Tíminn - 02.03.1975, Qupperneq 3

Tíminn - 02.03.1975, Qupperneq 3
Sunnudagur 2. marz 1975 TÍMINN 3 Mikið virðist ganga á á heimili rosknu hjónanna, I leikriti Guð- mundar Steinssonar, Lúkasi. Myndin var tekin á æfingu. Timamynd: Gunnar Frumsýning d Lúkas d miðvikudagskvöld N.k. miðvikudag þann 5. marz frumsýnir Þjóðleikhúsið ieikritið Lúkas eftir Guðmund Steinsson á kjallarasviði leikhússins. Leik- stjóri er Stefán Baldursson, en leikmyndateiknari er Magnús Tóniasson myndlistarmaður, og cr þetta i fyrsta skiptið, sem hann gerir leikmyndir fyrir Þjóðleik- húsið. Magnús er einn af yngri myndlistarmönnum okkar. Hann stundaði nám við lista-akademi- una i Kaupmannahöfn i nokkur ár. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar hér heima og hefur auk þess tekið þátt i mörgum samsýningum heima og erlendis. Leikendur i Lúkasi eru aðeins þrir þau: Erlingur Gislason, Guðrún Stephensen og Árni Tryggvason. Leikmunir eru mjög þýðingar- miklir i þessu leikriti, og annast Alexandra Argunova Jónsson um gerð þeirra. Lúkas er annað leikritið eftir Guðmund Steinsson, sem frum- flutt er á vegum Þjóðleikhússins. Forsetaefnið eftir Guðmund Steinson var frumsýnt árið 1964 við ágætar undirtektir. Leikfélag- ið Grima sýndi leikritið Fóstur- mold árið 1965, en það leikrit er lika eftir Guðmund. Þá sýndi Grima einig annað leikrit eftir hann tveimur árum siðar, en það nefnist Sælurikið. Ein skáldsaga hefur komið út eftir Guðmund Steinsson og nefnist hún Mariu- myndin (árið 1958). Guðmundur hefur alls skrifað 12 leikrit, en leikritið Lúkas mun hann hafa samið árið 1969 og er það sjötta leikrit höfundar. Chicagoflugið hefst d morgun Samkvæmt vetraráætlun Flug- leiða H.F. varð hlé á áætlunar- flugi Loftleiða til Chicago nokkr- ar vikur i desember og febrúar. Chicagoflugið hefst nú aftur um mánaðarmótin og verður fyrsta ferð frá Keflavik til Chicago mánudaginn 3. mars n.k. Flognar verða fyrst um sinn tvær ferðir á viku, siðdegis á mánudögum og föstudögum. Frá Chicago fara þoturnar að kveldi sama dags og koma til Keflavikur á þriðjudags- og laugardagsmorgnum. 1 flug- ferðum til Chicago verða notaðar þotur sem hafa mikið vörurými, enda gert ráð fyrir miklum vöru- flutningum á þessari flugleit Mikið af þeim vörum sem flutta eru til lslands með flugvélum ert framleiddar i nágrenni Chicago svo sem varahlutir til bila og véla. Vörusendingar frá mið- rikjunum verða þvi skemmstan tima á leiðinni um Chicago. Með sumaráætlun fjölgar sumarferð- um til Chicago og verða þrjár ferðir i viku. Allar flugferðir milli Keflavikur og Chicago, verða flognar með þotum af gerðinni DC-8-63, sem hafa sæti fyrir 249 farþega og geta auk þess flutt nokkrar lestir af vörum i hverri ferð. TP-6400 TS-100 TS-160 <•? V>K>*:CO> ******mmtmmmm 1 7 " -j '' I > HSAR VOC. í i’nont voc í /p. 4 CHANNtl ÍdýcA ■ I k (fc) r»»OfveGi»| f WOGflAM íSS, MW ^ a ffl I r TUNIWO BALANC6 ^ BTÚACK srtwso J TS-32 w 4 IWBI yS'#i CiD PIOIMEER Nú bjóöum við viðskiptavinum okkar 4 gerðir af PIONEER kassettutaekjum, þar af tvær tegundir með útvarpi, og auk þess gef um við kost á að velja úr 7 tegundum af PIONEER hátölurum sem festa má bæði á dyr bifreiðarinnar sem afturhillu. Þið kom- ið með bílinn Vitastigsmegin við Laugaveg 66 og fáið tækin sett í af fagmönnum. Viðgerða- og tækniþjónusta á staðnum. 1 ÁRS ÁBYRGÐ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.