Tíminn - 26.03.1975, Blaðsíða 11

Tíminn - 26.03.1975, Blaðsíða 11
TÍMINN Miftvikudagur 26. marz 1975. 11 FH MÆTIR BIKAR- AAEIST- URUAA VALS — í Laugardals* höllinni í kvöld FH-ingar mæta bikarmeisturum Vais í handknattleik I Laugar- dalshöliinni I kvöid I 8-liöa úrslit- um bikarkeppninnar. Það má bú- ast við spennandi leik þegar liðin mætast, en þau léku til úrslita i bikarkeppninni 1974. Það lið, sem ber sigur úr býtum í kvöld, trygg- ir sér rétt til að leika i undanrúr- slitunum ásamt Fram, Leikni úr Breiðhoiti og Haukum, sem eru nú þegar búin að tryggja sér rétt til að leika i undanúrslitun- um. Leikur Vals og FH i kvöid hefst kl. 19.15. Körfuknattleikur: KR OG ÁRMANN í ÚRSLIT — í bikarkeppni KKÍ ★ HSK-liðið féll niður í 2. deild ÞAÐ verða bikarmeistarar KR og Armenningar, sem leika til úr- slita I Bikarkeppninni I körfu- knattieik. KR-ingar mörðu sigur yfir stúdentum 80:78 I undanúr- siitunum og Ármenningar sigr- uðu KR-inga (B-Iiöiö) — 77:67. Úrslitaleikurinn fer fram 3. april. HSK-liðið féll niður I 2. deild um helgina, þegar það tapaði fyrir Armanni 79:96. Jón Sigurðsson, hinn snjalli leikmaður Armanns, skoraði 43 stig I leiknum og var algjörlega ústöðvandi. Stúdentar unnu sigur yfir Njarðvikingum I 1. deildarkeppninni 89:83. Víking- ar r Höfða tSLANDSMEISTARAR Vikings verða krýndir meistaratitlinum I kvöld, I „Lokahátlö handknatt- leiksmanna”, sem verður haldin I Sigtúni. Þar taka Víkingar, Vals- menn og FH-ingar, ásamt ts- landsmeisturum Vals I kvenna- handknattleik við verölaunum sinum. Birgir tsleifur Gunnarsson, borgarstjóri hélt hóf fyrir ts- landsmeistara Vikings I Höfða á sunnudaginn. Birgir tsleifurbauð þá Vikinga velkomna og lét i ljós ánægju yfir að Vikingar heföu endurheimt Islandsmeistaratitil- inn aftur til Reykjavíkur. Hér á myndinni til hliðar, sem var tekin fyrir utan Höfða, sést Birgir ts- leifur (fremst fyrir miðju) i hópi íslandsmeistara Vikings. þjálf- ara Vikingsliðsins Karli Benediktssyni og Jóni Aðalsteini Jónssyni, formanni Vikings. (Timamynd Gunnar) A-ÞJÓÐVERJAR.... sjást hér ganga til leiks gegn Belgíumönnum I Evrópukeppni landsliða. Eftir aö- eins 2 mánuði ganga þeir inn á Laugardalsvöllinn. HVAÐ DVELUR STJÓRN KSÍ? ^ Landsliðsmenn okkar í knattspyrnu bíða eftir ,,grænu Ijósi EFTIR aðeins tvo mánuði eru væntanleg hingað til iandsins tvö af fremstu landsliðum Evrópu i knattspyrnu, lið Austur-Þjóðverja, sem náði beztum árangri í landsleikjum 1974 af öllum þjóðum heims, og Frakka, en lið þeirra hefur verið i stöðugri framför. Keppnistimabilið hjá þessum þjóðum stendur nú yfir og eru leikmenn þjóðanna komnir I topp-æfingu. A sama tima stöndum við aðgerðalausir hér heima og enginn undirbúning- ur hafinn fyrir þessa landsleiki. Við hreinlega bíðum með berann rassinn, eftir þvi að A-Þjóðverjar og Frakkar komi og rasskelli okkur! Það er erfitt að átta sig á þvi, hvað dvelur stjórn Knatt- spyrnusambands íslands i landsliðsmálum. Menn eru orðnir hissa á slóðaskapnum hjá stjórn KSl og allir eru sammála um, að nauðsynlegt sé að hefja æfingar strax hjá landsliðinu — og reyndar hefði þurft að hefja þær fyrir löngu. En ekkert gerist — og við erum þegar búnir að missa dýrmætan tima. Heyrzt hefur á stjórnarmönnum KSl, að stjórnin biði aðeins eftir Tony Knapp, sem hefur tekið lands- liðið að sér i sumar. En er það rétt að biða endalaust eftir enska þjálfaranum, sem seinkar stöðugt komu sinni til landsins? Ætlar stjórn KSÍ virkilega að biða aðgerðalaus i landsliðsmálunum, þar til að Tony Knapp kemur hingað til landsins — 1. april? Gerir stjórnin sér ekki grein fyrir þvi, hvað er framundan? Landsliðsmálin virðast vera I algjörlegum ólestri. Það er vitað, að mikið verður um að vera hjá landsliðinu strax i byrjun keppnistimabilsins. Það er greinilegt að stjórn KSÍ gerir sér ekki grein fyrir þvi, að það er erfiður róður framundan. Eftir hið óvænta jafntefli gegn A-Þjóðverjum i Magdeburg sl. keppnis- timabil, er ég hræddur um, að A-Þjóðverjar og Frakkar taki leikina gegn íslendingum alvarlega. Þvi er ekkert hægt að leika það aftur, að stefna fram óundirbúnu landsliði, eins og sl. keppnistimabil og treysta á happa- og glappaað- ferðina. Nei, KSt-stjórnin verður að vakna af „Þyrnirós- arsvefninum” sem allra fyrst og gera eitthvað róttækt i landsliðsmálum okkar. Knattspyrnumenn okkar, sem eru allir af vilja gerðir til að halda merki tslands á lofti á knattspyrnusviðinu, eru orðnir undrandi á sofanda- hætti stjórnar KSI. Þeir eru tilbúnir að hefja æfingar og það fyrir löngu, þvi að þeir gera sér grein fyrir þvi, hvað blasir við. Eftir hverju er stjórn KSt að bíða. Er ekki ástæða til að hefja undirbiining fyrir átök sumarsins i Evrópukeppni landsliða?- SOS. KNATT- SPYRNU- PUNKTAR Luton vann BIKARKEPPNIN: Ipswich-Leeds 0-0 1. DEILD: Liverpool-Newcastle 4-0 Luton-Arsenal 2-0 Birmingham-Carlisle 2-0 2. DEILD: Notts. C.-Nott. For 2-2 Sunderland-Oldham 2-2 Nánar á morgun Eyjamenn komnir á skotskóna EYJAMENN eru nú i miklum ham þessa dagana. A sunnudag- inn rassskelltu þeir nýliða FH 8:0 f æfingaleik i Eyjum. óskar Valtýsson skoraði ,,hat-trick” og nýliðinn Sigurlás Þorlcifsson skoraði 2 mörk og hefur hann nú skorað 7 mörk i 4 leikjum. Þá skoraði örn óskarsson tvö mörk — örn hefur skorað 6 mörk i tveimur leikjum. FH-liðið náði aldrei að ógna Eyjamönnum — þeir komust vart fram yfir miðjr

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.