Tíminn - 06.03.1975, Page 16
G8ÐI
fyrir góöan maM
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
LORENZ HRESS f BRAGÐI
Sögulegu mannráni lokið farsællega:
þrátt fyrir spennu síðustu daga
Reuter—Vestur-Berlin — Peter
Lorenz, leiðtoga kristilegra
demókrata I Vestur-Berlín, var
loks sleppt úr haldi á miðnætti i
fyrrinótt. Jafnskjótt hóf lögregla i
borginni óhemju viðtæka leit að
þeim, sem rændu honum.
Lorenz hélt fund með frétta-
mönnum i gær. Þótt hann virtist
þreyttur, var alls ekki að sjá á
honum, að hann hefði lifað i stöð-
ugri spennu siðustu daga. Hann
kvaðst hafa sætt sæmilegri
meöferð af hálfu mannræningj-
anna, t.d. voru honum færðar
fréttir af borgarstjórnarkosning-
unum og hann fékk að hlusta á út-
varp.
Ekki væri úr vegi — nú að lok-
um — að rifja upp atburðarásina
kringum þetta mannrán, sem
vakið hefur einna mesta athygli i
Evrópu á siðari árum.
Fimmtudagur, 27. feb.:
Kl. 7,55:yPeter Lorenz rænt á
götu i einni af útborgum Vestur-
Berlinar. Mannræningarnir
ókunnir.
Kl. 10,00: Klaus Schutz borgar-
stjóri kallar fulltrúa stjórnmála-
flokkanna saman til fundar vegna
málsins. A fundinum er ákveðið
aö láta kosningar til borgar-
stjórnar fara fram, eins og ekkert
hafi i skorizt. Um svipað leyti
hefst viðtæk leit að mannræningj-
unum.
Föstudagur 28. feb.:
Kl. 8,00: Samtökin „2. júni”
láta birta mynd af Lorenz, þar
sem hann er fangi þeirra. Með
myndinni fylgir listi yfir kröfur
og yfirvöldum er gefinn fresiur,
til að uppfylla þær.
Kl. 14,40: Heinrich Albertz,
fyrrum borgarstjóri, fellst á þá
kröfu samtakanna að fylgja úr
landi stjómleysingjum, sem kraf-
izt var, að sleppt yrðu úr haldi.
Kl. 16,40: Helmut Schmidt
kanslari kallar flokksleiðtoga
saman til fundar til að ræða sið-
ustu atburði.
Kl. 20,00: Lögregluyfirvöld i
Vestur-Berlin fallast á, að láta
tvo stjórnleysingja lausa úr fang-
elsi.
Laugardagur 1. marz:
Kl. 8,20: Stjórnleysingjunum
tveim sleppt úr haldi.
Kl. 11,00: Eiginkona Lorenz fær
sent póstkort með eiginhandar-
undirskrift manns sins.
Kl. 15,00: Ræningjarnir senda
enn eina sönnun þess, að Lorenz
sé á lifi.
Kl. 22,55: Tveir af þeim sex
stjórnleysingjum, sem krafizt er,
að látnir séu lausir, koma fram i
sjónvarpi og segjast ekki kæra sig
um lausn úr fangelsi.
Sunnudagur 2. marz:
Kl. 17,45: Flugvél leggur af stað
Arabar sitja við sinn keip:
Óæskileg fyrirtæki í banni
Reuter—Kairó — Arabar hafa
ákveðið að halda áfram að beita
hefndaraðgerðum gegn þeim fyr-
irtækjum eða stofnunum, er hafi
með einhverjum hætti samskipfi
við Israel.
Að undanförnu hafa fulltrúar i
svonefndri ,,refsiaðgerðanefnd”
þingaö i Kairó, en nefnd þessi
starfar innan vébanda Araba-
sambandsins. í tilkynningu, sem
nefndin gaf út i gær, segir m.a.,
að hefndaraðgerðum verði beitt
framvegis gegn þeim fyrir-
tækjum, erséu á „svörtum lista”
hjá nefndinni. (Það vekur
athygli, að nokkur fyrirtæki i eigu
múhameðstrúarmanna eða
kristinna manna eru á þessum
lista, en aftur á móti er nokkrum
fyrirtækjum gyðinga haldið utan
hans.)
1 tilkynningu nefndarinnar er
enn fremur tekið fram, að til
greina komi að gripa til annarra
hefndaraðgerða en að útiloka
viðkomandi fyrirtæki frá
viðskiptum. Reynslan skeri úr
um, hvort nauðsynlegt verði að
grfpa til annarra aðgerða.
ftíim^HORNA
'.mM MILLI
Reuter-Ankara. Sadi Irmak,
er gegnir nú forsætisráðherra-
embætti i Tyrklandi til bráða-
birgða, hóf fyrr i vikunni við-
frá Vestur-Berlin til Frankfurt
með tvo stjórnleysingja og
Albertz innan borðs. Aörir tveir
stjórnleysingjar eru fluttir til
Frankfurt með þyrlu.
Kl. 20,00: Vestur-þýzka stjórnin
kemur saman til fundar I Bonn.
Kl. 21,19: Þota af gerðinni Boe-
ing 707 er reiðubúin til flugtaks á
flugvellinum við Frankfurt.
Kl. 23,00: - Úrslit úr borgar-
stjórnarkosningunum birt.
Flokkur Lorenz vinnur stórsigur.
Mánudagur 3. marz:
Kl. 3,00: Fimmti stjórnleysing-
inn ákveður að slást i hóp með
hinum og er i skyndi fluttur frá
Essen til Frankfurt.
Kl. 8,56: Þotan hefur sig til
flugs.
Kl. 18,41: Þotan lendir i Aden
eftir að henni hefur verið synjað
um lendingarleyfi i Lýbiu, írak,
Sýrlandi, Libanon og Eþiópiu.
Þriðjudagur 4. marz:
Kl. 6,59: Þotan hefur sig til
flugs frá flugvellinum við Aden
með Albertz innan borðs, milli-
lendir i Addis Ababa, þar sem
skipt er um áhöfn, og heldur svo
til Frankfurt.
Kl. 15,51: Þotan lendir i Frank-
furt og Albertz er umsvifalaust
fluttur til Vestur-Berlinar.
Kl. 17,51: Albertz flytur i
sjónvarpi skilaboð frá stjórn-
leysingjunum, sem eftir urðu I
Aden.
Siöar um kvöldið: Mann-
ræningjarnir láta Lorenz lausan.
ræður við tyrkneska flokks-
leiðtoga um möguleika á
myndun nýrrar stjórnar i
landinu. Fréttaskýrendur I
Ankara telja, að Irmak eigi
erfitt verk fyrir höndum, þar
eð hægri flokkar séu honum
andsnúnir.
Stjórnarkreppa hefur rikt i
Tyrklandi s.l. hálft ár. Fyrir
helgi fól Fahri Koruturk Tyrk-
landsforseti Irmak að freista
þess að mynda stjórn á breið-
um grundvelli — eins konar
þjóðstjórn. Irmak hefur að
undanförnu rætt við flokks-
leiðtoga um þessa hugmynd,
en fengið — að sögn frétta-
skýrenda — dræmar undir-
tektir. Eini leiðtoginn, sem
hefur gefið jákvæð svör, er
Bulent Ecevit, fyrrum for-
sætisráðherra. Flokkur hans
ræður yfir 184 sætum af 450 á
tyrkneska þinginu.
Aftur á móti hafa leiðtogar
hægri flokka sýnt málaleitan
Irmaks litinn áhuga. Fjórir
flokkar, sem standa ýmist
hægra megin i stjórnmálum
eða nálægt miðju, hafa að
undanförnu myndað óform-
legt bandalag i þvi skyni að
koma saman eigin stjórn, er
styddist við meirihluta þings.
Þetta bandalag nýtur -stuðn-
ings u.þ.b. 220 þingmanna, svo
að litlu munar, að hreinn
meirihluti standi þvi að baki.
Forystumenn þessa t banda-
lags leggja nú allt kapp á að fá
Lýðræðisflokkinn, sem er
miðflokkur, til fylgis við sig.
Þar með væri þingmeirihluti
tryggður.
Ljóst er, að leiðtogar Lýð-
ræðisflokksins eru nokkuð
reikulir i ráði, svo að alls óvist
er, hvort stjórnarkreppan i
Tyrklandi leysist i bráð.
Bardagar um Pnom Penh harðna:
Hersveitir skæruliða slá
hring um borgina ií::r:„r:hz;
Ætlun þeirra er augljóslega að hindra alta aðflutninga til stjórnarhersins í borginni
Reuter-Pnom Penh/Washington.
Bardagar um höfuðborg Kam-
bódiu, Phom Penh, hörðnuðu til
muna I gær. Hersveitum skæru-
liða, er fylgja Sihanouk prins að
málum, tókst I fyrsta sinn að slá
hring um borgina, svo að her-
sveitum stjórnar Lon Nols berast
nú aðeins vistir og hergögn loft-
leiðis.
Bandarikjamenn hafa haldið
uppi stöðugum loftflutningum til
Pnom Penh að undanförnu, þrátt
fyrir ákafar eldflaugaárásir á
Pochentong-flugvöll, sem er aðal-
flugvöllur borgarinnar. í gær
varð ein af flutningavélum
Bandarikjamanna af gerðinni
DC-8 fyrir eldsprengju, og við það
stöðvuðust flutningarnir um
tima. Siðdegis lentu þó fleiri vélar
á flugvellinum, en talsmaður
Bandarikjahers i Pbom Penh
sagði, að umferð yrði að mestu
hætt um völlinn, nema eldflauga-
árásunum linnti.
Fyrr i gær var tilkynnt af hálfu
flugyfirvalda i Kambódiu, að öllu
innanlandsflugi um Pochentong-
flugvöll hefði verið aflýst og
millilandaflugi um völlinn frestað
fram á föstudag.
Þá tilkynnti yfirherstjórn
stjórnarhersins i Pnom Penh, að
skæruliðar hefðu ráðizt að borg-
inni úr suðri. Það er i fyrsta
skipti, sem árás kemur úr þeirri
átt, en áður hafa skæruliðar sótt
að borginni úr norðri, austri og
vestri. Fréttaskýrendur I Pnom
Penh telja, að þessi nýjasta árás
skæruliða sé dæmi um versnandi
stöðu stjórnarhersins I bardögum
um borgina.
Það er augljóslega ætlun
skæruliða að einangra hversveitir
stjórnarhersins i Pnom Penh, þvi
að þeir hafa stöðvað alla umferð
flutningapramma upp Mekong-
fljót og leggja nú — eins og fyrr
kemur fram — allt kapp á að
stöðva flugumferð um aðalflug-
völl höfuðborgarinnar.
Bandariski flotinn skýrði frá
þvi i gær, að þyrlumóðurskipið
Okinawa biði nú á Siams-flóa —
og væru þyrlur reiðubúnar að
hefja sig til flugs frá skipinu og
halda til Pnom Penh. Tilgangur-
inn væri að bjarga þeim banda-
rlskum þegnum, er þar væru,
undan sveitum skæruliða, þ.e. ef i
nauðir ræki.
A myndinni sést, hvar birgðum er varpað úr flugvélum I fallhlffum til einangraðra hersveita stjórnar Lon Nols I Kambódíu. Fréttir benda nú
til, nð stjórnarherinn, sem er aö mestu einangraður I höfuðborginni Phnom Penh, neyðist e.t.v. til að gefast upp.