Tíminn - 06.03.1975, Síða 3
Fimmtudagur 6. marz 1975
TÍMINN
3
Borgarstjóri vildi ekki
samvinnu um lausn á
f/árhaasvanda borgarinnar
FB—Reykjavik — A fundi borg-
arráðs þriðjudaginn 4. marz
lögðu Kristján Benediktsson,
Sigurjón Pétursson og Björgvin
Guðmundsson fram tillögu varð-
andi gerð fjárhagsáætlunar borg-
arinnar.
Tillagan er svohljóðandi:
„Á undanförnum árum hafa
drög að fjárhagsáætlun borg-
arinnar verið samin af sparnað-
arnefnd i samráði við forstöðu-
menn hinna ýmsu borgarstofnana
og fyrirtækja. Borgarráð hefur
siðan fengið tillögur þessara aðila
til umfjöllunar, oftast fullmótað-
ar, og þvi átt erfitt með að gera á
þeim veigamiklar breytingar.
Við yfirstandandi endurskoðun
á fjárhagsáætlun borgarinnar
samþykkir borgarráð að marka
nú þegar þá meginstefnu, sem
fylgt verður við endurskoðunina.
t þessum tilgangi ákveður
borgarráð að halda aukafund, þar
sem eingöngu verði rætt um fjár-
hagsáætlunina og stefna mörkuð
vegna endurskoðunarinnar.
Á fundinum liggi fyrir eins ná-
kvæmt og tök eru á, hve mikið fé
vantar til að endar nái saman,
miðað við núgildandi fjárhags-
áætlun og óbreyttar framkvæmd-
ir.
Borgarráð ákveði, hvernig
vandanum verði mætt með ein-
hverjum eða öllum af eftirtöldum
leiðum:
1. Auknum tekjum.
2. Auknum eða breyttum lánum.
3. Sparnaði i r^kstri.
4. Niðurskurði framkvæmda.
Drög að nýrri fjárhagsáætlun
verði siðan samin á grundvelli
þeirrar ákvörðunar, sem borgar-
ráð tekur.”
Borgarstjóri bar þá fram
breytingartillögu við tillögu þre-
menninganna, þar sem lagt var
til að gerð fjárhagsáætlunar yrði
með svipuðum hætti og verið
hefur. Var þar með hafnað sam-
vinnu við minnihlutann i borgar-
stjórn um lausn á fjárhagsvand-
ræðum borgarinnar.
Rannsókn lokið á orsökum
sprengingarinnar á
Akureyri
gébé-Reykjavik — Á miðsvetrar-
fundi Sambands islenzkra raf-
veitna, sem lauk i gær, voru lagð-
ar fram greinagerðir sérfróðra
manna, vegna sprengingar, sem
varð i húsinu að Löngumýri 20,
Akureyri i september sl., en eins
og kunnugt er, eyðilagðist húsið
gjörsamlega, er næturhitunar-
tankur sprakk i þvi. Orsakir
sprengingarinnar eru taldar þær,
að spólurofi hafi ekki rofið raf-
straum að hitatúbum, þar sem
snertur hans höfðu hitnað óeðli-
lega og segja skoðunarmenn að
spólurofinn sé veikasti hlekkur
straumrásarinnar og liklegt sé að
rofinn hafi brunnið inni. Ailar lik-
ur benda þvi til að snertur spólu-
rofans hafi brunnið saman og þar
með hafi fjarstýrisrofi og termó-
stöt orðið óvirk og vatnið i tankn-
um þvi yfirhitnað.
— þegar húsið að Löngumýri 20
gjöreyðilagðist
Sprengingin varð i húsinú að
morgni 27. september, en þá voru
dómkvaddir, af bæjarfógetanum
Akureyri, þeir Stefán Stefánsson
og Pétur Bjarnason vélaverk-
fræðingar, til að framkvæma
skoðun á vegsummerkjum og
lýsa hugsanlegum orsökum þess,
að húsið eyðilagðist i sprengingu.
Þegar komið var að húsinu i
Löngumýri 20, var það að stórum
hluta hrunið, en brak úr þvi og
annað lauslegt hafði dreifzt vitt
um nágrennið.
Athugun leiddi skjótt i ljós, að
næturhitunartankur, sem var i
kyndiklefa i kjallara hússins var
valdur að eyðileggingunni. Hófst
hreinsun á rústum hússins þegar
sama morgun undir eftirliti lög-
reglu og var sérstök aðgát höfð á
öllum hlutum er snertu upphitun
hússins. Eigandi hússins, Sig-
17 fyrirtæki sýna
á kaupstefnunni
ísl. fatnaður
FB-Reykjavik. Kaupstefnan
tslenzkur fatnaður verður haldin i
14. sinn á Loftleiðum dagana 6. til
9. marz. Á kaupstefnunni verður
sýnd vor- og sumartizka frá 17
fyrirtækjum. 1 gær var verið að
koma tizkuvörunum fyrir, og tók
þá ljósmyndari blaðsins, Róbert,
þessa mynd.
Fyrirtækin, sem að þessu sinni
taka þátt i kaupstefnunni, eru
Álafoss, Anna Þórðardóttir hf.
prjónastofa, Artemis sf. nærfata-
gerð, Bláfeldur sf., Bót hf fata-
gerð, Elgur hf Fatagerð JMJ hf.,
Fataverksmiðjan Hekla, Klæði
hf., Lady hf., Lexa —• hálsbinda-
gerð, Papey sokkaverksmiðja,
Prjónastofan Iðunn hf., Skógerðin
Iðunn, Sjóklæðagerðin hf., verk-
smiðjan Max hf., Verksmiðjan
Dúkur hf. og Vinnufatagerð Is-
lands hf.
Unnið að þvl aö koma fyrir sýningarvörum á kaupstefnunni I gær.
Myndin er af sýningarbás JMJ á Akureyri. Timamynd Róbert.
mundur Björnsson hafði verið
fjarverandi nokkurn tima, og
hafði hann áður slökkt á upphitun
næturhitunartanks, með þvi að
slökkva á handstýrðum ljósarofa.
Að kvöldi dags 25. september
kveikti sonur húseiganda aftur á
sama rofa i þeim tilgangi að hita
upp miðstöðvarvatn i tanknum.
Samkvæmt þvi kom straumur á
raftúbur kl. 21:30, þegar fjar-
stýribúnaður i aðalspennistöð, sló
inn straumi á næturhitun i hverf-
inu og upphitun tanks hófst að
nýju. Að öllu eðlilegu, var
straumur á raftúbum i 9 klst.
fram til kl. 6:30 að morgni næsta
dags, en þá skyldi f jarstýribúnað-
ur i aðalspennistöð rjúfa straum á
næturhitun i hverfinu fram til kl.
21:30 um kvöldið.
Af atvikum er ljóst, að upphitun
tanksins hefur ekki farið fram á
eðlilegan hátt og stýring upphit-
unarinnar brugðizt. Nærtækt væri
að álita að termóstöt hefðu bilað,
en það skýrir ekki þá miklu upp-
hitun er varð i tanknum, þvi hefði
önnur bilun ekki komið til, gat
hitastig i tank mest orðið 90-110
gráður C miðað við 18 tima upp-
hitun. Bilun i termóstötum verður
þvi ekki hér um kennt. Ljóst er að
varmaflutningur til kerfisins
hefur verið til muna meiri og er
ekki hægt að rekja það til annars
en bilunar i spólurofa.
Allar likur benda til, að snertur
spólurofans hafi brunnið saman
og þar með hafi fjarstýrirofi og
termóstöt orðið óvirk. Ályktun
bessa drógu verkfræðingarnir af
eftirfarandi atriðum: 1. Yfirhit-.
un miðstöðvarvatns verður rakin
til bilunar i spóiurofa. 2. Útlit
hans bendir mjög til þess að hann
hafi brunnið fastur. 3. Rofinn
vann undir mun hærra álagi um
lengri tima, en hann var gerður
fyrir og þvi ekki óeðlilegt, að
hann ofhitnaði. 4. Þess eru dæmi
að snertur i spólurofum hafi
brunnið saman og valdið yfirhit-
un miðstöðvarvatns.
Það verður þvi að teljast ljóst,
að spólurofinn hafi brunnið fastur
strax aðfaranótt 26. september og
fjarstýrirofi þvi ekki getað komið
i veg fyrir að straumur væri á
raftúbum og ekki heldur termó-
stötin siðar, þegar hitastig i tank
hafði náð innstilltu hitastigi
þeirra. Rafstraumur hefur þvi
verið inn á raftúbur allt frá kl.
21:30 25. sept. og fram til morg-
uns hinn 27. sept. þá er sprenging-
in varð, eða i 34,5 tima.
lillB
." H 1111"' I: ■ 111: i i: 1 u I lYrL
n
m
Virkjunarrann-
sóknir ó Norður-
landi vestra
Hin fyrirliugaða Kröflu-
virkjun á að geta tekið til
starfa á árunum 1976 eða 1977.
Samkvæmt orkuspá, seni gerð
hefur verið fyrir Norðurland,
verður orkan frá Kröflustöð-
inni fulinýtt árið 1982, og þá
verður aftur orkuþurrð norð-
anlands, ef ekki kemur til
meiri orka. Sjö ár eru þvi til
stefnu.
Talað hefur verið um virkj-
un Blöndu eða jökulsánna i
Skagafirði, en undirbúnings-
rannsóknir eru skammt á veg
komnar. Látið hefur veriö
uppi, að þær athuganir, sem
gerðar hafa verið á hag-
kvæmni Blönduvirkjunar,
bendi til þess, að hún sé álit-
leg. i viðtali við Timann á
laugardaginn var sagði Iiauk-
ur Tómasson jarðfræðingur,
að þrjátiu milijónum króna
þyrfti að verja til borana
vegna Blönduvirkjunar á
þessu ári, og viðlika miklu á
næsta ári, ef unnt ætti að vera
að bjóða verkið út að þeim
tima liðnum. Til þessara bor-
ana væru á hinn bóginn aðeins
ætiaðar fimm milljónir króna
á þessu ári og litið fé til ann-
arra rannsókna, og með svip-
uðu áframhaldi væri vonlaust,
að unnt yrði að hefja virkjun-
arframkvæmdir fyrr en að tólf
til fimmtán árum liðnum.
Fjdrframlög
og loforð
Svo til á sömu stundu og
þessi viðvörunarorð Hauks
Tómassonar runnu i gegn um
prentsmiöjuvélarnar, lýsti
iðnaöarráðherra yfir þvi á
fundi á Sauðárkróki, að sögn
Morgunblaðsins, að fyrir lok
þessa árs yrði tekin endanleg
ákvörðun um það, hvaða
vatnsfall i Norðurlandskjör-
dæmi vestra skyldi virkjað.
Haukur Tómasson sagöi i
tilvitnuðu viðtali, að varla
tæki þvi að hreyfa borinn, sem
nota á við rannsóknir vegna
Blönduvirkjunar, ef aðeins
fimm miiljónir króna yrðu til
ráðstöfunar i ár. Hæpið er þvi,
hverju menn verða nær um
forsendur til ákvörðunar i
haust, og þaöan af siður hefur
slik ákvörðun raunhæft gildi,
ef fjárveitingar eru svo við
nögl skornar, aö undirbún-
ingsathuganir við Blöndu
treinast i tólf til fimmtán ár,
og hver veit livað við jökulárn-
ar skagfirzku.
Hér virðist ekki allt koma
heim og saman.
G jaldheimta
og óknyttir
Reykjavik er á heljarþröm
fjárhagslega, og rafmagns-
veita bæjarins fer fram á
gifurlega hækkun á gjaldtaxta
til þess að jafna inetin hjá sér.
Samtímis eru sagðar af þvi út-
varpsfréttir, að i sumum
hverfum Reykjavikur séu
unnin skemmdarvcrk á götu-
lýsingu og öðru sliku i þeim
mæli, að nemur hundruðum
þúsunda á skömmum tima.
Áður hefur verið skýrt frá
miklum skemmdarverkum á
strætisvögnum bæjarins.
Skemmdarverk af þessu
tagi eru svo sem ekki bundin
við Reykjavik eina — fjarri
þvi. Þau eru til dæmis unnin á
umferðarmerkjum viða um
land. En þeim mun viðar sem
slikir óknyttir eru framdir,
þess meiri þörf er á þvi, að
tekið verði i taumana á þann
hátt, aö þeir finni fyrir þvi, er
sekir eru. Svona ónáttúru á
ekki að þola, og skattþegnarn-
ir, hvort heidur eru sveitarfé-
laga eða rikis. ættu að fara að
verða nokkuð langþreyttir á
þvi að láta peninga af hendi
rakna til þess að bæta speli-
virki óknyttamanna, ungra
eða fullorðinna.
Er ekki kominn timi til þess
að skera upp herör gegn svona
lýð og láta hann bera ábyrgð
gerða sinna?
—JH
Allar þrær fullar
— skip bíða losunar á flestum höfnum
gébé—Reykjavik — Um kl. 18:30 i
gærkvöldi höfðu tuttugu og eitt
skip tilkynnt ioðnunefnd um veiði
frá miðnætti á þriðjudag sent
nam samtals 4.780 tonnum. Veður
var tekið að lægja, er leið á dag-
inn i gær, og var orðið ágætt
veiðiveður út af Garðsskaga.
Guðmundur RE var aflahæsta
skipið i gær með 500 tonn, en flest
skipin voru með fullfermi.
Loðnuveiðiskip biða nú á
flestum höfnum eftir að geta
landað, en allar þrær eru fullar á
löndunarstöðunum. Nordglobal
tekur á móti loðnu i Hvalfirði frá
og með fimmtudegi að telja, og er
þegar fullpantað þann dag, og
einnig á föstudaginn, allt pláss i
skipinu. Mikil loðna er nú á Vest-
mannaeyjasvæðinu, að sögn
íoðnunefndar, og er þar iloti
skipa.
Frá miðnætti á mánudag og
fram á miðnætti á þriðjutiag
tilkynr.tu fjörutiu skip um afla,
samtals 11.195 tonn.
Friðrik vann
FRIDRIK ÓLAFSSYNI gengur
mjög vel á skákmótinu i Taliin, en
hann á nú þrjár umferðir eftir, á
móti þeim Bronstein, Hernandez
og Gipslis.
ÚRSLIT i biðskák hans við Nei
urðu þau, að Friörik vann eins og
við var búizt, enda átti hann betri
stöðu i skákinni. Jafntefii eitt
hefði þó dugaö Friðriki tii þess að
komast í 2.-3. sæti ásamt Bron-
stein. Keres er i fyrsta sæti, en
hann átti óiokið biðskák viö
Taimanov. Friðrik er þvi nteð
átta og hálfan vinning aö iokinni
biðskákinni og Bronstein með
átta vinninga. Skákmótinu i Tall-
inn lýkur 9. ntarz.
DREGID HJA SIBS
1 GÆR var dregið i happdrætti
SIBS, og komu eftirtalin númer
uppmeðhæstu vinninga: 18050 —
500 þúsund krónur, 59064 — 200
þúsund krónur, 67967 — 200
þúsund krónur. Á þessi númer
komu 100 þúsund króna vinning-
ar: 25773 — 30000 — 35202 — 47017
— 68668.
Fimmtiu þúsund krónur komu
á þessi' númer: 4522 — 6401 —
36106 — 40042 — 57165 — 61517.
Vinningaskráin verður birt i
blaðinu siðar. (Birtán ábyrgðar)
Athugasemd
Vegna framkominnar fréttar i
dagblaði fimmtudaginn 27. febrú-
ar sl., um samkomulag það, sem
væntanlegt var á milli sjáVarút-
vegsmálaráðuneytisins og út-
gerðar Nökkva frá Blönduósi
vegna rækjuveiðanna i Húnaflóa
þá viljum við undirritaðir oddvit-
ar lýsa yfir að við erum ekki aðil-
ar að þvi samkomulagi, sem gert
hefur verið við útgerð Nökkva
enda hefur ekki verið til okkar
leitað við lausn þessa máls.
Oddvitar Kaldrananesshrepps,
Hólmavikurhrepps, Hvamms-
tangahrepps og Höfðahrepps.