Tíminn - 08.03.1975, Blaðsíða 5

Tíminn - 08.03.1975, Blaðsíða 5
Laugardagur 8. marz 1975 TÍMINN 5 Búnaðarþing: Þingfulltrúar í skoðunar ferð austur fyrir fjall Gsal—Reykjavik —Fundir voru á búnaðarþingi á fimmtudags- morgun, en eftir hádegiö fóru þingfulltrúar austur fyrir fjall, og skoðuðu m.a. nautgripastöðina að Laugardælum. A miðvikudag voru tvö ný mál lögð fram á þing- inu, og fjögur mál voru til siðari umræðu. Aöeins eitt þeirra hiaut afgreiðslu, en það var erindi Agn- ars Guðnasonar og Jónasar Jóns- sonar um sumardvöl fólks úr þéttbýli I sveit, en Timinn hefur áður greint frá þvi erindi. Allverulegur skoðanamunur kom fram hjá þingfulltrúum um tillögu til þingsályktunar um breytingu á lögum Búnaðarbanka Islands og Stofnlánadeildar land- búnaðarins. Þær lagabreytingar, sem allsherjarnefnd búnaðar- þings leggur til að gerðar verði, eru eftirfarandi: Veðdeild Búnaðarbanka Islands verði sameinuð Stofnlánadeild landbúnaðarins. Stjórn Stofnlánadeildar land- búnaðarins verði skipuð fjórum fulltrúum frá Búnaðarfélagi Is- lands og Stéttarsambandi bænda, tveim frá hvoru, og einum skipuðum af landbúnaðarráð- herra. Stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins ráði forstjóra, er stjórni daglegum rekstri deild- arinnar. Búnaðarbanki Islands fái rétt til gjaldeyrisverzlunar. Umræðu um málið var frestað og tekið til nánari athugunar hjá allsherjarnefnd. Sama var að segja um frum- varp tillaga um sauðfjárbaðanir. Það mál var einnig tekið út af dagskrá og nefndinni falið að at- huga, hvort ekki megi samræma sjónarmiðin. Framhald var á umræðu um frumvarp til laga um búnaðar- fræðslu. Allsherjarnefnd hafði gert örfáar breytingartillögur við frumvarpið, sem var samið af nefnd, er núverandi landbúnaðar- ráðherra skipaði fyrir tveim ár- um. Hjörtur E. Þórarinsson hafði framsögu i málinu, rakti helztu nýmæli i frumvarpinu og gerði grein fyrir breytingatillögum. Lárus Ag. Gíslasoni Miðhúsum gagnrýndi, að ekki væri tilnefnd- ur ákveðinn staður sem skólaset- ur búnaðarskóla Suðurlands, sem hann taldi að ætti að vera Oddi á Rangárvöllum. Jónas Jónsson ræddi frumvarpið allitarlega, en hann var formaður nefndar þeirra, sem samdi það. ólafur E. Stefánsson gagn- rýndi, að i frumvarpinu væri gert ráð fyrir, að búvisindanám væri á Hvanneyri. Hann taldi, að eðli- legra væri að tengja það Háskóla íslands. Þar væru fyrir kennslu- kraftar i flestum undirstöðu- greinum búvisindanáms. Enn fremur taldi hann, að mjög kostnaðarsamt væri að byggja og reka fullkominn búnaðarháskóla að Hvanneyri. I ályktun búnaðarþings um sumardvöl i sveitum er farið fram á að gerð verði athugun á þvi, hvort til staðar sé húsnæði i sveitum landsins, sem áhugi væri fyrir að leigja út yfir sumartim- ann. Bendir þingið á, hvort ekki sé rétt að leita samvinnu við Landssamband veiðifélaga um að það hefði milligöngu um leigu á sliku húsnæði, ef framangreind athugun gæfi tilefni til. A fundi búnaðarþings á fimmtudag var eftirfarandi ályktun samþykkt og afgreidd: Búnaðarþing beinir þvi til stjórnar Búnaðarfélags Islands, að hún beiti sér fyrir þvi, að kom- ið verði á fót samstarfsnefnd Búnaðarfélagsins, Stéttarsam- bands bænda og Framleiðsluráðs, sem vinni að öflun hagfræðilegra upplýsinga og leiðbeiningum fyr- ir landbúnaðinn. Helztu verkefni nefndarinnar verði: 1) að afla upplýsinga um stöðu is- lenzks landbúnaðar með tilliti til framleiðslukostnaðar, markaðsaðstöðu og þjóðhags- legs gildis hans. 2) að gera tillögur um heildar- stefnu i framleiðslumálum landbúnaðarins i samræmi við hagsmuni hans samkvæmt niðurstöðum af athugunum nefndarinnar. Á fimmtudag fóru flestir búnaðarþingsfulltrúar, ásamt nokkrum ráðunautum Búnaðar- félags Islands, austur á Selfoss. Fyrst skoðuðu þeir mannvirki Sláturfélags Suðurlands og fengu þar góða leiðsögn um byggingar og framkvæmdir Sláturfélagsins af verkstjórum og forstjóra Sláturfélagsins, Jóni H. Bergs. Eftir skoðunarferð um sláturhús- Danskur bátur erfiðleikum Gsal-Reykjavik — Danskur bát- ur, Suzie Ann að nafni, sendi frá sér neyðarskeyti i fyrrinótt, en þá hafði mikill leki komið að bátn- um, um 150 sjómiiur vestur af Hvarfi. Kissinger Fundir þeirra tvimenninganna fara fram á vetrarsetri Egypta- landsforseta i ferðamannabænum Aswan, er stendur við ána Nil. Að loknum viðræðum við Sadat fer Kissinger til Sýrlands og Israels, en snýr svo væntanlega aftur til Egyptalands með tillögur sýr- lenzkra og israelskra ráða- manna. Ljóst er, að miklar vonir eru bundnar við þessa samningaför Kissingers til Miðjarðarhafs- landa — bæði af hálfu Egypta og Israelsmanna. Báðir aðilar virð- ast t.a.m. sammála um að láta hermdarverk palestinskra skæruliða i Tel Aviv engin áhrif hafa á samningaumleitanirnar. Sadat forseti hefur sagt, að annað hvort takist bráðabirgðasam- komulag nú eða nýtt strið kunni að brjótast út. Fróðlegt verður þvi að fylgjast með gangi við- ræðna Kissingers við ráðamenn i Miðjarðarhafslöndum næstu daga. Strax og hjálparbeiðnin barzt SVFI var Reykjavikur-radió beð- ið um að kalla þessa hjálpar- beiðni út til skipa, sem gætu verið á svipuðum slóðum. Náðist sam- band við færeyskan bát sem var um fimm tima siglingu frá danska bátnum, og hélt hann þeg- ar áleiðis. Nokkru siðar bárust fregnir frá Dönunum þess efnis, að dælur skipsins hefðu við og þeir myndu sennilega geta þurrkað bátinn. Siðar um nóttina var svo hjálpar- beiðnin endurkölluð. Nýjar verð- hækkanir LEYFÐ hefur verið hækkun á verði allmargra matvöruteg- unda, og nemur þessi hækkun 12-40%. Ýsa og þroskur hækka um 12-13% og fiskbollur og fisk- búðingur um 22%. Smjörliki hækkar úr 240 krónum i 298, rúgbrauð úr 78 i 93, franskbrauð og heilhveitibrauð úr 61 i 72, vinarbrauð úr 15 i 21, og tvibökur úr 245 i 294. Þessar hækkanir nema 19-40%. ið og kjötvinnsluna voru gestum boðnar rausnarlegar veitingar. Siðar fóru búnaðarþingfulltrú- ar i boði stjórnar Búnaðarsam- bands Suðurlands að Laugardæl- um, skoðuðu búið, hlýddu á stutt ,erindi um fóðrunartilraunir á mjólkurkúm með grasmjöl blandað mismiklu magni af tólg. Gunnar Sigurðsson, sérfræðingur hjá Rannsóknarstofnun land- búnaðarins, hefur yfirstjórn á þessari tilraun, og veitti hann gestum itarlegar upplýsingar um framganga hennar. Frá Laugar- dælum var haldið heim til Hjalta Gestssonar, ráðunautar Búnaðarsambands Suðurlands, og setið þar hóf stjórnar og starfsmanna Búnaðarsambands Suðurlands. Á fundi búnaðarþings i gær voru tvö mál til fyrri umræðu, er- indi Búnaðarsambands Suður- lands um auknar rannsóknir á ófrjósemi nautgripa, og erindi Jóseps Rósinkranssonar um eyðingu flugvargs. Þá var fjár- hagsáætlun Búnaðarfélags Is- lands árið 1975 til fyrstu umræðu. Eitt mál var afgreitt á búnaðarþingi i gær, það var er- indi Agnars Guðnasonar og Ólafs Vals Hanssonar varðandi sýkingu á kartöflum. Alyktun búnaðar- þings i þvi máli er svohljóðandi: Búnaðarþing beinir þvi til Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins, að hún hlutist til um, að bútæknideildin framkvæmi nákvæman samanburð á kartöfluupptökuvélum þeim, sem nú eru i notkun hjá bændum. Kannað verði: 1. afköst vélanna við inismunandi aðstæður og aksturshraða. 2. skemmdir á kartöflunum við upptöku. Einnig verði rannsakað, hvort flokkunarvélar þær, sem almennt eru notaðar, spilli gæðum og útliti kartaflna. Þá vill búnaðarþing fara þess á leit við Rannsóknarstofnunina, að hún láti gera samanburð á mis- munandi aðferðum við geymslu kartaflna. komið boðum áleiðis á örbylgju, þar sem lóftnet skipsins höfðu slitnað niður. Þrátt fyrir itrekað- ar tilraunir tókst ekki að ná sam- bandi við stöðina á Siglufirði, enda hefur strandstöðin þar enga örbylgjuþjónustu. Er hún eina strandstöð Landssimans, sem ekki hefur slika þjónustu, þ.e.a.s. af þeim strandstöðvum, sem hafa 24 tlma þjónustu. Klukkan 6.20kallaði afgreiðslu- maður SIS á Húsavik skipið upp i talstöð, til að spyrjast fyrir um komutima þess til Húsavikur, og frétti hann þá strax, hvernig komið var fyrir skipinu. Um klukkan 7 hafði Siglufjörð- ur samband við Slysavarnafélag Islands og greindi frá strandi Hvassafells. Bárust þá um leið þær upplýsingar, að engin slys hefðu orðið á fólki. SVFt hafði þegar samband við björgunar- sveit sina á Húsavik og bað menn að kanna möguleika á þvi, að fara út i Flatey með björgunartæki. Þá um morguninn var illmögu- legt fyrir björgunarsveitarmenn að fara á bátum út i eyjuna, vegna veðurs, en þá voru 7-8 vind- stig af norð-austri og mikill sjór. Til álita kom um tima, að senda Dagnýju SI-70 frá Siglufirði til Húsavikur að sækja björgunar- menn, en frá þvi var horfið, — og ákveöið að freista þess, að fara á tveimur bátum frá Húsavik með björgunarsveitina og tilheyrandi búnaö út i Flatey. Skipsverjar voru i stöðugu sambandi við Siglufjörð siðar um morguninn, og var það fyrir milligöngu Dagnýjar SI, sejn var að koma inn til Siglufjarðar af veiðum. Eins höfðu Húsvikingar samband við skipverja, og starfs- menn Skipadeildar SIS i Reykja- vik fylgdust með framvindu mála meö samtölum við skipstjóra Hvassafells. Um kl. 10 i gærmorgun lögðu tveir bátar úr höfn á Húsavik með björgunarsveitarmenn og tæki þeirra, voru það Jón Sör ÞH-220, 50 tonna bátur, og Svanur ÞH-100 30 tonn. A sama tima lagði flóa- báturinn Drangur af stað frá Siglufirði með björgunarsveitina Stráka, áleiðis austur i Flatey, — en Drangur lá inni á Siglufirði vegna þess, að fresta varð ferð til Grimseyjar vegna veðurs. A svipuðum tima og áðurnefnd- ir bátar lögðu af stað á strandstað bárust þær fréttir, að mikill sjór væri kominn i skipið, allir botn- Hvassafell tankar nema einn væru fullir af sjó og eins væri mikill sjór i vélarrúmi. Þá var skipið komið vel inn fyrir brimgarðinn og að- eins 50-60 metra frá landi. Þá bár- ust og þær fréttir, að skipshöfn- inni væri ekki bráð hætta búin. Laust eftir hádegi komu Húsa- vikurbátarnir aðFlatey og var þá eitt samfellt grunnbrot við eyjuna. Leit þvi illa út með að þeim tækist að komast að bryggj- unni. Húsavikurbátunum tókst þó aö sæta lagi og komast i gegnum grunnbrotið að bryggjunni. Komu bátarnir að landi um kl. 1. Strax og ljóst var, að bátarnir voru komnir til Flateyjar og björgunarsveitarmenn byrjaðir að undirbúa björgun áhafnarinn- ar á Hvassafelli, var Drang snúið viö og kom hann aftur til Siglu- fjarðar um kl. 3. Þegar björgunarsveitarmenn höfðu stigið á land i Flatey, var þegar hafinn undirbúningur aö björgun skipsáhafnarinnar. Um miðjan dag fréttist svo að 11 skip- verjar, þar af tvær konur, væru komnir I land eftir giftusama björgun. Atta skripverjar urðu eftir um borð i skipinu, og þeir ætluðu að dveljast þar eitthvaö lengur. Um svipað leyti bárust þær fréttir, að sjór væri einnig kominn i lest eitt, og að skipið færðist si- fellt nær landi, en mikið stórgrýti er á strandstaðnum og grynning- ar 200-300 metra út. B.S.R.B. boð- ar til fundar BANDALAG starfsmanna rikis og bæja gengst fyrir almennum launþegafundi i Háskólabiói á mánudaginn, og hefst hann klukkan 3,15. Fundarstjóri verður Agúst Geirsson, formaður Félags is- lenzkra simamanna, en Frum- mælendur Kristján Thorlacius, formaður B.S.R.B., Ingibjörg Helgadóttir, formaður Starfs- mannafélags rikisstofnana, Þór- hallur Halldórsson, formaður Starfsmannafélags Reykjavikur- borgar, Ingi Kristinsson, formað- ur Sambands islenzkra barna- jkennara, og Haraldur Steinþórs- :son, framkvæmdastjóri B.S.R.B. A þessum fundi verður sérstak- lega fjallað um skerðingu á kjör- um launamanna. SUhhUKTOLD Ferðakynning! FEGURÐARSAMKEPPN! Valdir fulltrúar á alþjóðlegar fegurðarsam- keppnir að Hótel Sögu sunnudagskvöld 9. marz. 1. Ferðakynning: Sagtfrá hinum fjölbreyttu og ódýru ferðamögu- leikum á vegum Sunnu. 2. Bingó: Þrjár utanlandsferðir. 3. Brezku sjónvarpsstjörnurnar The Settlers syngja. 4. Fegurðarsamkeppni: Valdir fulltrúar íslands á alþjóðlegu feg- urðarsamkeppnirnar Miss Europe i Beirut 30. mai og Miss Uni- verse i San Salvador 6. júli. 5. Illjómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til kl. 01.00. Matargestir! Pantið borð hjá yfirþjóni timanlega vegna fyrir- sjáanlegrar mikillar aðsóknar — Enginn aðgangseyrir nema rúllugjald. Í SÓLSKINSSKAPI MED SUNNW FERflASKRIFSTOFAN SUNNA UEKJARGDTU 2 SlMAR 16400 12U7U

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.