Tíminn - 26.03.1975, Qupperneq 1
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SfcCULATUNI 6 - S'lfvil.(91)19460
ÆHGIR"
Aætlunarstaðir:
Biönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Fóstureyðingafrumvarpið:
UNDIRSKRIFTA-
SÖFNUN OG SAM-
TÖK Á BÁÐA BÓGA
FÓSTUREYÐINGALÖGGJÖFIN
er nú að verða mikið hitamál, og
hefur verið stofnað til undir-
skriftasöfnunar og samtaka á
báða bóga. A mánudaginn var
voru stofnuð „baráttusamtök
fyrir s jálfs ák v örðunarr étti
kvenna til löglegrar fóstureyðing-
ar”, og á annan dag páska er I
ráði að stofna önnur samtök, sem
beita munu sér gegn fóstureyð-
ingum. Fyrir nokkru skrifuðu eitt
hundrað konur undir yfirlýsingu
til framdráttar frjálsum fóstur-
eyðingum, og i gær komu hundrað
og niutiu konur á framfæri yfir-
lýsingu, þar sem fagnað er, að
þrengd voru ákvæði fóstureyð-
ingafrumvarpsins um rétt til fóst-
ureyðinga, og jafnvel talið, að
þau hefði átt að þrengja meira.
Læknasamtök sendu i gær út
greinargerð sina, þar sem frum-
varpið er stutt i þeirri mynd, sem
þar er nú I. Á aðalfundi Félags
læknanema var samþykkt álykt-
un, þar sem talið er rangt, að
læknar hafi ákvörðunarvaldið.
Stofnfundur „baráttusamtaka
fyrir sjálfsákvörðunarrétti
kvenna til löglegrar fóstureyðing-
ar,” var haldinn á Hótel Sögu, og
sóttu hann mest konur. Gerðust
329 stofnfélagar. F'undarstjóri
var Jóhanna Kristjónsdóttir.
Kosin var tíu manna
framkvæmdanefnd og skipa hana
Ingólfur Sveinsson læknir, Jón G.
Stefánsson læknir, Bessi Jó-
hannsdóttir kennari, Ástriður
Karlsdóttir Tynes hjúkrunar-
kona, Gerður Steinþórsdóttir
kennari, Álfheiður Ingadóttir lif-
fræðinemi, Guðriður Schröder
yfirhjúkrunarkona, Rannveig
Jónsdóttir kennari, Vilborg
Sigurðardóttir kennari og Helgi
Skúli Kjartansson sagnfræði-
nemi.
t fréttatilkynningu segir, að
„markmið samtakanna sé að
vinna að þvi, að frumvarp til laga
um ráðgjöf og fræðslu varðandi
kynlif og barneignir og um fóstur-
eyðingar og ófrjósemisaðgerðir
verði lögfest óbreytt frá þvi, er
það var lagt fram yfir alþingi á
94. löggjafarþingi 1973”.
Að samtökum þeim, sem beita
munu sér gegn fóstureyðingum
og stofna á annan dag páska, hef-
ur blaðinu verið tjáð, að standa
muni forystumenn ýmissa félags-
samtaka, þar á meðal kristilegra,
læknar, prestár, kennarar og
menn úr fleiri starfsgreinum.
Aflasæld vestra
ÁGÆTUR AFLI er nú á Breiða-
firði. Bátar úr verstöðvum á
Snæfellsnesi hafa fiskað vel, og
bátar á Patreksfirði fá nú tuttugu
og upp I fjörutiu og fimm lestir i
róðri.
Af Patreksfjarðarbátum hefur
Vestri aflað mest I einum og
sama róðri, fjörutiu og fimm lest-
ir, en Garðar hefur fengið þrjátiu
og sjö.
Aflinn er vænn og fallegur
þorskur.
Utför Jóhannesar Eliassonar bankastjóra fór fram frá dómkirkjunni I gær. Séra Jón Auðuns
jarðsöng. Myndin var tekin er bankaráðsmenn og bankastjórar Utvegsbankans báru kistuna úr
kirkju. — Timamynd: Gunnar.
FRYSTIHUSUM OG FISKVINNSLU-
STÖÐVUM Á SUÐURNESJUM LOKAD ?
Lokun yfirvofandi 1. april vegna vanskila á rafmagnsgjöldum
OÓ—Reykjavik. Otlit er á að all-
flestum hraðfrystihúsum og
nokkrum fiskvinnslustöðvum
öðrum á Suðurnesjum verði lokað
1. april n.k. vegna vanskila á
greiðslum fyrir rafmagn. Er
ástandið svipað I þessu efni, um
öil Suðurnes, nema að ekki mun
vera hætta á lokun fiskvinnslu-
stöðvanna i Grindavik.
1 Ytri- og Innri-Njarðvik vofir
lokun yfir þrem frystihúsum og
nokkrum fiskvinnslustöðvum
öðrum. Hjá rafveitunni þar eru 5
millj. kr. útistandandi siðan fyrir
áramót. Jóhann Lindal Jóhanns-
son rafveitustjóri sagði, að
ógjörningur væri að reka rafveit
una þegar ástandið er svona.
Rafveitan skuldar þetta fé með
hæstu vöxtum, og ef heldur sem
horfir er ekki um annað að ræða
en nota lokunarheimildina, og er
það ekki gert fyrr en I ýtrustu
nauðsyn. Það eru takmörk fyrir,
sagði Jóhann hvað þeir, sem við
skuldum geta beðið lengi þótt við
borgum háa vexti en Suðurnesja-
menn kaupa rafmagn af Raf-
magnsveitum rikisins, sem aftur
kaupir af Landsvirkjun. Fyrir
miðjan marzmánuð var Lands-
banka og Útvegsbanka tilkynnt
að til stæði að loka fiskvinnslu-
stöðvunum 1. april ef raf-
magnseikningar yrðu ekki
greiddir fyrir þann tima. Frá
þeim stofnunum hefur enn ekkert
heyrzt um málið.
Fyrr I vetur var lokað fyrir raf-
magn til eins frystihúss i Njarð-
vikum og var þá hótað málsókn ef
ekki yrði opnað aftur, þvi að fisk-
birgðir i frystihúsunum liggja
undir skemmdum sé rafmagnið
tekið af þeim. Þá var þvi til svar-
að að rafveiturnar ættu frostið i
fiskinum, þvi að þaðan hefði ork-
an komið til að frysta afurðirnar
og leystist það mál.
Nú er páskahrotan að byrja og
mikið að gera við fiskvinnslu á
Suðurnesjum sem viðar, og er
sérstaklega bagalegt fyrir þær
sakir, ef hætta verður fiskvinnslu
vegna lokunar fyrir rafmagn, —
og verði lokað I fleiri sólarhringa
skemmist sá fiskur, sem búið er
Hann flyt-
ur 2-3000
tonn á dag
gébé—Rvik — Basalt heitir
pramminn, sem flytur grjót-
ið I uppfyiiingu nýja hafnar-
garðsins I Þorlákshöfn. Hann
var smiðaður I Færeyjum
fyrir danska fyrirtækið Phil
& Sön, og notaður þar við
hafnargerð, en hingað til
lands var hann dreginn frá
Hirtshals I Danmörku, þar
sem hann var einnig notaður
við hafnargerð. Basalt getur
tekið rúmlega eitt þúsund
rúmmetra I hverri ferð, en
tlu ferðir fer hann á dag með
grjót I fyllinguna, og veröa
það þvi um tvö til þrjú
þúsund tonn. Tímamynd
þessa tók Gunnar, er Basalt
var á leið út úr Þorlákshöfn,
með „aðeins” tvö hundruð
tonn af grjóti, þar sem fjara
var og ekki unnt að flytja
meira i einu. Nánar verður
greint frá hafnargerðinni i
Þorlákshöfn I Tlmanum inn-
an tiðar.