Tíminn - 08.03.1975, Qupperneq 4

Tíminn - 08.03.1975, Qupperneq 4
4 TÍMINN Laugardagur 8. marz 1975 Staða sovézku konunnar Um það bil helmingurinn af öll- um visindamönnum i Sovétrikj- unum eru konur, og meðal lækna og kennara eru næstum þrir fjórðu hlutar kvenkyns. Hjá mörgum iðnaðarfyrirtækjum er forstjórinn kona, og forystusæti ýmissa mikilvægra stofnana og samtaka eru setin kvenmönn- um. Laun kvenna eru ætið þau sömu og laun karla fyrir sömu störf. Af hverjum þúsund starfandi konum hafa 793 æðri menntun, eða meðalmenntun (það er nokkru hærri tala en hjá karlmönnum). Þriðjungur fulltrúa Æðsta Ráðsins eru konur, og i öðrum „sovétum” eru þær um það bil jafn margar og karlmenn. Vann sigur sjö sinnum á 12 mín. Sovézkur meistari i fjölbragðaglimu i létt-þungavigt heitir Ivan Yarygin, og á Olympiuleikunum i Munchen árið 1972 vann hann það fræki- lega afrek, að sigra sjö sinnum á 12 minútum, en fyrir þessar sjö lotur mátti hann nota 63. min. Ivan Yarygin er 26 ára gamall, hár'og vel vaxinn, — liðlega 100 kg. að þyngd, og „kllóin eru öll á réttum stað,” einsog segir i lýsingu af honum. Ivan er ættaður frá Siberiu. Hann fæddist þorpi að nafni Sizaya i Krasnoyarski- héraðinu. Þau voru tiu syst- kinin, sex bræður og fjórar systur. Hann vann mikið sem ungur drengur, bæði við búskap, veiðar og skógarhögg. I fristundum stundaði hann mikið fótbolta og siðar tók hann til við fjölbragðaglimuna og skaraði þar fljótt fram úr öðrum. Arið 1970 varð hann meistari i sinum þyngdarflokki I Sovétrikjunum. Siðan tók hann þátt i aljóða- keppennum og var sigursæll mjög. Við sjaúm hér mynd af honum I keppni, þar sem hann virðist eiga alls kostar við and- stæðing sinn, einnig mynd af kappanum á veiðum að vetrar- lagi, og svo skemmtilega fjölskyldumynd, þar sem hann er með marga verðlauna- peninga um hálsinn, og fallega eiginkonan hans situr stolt og glöð fyrir framan hann, en hann heldur á tveim börnum þeirra hjóna. Sú mynd er tekin árið 1974. DENNI DÆMALAUSI „Þeir eiga ekki að búa hér allt árið, mamma. Ég set þá út strax og vorið kemur”.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.