Tíminn - 06.03.1975, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.03.1975, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Fimmtudagur 6. marz 1975 ... C> Kýrin, sem þykist vera hestur Hann hefur bjargað lífi Liz Nú er Elizabeth Taylor oröin næstum þvi viss um, að hún sé ástfangin af Henry Wynberg, eftir að hann hefur bjargað lifi hennar. Þetta gerðist á þann hátt, að Liz hafði tekið Henry með sér á sjó. Þau fóru á lysti- snekkju Liz, sem heitir Kalizma Siðan sigldu þau meðfram Spánarströnd i ágætisveðri. Liz var i góðu skapi, og allt i einu datt henni i hug, að hún ætti að setja svolitla leiksýningu á svið fyrir vin sinn. Hún fór i falleg föt og i háhælaða skó, allt of háhæl- aða. Siðan þóttist hún vera sýningarstúlka og sveif um á þilfarinu. En allt i einu heyrðist hrópaö á hjálp. Elizabeth Taylor fór að renna, og áður en við var litið var hún dottin i sjó- inn. Hún reyndi að ná af sér skónum, þvi að þeir gerðu henni erfitt fyrir á sundinu. En svo sá hún svolitið, sem varð til þess að blóöiö i æðum hennar næstum þvi fraus, og þið megið vita, að hver blóðdropi i Liz er milljón króna virði. — Ég hef aldrei séð neitt eins skelfilegt, segir hún eftir á. Það var hákarl, já ekki aðeins einn hákarl, heldur voru þeir þrir saman. Nú gat Liz ekki hreyft sig lengur, svo skelfingu lostin var hún. Hún fór að sökkva,en þá stökk Henry Wyn- berg fyrir borð, og af mikilli snilld tókst honum að bjarga frúnni. — Henry bjargaði lifi minu, og hætti þar með sinu eig- in lifi, segir Liz, og það er við- kvæmni i röddinni. 1 hestamannafélagi I Bushey i Hertfordshire i Englandi er tveggja ára kviga af Jersey- kyni, sem hefur alizt þar upp. Félagar i reiðklúbbi þessum eignuöust hana er hún var litill kálfur og kölluöu hana Bambi — og var hún nokkurs konar happadýr félagsins. í keppni fyrir nýtamda fola, sem haldin var þarna nýlega, þá datt ein- hverjum I hug, að láta hana keppa. Hún tók þátt I göngu, þar sem hún var teymd af Susan Hudson, en „knapinn” var Colette Hawkins, og báðar frægar hestakonur og þótti Bambi hin viröulegasta f göngulagi. Siðan var hún látin taka þátt i að sýna ýmsan gang (hesta) og þar á meðal stökk. Einnig tók Bambi þátt i „hindrunarhlaupi”, þ.e.a.s. hún var látin stökkva yfir smá- hindrun, eins og sést hér á annarri myndinni, en á hinni myndinni virðist hún vera að kynna sig fyrir stórum og stæði- legum hesti. Bambi fékk 84 stig I keppninini. Þjálfari Bambi segir svo um hana: — Hún sef- ur, borðar og drekkur með hest- unum, og ég er alveg fullviss um að henni finnst hún vera ein af þeim I raun og veru! „Ef ég reyni aldrei neitt nýtt, hvernig á ég þá að vita hvað ég má og hvað ekki?” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.