Tíminn - 18.02.1975, Blaðsíða 1
lyftarinn
kominn
HF HÖRÐUR GUKNARSSON
SKULATUNI 6 - SÍMI (91)19460
Hefst orku-
sala frá
Lagarfoss-
virkjun
í vikunni?
— prófraun
vélanna ó laugar-
dag lofar góðu
J.K.—Egilsstöðum — Sá áfangi
náðist í virkjunarmálum hér
eystra á laugardaginn, að hleypt
var vatni á vélar virkjunarinnar
við Lagarfoss, og vélarnar keyrð-
ar til reynslu. Að sögn Kára
Einarssonar, verkfræðings hjá
Rafmagnsveitum rikisins, lofaði
þessi tilraun góðu og kom ekkert
neikvætt fram við prófunina.
Áætlun hafði verið gerð um það,
að prufukeyra vélar virkjun-
arinnar þann 15. febrúar og stóðst
sú áætlun upp á dag, þrátt fyrir
mjög erfiðar aðstæður i janú-
armánuði, ófærð og illviðri.
Að sögn Kára er nú útlit á þvi,
aö orkusala geti hafizt fljótlega,
jafnvel næstu daga. Unnið verður
þó áfram við virkjunina að fullum
krafti næstu tvo til þrjá mánuði,
þvi að mikil frágangsvinna er
eftir, þar á meðal mikil málning-
arvinna. Meðal annars er eftir að
setja upp sjálfstýrisbúnað virkj-
unarinnar, en henni verður
stjórnað af gæzlumönnum Grims-
árvirkjunar til að byrja með, en
við Lagarfossvirkjun verður eng-
inn maður þegar allt er frágeng-
ið.
Stórtjón í
Vatnsdal
BH-Reykjavik. — Feiknarlegt
veður gekk yfir Vatnsdal i Húna
þingi um helgina, og urðu þar
skemmdir á húsum, auk þess sem
hey og lausir munir fuku. Þykir
veður þetta með olfkindum, þar
sem þess gætti ekkert að ráði i
sveitum austan og vestan við, en
lagði einungis fram Vatnsdalinn
af feiknar krafti.
Blaðið ræddi i gær við Guð-
mund bónda i Asi i Vatnsdal, og
sagöist honum svo frá, að á laug-
ardaginn hefði gert fárviðri
nyrðra, rokið hefði verið þetta
10—12 vindstig og feiknarlegir
byljir. Hefði þá allt ætlað um koll
að keyra. 1 veðurofsanum fauk
mikið hey, og svipti ofan af heyj-
um. Einnig fuku bilar til, en ekki
er kunnugt um tjón á þeim. Hins
vegar urðu verulegar skemmdir
á mannvirkjum á mörgum bæj-
um i Vatnsdalnum.
Á Asi fauk þak af verkfæra-
geymslu, og á næsta bæ fauk stór
heyvagn til og er ónýtur. A einum
bænum voru tvær múgavélar úti
á túni, og fauk önnur upp á hina.
Heyskaðar urðu talsverðir og
tilfinnanlegir, þvi auk þess sem
fauk ofan af fúlgum rigndi ofan i
heyið: Hafa menn verið önnum
kafnir við að lagfæra hjá sér eftir
veðrið, og illmögulegt er að segja
til um, hvert tjón hefur orðið, á
þessu stigi málsins.
Rafmagnslaust var vestan
Hnausa i allan gærdag, en 2—3
rafmagnsstaurar munu hafa
brotnað i hamförunum. Þá var
einnig simalaust um tima, en ekki
var Guðmundi i Asi kunnugt um
ástæður þess, að siminn fór úr
sambandi.
XNGIRf
Áætlunarstaðir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Simar:
2-60-60 &
2-60-66
V.
/
Loðnubót-
ur á hlið-
ina í veð-
urofsa
A sunnudagskvöld voru afhent I Háskólabiói bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Finnski sendi-
herrann á tslandi veitti þeim viðtöku fyrir hönd landa sfns, Hannu Salama, sem ekki mun hafa séð
sér fært að koma til islands. Danski bókmenntafræðingurinn Torben Broström gerði grein fyrir
skáldskap Salamas og þeirri ákvörðun að veita honum verðlaunin að þessu sinni. Flutt voru í Há-
skólabiói atriði úr Þrymskviöu Jóns Ásgeirssonar undir stjórn höfundar. Loks var samkomugestum
boðið upp á hressingu, og var m.a. á boðstólum harðfiskur og slátur. Timamynd Róberts var tekin,
þegar Ragnhildur Helgadóttir afhenti finnska sendiherranum bókmenntaverölaunin.
FIAA með sitt eigið
sýningarhúsnæði?
— Sjaldan verið jafn
Sigurðsson, forma
Gsal—Reykjavik — Eftir að
Félag islenzkra myndlistar-
manna ákvað fyrir nokkru að
sniðganga Kjarvalsstaði, eiga
félagsmenn þess ekki i mörg hús
að venda með sýningar sínar.
Aður en sýningarsalirnir á Kjar-
valsstöðum voru opnaðir til
myndlistarsýninga, var oft rætt
um ófremdarástand I sýningar-
málum, og svo virðist, sem nú
sé. komið upp sama ástand og
þá var, að minnsta kosti hvað
varðar félagsmenn FÍM og þá
listamenn, sem fylgja þeirra for-
dæmi.
Að undanförnu hafa verið
haldnir margir fundir i FtM, og
eru ýmsar ráðagerðir á prjónun-
um hjá félaginu, þótt enn hafi
ekkert verið ákveðið. Komið
hefur m.a. til tals að leigja
húsnæði til sýningahalds, eða
kaupa lóð og byggja sýningarhús.
Að sögn Hjörleifs Sigurðssonar,
formanns Félags islenzkra
myndlistarmanna, hafa ýmsir
möguleikar verið ræddir innan
félagsins að undanförnu, og m.a.
verið haft á orði að kaupa lóð á
Stór Reykjavikursvæðinu, þar
sem yrðu sýningarsalir og
húsnæði fyrir alla félagsstarf-
líflegt í félaginu, segir Hjörleifur
ður FÍM
semi. Enn eru þetta þó aðeins
hugmyndir.
— Hins vegar þætti mér ekki
óeðlilegt, að við byrjuðum á að
kaupa eða leigja litið galleri, þar
sem við gætum rekið okkar starf-
semi i sambandi við sýningar.
Einnig kæmi til greina að byggja,
þótt það yrði sennilega ekki i
bráð, þvi það eru ekki glæsilegar
horfur framundan i fjármálum.
Þess vegna væri skynsamlegra
að byrja smátt.
Sagði Hjölleifur, að eins og
sakir stæðu, væri mikil vöntun á
sýningarhúsnæði, ef engar
breytingar yrðu á næstunni
varðandi Kjarvalsstaði.
— Áttu von á einhverjum
breytingum i þvi máli?
— Ég skal ekki segja, en
almennt séð er ég frekar svart-
sýnn.
Sagði Hjörleifur, að mikið væri
um fundi i félaginu um þessar
mundir, og sjaldan hefði verið
jafn liflegt og nú i félaginu.
77 félagar eru i Félagi islenzkra
myndlistarmanna, og er stærsti
hluti þess hóps starfandi lista-
menn.
Loftnet slitnaði
J.K.—Egilsstöðum — Um sjöleyt-
ið i fyrrakvöld gekk hér skyndi-
lega i vestan hvassviðri, eins og
hendi væri veifað, og var mjög
hvassthér allt fram til miönættis.
Ekki hefur þó frétzt af neinum
teljandi skemmdum i veðrinu,
nema hvað loftnet slitnaði i
endurvarpsstöð inni á Eiðum og
þvi heyrðust engar útvarps-
sendingar i fyrrakvöld og fram
eftir degi i gær.
Bátur skemmist
í Njarðvíkurhöfn
BH-Reykjavik. — S.l. laugar-
dagskvöld gekk ofsaveður yfir
Suðurnesin, og fór rafmagnið af
Keflavik og nágrenni í þrjár
klukkustundir um kvöldið. Þá
slitnaði vélbátur upp i Njarðvik-
urhöfn og rak á land og stór-
skemmdist.
Hér var um að ræða vélbátinn
Snorra KE 131. Hafði eigandinn,
Karl Þorsteinsson, farið um borð
um kvöldið, en fékk ekki við neitt
ráðið. Slitnaði báturinn upp og'
strandaði i höfninni, og þrátt fyrir
djarflegar tilraunir eigandans til
ab koma konum út úr höfninni, fór
svo að lokum, að bátinn rak upp i
fjöru, og er hann nú stórskemmd-
ur.
Snorri KE var 18 lestir, smiðað-
ur i Danmörku 1933. Hafði hann
verið leigður fyrir skömmu, og
leigutaki átti að taka við honum
næstu daga.
— dhöfninni bjargað
við verstu aðstæður
BH—Reykjavik. — Loðnubátur-
inn Járngerður GK 477 fór á
hliðina I vonzkuveðri á sunnudag-
inn. Áhöfninni 13 manns tókst að
komast I björgunarbáta, og var
þeim siðan bjargað um borð i
Þorstein RE. Um ellefuleytið i
gærmorgun var ljóst, að Járn-
gerður var sokkin. Þá hafði hana
rekið til lands, og grillti i
masturstoppa hennar 300-400 m
frá landi, rúmlega tvær sjómilur
vestan ósa Jökulsár á Breiða-
merkursandi.
Samkvæmt upplýsingum Slysa-
varnafélags Islands var hið
versta veður á loðnumiðunum
vestur af Ingólfshöfða siðari hluta
sunnudagsins. Þá var Járngerður
Frh. á bls. 15
Fé heimt
af fjöllum
gébé Reykjavik — Sjaldgæft er af
kindur gangi úti mestan hluta
vetrar á Vestfjörðum, en fyrii
stuttu fundust þrjár kindur i
Hestfirði inni i Djúpi, og voru þær
ágætlega á sig komnar, að sögn
Bjarna Kristjánssonar, bónda i
Neðri-Hjarðardal, eiganda einnai
kindarinnar.
Það var fyrir um það bil viku,
að vegagerðarmenn, sem voru að
vinna við snjómokstur, sáu þrjár
kindur i Hestfirði, en þar er engin
byggð. Létu þeir vita af þessu, og
fór bóndinn að Eyri i Seyðisfirði,
sem er næsti fjörður við Hest-
fjörð, þegar á vettvang og náði
kindunum. Reyndust þetta vera
tvö lömb og veturgömul ær, sem
Bjarni Kristjánsson átti, en hana
vantaði i haust. Atti ærin að vera
með lambi, en talið er að það hafi
farizt. Lömbin tvö átti Halldór
Agústsson á Eyri. Skepnurnar
voru allar i ágætis ástandi, þrátt
fyrir harðan vetur. Bjarni
Kristjánsson, sagði að þetta væri
mjög sjaldgæft, en ekki eins-
dæmi. Sagbi hann, að hann hefði
heimt tvö lömb, sem gengið höfðu
úti heilan vetur fyrir sex árum.
Fundust lömbin i maimánuði, vei
á sig komin.
Vélbáturinií Snorri i fjörunni i Njarðvikum. Ljosmynd: Ari Sigurðsson.