Tíminn - 02.03.1975, Side 27

Tíminn - 02.03.1975, Side 27
Sunnudagur 2. marz 1975 TÍMINN 27 lendingum jafntefli gegn heims- meisturunum, sem máttu prisa sig sæla með að sleppa svo auð- veldlega úr höndum islenzku leik- mannanna. Jöfnunarmark Viðars var þannig lýst i Timanum: — Mitt i öllum látunum, tókst Viðari að brjóta sér leið á óskiljanlegan hátt i gcgnum vörn heimsmeistaranna og þeyta knettinum i netið af miklum krafti, þrátt fyrir að tveir menn héngu i honum og gerðu ör- væntingarfulla tilraun til að stöðva hann. Eftir leikinn sagði Viðar i blaðaviðtali: — ÉG gerði mér vonir um, að skora, er ég komst inn á linuna. Hélt siðan að ég hefði brennt af, en sem betur fór, fór knötturinn rétta leið. Það var notaleg tilfinning að sjá boltann snúast mcð ofsahraða inn í mark- ið og markvörðinn á eftir”. Fjarlægur draumur Þegar við spurðum Viðar, hvaða landsleikir honum væru minnisstæðir, sagði hann: — Það eru margir leikir mér minnis- stæðir, bæði leikir, sem okkur hefur tekizt að vinna sigur i, og einnig tapaðir leikir. Sá leikur, sem ég mun seint gleyma, er leikurinn gegn heimsmeisturun- um frá Rúmeniu, þegar við náð- um jafntefli eftir að vera 5 mörk- um undir. Þessi leikur verður mér óneitanlega eftirminni- legastur. Þá er leikurinn gegn Tékkum á Olympiuleikunum i Munchen alltaf eftirminnilegur. Það fer viss fiðringur um mig, þegar ég hugsa um hann. Við vor- um með leikinn i höndum okkar og staðan var 18:15 fyrir okkur, þegar aöeins 9 minutur voru til leiksloka og 8-liða úrslitin blöstu við okkur. Þá fóru Tékkar að leika maöur á mann og við það hrundi allt hjá okkur, og Tékkum tókst aö jafna 19:19 á siðustu sekúndum leiksins, og ná sætinu i 8-liða úrslitunum frá okkur og siöan hlutu þeir silfurverðlaunin á OL. Við vorum óheppnir i þess- um leik og öll sú mikla vinna, sem við strákarnir lögöum á okkur, fauk út i veður og vind. Undirbún- ingurinn fyrir Olympiuleikana var sá bezti, sem ég hef kynnzt hjá landsliðinu. Við strákarnir æföum mjög vel allt vorið og um sumarið og það var einstök stemning hjá leikmönnum liðsins. — Var þaö ekki stórkostleg til- finning að keppa fyrir hönd ts- lands á Olympiuleikunum, Viöar? — Jú, sérstaklega að fá að taka þátt i þessu. Þegar maður var ungur, þá fylgdist maður ávallt með OL-leikunum hverju sinni, en mig dreymdi þá aldrei, að ég ætti eftir að taka þátt i þessari miklu iþróttakeppni. Það var stórkostlegt að ganga inn á leik- vanginn i Munchen i hinum stóra hóp beztu iþróttamanna veraldar. Það voru 100 þús. áhorfendur, sem voru glaöir eins og börn, sem fögnuðu iþróttafólkinu og öll opn- unarhátiðin heppnaðist frábær- lega vel. Þetta var stórkostleg sjón, sem maður á örugglega ekki eftir að upplifa aftur. Það var skemmtilegt að leika með þeim Við komum Viöari i mikinn bobba, þegar við báðum hann að stilla upp fyrir okkur óskaliðinu hans, skipað þeim leikmönnum, sem hann héldi eftirminnilegasta að leika með i landsleikjum. Viö- ar hugsaði sig lengi um og sagði, að hann gæti stillt upp góðum lið- um. — Ef ég ég hef 5-1 vörn i huga, en sú vörn hefur verið leik- in i flestum minum landsleikjum, þá myndi ég stilla þannig upp minu óskaliði. Sigurbergur Sig- steinsson væri á miðjunni frammi og Gunnsteinn Skúlason á miðj- unni aftur. Þá kæmu þeir Ólafur Jónsson, sem vinstri bakvörður og Stefán Gunnarsson, sem hægri bakvörður og þeir Geir Hall- steinsson og Björgvin Björgvins- son, sem er minn uppáhaldsleik- maður að spila með, i hornunum. Axel Axelsson, sem byrjaði seirma að leika með landsliðinu, kæmi siðan inn i lið mitt. Þetta lið er tvimælalaust það bezta sem ég hef leikið með og jafnframt eitt það sterkasta sem við höfum átt. Það má kannski skjóta þvi hér inn i, að það eru enn miklir mögu- leikar fyrir hendi, að Viðar fái aftur tækifæri til að leika i lands- ■ liðinu með þessum leikmönnum, sem enn eru allir á bezta aldri og i fullu fjöri. En nóg um það. — En Viöar, hvaö vilt þú segja um gömlu landsliösmennina okk- ar, t.d. þá sem skipuöu islenzka landsliöiö 1964, sem vann hinn fræga sigur gegn Svium i HM- keppninni i Tékkóslóvakiu? — Ég hef ávallt borið mikla virðingu fyrir þeim leikmönnum, sem ég tel beztu handknattleiks- menn sem við höfum átt. Þeir voru geysilega góöir einstakling- ar, en ekki eins sterkir sem lið i heild. Þá skorti samæfingu og út- haldsæfingu, það kom oft fram i landsleikjum, sem þeir léku. Þeir voru taldir heimsmeistarar i fyrri hálfleik, af erlendum handknatt- leiksforráðamönnum. Þeir stóðu sig oft frábærlega vel i fyrri hálf- leik og náðu þá góðu forskoti, sem þeir misstu siðan niður i siðari hálfleik, eingöngu vegna þess að þeir voru ekki i nógu mikilli likamlegri æfingu. Ég hef oft sagt, að ef þessir leikmenn væru i fullu fjöri i dag og á þeim aldri, sem þeir voru á i HM 1964, þá væri landsliðið 1964 stórkostlegt lið — hreint „klassalið”. Áhuginn er fyrir hendi — Er takmarkiö, 100 landsleik- ir, Viöar? — Ég setti mér aldrei neitt tak- c Hann hefur brotizt* í gegnum sterkustu varnir heimsins og skorað rhark hjó beztu » markvörðum heims 'mark i upphafi. Ég gerði mig ánægðan með hvern landsleik, sem hægt var að hafa not af kröft- um minum i. Svo lengi, sem not eru fyrir mig þá verð ég með. Áhuginn er fyrir hendi, en hvort ég næ að leika 100 landsleiki, veit ég ekki. Ég set merkiö hátt og sé enga ástæðu til að leggja árar i bát, þrátt fyrir að ég hef haft mik- ið að gera. — Hefuröu séö eftir þeim tima, sem þú hefur eitt i handknattleik- inn? — Ég hef oft verið spurður að þessu. Ég hef ekki séð eftir einu einasta augnabliki, sem ég hef stundað handknattleik. Hand- knattleikurinn hefur veriö þrosk- andi fyrir mig og félagsstarfið, sem honum tilheyrir. Ég hef eign- azt marga góða vini á minum handknattleiksferli, sem er óvist að ég hefði eignazt annars staðar. Og þegar maður er byrjaður á annaö borð að stunda iþróttir, þá er erfitt að slita sig frá þeim. — Hefur ekki allur sá timi, sem þú hefur stundaö handknattleik, bitnaö á heimili þinu? — Nei, konan min hefur hvatt mig til dáða. Mér finnst mikill heiður að þvi, að geta leitað til hennar og fengið hennar álit á ýmsum vandamálum. Hún er mér mikill styrkur. tþróttasiðan óskar Viðari til hamingju með þritugsafmælið, sem hann átti sama dag og siðari landsleikurinn gegn Júgóslövum fór fram og óskar honum og konu hans, Halldóru Siguröardóttur, bjartrar framtiðar. -SOS Ekki þarf aö sökum aö spyrja, þegar Viöar er búinn aö brjótast fram hjá varnarmönnum and- stæöinganna og markiö blasir viö. Hér sést Viöar i ieik gegn itölum i undankeppni HM. Badminton-spaðar verö frá kr. 1748/- Badminton-net verð kr. 2475/- Badminton-kúlur Badminton-peysur Badminton-buxur. Póstsendum Sportvöruverzlun lngólfs óskarssonar KUpparstig 44 — Stml 11783 - Reykjavík i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.