út ullarvörur til Kanada fyrir 17,3 mill|ónir á s.l. ári FB-Reykjavik. Um þessar mund- ir eru staddir hér tveir innkaupa- stjórar frá stórverziuninni Eaton’s i Winnipeg. Hyggjast þeir gera hér innkaup vegna vöru- kynningar á islenzkum vörum i verzlunum þeirra á komandi hausti, en sem kunnugt er, er nú á þessu ári liðin eitt hundrað ár frá landnámi islendinga i Manitoba, og verður þess minnzt á margvis- legan hátt. Eaton's leggur sitt af mörkum með kynningu á islenzk- um vörum, en núverandi eigandi Eaton’s verzlananna er af is- lenzkum ættum. Innkaupastjórarnir tveir, sem hér eru staddir, eru frú Vade- boncoeur og Albert Johnston, og hittu blaðamenn þau að máli hjá Útflutningsmiðstöð iðnaðarins, en eitt af viöfangsefnum útflutn- ingsmiðstöövarinnar á undan- förnum árum hefur verið að skipuleggja innkaupaferðir er- lendra innkaupastjóra hingað til lands, svo og aöstoða við undir- búning kynningarstarfsemi i stórverzlunum. Hefur starfsemi þessi einkum beinzt að stór- verzlunum i Bandarikjunum og Kanada. Eaton’s vöruhúsiö i Winnipeg hefur áöur haldið miklar kynn- ingarsýningar á islenzkum varn- ingi. Arið 1973 fór fram meiri háttar kynning á islenzkum vör- um þar, og þótti sú kynning tak- ast mjög vel. Frú Vadeboncoeur sagöi, að mikill áhugi væri á islenzkum Framhald á 19. siöu Tæknideild Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins gerir tilraun með að skilja loðnuhrogn úr blóðvatninu: Gífurleg verðmæti fara i súginn með blóðvatninu FB—Reykjavik. Stærsta verk- efni nýstofnaðrar Tæknideildar Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins, og það, sem nú er i þann veginn að hefjast, er tilraun til að skilja hrogn úr blóðvatni, eða dæluvatni loðnu- bátanna. 1 næstu viku verður komið upp sérstökum búnaði hér í Reykjavik, sem verður færanlegur, þannig að hægt er að beita honum hvort sem er úti i örfirisey eða inni i Sundahöfn, að þvi er Trausti Eirlksson deildarstjóri Tæknideildar tjáði Timanum. Talið er að mikil verðmæti fari I súginn þar sem eru loðnu- hrogn, er fara i dæluvatnið við löndun loðnunnar. Er talið, að hér sé um að ræða 3% af heildarafiamagninu, en sé reiknað með þeim 400 þúsund lestum af loðnu, sem öfluðust á siðustu vertlð, ætti hér að vera um að ræða um 12 þúsund tonn. Ekki mun vera hægt að vinna allt þetta magn, en stóran hluta þess, og sé reiknað meö 80 þús- und krónum fyrir hvert tonn, er hér um að ræða verðmæti fyrir 960 milljónir króna, sem fer I súginn. Þess ber þó að geta, að ekki mun vera fyrir hendi markaður fyrir 12 þúsund tonn af mann- eldishrognum, en væri þetta aflamagn brætt yrði mjölið, sem úr þvi fengist 67 milljón króna virði. Er þvi um mjög mikil verðmæti að ræða, sem ekki eru nýtt, en ætti að vera tiltölulega auðvelt að nýta með ekki mjög miklum tilkostnaði, þar sem búnaðurinn, sem nauð- synlegur er til þessa er ekki sérlega dýr. “ Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna hefur verið með búnað svipaðan þeim, sem Tæknideild Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins ætlar nú að fara að gera tilraunir meö, en að mati starfsmanna Tæknideildarinnar hefur búnaður SH ekki verið nægilega áhrifaríkur. Telja þeir, að með endurbættum út- búnaði megi ná enn betri nýt- ingu en verið hefur til þessa. Tæknideildin boðaði til fundar með fulltrúum SH, SIS og Félags islenzkra fiskimjöls- framleiðenda, i framhaldi af þessum fyrirhuguðu tilraunum, og til umræðna um málið. Hing- að til hefur það veriö svo, að frystihúsin hafa átt þann búnað, sem hér hefur verið til, og ætl- aður til þess aö skilja hrognin úr dæluvatninu. Telja Tækni- deildarmenn, að þar sem frystihúsin nota ekki þennan búnað nema að litlum hluta þyrfti að koma á samstarfi milli þeirra og fiskimjölsverksmiðj- anna um nýtingu búnaðarins, þannig að hægt væri að nýta hann hjá báöum aðilum, eftir þvi sem vinnslu er hagað hverju sinni. Tæknideildin mun einnig fylgjast með vinnsluaðferðum á hrognum og loönu. M.a. verður fylgzt með nýjum tækjum, sem sett hafa verið i Sildarverk- smiðjur rikisins, og eru til þess að skilja vatnið úr loðnunni. Það er mjög þýðingarmikiö fyrir loönubræðslurnar, að hægt sé aö minnka það vatnsmagn, sem fer með loönunni hverju sinni inn i bræöslurnar, þvi að mjög kostnaðarsamt er að eima vatn- iö burtu, og nú þegar olíuverð hefur hækkað jafn mikið og raun ber vitni, er hvert sparað oliutonn dýrmætt. Einnig er mjög þýðingarmik- ið að kanna, hvort ekki sé hægt að spara mikiö fjármagn með þvi að einangra betur allar gufuleiðslur i fiskimjölsverk- smiðjunum, heldur en nú er gert. Hyggst Tæknideildin kanna þurrkunaraðferðir og hitatap, sem verður i verk- smiöjunum, þar sem á þvi sviði má spara miklar fjárupphæðir. i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.