Tíminn - 20.02.1975, Qupperneq 1
Sandersnn
lyftarinn
kominn
HF HÖRÐUR GUNHARSSON
SKÚLATÚNI 6 — SÍMI (91)19460
'ÆNGIRf
Áætlunarstaðir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Bændur á
Skeiðum
hafa þurft
að kaupa
mikið af
heyi
— heyfengurinn í
sumar 28% minni
en í meðaldri
FB-Reykjavík. í»rátt fyrir þaö, að
mikið hafi verið talaö um gott
sumar og góðan heyskap hjá
bændum á siðasta sumri eru
undantekningar frá þessari hag-
sæld, þvi töluvert hefur skort á,
að bændur á Skeiðunum hafi haft
nægiiegt hey fyrir búpening sinn i
vetur. Stafar þaö af kali í túnum.
A síðasta vetri lá fshella yfir tún-
um i rúma þrjá mánuöi, og
stafaði kalið af því, að sögn Jóns
Eirikssonar bónda f Vorsabæ á
Skeiðum.
Jón Eiriksson sagði, að nokkrir
erfiðleikar hefðu verið á átta til
tiu bæjum i hreppnum, eða
fjórðungi bæja hreppsins. Hefði
þó nokkuð bætt úr vandanum
fyrningar frá fyrri árum. Sagði
Jón, að heyforðinn hefði á siðasta
hausti verið 10% minni en hann
hefði þurft að vera, og heyfengur
sumarsins hefði verið 28% minni
en i venjulegu ári. Mismunurinn
hefur svo verið bættur með fyrn-
ingunum.
Bændur keyptu strax i haust
nokkuð af heyi, og hefur það hey
fengizt úr nærsveitum og einnig
austan úr Rangárvallasýslu. 1
sumar var verðið á heykilóinu 6-7
krónur vélbundið á vellinum, en
Frh. á bls. 15
Skólasvæðið ó Egilsstöðum eins og það verður í framtíðinni
Hið fyrirhugaða skólasvæði á Egilsstöðum. Þetta er mynd af lik-
ani, sem arkitektarnir Ormar Þór Guðmundsson og örnólfur
Hali hafa látið gera. Dökku húsin á myndinni eru einbýlis- og
fjölbýlishús, sem þegar er búið að byggja, en ljósu byggingarnar
eru heimavistir, skólahús, starfsmannaíbúðir og iþróttamiðstöð.
Stóra húsið fremst á myndinni er iþróttamiðstöðin, og sést sund-
laugin fyrir framan hana. Efst til hægri eru þrjú heimavistar-
hús, og fyrir neðan þau sjálft kennsluhúsnæðið, og þar verður
einnig bókasafnið til húsa. Löngu byggingarnar efst á miðri
mynd ofanvert, eru heimavistir, mötuneyti og eldhús, en þaö
verður fyrsti áfanginn. Þar fyrir neðan eru svo starfsmanna-
ibúðirnar, ýmist einbýlis- eða parhús. Stærð mötuneytis og
heimavistaráfanga þess, sem framkvæmdir eiga senn að hefjast
við, er átta hundruð fermetrar að grunnfleti á einni tii fjórum
hæðum, þannig að gólfflötur verður alls um 2500 fermetrar, en
heildarrúmmál 8200 rúmmetrar.
Jósafat stefnir:
VILMUNDUR HLJÓTI
ÞYNGSTU REFSINGU
TILRAUNIR MEÐ
SNJÓBLÁSARA
VESTRA
gébé—Reykjavik — Nú er
verið að gera tilraunir með
snjóblásara á Botnsheiði og
Breiðadaisheiði, en þar er sem
kunnugt er mjög snjóþungt og
heiðarnar báðar lokaðar allan
veturinn. Timinn hafði
samband við Björn Ólafsson,
umdæmisstjóra Vegagerðar
rikisins á isafirði.
Björn sagði, að þetta væri
algjör tilraunastarfsemi, sem
væri nýlega hafin. Við erum
að þreifa fyrir okkur og
athuga, hvort ekki sé unnt að
nota snjóblásarana á heiðun-
um, sagði Björn. Snjórinn er
djúpur þarna, en laus i sér, og
fram að þessu hefur allt
gengið að óskum. Þetta fer þó
algjörlega eftir veðri. Þetta er
einnig i fyrsta skipti, sem
reynt er að opna heiðarnar á
þessum tima ars.
Súgandafjörður er
algjörlega einangrað byggð-
arlag yfir veturinn, og aðeins
er hægt að komast þangað sjó-
leiöina. Flateyri er betur sett
að þvi leyti, að þar er flug-
völlur, en hún er einangruð
landleiðina allan veturinn.
Notkun snjóblásarans gæti þvi
orðið framtiðarlausn fyrir
samgöngur á landi við þessa
tvo staði.
Snjóblásarar eru nú þrir i
notkun á landinu, og er sá
fjórði væntanlegur. Þeir eru
allir norskir, af Vikinggerð, og
Norðmenn hafa notað þessa
blásara með góðum árangri.
Þeir eru með 3500 hestafla vél.
Snjórinn er um þrir metrar
á dýpt á þessum stöðum, sagði
Björn Ölafsson, en það tók'
snjóblásarann fimm klukku-
stundir að ryöja vegalengd,
sem áður tók tvær jarðýtur tvo
daga.
Gsal-Reykjavik — Eins og Tim-
inn greindi frá á sinum tima,
hugðist Jósafat Arngrimsson
stefna Vilmundi Gylfasyni fyrir
ummæli hans i sjónvarpsþættin-
um „Kastljósi” þann 20. descm-
ber siðastliðinn. Jósafat hcfur
látið verða af því að stefna Vil-
mundi, og verður stefnan tekin
fyrir árdegis i dag i bæjarþingi
Reykjavikur. Auk Viimundar
hefur Jósafat stefnt Itikisútvarp-
inu, og menntainálaráðherra og
fjármálaráðherra fyrir hönd
rikissjóðs.
— Égmunaðsjálfsögðu mæta i
dómsalnum og gera grein fyrir
minu máli, sagði Vilmundur
Gylfason, þegar Timinn hafði tal
af honum i gærdag, en að öðru
leyti vildi hann ekki tjá sig um
málið.
Timinn sneri sér til Kristjáns
Eirikssonar, lögfræðings Jósafats
Arngrimssonar, og sagði hann, að
stefnan væri byggð á átta máls-
greinum, sem Vilmundur lét sér
um munn fara i sjónvarpsþættin-
um.
— Aðalpunkturinn i þessu er
sá, að Jósafat telur þessi ummæli
meiðandi og móðgandi fyrir sig,
— og hann telur þau borin fram á
opinberum vettvangi, sem sé
vitaverð háttsemi, og þar að auki
séu þessi ummæli ósönn að veru-
legu leyti. Stefnan er siðan rök-
studd nánar með tilvisunum til
hegningarlaga og almennra laga-
raka.
Kristján sagði, að þetta mál væri
það fyrsta sinnar tegundar hér á
landi, og frá lagalegu sjónarmiði
mjög athyglisvert mál. Aldrei áð-
ur hefði risið upp mál vegna um-
mæla i sjónvarpi, og væru ýmis
atriði álitamál, vegna þess að
þegar hegningarlögin hefðu verið
sett, hefðu þau verið hugsuð
vegna'þrentaðs máls.
— Það sem ég persónulega tel
vitavert i þessu sambandi er það,
að mér finnst Vilmundur hafa
gerzt offari, þ.e. gengið alltof
langt. Ég vil hins vegar halda þvi
fram, að heimilt sé að sjálfsögðu
að skýra frá refsimálum og öðru
sliku á þessum vettvangi, en það
sé ekki hægt að taka einstaka
menn fyrir á þann hátt sem Vil-
mundur gerði i umræddum sjón-
varpsþætti.
Að sögn Kristjáns krefst Jósa-
fat þess, að ummæli Vilmundar
verði dæmd dauð og ómerk og að
Vilmundur verði dæmdur I
þyngstu löglega refsingu fyrir
þau.
Samkvæmt kröfu Jósafats ætti
þvi að hneppa Vilmund i varðhald
fyrir ummæli sin.
— Þetta er nú fyrsta brot, og
þvi má ætla, að refsingin verði
ekki nema einhver sekt, sagði
Kristján.
Jósafat telur enn fremur, að
ummæli Vilmundar séu brot á
229. grein hegningarlaganna um
friðhelgi einkalifs. Þá telur Jósa-
fat, að vitavert sé að birta slik
ummæli, nema fyrst sé leitað
samþykkis viðkomandi, og að
viðkomandi fái tækifæri til að
svara fyrir sig á sama stað á
sömu stundu. Enn fremur krefst
Jósafat einnar milljónar króna i
miskabætur, og þeirri kröfu bein-
ir hann bæði að Vilmundi, Rikis-
útvarpinu og rikissjóði.