Tíminn - 06.03.1975, Síða 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 6. marz 1975
... C>
Kýrin,
sem þykist
vera hestur
Hann hefur
bjargað lífi Liz
Nú er Elizabeth Taylor oröin
næstum þvi viss um, að hún sé
ástfangin af Henry Wynberg,
eftir að hann hefur bjargað lifi
hennar. Þetta gerðist á þann
hátt, að Liz hafði tekið Henry
með sér á sjó. Þau fóru á lysti-
snekkju Liz, sem heitir Kalizma
Siðan sigldu þau meðfram
Spánarströnd i ágætisveðri. Liz
var i góðu skapi, og allt i einu
datt henni i hug, að hún ætti að
setja svolitla leiksýningu á svið
fyrir vin sinn. Hún fór i falleg föt
og i háhælaða skó, allt of háhæl-
aða. Siðan þóttist hún vera
sýningarstúlka og sveif um á
þilfarinu. En allt i einu heyrðist
hrópaö á hjálp. Elizabeth
Taylor fór að renna, og áður en
við var litið var hún dottin i sjó-
inn. Hún reyndi að ná af sér
skónum, þvi að þeir gerðu henni
erfitt fyrir á sundinu. En svo sá
hún svolitið, sem varð til þess að
blóöiö i æðum hennar næstum
þvi fraus, og þið megið vita, að
hver blóðdropi i Liz er milljón
króna virði. — Ég hef aldrei séð
neitt eins skelfilegt, segir hún
eftir á. Það var hákarl, já ekki
aðeins einn hákarl, heldur voru
þeir þrir saman. Nú gat Liz ekki
hreyft sig lengur, svo skelfingu
lostin var hún. Hún fór að
sökkva,en þá stökk Henry Wyn-
berg fyrir borð, og af mikilli
snilld tókst honum að bjarga
frúnni. — Henry bjargaði lifi
minu, og hætti þar með sinu eig-
in lifi, segir Liz, og það er við-
kvæmni i röddinni.
1 hestamannafélagi I Bushey i
Hertfordshire i Englandi er
tveggja ára kviga af Jersey-
kyni, sem hefur alizt þar upp.
Félagar i reiðklúbbi þessum
eignuöust hana er hún var litill
kálfur og kölluöu hana Bambi —
og var hún nokkurs konar
happadýr félagsins. í keppni
fyrir nýtamda fola, sem haldin
var þarna nýlega, þá datt ein-
hverjum I hug, að láta hana
keppa. Hún tók þátt I göngu, þar
sem hún var teymd af Susan
Hudson, en „knapinn” var
Colette Hawkins, og báðar
frægar hestakonur og þótti
Bambi hin viröulegasta f
göngulagi. Siðan var hún látin
taka þátt i að sýna ýmsan gang
(hesta) og þar á meðal stökk.
Einnig tók Bambi þátt i
„hindrunarhlaupi”, þ.e.a.s. hún
var látin stökkva yfir smá-
hindrun, eins og sést hér á
annarri myndinni, en á hinni
myndinni virðist hún vera að
kynna sig fyrir stórum og stæði-
legum hesti. Bambi fékk 84 stig I
keppninini. Þjálfari Bambi
segir svo um hana: — Hún sef-
ur, borðar og drekkur með hest-
unum, og ég er alveg fullviss um
að henni finnst hún vera ein af
þeim I raun og veru!
„Ef ég reyni aldrei neitt nýtt,
hvernig á ég þá að vita hvað ég
má og hvað ekki?”
DENNI
DÆMALAUSI