Tíminn - 26.03.1975, Síða 12
12
TÍMINN
Miðvikudagur 26. marz 1975.
stundir munt þú sanna, aö það eru erf iðustu stundirnar,
sem þú minnist lengst. Það er á þeim, sem guð vitjar
okkar".
,, Já, það getur vel verið. Hvað á ég að gera, Katrín?"
,,Fyrst af öllu verður þú að rækja síðustu skyldurnar
við Jón. Er hægt að flytja líkið heim?"
,,Nei, það er alltof löng leið til þess. Það er sjálfsagt
búið að jarða hann."
„Jæja, en þá verður þú lika að sjá um, að haldin sé
minningarathöf n í kirkjunni, og svo verðurðu að tilkynna
lát hans í blaðinu og bjóða fólki í erf isdrykkju. Þessu öllu
skalt þú koma í kring sjálf. Það er það síðasta sem þú
getur gert f yrir hann. Ég veit lika, að þú ert nógu dugleg
til þess að gera það, ef þú ætlar þér það. — Nú fer ég
heim. Þú getur komið upp eftir til okkar, þegar þig
langar til, en gleymdu ekki að gera það, sem þú átt að
gera. Og biddu guð að gefa þér styrk. Hann er máttug-
astur, þegar við erum veikust. Og vertu svo sæl, barnið
mitt. Komdu til okkar, þegar þig langar til".
Katrín fór. Saga lét bréf in í kistilinn, reis upp og settist
við skrifborðið. Hún skrifaði fyrst dánartilkynninguna
og sendi „Álandstíðindunum" hana til birtingar. Næstu
daga samdi hún við prestinn um minningarathöfn í
kirkjunni og gerði upp reikninga manns síns við útgerð-
arfélagið. Síðan steikti hún og bakaði og bauð öllum
þorpsbúum til erfisdrykkju. Það voru liðnar margar
vikur, þegar þetta var allt um garð gengið.
Árið eftir dó móðir Gretu, en það fékk lítið á barnið,
sem var enn milli vita. Serafía hafði alltaf verið kyrr í
vistinni á Eikiey. Hún varð spönsku veikinni að bráð, er
hún barst á þessar slóðir. Henni elnaði sóttin svo fljótt,
að Katrín komst ekki til hennar með Grétu í tæka tíð
Hún lá afskræmd og vansköpuð á líkbörunum, er þær
komu. En það hvíldi f riður yf ir svip hennar, og í kistuna
hjá henni voru lögð blóm. Húsbændur hennar gáf u henni
góðan vitnisburð og töluðu hlýlega um hana og kostuðu
jarðarför hennar. Isinn var orðinn viðsjáll um þetta
leyti, og menn urðu aðdraga kistuna á sleða yf ir f jörðinn
til Þórseyjar. Eftir jarðarförina tók Katrín við hinum
litlu reitum Serafíu. I dóti hennar fann hún aftur
myndina af Gústaf og lét hana á sinn fyrri stað á drag-
kistunni. Það gladdi hana nú, að hún hafði ekki tekið
myndina af Serafiu.
Aftur barst bergmál af atburðum umheimsins til litlu
eyjanna í Eystrasalti. ( Finnlandi börðust borgarstétt-
irnar við Rússa og rauðliða. Þórsey varð bækistöð
finnskrar sjálfboðasveitar, sem atti að fara til liðs við
hvítliða. Þessir sjálf boðaliðar settust að í hinu nýja húsi
Trúboðsfélagsins og notuðu sundið við kirkjuna til
heræf inga. Eyjarskeggjar héldu sig í hæf ilegri f jarlægð
og gættu þess að blanda sér ekki í deilur, sem þeim
virtist sér óviðkomandi. En alls konar orðrómur og
getgátur bárust mann frá manni: hann er rauðliði, þeir
eru á bandi hvítliða, þessi hvað vera Rússavinur. Börnin
þóttust vera hermenn og gengu fylktu liði eftir
þorpsveginum með hvita borða um handleggina og
trébyssur um öxl. Þau réðust að gömlu fólki og
heimtuðu, að það sýndi vegabréf sín, ef það vildi fá að
komast leiðar sinnar í búðirnar eða peningshúsin.
Svo komu Svíarnir. Þeir höfðu á sér meira hermanna-
snið heldur en hvítliðarnir, enda voru þeir vel að heiman
búnir, — allir í einkennisbúningum, skinnjökkum og með
snjóhvítar húfur. Litil sænsk sveit, sem settist að í
Vesturbæ, tóku sér bólfestu í sama húsi og Rússarnir í
símstöðinni höfðu tekið í sínar þarfir. Einn þeirra stóð
jafnan vörð á veginum með byssu um öxl. Hinir
skemmtu sér meðal þorpsbúa. Þeir töluðu mál, sem
fólkið skildi, og töluðu það svo undarlega, að það lét eins
og heillandi söngur í eyrum Þórseyinga, einkum ungu
stúlknanna. O, hve þeir voru hávaxnir og spengilegir!
Hvílíkar axlir og hvílíkar axlir og hvílíkar hreyfingar!
Og hversu rjóðar og hýreygar voru ekki stúlkurnar! —
Nei, það var hvorki deyfð né drungi á Þórsey þessar
vikur!
Svo komu Þjóðverjar. Nokkrir tugir smávaxinna
manna í slitnum, grænum einkennisbúningum og með
þunga stálhjálma á höfði römbuðu þreytulega og hriðu-
leysislega upp frá Bátvíkinni. Á lotnum herðum þeirra
hvíldi byrði allrar veraldarinnar. I brúnum augum
þeirra, sem aldrei litu hýrlega til nokkurs manns,
spegluðust allar hörmungar styrjaldarinnar. Þeir
brugðu aldrei fyrir sig andurværð Rússanna né opin-
skárri einlægni fátæku, finnsku piltanna og þaðan af
síður glensi hinna vel höldnu Svía. Þetta voru menn, sem
höfðu reynt það, sem gerði þá ólíka öðrum mönnum til
æviloka.
Snögg fyrirskipun kvað við, og hermennirnir röðuðu
byssum sínum í pýramída á torginu. Síðan stutt hvíld,
önnur snögg og hörkuleg fyrirskipun, byssurnar um öxl
og göngunni haldið áfram að húsi Trúboðsfélagsins,
Þorpsbúar, sem safnazt höfðu saman til þess að fagna
K
I
K
U
B
B
U
R
MIÐVIKUDAGUR
26. marz
7.00 Morguniítvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veburfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Flótt-
inn til Ameríku”, smásaga
eftir Coru Sandel Þorsteinn
Jónsson islenzkaði. Sigriður
Eyþórsdóttir .les.
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Vala” eftir Ragnheiði
Jónsdóttur.Sigrún Guðjóns-
dóttir les (8).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spurt og svarað
20.00 Kvöldvala a. Einsöngur
Engel Lund syngur islenzk
þjóðlög. Ferdinand Rauter
leikur á píanó. b. Siðustu
klerkarnir i Klausturhólum
Séra Gisli Brynjúlfsson flyt-
ur annað erindi sitt. c.
„Rósin og stjakinn”, ævin-
týri eftir Ólöfu Jónsdóttur
Höfundur flytúr. d. Fórnfús
maður Ágúst Vigfússon
kennari segir frá Eggert
Lárussyni 1 Bolungarvik. e.
Haldið til haga Grimur M.
Helgason forstöðumaður
handritadeildar Lands-
bókasafns íslands flytur
þáttinn. f. Kórsöngur
21.30 Útvarpssagan: „Köttur
og.mús” eftir Gunter Grass.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (49).
22.25 Leiklistarþáttur I umsjá
örnólfs Arnasonar.
22.55 Nútónatónlist Halldór
Haraldsson kynnir verk
eftir bandariska tónskáldið
George Crumb: „Vox bala-
enae” og „Nótt fjögurra
tungla”.
23.40 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Miðvikudagur
26. marz 1975.
18.00 Höfuðpaurinn. Banda-
risk teiknimynd. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
18.20 Filahirðirinn. Bresk
framhaldsmynd. Hundar
dauðans. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.45 Þú færð ekki að vera
með. Mynd úr samnorræn-
um myndaflokki um vanda-
mál unglingsáranna. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir. (Nordvision Danska
sjónvarpið).
19.10 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Umhverfis jörðina á 80
dögum. Breskur teikni-
myndaflokkur. 8. þáttur.
Endinn skyldi í upphafi
skoða. Þýðandi Heba
Júliusdóttir.
21.00 „Töfraflautan I smið-
um”.Aðkvöldi föstudagsins
langa sýnir Sjónvarpið
óperuna Töfraflautuna eftir
Mozart i sviðsetningu
sænska sjónvarpsins.
Sænska sjónvarpið lét jafn-
framt gera heimildamynd
um þessa upptöku og undir-
búning hennar, en sviðsetn-
ing óperunnar er umfangs-
mikiðverk og átti sér lang-
an aðdraganda. 1 myndinni
ræðir leikstjórinn, Ingmar
Bergman, um verkefnið, og
fylgst er með undirbúningi,
æfingum og upptöku. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
(Nordvision — Sænska
sjónvarpið).
22.05 Að tjaldabaki I Vietnam.
Bandarisk heimildamynd
um striðið i Indókina og þátt
Bandarikjanna i þvi. Siðari
hluti. Dauði Diems.Þýðandi
og þulur Gylfi Pálsson.
22.45 Dagskrárlok.