Tíminn - 06.03.1975, Blaðsíða 1
vélarhitarinn
ífrostiogkulda
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKLILATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
ÆHGIR"
V
Aætiunarstaðir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búöardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
/
Skipbrotsmenn of ísleifi VE og þorri björgunarsveitormanno
LETU FYRIRBERAST
INGÓLFSHÖFÐA í
A
NÓTT
Gsal-Reykjavik — Skip-
brotsmennirnir tólf af
ísleifi VE-63, sem
strandaði i fyrrinótt um
3,8 sjómilur vestur af
Ingólfshöfða, létu fyrir
berast i björgunarskýl-
inu á Ingólfshöfða i nótt
ásamt þorra björgunar-
sveitamanna úr öræf-
um. Aftakaveður hafði
verið á þessum slóðum
allt frá því ísleifur
strandaði, en I gær-
kvöldi var veðrið byrjað
að ganga niður. Má þvi
ætla, að tilraun verði
gerð til að ná bátnum á
flot í dag, en varðskip
hefur verið skammt frá
strandstað siðan klukk-
an sex i gærmorgun.
Isleifur VE-63 strandaði
skammt vestur af Ingólfshöfða á
fyrsta tfmanum í fyrrinótt. Slysa-
vamafélagi íslands var tilkynnt
um strandið kl. 1.15, og lét það
þegar boð Ut ganga til björgunar-
sveitarinnar i öræfum um að
halda á strandstað. Björgunar- .
sveitin brá skjótt við og hélt af
stað, en varð að snúa við rétt fyrir
neðan bæi vegna aftakaveðurs og
ófærðar, þvf að ógjörningur var
að finna leið niður sandana.
Beðið var birtingar, og kl. 6 um
morguninn var haldið af stað.
Síðan fréttist ekkert af björg-
unarsveitarmönnum fyrr en um
kl. 2.30 i gær, er þeir fundu skip-
brotsmennina. Höfðu þeir þá
verið að brjótast um 15 km leið
niður sandana I hálfan niunda
tima.
Hálfdan Henrysson, erindreki
SVFl, sagði Timanum i gær, að
hann hefði talað við skipstjórann
á Isleifi um kl. 5.30 i gærmorgun,
og þá hefði hann sagt, að skip-
verjar ætluðu að freista þess að
fara I land á fjörunni, þvi að veðr-
ið færi ' versnandi og þeir
treystu sér ekki til að vera lengur
um borð.
Kl. 7.15 fréttist næst af skip-
brotsmönnunum, og þá voru þeir
allir komnir i land, heilir á húfi.
Höfðu þeir með sér gúmmibát,
sem þeir létu fyrirberast i á sand-
inum, meðan þeir biðu björg-
unarsveitarinnar.
Varðskip kom á þessar slðir um
kl. 6 um morguninn, og kl. rétt
liðlega sjö heyrðu varðskipsmenn
I talstöð skipbrotsmanna, að allir
væru komnir i land og beim liði
vel. Eftir það rofnaði sam-
Frh. á bls. 15
Kosið í háskólan-
um í dag
HHJ-Rvik — Kosningar fara
fram i háskólanum i dag.
Kosnir verða 13 fulltrúar i
stúdentaráð og einn i háskóla-
ráð. Tveir listar eru i fram-
boði — A-listi, sem er listi
V'öku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta, og B-listi, sem er
listi vinstri manna. Kjörfund-
ur hefst klukkan niu fyrir há-
degi og honum lýkur kl. sex
siðdegis. Kosið verður I há-
tiðasal háskóians.
Skipbrotsmannaskýlið á Ingólfshöfða, en þar dvöldust inótt skipbrotsmenn af tsleifi VE-63, sem strand-
aði skammt undan höfðanum, — og þorri björgunarsveitarmanna úr öræfum, sem komu til skipbrots-
manna um miðjan dag i gær, cftir rúmiega 8 tima ferð niður sandana. Myndin var tekin, er björgunar-
sveitarmenn af öllu landinu gengu á land i Ingólfshöfða, þegar samæfing var i öræfasveit s.l. sumar —
Timamynd/ Gsal.
Göngu-
garparnir
á Hvera-
völlum
HHJ-Rvik. Göngugarparnir
niu úr flugbjörgunarsveitinni
komu til Hveravalla siðdegis i
gær. Þegar Sigurður M. Þor-
steinsson hafði samband við
þá i taistöð, létu þeir vel af
ferðinni og kváðu allt hafa
gengið vel. Þeir verða um
kyrrt á Hveravöllum i nótt og
halda siðan áleiðis i Hvitárnes
og gista i skálanum þar.
Unnið fyrir einstaklinga á
borgarkostnað
yfirverkstjóra Áhaldahúss
veitt lausn fró störfum
FB-Reykjavik. Á fundi borgar-
ráðs 28. febrúar sl. var lagt fram
endurrit úr sakadómsbók
Reykjavikur varðandi rannsókn
vegna ætlaðs misferlis I rekstri
Áhaldahúss Reykjavikur, en
rannsóknin fór fram 12. septem-
ber til 3. desember sl.. Einnig
voru lagðar fram athugasemdir
og útdráttur borgarendurskoð-
anda frá 23. desember sl. varð-
andi framangreint endurrit. Auk
þess var lögð fram greinargerð
Tómasar Gunnarssonar hdl.
varðandi þetta mál. Fundarmenn
á borgarráðsfundinum kynntu sér
greinargerðina, en siðan sam-
þykkti borgarráð að veita yfir-
verkstjóra trésmiðastofu Áhalda-
hússins Iausn úr starfi.
Björgvin Gúðmundsson óskaði
sérstakrar bókunar, þar sem
fram kom, að einstaklingar hefðu
látið vinna fyrir sig til einkaþarfa
trésmiðavinnu á verkstæði
Áhaldahússins, án þess að hafa á-
vallt greitt fullt gjald fyrir vinn-
una. Einnig að Ahaldahúsið hefði
lánað út verkfæri og efni til ein-
staklinga. Þá hefur geymsla og
ráðstöfun efnisafganga Ahalda-
hússins verið með þeim hætti, að
boðið hefur upp á að gengið væri i
birgðir efnisafganga og notað af
þeim til einkaþarfa. Engar skrif-
legar reglur hafa verið til um
vörzlu og meðferð efnisbirgða
Áhaldahússins, og yfirverkstjóri
hefurtekið ákvörðun um geymslu
Framhald á bls. 13.
Tillaga borgarfulltrúa Framsóknar í Reykjavík:
Heildarstiórn lista-
og menningarmóla
BORGARFULLTRGAR Fram-
sóknarflokksins hafa borið fram
tillögu um, að komið verði heild-
Nauðsynlegt er, að komið verði heildarskipan á stjórn lista- og menningarmála Reykjavíkurborgar.
Myndin sýnir heimili og vinnustofu Ásmundar Sveinssonar, sem allir borgarbúar þekkja. — Tlmamynd
G.E.
arskipan á stjórn lista- og menn-
ingarmála á vegum Reykjavikur-
borgar. Kjósi borgarstjórn i þvi
skyni lista- og menningarráð
Reykjavikurborgar með sama
hætti og önnur ráð og nefndir á
vegum borgarinnar.
Tillagan er svolátandi:
„Borgarstjórn samþykkir að
stofnað verði Lista- og menning-
arráð Reykjavikurborgar, er hafi
það hlutverk með höndum að
annast og hafa umsjón með þeim
þáttum, er varða listir og menn-
ingarmál á vegum Reykjavikur-
borgar.
Lista- og menningarráð skal
starfa á sama grundvelli og önnur
ráð og nefndir Reykjavikurborg-
ar, þ.e. að gera tillögur og vera
borgarstjórn til ráðuneytis i þeim
málaflokki, sem undir ráðið heyr-
ir.
Borgarstjórn felur borgarráði
að gera frekari tillögur um
starfssvið Lista- og menningar-
ráðs, en stefnt skal að þvi, að það
taki til starfa eigi siðar en um
næstu áramót”.
Framkvæmd þessarar tillögu
hefur ekki i för með sér kostnað-
axauka, þótt samþykkt yrði,
heldur sameinar al’.a starfsemi,
sem lýtur að listumog menning-
armálum undir eina stjórn. Er
sliks mikil þörf, þvi að þessi
starfsemi er orðin margþætt og
viðamikil. Meðal annars hafa
Kjarvalsstaðir opnað möguleika
til stóraukinnar lista- og menn-
ingarstarfsemi, og auk þess er
hafinn undirbúningur að bygg-
ingu borgarleikhúss.
Meðal þeirra verkefna, sem
lista- og menningarráðinu er ætl-
að að sinna, er stjórn og rekstur
Kjarvalsstaða, undirbúningur og
framkvæmd listahátiðar, aðild að
stjórn borgarleikhúss, kaup á
listaverkum, umsjón með list-
skreytingu opinberra bygginga,
Framhald á bls. 13.