Tíminn - 02.03.1975, Side 20

Tíminn - 02.03.1975, Side 20
20 TÍMINN Sunnudagur 2. marz 1975 Sunnudagur 2. marz 1975 TÍMINN 21 RITHÖFUNDAR EIGA EKKI AÐ EINANGRA SIG — Er Skagafjörður fallegt hér- að, Indriði? ÞU spyrð mig um Skagafjörð. Vlst er hann fallegt hérað. En við þurfum ekki annað en koma aust- ur undir Eyjafjöll til að sjá fallegt hérað. Við Djúp er lika fallegt. Og ég man ekki betur en fallegt væri i Axarfirðinum, þegar ég var þar i slmavinnu forðum daga. Þannig á Skagafjörðurinn I harðri samkeppni, sem okkur Skagfirðingum er holl. í útlönd- um þarf hann hins vegar ekki að keppa við neitt, varla þessar stóru sléttur. Vallhólmurinn sér fyrir þvi. En Skagafjörður er ekki einvörðungu fallegur vegna landslags sins. Hann hefur orðið fallegur af fólki sinu og sögu, og svo mun um flesta átthaga. Slika átthagafegurð skilja þeir ekki, sem aka I bifreiðinni þvert yfir eða langsum eftir einu héraði. Hérað ér svo miklu meira en það, sem mætir auganu. Það er stundum gert litið úr próvinsunni (sveitinni) og þeim, sem hugsa hlýtt til hennar, eink- um hafi menn komið við i skandi- naviskum kotrikjum eða tyllt sér niður á brautarstöð i Paris. Eftir það halda menn að mykjuþefur- inn sé endanlega horfinn úr nös- um þeirra. Baráttan gegn þessum imyndaða þef er háð með einhliða uppfræðslu I æðri skólum, eins og menntaskólum, svo og háskólan- um. En próvinsan er lika i þess- um stofnunum, án fegurðar og þokka viöáttunnar. Hún kemur fram I öfgafullu pólitisku mati, og hún birtist i róttækum meinlokum hjá háskólafólki, sem gengur fús- lega undir ok dagskipunarlistar, og ber öll einkenni lokaðrar ver- aldar, þar sem samgöngurnar vantar. Solsenitsjin mundi strax kannast við sig i bókmenntatim- um I háskólanum. Svona einfalt er þetta. En þetta er ekki til umræðu. Vorum við ekki að tala um fallegt hérað? Ég ætla að skýra þetta frekar með fólkið sem býr i hér- aöinu. Það er auðvitað hluti af þeirri tilfinningu, sem maður ber til héraös. Ég er ekki endilega aö tala um ættmennin, heldur lika það fólk, sem átti sér einstaka sögu i héraðinu. Eða hvaö finnst ,,Þú lifir þegar þú ert ungur. Seinna finnurðu hvað þú hefur lifað, og það er þá, sem þetta kemur allt aftur upp i hugann og býr um sig i fallegri birtu”. — ,,Það fór ógurlegur tilfinn- ingastormur um mann, þegar Skúlaskeið bar fyrst fyrir augu, Ingjaldur i Hergilsey var lika mikið kvæði....” — Svo segir höfundur Blástar- ar og Sjötiu og niu af stöðinni meðal margs annars i þessu viðtali. Og svo nátengdur er Indriði G. Þorsteinsson æskustöðvum sinum i Skagafirði, að undirrituðum fannst einhvern veginn ekki annað koma til mála en að hefja viðræðuna með því að spyrja um fegurð þess mikla héraðs, sem mörgum hefur þótt skina A timum Lands og sona.Verið að leggja upp I veiöiferö I Arnarvatnslæk á Vatnsskaröi frá Fjalii I Sæmundarhiiö. Ljósm: Har. Pétursson. --------;------;-------------;----- Rætt við Indriða G. Þorsteinsson um bernsku hans í Skagafirði, bækur, sem hann hefur ^ skrifað og margt fleira___________ þér um Miðfjörö, þar sem ,,brá- máni skein brúna/ brims und ljósum himni”. Miðfjörður er ekki endilega undirlendi og hlið- ar. Hann er lika Steingerður i Gnúpsdal og Kormákur skáld. En hér i hundrað þúsund manna bæ eru áreiðanlega til manneskjur sem álita að þetta sé próvinsa af þvi það gerðist i Miðfirði og af þvi það snerti aldrei fóstureyðingar eöa upptökuheimilið i Kópavogi eða skort á barnaheimilum i Breiðholti, hvað þá frian sima handa þeim sem hafa undir sextiu þúsund krónum i mánaðarlaun. Jú, Skagafjörður er fallegt hér- að. Hann er hluti af æskusólskini minu, æskuvorum og æskulækj- um með silungsbröndum, auk þess samsafn manna og kvenna, sem skópuhlýjan heim löngu áð- ur en maður kynntist kuldanum fyrir utan. Liklegast hefur þetta fólk æskudaganna verið eins og annað fólk hvarvetna I heiminum, en fyrir mér eru þetta söguper- sónur, af þvi ég kynntist þvi i friði fyrir hleypidómum og hátri. Ég kynntist þvi einfaldlega áður en augu min fóru að eldast. Daginn eftir höfðu ferginið og störin fengið annan lit — Varstu ungur þegar þú upp- götvaöir þetta um Skagafjörö? — Nei. Þú lifir þegár þú ert ungur. Seinna finnurðu hvað þú hefur lifað, og það er þá, sem þetta kemur allt aftur upp I hug- ann og býr um sig i fallegri birtu. Þessu er alveg eins varið með Akureyri. Ég fluttist þangað þrettán ára, og fyrstu árin átti ég heima i Norðurgötu 15, sem er tvi lyft timburhús, járnklætt. Ég kem aldrei svo til Akureyrar, að ég fái mér ekki göngutúr framhjá þessu húsi og alveg út að horninu, þar sem Mariutúnið byrjaði. Það heitir vist Eiðsvöllur núna. Ég hefði viljað þeir kölhiöu þaö Mariutún áfram. Eftir tvö hundr- uð ár hefðu verið skrifaðar lærðar greinar um að túnið hét i höfuðið á Mariu guðsmóður. Og kannski var það svo. Norðurgatan er lika fallegt hér- að fyrir þá sem einu sinni hafa unað sér þar. Fólkið er lika hluti af ágæti hennar og landslagi, al- veg eins og i Skagafirði. Það hefur lika orðið mér til hjálpar i bók, eins og margir Skagfirðing- ar. En mér fannst Norðurgatan ekki falleg fyrr en siðar — þegar ég var farinn þaðan. Ég.hef búið viö nokkrar götur i Reykjavik, m.a. i Garðastræti 19. Mér finnst Garðastræti fallegt. Ég held ég hafi einhverntima skrifað eitt- hvað um það. Ég man i svipinn staði, sem einnig voru fallegir. Svo er um klettasnös norðanvert við Golden Gate-brúna hjá San Fransisco, þar sem menn höfðu komið upp veitingastað i sambýli við nokkra seli, garðinn fyrir framan Hótel Ritz i Nice á frönsku Rivierunni, og vötnum prýddan hvildarstað skammt frá Shanghai. En ég ég held ég muni aldrei skrifa neitt frá þessum stöðum. Sá er munurinn. — Hvaö heldur þú aö þaö hafi veriö i umhverfi þinu, sem fyrst hreif huga þinn? — Nú veit ég ökki. Ég fletti ó- Eftir komuna til Akureyrar. Ljósm: Rasmussen. gjarna upp i mér eins og lexikon. Annars held ég að það hafi verið sérstök sumarnótt i júni, sem kom mér i skilning um að Skaga- fjörður væri eitthvað annað en andrúmsloftið, sem auðvitað er nóg af i svo brjóstbreiðu landi. Við vorum að koma úr skirnar- veizlu einnar frænku minnar framan úr Tungusveit, og vorum nokkur I hóp og það var verið að syngja, þegar færi gafst fyrir skeiðsprettum. Ég var náttúrlega ekki nema stuttur patti með fæt- ur á miðjum siðum á þægasta heimilishestinum. Og þega-r við komum norður fyrir Reykjarhól- inn, og þó allra helzt þegar við komum á hæðina fyrir ofan Ytra- Skörðugil, sló rauðum og fjólu- bláum lit á fjöll og grundir, og Glaumbæjarkvislin liðaðist beint inn I miðnætursólina. Og svo var sungið um bjarta, heiða júninótt áður en næsti sprettur var tekinn inn i miðnæturroðann. Daginn eftir hafði ferginið og störin feng- ið annan lit, þegar ég sótti kýrnar niður að ánni. Ég var alltaf forvitinn um fólk á þessum árum, og er það raunar enn. Fyrsti maðurinn, sem ég man að varð til þess að ég fór að skilja að fólk er mismunandi, hét Ólafur Bjarnason. Hann hafði gaman af bókum og kom stundum heim og las þá mikiö. Hann las ýmislegt, svo sem eins og Knytt- lingu, sem siðar tapaðist, forláta bók. Svo las hann skemmtibækur, hasarfengna reyfara, sem fengu mikið á hann. Hann las auðvitað með sjálfum sér, sem kallað var, þ.e. ekki upphátt, en svo kom kannski allt i einu: Og varaðu þig nú, lafði Jane. Þessi James er svikari. Ólafur er eini maðurinn, sem ég veit til aðlesiöhefur sögur af þeirri innlifun, að taka sjálfur til máls meðál persónanna til að vara við eða skakka leikinn, þeg- ar skúrkarnir fóru hamförum. Og svo komu menn, sem sögðu sögur eða voru sögur. Æskuslóðir og uppruni — Hvar í Skagafirði var þaö, sem þú steigst þin fyrstu spor? — Það var nú i Gilhaga i Lýt- Nokkru cftir útkomu Sjötiu og niu af stööinni bjó GIsli Halldórsson söguna til útvarpsflutnings. Höf- undur og leikstjóri sitja á tali um verkið hjá gömlu Iönó. A sæluviku: Taliö frá vinstri, Pétur Hannesson, Indriöi, Guttormur óskarsson og Steingrimur Arason Ljósm: Sv. Sæmundsson A biaöamannafundi i Sviþjóö ingsstaöahreppi. Foreldrar min- ir, Anna Jósepsdóttir og Þor- steinn Magnússon, voru þá ný- veriö byrjuð búskap þar, mig minnir i tvibýli, en faðir minn fæddist i Gilhaga og ólst þar upp, og fluttist ekki þaðan fyrr en árið eftir að ég fæddist, eða 1927. Móð- ir min er dóttir Jóseps Jónssonar og Sigurbjargar Bjarnadóttur, sem bjuggu m.a. i Áshildarholti, þar sem móðir min fæddist. Jósep var bróðir Ingibjargar Jónsdóttur á Skiöastöðum, hinnar mætustu konu, en synir hennar og Hannes- ar frá Valadal voru þeir Pálmi rektor og Pétur póstmeistari á Sauðárkróki. Sigurbjörg amma min var orðin töluvert roskin þeg- ar ég man fyrst eftir henni. Hún var eina amman i minum upp- vesti, þvi hin drukknaði i Svartá skammt frá heimili sinu, Gil- haga, þegar hún var að koma frá þvi að sinna ljósmóðurstörfum I Goðdölum. Hef ég raunar alltaf saknað þessarar ömmu minnar, enda mikið um hana talað og mikið af henni látið i minum upp- vexti. En Sigurbjörg var nú á viö tvær ömmur éf þvi var að skipta, þótt við kenjarokk og eftirlætis- bam væri að eiga, sem hvergi gat boröað utan heimilis á þessum árum nema hjá henni og Ingi- gerði á Brúnastöðum. Mér fannst SigurbjÖrg aðsópsmikil og mynd- arleg, og eflaust hefur hún verið bað i augum annarra lika. Um Bjarna Skúlason föður hennar er sagt I Skagfirzkum æviskrám, að hann hafi verið „eigi viðkvæmur i lund, og lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna, ef þvi var að skipta.Eigi að slður voru til góðir eðlisþættir hjá honum”. Þá er ennfremur sagt að hann hafi gerzt „stundum fullgrófur i fasi og orðum” við vin. Um Ingi- björgu móður ömmu minnar er sagt, að hún hafi verið „geðrik kona, en kunni þó vel að stilla þvi I hóf, jafnvel að slá af, ef þess þurfti með”, og virðist á ævi- skrárritara að heyra að þess hafi þurft með á stundum. Eitt syst- kina Sigurbjargar var Þorgrimur á Starrastöðum, sem haföi þau á- hrif á Matthias Jochumsson á banabeði sinum, að Matthiás orti um hann stórbrotin erfiljóð. Man ég eftir þessu ljóði skrautrituöu uppi á vegg á heimili minu i æsku. Út af Þorgrimi er kominn Starri i Garði við Mývatn. Við höfum litið rækt frændsemina, en vitum þó vel hvor af öðrum og munum ekki láta ganga á frændsemina þótt nokkur rauðagaldur sé á milli. Jósep afi minn var sagður góö- menni. Hann missti sjónina og lifði siðustu ár sin blindur. Á þeim árum mun ég hafa komizt i kjöltu hans. En það var haft á orði að hann hefði alltaf vitað hvað mér leið þótt blindur væri. Foreldar föður mins voru Magnús Jónsson i Gilhaga og kona hans Helga Indriðadóttir, sem ég sagði þér áðan að drukkn- að hefði i Svartá. Magnús i Gil- haga hafði mikið umleikis i bú- skap sinum, var lengi forsöngvari i Goödalakirkju og hrókur alls fagnaðar á mannfundum og ölkær nokkuð, eins og fræðimenn segja. Samtlmis honum hjó einnig i Gil- haga Indriði Arnason faðir Helgu, áöur bóndi i ölduhrygg og Ira- felli. Þaðan er nafnið komið, en Gilhagasystkin létu mörg heita i höfuð hans, og við erum þvi nokkrir nafnarnir. Þær voru tvær, dætur Indriða, Helga og Monika, sem giftist Sigmundi á Vindheimum af Birtingaholtsætt. Um þær báðar ungar og ógiftar i föðurgaröi á Irafelli skrifaði Simon Dalaskáld skáldsöguna Arni á Arnarfelli og dætur hans, og gengur mikið á i þeirri sögu. Mannmargt var jafnan i Gil- haga, en gömlu fólki var gjarnan komið þangað til umönnunar, þar sem Helgu var sýnt um umsjá þess. Hún hafði lært ljósmóður- fræði i Reykjavik og*hafði þá ver- iö undir handarjaðri frænda sins Grims Thomsens, en Indriði og hann voru skyldir. Indriði mun hafa verið nokkuð harðlyndur, en raungóöur og er frásögn af hon- um i Blöndu, sem ber þvi vitni, auk þess ýms munnmæli, sem lýsa honum nokkuð en ég kann ekki að herma hér, Daniel Bruun fékk hann, gamlan mann, til að visa sér leið suður Kjöl árið 1898. Magnús tengdasonur hans fór með honum þá för. Samkvæmt fyrirsögn Indriða var merkt fyrir vörðum á leiðinni, en þær siðan hlaðnar sumarið eftir. Vöröur Framhald á bls. 28. DPD.4' StyjluyMi 1 yfja.kw.is Við upphaf kvikmvndarinnar Sjötiu og niu af stöðinni. Talið frá vinstri, Róbert Arnfinnsson, Gunnar Eyjólfsson, Friðfinnur ólafsson, Guðlaugur Rósinkranz, Indriði og Erik Balling, leikstjóri. Ljósm: Timinn GE.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.