Tíminn - 06.03.1975, Qupperneq 5
Fimmtudagur 6. marz 1975
TÍMINN
5
Margar nýjungar
á döfinni hjá FUF
— rætt við Svein Jónsson, nýkjörinn formann
UM þessar mundir er margt á
döfinni hjá FUF i Reykjavík. Á
félagsskrá eru nú um 1400
mainns, og félögum hefur fjölg-
aö aö undanförnu, þótt nokkur
átök hafi átt sér .stað i félaginu
og nokkrir hafi gengið úr skaft-
inu þeirra vegna.
Timinn hitti að máli Svein
Jönsson, nýkjörinn formann
FUF, til þess að forvitnast um
starfsemi FUF.
— Það er margt á döfinni hjá
okkur, og við reynum að fitja
upp á nýjungum i félagsstarfinu
eftir þvi sem kostur er, sagði
Sveinn. Innan skamms mun
FUF fá til umráða hluta af hinu
glæsilega húsi, sem flokkurinn
er að reisa að Rauðarárstig 18,
og þá getum við auðvitað sinnt
ýmsu þvi, sem ekki hefur verið
kostur til þessa. Stjórnarmenn
félagsins munu verða til viðtals
i húsakynnum flokksins að
Rauðarárstig 18. Þá höfum við
lika i hyggju að fá afnot af saln-
um i kjallara hússins til ýmiss
konar starfsemi. Við höfum
Sveinn Jónsson formaður FUF i
Reykjavik.
hugsað okkur að hafa þar „opið
hús” fyrir klúbbstarfsemi ýmsa
— svo sem málfundi, bridge,
skák og jafnvel diskótek, og
raunar fleira.
Af þvi sem framundan er nú á
næstunni má nefna, að föstu-
daginn 7. marz verður efnt til
góufagnaðar i Félagsheimili
Fóstbræðra við Langholtsveg,
sagði Sveinn. Um páskana er
fyrirhuguð skiðaferð til Húsa-
vikurm en þar er ekki aðeins
ágætt skiðaland, heldur er um-
hverfi bæjarins kjörið til göngu-
ferða og náttúruskoðunar.
Ég vil skora á þá, sem hug
hafa á þvi að taka þátt i góu-
fagnaðinum eða skiðaferðinni,
að hafa samband við skrifstofu
flokksins á Rauðarárstig hið
allra fyrsta, þvi að ekki er að
efa, að fleiri vilja komast með
en rúm verður fyrir, sagði
Sveinn. Siðast en ekki sizt skal
þess getið, að FUF mun beita
sér fyrir almennum stjórnmála-
fundi einu sinni i mánuði, og
verða þá rædd þau mál, sem
hæst ber hverju sinni.
Timinn óskar Sveini til ham-
ingju með formannskjörið og
FUF velfarnaðar i framtiðinni.
„Gjaldþol launþega er brostið"
— segir stjórn Sambands íslenzkra bankamanna
STJÓRN Sambands Islenzkra
bankamanna gerði i fyrradag
svolátandi samþykkt:
,,í stefnuyfirlýsingu rikis-
stjórnarinnar, sem forsætisráð-
herra flutti á Alþingi 29. ágúst
Sinfóníuhljómsveit
íslands:
Tvö verk
eftir
Brahms
Elleftu reglulegu tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar Islands á
starfsárinu 1974/1975, verða
fluttir i Iláskólabiói
fimmtudaginn 6. marz kl. 20:30.
Hljómsveitarstjóri er Kari Tikka
frá Finnlandi og einleikari Rögn-
valdur Sigurjósnson pianóleikari.
Flutt verða tvö verk eftir
Jóhannes Brahms: Píanókonsert
nr. 2 og Sinfónia nr. 3.
Kari Tikka er talinn vera einn
af efnilegustu hljómsveitarstjór-
um Norðurlandanna, og hefur
hann hvarvetna hlotið einróma
lof gagnrýnenda fyrir túlkun
viðfangsefna sinna. Hann fæddist
árið 1946 og stundaði nám við
Sibeliusarakademiuna I Helsinki,
og lauk þaðan prófi i óbóleik 1967
og i hljómsveitarstjórn 1968. Þá
stundaði hann framhaldsnám
bæði I Leningrad og i Rómaborg.
Frá 1972 hefur hann verið annar
hljómsveitarstjóri við Sinfóniu-
hljómsveit finnska útvarpsins.
Eftir að hann stjórnaði flutningi á
óperunni Tosca við Stokkhólms-
óperuna við mikla hrifningu, var
honum boðin staða sem hljóm-
sveitarstjóri óperunnar frá 1. júli
n.k.
Rögnvaldur Sigurjónsson fædd-
ist á Eskifirði 1918. Hann
stundaði nám við Tónlistar-
skólann i Reykjavik og lauk
þaðan prófi 18 ára að aldri.
Framhaldsnám stundaði hann i
Paris og i New York. Hann hefur
oft áður komið fram með sinfóniu-
hljómsveitinni og haldið fjölda
sjálfstæðra hljómleika i Reykja-
vik. Auk þess hefur hann farið
margar tónleikaferðir til
Evrópu, og einnig til Banda-
rikjanna, Ráðstjórnarrikjanna og
Kanada. Rögnvaldur er nú yfir-
kennari i pianóleik við fram-
haldsdeild Tónlistarskólans i
Reykjavik.
1974, er m.a. tekiö fram i sam-
bandi við kjaramál: „Haft sé liáið
samráð við aðila vinnumarkaðar-
ins og komið fastri skipan á sam-
ráð rikisstjórnarinnar við þá.”
Þegar bráðabirgðalög um „lág-
launabætur o.fl.” voru i undir-
búningi, sat stjórn Sambands is-
lenzkra bankamanna, ásamt
stjórnum BHM og BSRB, tvo
fundi með forsætisráðherra, þar
sem þau mál voru rædd. Ekki er
oss kunnugt um frekari „sam-
ráð” við nefnda aðila vinnu-
markaðarins.
A undanförnum mánuðum
hefur dýrtið aukizt hraðar og
meira en dæmi eru til um. A sama
tima hafa laun haldizt óbreytt, og
er augljóst orðið, að gjaldþol
launþega er brostið, enda öllum
fjárhagsbyrðum verið skellt ein-
göngu á almenning. Það hlýtur að
vera krafa allra launþegasam-
taka I landinu, að nú sé staldrað
við á þeirri braut og gerð ýtarleg
úttekt á fjárhagsstöðu
almennings.
Stjórn Sambands islenzkra
bankamanna telur, að það umsát-
ursástand, sem nú rikir um heim-
ili launþega, hljóti að leiða til
harðra andsvara og ófarnaðar i
þjóðfélaginu, verði þvi ekki afiétt
i verki hið fyrsta.”
Myndlistar-
kennarar styðja
F.Í.M.
A fundi hjá Félagi Islenzkra
mynd 1 i starkennara var
samþykkt að lýsa yfir fullum
stuðningi við Félag islenzkra
myndlistarmanna i deilu þess við
borgaryfirvöld Reykjavikur.
Félagið furðar sig á ihlutun
borgarráðs vegna ákvörðunar
meirihluta sýningarráðs um
strangt gæðamat á þeim mynd-
verkum, sem sýnd skulu að Kjar-
valsstöðum.
AuglýsidT {
í Tímanum i
Ratgeymar
í miklu úrvali
CAV
Olíu- og
loficíur
i flestar
tegundir
bif reiða
og vinnu
véla
HLOSSB--------------
Skipholti 35 - Simar:
8-13-50 verzlun -8-13-51 verkstaeöi • 8-13-52 skrifstof*
Verksmiðja og skrifstofur vorar verða
lokaðar í dag
eftir hádegi
fimmtudaginn 6. marz — vegna jarðar-
farar.
Kassagerð Reykjavikur.
Bókamarkaóurínn
Í HÚSI IÐNAÐARINS VID
INGÓLFSSTRÆTI
Dráttarvél til sölu
Ford iSlilMl dráttarvél árgerð 1970 með húsi
og vökvastýri.
Upplýsingar hjá Kristjáni i sima 93-8687.
VERALDARSAGAN 1
2. bindi Veraldarsögu
Fjölva kemur út siöar í
mánuðinum. Takmörkuðum
f jölda einstaklinga, skóla og
stofnana er gefinn kostur á
áskrift á hagstæðu verði,
sem gildir til útkomudags.
Upplýsingar veittar, ef þér
klippið út seðilinn og sendiö
hann til Fjölva
VERALDAR
iBSSAGA FJÖLVA
Til Fjölva, Pósthólf 624, Reykjavík
Ég undirritaður óska upplýsinga um áskrift á hagstæðu
verði að Veraldarsögu fjölva
Nafn................................................
Heimilisfang........................................
argus