Tíminn - 02.03.1975, Side 4

Tíminn - 02.03.1975, Side 4
TÍMINN Sunnudagur 2. marz 1975 Versti snjóbylur, sem gengið hefur yfir Norislk! Yfir heimskautabæinn Norislk á Tajmirskaga i Vestur- Siberiu hefur gengiö versti snjóbylur, sem þar hefur nokkru sinni komiö. Hann geisaöi i fjóra daga og fór vind- hraöinn upp i 120 kilometra á klukkustund og snjónum kyngdi niöur. Veöurstofan segir, aö or- sakanna sé að leita i þvi aö mætzt hafi hitabylgja frá At- lantshafi og iskaldir vindar frá Ishafinu. Norislk, sem var grundvölluö fyrir 90 árum, er ★ 3300 kílómetra götur í Moskvu Ef allar götur i Moskvu væru lagöar við enda hverrar annarrar mundu þær ná austur til Novosibirsk — hálfa leið til Kyrrahafsstrandarinnar — og ef maður færi i hina áttina, til vesturs, mundu þær ná út i At- lantshafið og vestur fyrir Ir- land. 1 heildaráætlun fyrir næstu 25-30 ár, er þó gert ráð fyrir aukningu gatnakerfisins um næstum 5000 kilometra. byggö upp meö tilliti til hinnar höröu vetrarveöráttu, og lifiö i borginni gekk þvi nokkurn veginn sinn vanagang. Meö snjóplógum héldu menn götun- um opnum, strætisvagnarnir gengu reglulega og pósturinn var borinn út á hverjum degi. Verksmiöjurnar voru einnig starfræktar og jafnvel málm- vinnslan i ofanjarðarnámunum gekk sinn gang. Norilsk stendur á flatri sléttu, þar sem mikil snjókoma er algeng. 1 útjaðri bæjarins eru há hús, sem kljúfa vindinn, og göturnar eru þannig lagðar, að vindáttin sveigist til, en við það missir stormurinn orku. ★ Bjórinn sem orkitekt Bjórinnhefur frá náttúrunnar hendi mikla hæfileika til byggingarframkvæmda i vatni. Fiskimenn i sjálfstjórnar- lýðveldinu Kareliu hafa nýtt sér þessa hæfileika bjórins. Með stiflu- og hreiðurbyggingar hans sem fyrirmynd, hafa þeir útbúið svæöi, þar sem Sik-fiskurinn, sem er eins konar lax-fiskur og er fluttur frá Siberiu, getur makað sig og hrygnt. Með þvi eru hrognin vernduð frá hinum fjölmögu óvinum i náttúrinni. Siðan er hrognunum safnað saman og þau klakin út. Með þessu fæst örari vöxtur Sik- stofnsins. ★ ★ Óvenjulegt líf hjd hvítabirni Hvitabjörninn Aika lifir skemmtilegu lifi. Aika gengur um götur bæjarins Norilsk, sem er norðan heimskautsbaugs i Sovétrikjunum, og þar skemmta henni bæði börn og fullorðnir með öllu mögulegu móti. Strjúka henni og vikja að henni góðgæti. Aika kom nýlega til Norilsk, sem i raun rettri mætti kalla fööurland hennar, þvi þar er mikið um hvitabirni. Hún kom frá suðlægri borg, Nikolayev, þar sem hún hafði fæðzt i dýragarðinum. Annars er rétt að geta þess, að hún hefði aldrei komizt á þessar norð- lægu slóðir, hefði það ekki verið vegna þess, að kvikmyndatöku- maðurinn Yuri Ledin uppgötv- aði hana, og ákvað að láta hana fara með aðalhlutverkið i kvik- mynd, sem hann er að gera um Isbirni. Aika og Ledin lögðu af stað til Norilsk til þess að hefja kvikmyndagerðina, og Ledin var þá ekki viss um, að honum tækist að fá nógu mikið af is- björnum til þess að taka nær- myndir af úti i náttúrunni sjálfri, og átti Aika þá að koma i stað villidýranna sjálfra. En þegar til kom, reyndist alls ekki erfitt að kvikmynda isbirni þama i nágrenninu. Þeir komu meira að segja alveg til mynda- tökumannanna, og fóru af miklu stolti með þau hlutverk, sem þaim voru ætluð, en afleiðingin varð auðvitað sú, að Aika slapp við allan kvikmyndaleik. Þegar búið var að gera myndina úti i auðninni sneri Aika aftur með húsbónda sinum til Norilsk. Þar settist hún að i ibúð á sjöundu hæð i fjölbýlishúsi. Hún er ekk- ert smábarn lengur, en þrátt fyrir það er hún jafnbliðlynd, og hún var fyrst sem litill húnn. Nú hefur veri ákveðið, að Aika og 10 ára göm- ul dóttir Ledins kvikmynda- gerðarmanns leiki saman i kvikmynd, sem mun bera nafn- iö Veronika og Aika. Að öllum likindum verður Aika send aftur til dýragarðsins eftir það. Hér eru Aika og Ledin að kjást fyrir utan heimili sitt. Ég held að það bezta sem við ger- um, sé að segja, að þú sért algjör fábjáni. DENNI DÆMALAUSI Mikið hlakka ég til þegar sumarið kemur, og mamma getur farið út og kjaftað við kerlingarnar yfir girðinguna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.