Tíminn - 08.03.1975, Page 12
12
TÍMINN
Laugardagur 8. marz 1975
,,Hvers vegna hefurðu ekki sagt mér frá þessu?"
hrópaði hann reiðilega.
„Ég hef oft hugsað um það, hvort ég ætti að gera það
eða ekki. En mér fannst réttast að biða með það og vita,
hvort hún segði þér ekki sjálf, hvernig allt er í pottinn
búið".
„Hvort hún segði mér það ekki sjálf! Og þú trúir þá
þessum djöfuls kjaftasögum".
„Þær eru að minnsta kosti ekki tilefnislausar, Gústaf
minn. En ég hélt, að hún myndi kannski sjá sig um hönd,
þegar þú varst kominn heim".
Hann rauk á fætur, rak hnefann í borðið og öskraði
bálvondur: „Það er helvítis lygi, segi ég! Kjaftasögur,
sem kerlingarnar hérna hafa soðið saman yf ir kaff iboll-
unum. Ég ætla að fara niður í búð og spyrja Sögu sjálfa,
og svo mega kaffikerlingarnar gæta sín — og þú líka".
Hann æddi strax af stað niður í þorpið. Guð forði því,
að hann vinni neitt óhæfuverk, tautaði Katrín fyrir
munni sér.
Gústaf snaraðist inn í búðina. Hún var full af fólki og
meðal annarra sat Malm þar á bekk. Gústaf nam staðar
i horninu við búðarborðið og drap f ingrunum óþolinmóð-
lega á svarta plötuna. Hann gaut augunum f lóttalega til
skiptist á stúlkuna fyrir innan borðið og gráhræða
manninn á bekknum, sem var niðursokkinn í samræður
við aðra búðarslæpingja. Allt í einu hrópaði AAalm, í senn
kunnuglega og frekjulega, til stúlkunnar:
„Heyrðu, Kolbrún! Býður þú okkur ekki upp á
sígarettur í dag?" Hann beið ekki svars, heldur reis upp
og snaraði sér inn fyrir búðarborðið og óð beina leið að
tóbakshillunni. Þar tók hann orðalaust einn sígarettu-
pakka, og um leið og hann kjagaði til baka, rétti hann úr
höndina og klappaði stúlkunni snögg á kinnina, eins og til
þess að sýna húsbóndarétt sinn. Síðan f ór hann með upp-
gerðar-hirðuleysissvip að bjóða mönnunum, sem stóðu
fyrir framan borðið, sigarettur.
Gústaf rauk á dyr. Hann æddi eins og vitstola maður
eitthvað út i bláinn og áttaði sig ekki fyrr en hann var
kominn hálfa leið til Stórbæjar. Þá leið höfðu fæturnir
borið hann af gömlum vana. Hann sneri við og gekk
sömu leiðtil baka með hnefana kreppta í buxnavösunum
og samanbitnar varirnar.
„Djöf ullinn hirði allt hyskið", hvæsti hann og sparkaði
í skaflana á vegvita af því.
,,Djöf ullinn hirði allt hyskið" hvæsti hann og sparkaði
í fönnina á veginum. Það var orðið skuggsýnt og komið
él. Snjónum kingdi niður í stórum, þéttum f lygsum. Allt i
einu sá hann móta fyrir tveim manneskjum í drífunni.
Hann brölti út af veginum og lét þær fara framhjá.
Hann hrökk við eins og eldingu hefði lostið niður við
tærnar á honum. Þetta var Saga og — AAalm. Hann hélt
utan um mitti hennar og leiddi hana þannig við hlið sér-
Gústaf læddist á eftir þeim í manndrápshug, gnísti
tönnum og kreppti hnefana.
„Andskotans hræsnarinn", tautaði hann. AAest af öllu
sárnaði honum, hvernig þessi gamli rokkur hélt utan um
stúlkuna. Og hann hafði ekki einu sinni þorað að snerta
hana!
Þau özluðu mjúka og lausa mjöllina, án þess að hafa
hugboð um, að jáeim var veitt eftirför. Þau töluðu fátt,
og það, sem þau sögðu, sögðu þau svo lágt, að ekki
heyrðist orðaskil. Gústaf læddist hljóðlega á eftir þeim
með iðandi fingurna, eins og Indíáni í vígamóð. Nú
voru þau komin móts við kirkjuna, og þaðan var
örskammt að prestsetrinu og skólanum. Þar skiptust
leiðir til Stórbæjar. Austurbæjar og Langness. Saga og
AAalm sveigðu inn á Stórbæjarbrautina, og Gústaf fylgdi
þeim eftir. En snögglega sneri hann við og gekk hröðum
skrefum til baka. Sjálfur vissi hann ekki, hvers vegna
hann gerði þetta. Það var eins og eitthvert ómótstæðilegt
af I hefði skyndilega snúið honum við og skipað honum að
halda í gagnstæða átt. Hann skálmaði eins hratt og hann
gat á móti snjódrífunni. Hann gat enga grein gert sér
fyrir tilfinningum sinum og hugsun. Loks var hann
kominn heim á torgið í Vesturbæ. Þar kom einhver á
móti honum. Það var Katrín. Hún var berhöfðuð, en
hafði fleygt sjali yfir axlirnar.
„Gústaf!" stundi hún.
Hann anzaði engu, heldur tók á rás upp brekkurnar.
Katrin hraðaði sér á eftir honum. Heima á Klif inu stóðu
útidyrnar galopnar og Ijós logaði á lampanum. Gústaf
æddi inn, hristi af sér snjóinn við eldavélina og
byrjaði síðan að tína af sér spjarirnar. Katrín kom
másandi á eftir honum og flýtti sér að búa um hann á
slagbekknum. Svo rétti hún úr sér með koddann í
höndum og leit á Gústaf, sem var að sparka af sér
skónum.
„Ég fann, að það var eitthvað illt að gerast", sagði hún
ofur stillilega. „Ég lagðist á bæn og bað og bað, eins og
ég væri ekki með öllum mjalla".
Gústaf svaraði ekki. Hann f lýtti sér upp í bólið og dró
brekánið upp fyrir höf uð. Katrín slökkti á lampanum og
lagðist einnig út af.
Gerðu það. Ég \
, er farinn út á
skeiðvöllinn. \
Leita að manni með kúluhati
sem stundar veðreiðar.
>Eins og að leita
I að saumnál í;
heystakk.
Nei, ég hafði
augun iokuð.
Varstu ekki
hræddur?
Mörgum
sinnum.
Hefurðu einhvern
Stima séð draug?
LAUGARDAGUR
8. marz
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar,
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 íþróttir. Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
14.15 Að hlusta á tónlist, XIX.
Atli Heimir Sveinsson sér
um þáttinn.
15.00 Vikan framundan.
Magnús Bjarnfreðsson
kynnir dagskrá útvarps og
sjónvarps.
16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregnir. tslenzkt mál. Dr.
Jakob Benediktsson flytur
þáttinn.
16.40 Tiu á toppnum.
17.30 Sögulestur fyrir börn.
Sverrir Kjartansson les
„Bondóla kasa” eftir Þor-
stein Erlingsson.
18.00 Söngvar I léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Frá Norðurlöndum.
20.00 Hljómplöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 „Annarlegt fólk”, smá-
saga eftir Maxim Gorki i
þýðingu Kjartans Ölafsson-
ar. Ævar Kvaran leikari les.
21.15 Kvöldtónleikar. a. Fil-
harmóniusveit Berlinar
leikur „Eine kleine Nacht-
musik” eftir Mozart, Her-
bert von Karajan stjórnar.
b. Dietrich Fischer-Dieskau
syngur skozk þjóðlög. c.
Christian Ferras og Pierre
Barbizet leika þrjár
rómönsur fyrir fiðlu og
pianó eftir Schumann. d.
Gachingerkórinn syngur
Fjóra söngva fyrir kvenna-
kór, horn og hörpu eftir
Brahms, Heinz Lohan og
Karl Ludwig leika á horn og
Charlotte Cassedanne á
hörpu, Helmut Rilling
stjórnar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (36).
22.25 Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur
8. mars 1975
16.30 íþróttir. Knattspyrnu-
kennsla.
16.40 Enska knattspyrnan.
17.30 Aörar iþróttir. Um-
sjónarmaður Öm a r
Ragnarsson.
18.30 Lina langsokkur. Sænsk
framhaldsmynd, byggð á
sögu eftir Astrid Lindgren.
10. þáttur. Þýðandi Kristin
Mantyla. Aður á dagskrá
haustið 1972.
19.15 Þingvikan. Þáttur um
störf Alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
19.45 Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.30 Elsku pabbi. Breskur
gamanmyndaflokkur. Karl-
maður á heimilinu.Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
20.55 Ugla sat á kvisti. Get-
raunaleikur. Umsjónar-
maður Jónas R. Jónsson.
21.40 Moskva. Stutt sovésk
kvikmynd um höfuðborg
Ráöstjórnarrikjanna.
21.50 Skrimslið góöa. (La
belle et la bete). Frönsk bió-
mynd frá árinu 1946, byggð
á gömlu ævintýri. Aðalhlut-
verk Jean Marais og Josetté
Day. Leikstjóri Jean Coct-
eau. Þýðandi Ragna Ragn-
ars. Maður nokkur slitur
upp rós á leið sinni heim úr
ferðalagi og gefur hana
dóttur sinni. En honum hef-
ur láðst að athuga, hver sé
eigandi rósarinnar. Hann
reynist vera ógurlegt
skrimsli, sem krefst dóttur
mannsins að launum fyrir
rósina, en hótar honum lif-
láti ella.
23.30 Dagskráriok.