Tíminn - 26.03.1975, Page 3

Tíminn - 26.03.1975, Page 3
Miðvikudagur 26. marz 1975. TÍMINN 3 Kirkjukvöld í Dómkirkjunni ó skírdag Bræðrafélag Dómkirkj- unnar heldur sitt árlega kirkjukvöld i Dómkirkjunni á skirdag kl. 20:30. I tilefni kvennaársins hef- ur Bræðrafélagið að þessu sinni fengið fjórar konur til að koma þar fram: biskups- frú Magnea Þorkelsdóttir flytur frásögu, kirkjumála- ráðherrafrú Dóra Guð- bjartsdóttir flytur hugvekju, Elin Sigurvinsdóttir, óperu- söngkona, syngur einsöng með undirleik Ragnars Björnssonar, dómorganista, og dr. Guðrún P. Helgadótt- ir, skólastjóri, flytur erindi. Ennfremur flytur séra Þórir Stephensen, dómkirkju- prestur, ávarp og séra Óskar J. Þorláksson, dómprófast- ur, flytur hugvekju og bæn. Ályktun Félags starfsmanna stjórnarráðsms: r „Ateljum vinnubrögð borgarráðs" Sú ákvörðun meiri hluta borgarráðs að veita Bygg- ung, sem er byggingafélag á vegum Heimdallar, ein- hverja beztu byggingaióð i bænum, þótt byggingasam- vinnufélagi starfsmanna stjórnarráðsins hefði verið veitt vilyrði fyrir ióðinni, hefur vakið mikla hneykslun og reiði, enda er hér um fá- heyrt póiitiskt siðleysi að ræða, þótt ihaldsmeirihlut- inn I Reykjavik hafi ekki úr háum söðli að detta i þvi efni. Blaðinu hefur borizt eftir- farandi ályktun, sem gerð var á fundi stjórnar Félags starfsmanna stjórnarráðs- ins, hinn 24.3. 1975,1 tilefni af afgreiðslu Borgarráðs Reykjavikur á lóðarumsókn Byggingarsamvinnufélags starfsmanna stjórnarráðs- ins: „Stjórn Félags starfs- manna stjórnarráðsins harmar þá ákvörðun meiri- hluta Boígarráðs Reykja- vikur að ganga fram hjá Byggingarsamvinnufélagi starfsmanna stjórnarráðsins við úthlutun lóðarinnar Hagamelur 51-55 i Reykja- vik, þrátt fyrir jákvæðar undirtektir borgarinnar um tveggja ára skeið. Akvörðun borgarráðs hef- ur valdið mörgum félags- mönnum óþægindum og fjár- hagstjóni. Stjóm Félags starfsmanna stjórnarráðsins gerir sér ljóst, að Byggingarsam- vinnufélag stjórnarráðsins átti ekki tilkall til lóðarinnar umfram aðra, en átelur þau vinnubrögð, sem hér um ræðir og telur að hyglun af þvítagi, sem átti sér stað við úthlutun þessa, sé ekki við hæfi.” Páskahrota á Breiðafirði? BH-Reykjavik. — Vonir tnanna um páskahrotu hafa heidur betur glæðzt undanfarna daga við frétt- ir af góðum afla á Breiðafirði, og sækja bátar viða að af landinu þangað núna. Landa margir i Breiðafjarðarhöfnum, en aðrir, svo sem Suðurnesjabátar, fara með aflann suður, aðallega til Keflavikur. Sem dæmi um aflann má nefna, að i fyrradag kom Ólafur Sigurðsson, Garði, með 40 tonna afla til Keflavikur, en af þvi voru um 25 tonn ufsi. Annars er það eingöngu stórfallegur þorsk- ur, sem bátarnir fá á þessum slóðum. Við ræddum við Sævar Guð- bergsson i Garði i gær, en hann er einn eigenda fiskverkunarinnar i Garði, sem gerir Ólaf Sigurðsson út. Tjáði hann okkur, að ýmsir Suðurnesjabátar hefðu aflað vel á þessum slóðum. Má til dæmis geta þess, að á mánudaginn komu Sveinn Guðmundsson og Sæ- björgin með 10 tonn hvor bátur til Keflavikur, og var allur aflinn fallegur þorskur. Glaðnaði nokk- uð yfir mönnum við fréttirnar, og telja ýmsir vonir um, að páska- hrotan sé að byrja. Kemur það sér sannarlega vel eftir daufa vertið hjá Suðurnesjabátum. Af öðrum Suðurnesjastöðvum var heldur litið að frétta og dauft hljóð, sérstaklega i Grindviking- um, sem sögðu sjóinn steindauð- an fyrir sunnan nes. Þegar við ræddum við Leif Jónsson, hafnarstjóra á Rifi, var gott hljóð i honum, hvað afla- brögðin snerti. Sagði hann okkur að eftir fremur lélega vertiðar- byrjun hefði veiði verið góð sið- ustu vikurnar, og bátarnir verið með þetta 5-8 tonn i róðri siðustu dagana. Kvað hann engan vafa á þvi, að um páskahrotu væri að ræða þarna á Breiðafirðinum og er talsvert um aðkomubáta á miðunum, t.d. eru þarna 14 Ey- firðingar, sem leggja upp á Rifi og Hellissandi, sem er nú raunar sama byggðarlagið. Aflahæst frá áramótum er Skarðsvikin með 587 tonn frá ára- mótum. Skiptjóri á Skarðsvikinni er Sigurður Kristjánsson sem áð- ur. Nýja Skarðsvikin kom fyrir rúmri viku, glæsilegur bátur, en til stendur að selja gömlu Skarðs- vikina, þann mikla aflabát. Leifur Jónsson sagði okkur, að vel hefði gengið að manna stærri bátana á þessari vertið en miður þá minni. Hann sagði einnig, að atvinna hefði verið nóg frá ára- mótum, og ekki hefði hún minnk- að við aflahrotuna núna. Skyldi sá guli ekki gráðugur núna? — Vonir manna um aflahrotu um páskana hafa glæðzt undanfarna daga. — Timamynd: Róbert. Árbók Fornleifafélagsins 1974: 900 ára gömul skreyting hús- bóndasætis? ER ÆVAFORN fjöl með Hringa- rikisútskurði, sem fannst sumar- ið 1974 i Gaulverjabæ I Flóa i leif- um tóftar gamaila gripahúsa, sein jöfnuð voru við jörðu með jarðýtu, brot úr brik virðingar- sætis — eins konar siðborin önd- vegissúla? Um þetta fjallar Þór Magnús- son þjóðminjavörður i nýrri Ar- bók Fornleifafélagsins. I þessari árbók er einnig grein eftir Bjarna Vilhjálmsson þjóð- skjalavörð um'Fannardal i Norð- firði og róðukrossinn þar, sem frægur er. Sveinbjörn Rafnsson skrifar um bergristurnar á Hval- eyri við Hafnarfjörð, Jón Steffen- sen um Arna Magnússon og manntalið 1703, Hörður Agústs- son um öndvegissúlur i Eyjafirði, Hannes Pétursson lesendabréf um Hraunþúfuklaustur, Kristján Jónasson um togkamba og kemb- ingu, Flosi Björnsson á Kviskerj- um um vörðu Sveins Pálssonar i Kviskerjafjöllum og Svavar Sig- mundsson um norska örnefnabók. Nokkrar smágreinar aðrar eru i árbókinni, sem að öllu leyti er hin skemmtilegasta og fróðleg- asta aflestrar, svo sem oft áður. Glöggur er Gylfi Alþýðuflokksmenn hafa löngum verið sammála um ágæti Gylfa Þ. Gislasonar, sem þeir hafa taliö bæði greindasta og gleggsta þingmann l'Iokksins, og þó að viðar væri leitað. Nokkuð reyndi á g 1 ö g g - skyggni Gylfa i siðustu viku, þegar frumvarp rikisstjórnarinnar um efnahagsráðstafanir var til fyrstu umræðu. Þá hafði Gylfi orð fyrir flokknum, eins og oftast, þótt hann sé hættur flokksformennsku, og lýsti yf- ir andstöðu við frumvarpið, sem hann fann flest til foráttu. Jafnframt lýsti hann þvi yfir, að hann myndi þegar við fyrstu umræðu leggja fram breytingartillögu þess efnis, að felldur yrði niður söluskatt- ur af oliu til húsahitunar. Al- þýðuf lokkurinn teldi það skyldu sina að berjast gegn slikum ranglætisskatti. Getur hent beztu menn En slys geta hent beztu menn. Eftir langa og Itarlega ræðu, þar sem Gylfi hafði lýst þvi fjáigiega, að Alþýðu- flokkurinn myndi gera allt, sem i hans valdi stæði til að af- nema sölu- skatt af hús- kyndingar- oliu, tók Halldór E. Sigurðsson samgöngu- ráðherra til máls. Sagðist ráð- herrann gjarnan vilja styðja dr. Gylfa i þessu réttlætismáli, en galiinn væri sá, að það væri ekki hægt af þeirri cinföldu ástæðu, að söluskattur af oliu til húshitunar hefði fyrir löngu verið aflagður. Fátt var um svör af hálfu Gylfa Þ., og enn þá hefur Al- þýðublaðið ekki séð ástæðu til að birta ræðu hans. Hvar er formaðurinn? Ekki alls fyrir löngu efndi Heimdallur, félag ungra Sjálf- stæðismanna, til fundar. Fundarheitiö var: „Hvar eru þingmenn Reykjavlk- ur?”. Ekki fylgir sög- unni, hvort þingmenn Reykjavikur k o m u i leitirnar. En væri nú ekki ráð, að félag ungra jafnaöarmanna efndi til sams konar fundar og gæti fundarefnið t.d. verið: „Hvar er formaður Alþýðuflokks- ins?”. ' Sannleikurinn er sá, að enn , þá hcfur Benedikt Gröndal ekki komið fram sem formað- ur flokksins. Hinn raunveru- legi stjórnandi flokksins er Gylfi Þ. Gislason. Ef um ein- hver stórmál er að ræða I þinginu, er það venjulegast Gylfi, scm talar af hálfu flokksins, en Benedikt er ein- hvers staðar i felum. En kannski á þetta bara að vera svona? Það var Gylfi, sem hafði bæði tögl og hagldir á siðasta flokksþingi Alþýðu- flokksins, og réði ferðinni. Það er kannski i þessu máli, sem greind Gylfa kemur fram? — a.þ. Vandalaust að bjarga óburðinum úr skipinu Gsal-Reykjavik — „Það er siæmt veður hér, svo við gerum lltið annað en að halda hita og ljósum hér I skipinu”, sagði Jón örn Ingvarsson, yfirvélstjóri á Hvassafelli þegar Timinn hafði tal af honum um borð I Hvassa- felii I gærdag. Sagöi Jón örn, að menn frá Björgun hf. væru að leggja veg á malarkambinum að skipshlið, en verkið hefði gengið hálf illa, þvl mikið frost hefði ver- ið á mánudaginn og þvl fallið nið- ur verk að mestu. 1 gær hefði ver- ið svipaða sögu að segja. — Ég tel, að það sé ekkert vandamál, að bjarga áburðar- farminum, sagði Jón örn, og það ætti að vera hægt að bjarga hon- um ekki síður en olíunni, og með sömu aðferð, þ.e. að skipa honum út I pramma sem kæmi upp aö skipssiöunni. Þess vegna tel ég þessa vegalagningu óþarfa með öllu. Björgun h.f. hefur ákveðiö að ryðja veg út að skipinu og var gert ráð fyrir að þeirri vegar- lagningu myndi ljúka I gær, en svo var þó ekki. Þegar þvi verki veröur lokið verður áburðar- farminum ekið frá skipinu út i eyna. — Við tókum oliuna frá sjó á bát sem ristir eins og nótabátur og það er ekkert hægara en að nota sömu aðferð viö björgun áburðar- farmsins. Þetta er mjög þægileg aðferð ef gott er veður. Frá Björgun hf., — sem hefur tekið að sér að bjarga áburðar- farminum fyrir hönd Brunabóta- félags Islands, — eru ellefu menn i Flatey við undirbúning björgunaraðgerða og hafa þeir aðsetur á eynni. Um borð i Hvassafelli eru 7 menn, flestir skipverjar á Hvassafelli, en einn- ig menn frá eigendum skipsins. Ekki er vitað hvað björgun áburðarfarmsins muni taka lang- an tima, en fróðir menn telja að það taki a.m.k. viku. Ef veður gengur niður má fast- lega geta ráð fyrir að þvi verði lokið á fimmtudag. — Við erum búnir að biða nokk- uð lengi eftir ákvörðun varðandi hugsanlega björgun skipsins, sagði Sverrir Þór deildarstjóri hjá Samvinnutryggingum, þegar Timinn hafði tal af honum i gær. Sverrir kvað það myndi vera mun auðveldara aö meta aðstæö- ur allar á strandstað með tilliti til hugsanlegra björgunaraðgerða hvað skipið sjálft áhrærði, þegar búið væri að bjarga áburðar- farminum. Þótt ákvöröun hefði þvi dregizt talsvert á langinn væri enginn skaði skeður, þvi það hefði aldrei komið til greina að reyna björgun skipsins með öllum áburðinum i. Hávaðarok á strandstað Gsal-Reykjavik — Aftaka- veður hefur verið á suður- ströndinni siðasta sólarhring og þvi hefur ekki verið gerð nein tilraun til að ná brezka togaranum D.P. Finn af strandstað skammt austan við Hjörleifshöfða. Varð- skipið Ægir kom upp að suðurströndinni i gær og mun biða úti fyrir strand- staðnum þar til veður lægir, svo fremi það verði innan tiðar. Varðskipsmenn hafa undirbúið björgunaraðgerðir og hafa þeir um borð dráttartaugar og allan ann- an útbúnað, sem til björgunarstarfsins þarf.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.