Tíminn - 02.03.1975, Blaðsíða 30

Tíminn - 02.03.1975, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 2. marz 1975 Miklar hræringar hafa átt sér stað i is- lenzkri popptónlist undanfarna mánuði og ýmsar blikur eru á lofti hvað poppmál áhrærir. Flestir virðast þeirrar skoðunar, að áriö 1974 hafi að nokkru leyti verið timamótaár i islenzkri popptónlist. Astæöan fyrir þvi er eflaust sií, aö þá komu á markaðinn nokkrar LP- plötur frá islcnzkum popptónlistarmönnum, sem hvaöefniog upptöku snerti voru fyllilega samkeppnisfærar viö þær erlendu plötur, sem hingað koma. Hefur slikt vart gerzt i aðra tið'. i þessu sambandi nægir að nefna plölur Jóhanns G. Jóhannssonar, Change og Hljóma — og jafnvel Pelican- piötuna, sem þó var fremur ilia upp tekin. Svo viröist, sem nd fyrst sé kominn dálitill raunveruiegur ..professionáV’-bragur á is- lenzka popptónlist og ber þvi vissulega að fagna.. Hvar eru samtök popptónlistarmanna? Islenzk popptónlist er óefað i geysilegri framför og með breyttum og betri aðstæðum hér á landi a henni vonandi eftir að vaxa enn meira fiskur um hrygg. Það hefur lengi veriö eitt aðalvandamál islenzkrar popptónlistar, — og raunar staðið henni að verulegu leyti fyrir þrifum — að aðstæður allar hérlendis til hljómplötu- upptöku hafa verið steinaldar- legar, ef svo má að orði komast. Góð stUdió hafa hingað til aðeins átt heima i Utlöndum og þangað hafa þeir popptónlistarmenn, sem stefna hátt, þurft aö sækja — en þvi hafa eðlilega fylgt óheyrilega mikil fjárUtlát. Hver sæmilega skyni borinn maður sér það i hendi sdr, að þegar ein LP-plata, sem tekin er upp og unnin erlendis kostar, á milli 3 og 5 milljónir króna i framleiðslu — er það svo kostnaöarsamt, að nær öruggt má telja, að stórkostleg tap verði áUtgáfunni. Enginn má þó skilja orð min svo.aöhérsé verið að áfellast þá popptónlistarmenn, sem fariö hafa til Utlanda til upptöku og hafa verið að sækjast eftir þvi bezta, og aðeins þvi bezta, þvi slikt er að sjálfsögðu góöra gjalda vert. Hins vegar er ekki annað hægt en að furöa sig á þvi að hér á landi skulu ekki vera til nein hagsmunasamtök popptónlistarmanna, sem hefðu hugsanlega getaö sett á fót gott stUdió. Astæðan fyrir þvi að popptónlistarmenn hafa aldrei stofnað eigin samtök er þó eflaust sU, að hin sjUklega samkeppni milli hljómsveita og þá ekki siður umboðsmanna — hefur orðið til þess að hver höndin er upp á móti annarri. Þessu þarf nauðsynlega að breyta og popptónlistarmenn þurfa eigin hagsmunasamtök — ekki sizt þar sem þaö virðist vera skoðun flestra, ef ekki allra popptónlistarmanna að FIH hefur litlu áorkað þeim til framdráttar. Þrátt fyrir það að kostnaöur við plötugerð erlendis er svo mikill að það tekur engu tali, verður að viðurkennast að ein- mitt þeir — sem hafa látið sig hafa það, að stefna Ut i jafn mikið áhættuspil og utanlands- för til upptöku á plötu er — hafa haldiðnafni islenzka poppsins á lofti og unnið þvi virðingarsess i svonefndum listheimi. Hinr sem láta sér það i léttu rUmi liggja.hvort plötur þeirra. þokkalega unnar aður ei, hafa komið leiðinlegu óorð«á poppið — en illa og hroövirknislega unnar plötur eru þvi miður allt of algengar hér á landi. að verða þáttaskil i islenzkri popptónlist og um ieiö islenzkri hljómplötuUtgáfu. Gunnar Þórðarson, listamannalaun og popptónlistin Margir hafa orðiö til þess að lysa hrifningu sinni yfir þvi að Uthlutunarnefnd listamanna- launa hefur veitt Gunnari Þórðarsyni listamannalaun. 1 þvi sambandi hefur m.a. verið upphrópað, að poppið hafi nU loks fengið viöurkenningu sem listgrein! — og Slagsiöa Mbi. talaði um „menningarvita” og átti þá við Uthlutunarnefndina. Frá minum sjónarhóli hefur popptónlistin ekki þurft neina sérstaka viðurkenningu til að flokkast með öðrum listgreinum og allra sizt frá þessari Ut- hlutunarnefnd, — enda hafa þUsundir af yngri kynslóðinni sýnt fram á, aö þeir velja popptónlista fram yfir aðrar „viðurkenndar” listgreinar s.s. og skal nU bætt einni fjöður i þann mikla hatt. Popptónlistarþættir hafa alla tiðátterfitt uppdráttar i rikisUt- varpinu og raunar hefur öll létt tónlist verið þar hornreka. Þess i staö hefur verið demt yfir landslýð sinfónium og alls kyns „klassiskri” tónlist, — sem yfir höfuð nýtur sin engan veginn i mono-Utsendingum. Enda virðist það vera Utbreidd skoðun manna, að rikisUtvarpið hafi átt mestan þátt i þvi að fæla fólk frá „klassiskri” tónlist, og er sárt til þess að vita Það er engum blöðum um það að fletta, að vinnandi fólk kýs frekar létta tónlist við störf sin, heldur en þá „klassisku”. Um þessar mundir er mikið rætt um islenzkan iðnað og allir landsmenn eru hvattir til þess að kaupa frekar það sem is- lenzkt er, heldur en erlent. Allir fjölmiðlar hafa varið rUmi sinu og tima til þessara hluta, og er ekkert nema gott um það að segja. Hins vegar hefur rikisUt- varpiö svo að segja hunzað alla o eftir Gunnar Salvarsson Blikur á lofti í stúdiómálum Miklar blikur eru nU á lofti i stUdiómálum og ef að likum læt- ur munu rlsa hér upp tvö góð stUdió, áður en sumar heilsar. Þó má fastlega gera ráð fyrir að siðasta gengisfelling krónunnar hafi sett strik i reikninginn. 1 báðum tilfellunum er um framtak einkaaöiia , aö ræöa, annars vegnar Svavars Gests og hins vegar Jóns Þórs Hannessonar, Jónasar R. Jónassonar og þriöja manns. Bæði þessi stUdió verða 8-rása og þau ættu að geta komið að mestu i veg fyrir hinar kostnaðarsömu utanlands- feröir. Þá má og geta þess að Hjörtur Blöndal er si og æ að bæta tækjakost sinn og hefur hann i hyggju að komast i nýtt og betra hUsnæðiá næstunni. StUdióhans verður að visu aðeins 4-rása, en verði það vel tækjum bUnið þarf ekki að óttast annað, en það komi að góðum notum. Með þessum stUdióum hljóta bókmenntir, myndlist og fleira. lslenzkir poppunnendur þurfa þvi ekki að dásema einhverja sjö menn, sem nær aldrei hlýöa á popptónlist, — þótt þeir hafi álpazt til þess að taka mark á einhverju barna sinna, sem benti þeim á, að fulltrUá popptónlistarinnar vantaði á lista þeirra, sem’ hljóta lista- mannalaun. Og að tala um „menningarvita” i þessu sam- bandi er alveg Ut i hött — þvi þessir menn hafa engu betra skynbragð á hvað er list og hvað ekki, en aðrir. Hins vegar er ljuft til þess aövita, aö Gunnari Þórarðsyni hafa verið boðin þessi laun og fer vart milli mála, að hann er þeirra verðugur. islenzkur iðnaður — islenzk popptónlist og útvarpið RikisUtvarpinu hefur oft verið legið á hálsi fyrir eitt og annaö islenzka popptónlist — sem að sjálfsögðu er islenzkur iðnaðar) og er mönnum enn i fersku minni, þegar manni nokkrum var bannaö að taka viðtöl og ræða við popptónlistarmenn i poppþætti sinum. Seint ætlar fólk að komast i skilning um það, að fyrr eða siðar verður islenzk popptónlist Utflutningsvara, — gjaldeyrir fyrirokkar tóma gjaldeyrissjóð. Að minum dómi ber mikla nauðsyn til þess að gera vel við islenzka poppið og dagblöðin hafa öll gert sér grein fyrir nauðsyn þess að hafa fasta poppþætti á sinum siðum, sem hafa að miklum meirihluta tekið til meöferðar islenzkt popp. A timamótaskeiði islenzkrar popptónlistar verður að gera átak til að hjálpa henni i hinni geysihörðu samkeppni við er- lenda popptónlist. Dagblöðin geta gert þetta aö hluta til — en þó er sá megingalli á gjöf Njarðar, að þeim er ekki fært að leika lögin á siðum sinum, en þau skipta nU alltént alltaf HLJÓMPLÖTUDÓMAR DOAAARI: GUNNAR GUNNARSSON ★★★★★+ FYRIR NOKKRUM árum þótti það mikill viðburður, þegar meistarinn Bob Dylan sendi frá sér nýja plötu, og var beðið með óþreyju eftir hverri plötu frá honum. Nú er öldin önnur hér á landi, þvl miöur. Þótt Dylan hafi falliö i öldudal 1970 er hann nú kominn upp á toppinn aftur, og þvi er kom- inn timi til að gömlu Dyian-að- dáendurnir hristi af sér slenið og hugsi sér til hreyfings. Blood On The Tracks er full- komlega sambærilegt við stóran hluta af þvl bezta, sem Dylan hefur gert. Textarnir eru sem fyrr hnitmiðaðir og vandaðir, — og ljóðrænir. Þeir faiia vel að lögunum og ósjálf- rátt hrifst maöur með. Gamli góði gitarhljómurinn er kominn á sinn stað aftur, og munnharpan er á sinum stað. Frábær, ósvikin, Dylanplata. ÞAÐ ER vist óhætt aö segja, að ný stór stjarna sé meðai vor, eftir að hafa hlustað á fyrstu sóioplötu Dan Fogel- bergs, Souvenirs. Það er ekki til neinn byrjendabragur á plötunni og allt sem hann gerir er gert af mikilii vandvirkni og nákvæmni. Honum til að- stoðar á þessari piötu eru kappar eins og Joe Walsh, Russ Kunkel, Al Perkins og Graham Nash, ásamt fleiri afburða hijómlistarmönnum. Tónlist Fogelbergs er hægt að rekja til Byrds, C.S.N.Y. og Manassas. Þetta eru fallegar laglínur, góður og vel raddaöur söngur, og frábært gltarspil, þar sem kassagitar Fogelbergs og rafmagnsgitar Joe Walsh eru i sérflokki. Souvenirs er einstök plata að gæðum, hrein og tær „West-Cost” tónlist, sem kemur þar fram I allri sinni dýrt. Amen. höfuðmáli. Þaö getur hins vegar rikisútvarpið. Nýr tónlistarstjóri hefur tekið við hjá rikisútvarpinu og fyrir hönd NU-timans og allra popptónlistarunnenda skora ég hér með á hann að setja á fót Is- lenzkan popptónlistarþátt, is- lenzkri popptónlist til fram- dráttar. Þaö gæti oröið mikils virði. Nýjar hljómsveitir NU, sem endranær skjóta nýjar hljómsveitir upp kollinum og eru margar þeirra mjög at hyglisverðar. Miklar vorir eru bundnar við hljómsveitina Borgis, sem skipuö er þremur fyrrverandi Birtumeðlimum og Ara Jónssyni, trommuleikara og söngvara Ur Roof Tops. Hljómsveitin Eik hefur breytzt mikið eftir að nýjir meðlimir bættust i hópinn og hafa þeir aukið mikið við hróður sinn á siðustu vikum. NámfUsa Fjóla, Dögg og fleiri hljóm- sveitir eru sifellt að sækja i sig veðrið og má búast við miklu. frá þeim, þegar fram i sækir. Hljómplötuhlustun og tollar af plötum. Það er kunnara en frá þurfi að segja, aðhækkanir á vörum og þjónustu hafa skollið á landann eins og grimmilegar flóðbylgjur að unanförnu.' Poppunnendur fara eðlilega ekki varhluta af þessum hækkunum frekar en aörir og talið er aö næst þegar LP-plötur koma i verzlanir muni þær kosta um 2000 krónur hvert eintak. Þetta eru miklir fjármunir fyrir fólk, sem aö bróöurparti er ungt og hefur ekki úr miklu að spila. En hvers vegna er verið að kvarta? Er ekki eölilegt, að plötur hækki eins og hver annar varningur? Jú, i sjálfu sér er það ekkert óeðlilegt. Hins vegar er óeðli- legt, að ekki skuli vera lækkaður tollur af plötum, — eins og gert er um annan vaming, sem talinn er hafa list- rænt gilti. Hljómplötuhlustun er senni- lega almennasta áhugamál þorra ungra lslendinga — og þvi væri fróðlegt fyrir þennan stóra hóp að heyra rök yfirvalda um það, hvers vegna hljómplötur eru ekki i sama tollflokki og „listrænar” vörutegundir. Það skyldi þó ekki vera, að starfs- menn tollyfirvalda séu „menningarvitar” sem ákveöa i leynd hvað er list og hvað ekki? Er virkilega ekki kominn timi til þess, að við sem unnum popptónlist fáum að sitja við sama borð og aðrir listhafar? Af hverju látið þið aldrei i ykkur heyra? Það hefur vissulega vakið nokkra undrun, að popptónlistarmenn láta nær aldrei i sér heyra — þrátt fyrir þau ýmsu vandamál og órétt- lætismál, sem þeir eru beittir. Hvemig væri að þið risuð úr dvalanum og kæmuð fram með skoðanir um ykkar mál. Orðið er laust. Nú-tímlnn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.