Tíminn - 02.04.1975, Page 17
Miðvikudagur 2. april 1975.
TÍMINN
17
g draumur"
skoraði mark liðsins á 9. min.
fyrir leikslok.
Ken Hibbitt skoraði mark Úlf-
anna gegn Manchester City úr
vítaspyrnu. Þeir Bobby Moncur
og Alan Foggon skoruðu mörk
„Boro” gegn Burnley. Colin Vil-
joensýndi snilldarleik þegar Ips-
wich vann Leicester 2:1. Hann
hefur oft leikið vel, en þó aldrei
eins og gegn Leicester. Viljoen
lék við hvern sinn fingur og þegar
hann er i þeim ham, mega and-
stæðingar hans vara sig. Leik-
menn Leicester réðu ekkert við
Viljoen, sem skoraði sigurinark
Ipswich. Frank Worthington
skoraði mark Leicester eftir
aðeins 8 min., en „Leeds-baninn”
Clive Woods jafnaði i byrjun slð-
ari hálfleiksins og síðan kom
mark Viljoen á 68.min.
Eddie Kelly var hetja Arsenal á
Highbury, en honum tókst að
jafna (1:1) gegn Stoke þegar 8
min. voru til leiksloka. Geoff
Salmonsskoraði mark Stoke á 33.
min. — „Þetta hefur verið erfitt
hjá okkur, tveir leikir i Lundún-
um á sólarhring”,
sagði hinn snjalli leikmaður Stoke
Alan Hudson, eftir leikinn. Enn
einn nýliði kom fram i sviðsljósið
hjá Arsenal i leiknum — Frank
Stapleton, 18 ára gamall Iri frá
Dublin.
Manchester United vann góðan
sigur gegn York á Old Trafford.
Það voru þeir Willie Morgan og
Lou Macari, sem skoruðu mörk
liðsins. Utlitið var ekki gott hjá
Aston Villa á Villa Park. W.B.A.
hafði yfir 0:1 i hálfleik, en leik-
menn Villa komu tviefldir til leiks
i síðari hálfleik og náðu að sýna
Albion-liðinu i tvo heimana.
Leonard (2) og Hamiltonskoruðu
mörk liðsins. Colin Suggettsýndi
mjög góðan leik, þegar Norwich
vann sætan sigur á heimavelli
Bristol City. Hann var hetja
Angeliu-liðsins og skoraði eina
mark leiksins á 17. minútu.
Mersey-liðin skiptust á að taka
forustuna um páskana. Liverpool
hafði forustuna i 48 tima, þvi að
Everton skauzt aftur upp á topp-
inn með þvi að vinna sigur yfir
Coventry á Goodison Park. Það
var Martin Dobson, sem skoraði
eina mark leiksins — 40 sek. fyrir
leikshlé. Á sama tima tapaði
Liverpool á Viktoriu-leikvellinum
I Stoke (2:0). Það var irski lands-
liðsmaðurinn Terry Conroy, sem
skoraði bæði mörk Stoke, og þar
með hafði hann skorað 7 mörk I
siöustu fjórum leikjum liðsins.
Jeff Blokley, fyrrum Arsenal-
leikmaður,skoraði þýðingarmikið
mark fyrir Leicester. Honum
tókst að jafna (2:2) á siðustu
minútunni á Elland Road. Lee
skoraði hitt mark Leicester, en
mörk Leeds skoruðu þeir Johnny
Giles og Alan Clark. BRIAN
KIDD var hetja Arsenal-liðsins,
sem vann góðan sigur yfir Shef-
field United á Highbury. Hann
kom inn i liðið I staðinn fyrir Alan
Ball, sem er I þriggja leikja
keppnisbanni, og skoraði hann
eina mark leiksins.
Ken Hibbitt lék aðalhlutverkið
hjá Úlfunum, sem unnu stórsigur
yfir Luton (5:2). Hann skoraði
þrjú mörk „hat-trick” fyrir Úlf-
ana. Þá vann Derby stórsigur yfir
Bumley (2:5) á útivelli. Roger
Davis,sem skoraði 5 mörk gegn
Luton, skoraði eitt mark á Turf
Moor. Hin mörk Derby-liðsins
skoruðu þeir Kevin Hector (2),
David Nish og Bruce Rioch.Mörk
Bumley skoruðu þeir Ray Hankin
og Leighton James.
Sunderland vann góðan sigur
yfir Bolton og skoruðu þeir Billy
Hughes og Tony Towers mörk
liðsins. Manchester United vann
þá sigur yfir Oldham og Norwich
tapaði mjög óvænt fyrir Fulham-
liðinu, sem er nú i miklum ham.
Peter Mellor, markvörður
Fulham,á nú hvern stórleikinn á
fætur öðrum. — SOS
Mánudagur (2. i páskum): Arsenal—Sheff. Utd .. 1:0
Burnley—Derby ..2:5
Chelsea—Ipswich . .0:0
Everton—Coventry . . 1:0
Leeds—Leicester . .2:2
Newcastle—Q.P.R . .2:2
Stoke—Liverpool . .2:0
Wolves—Luton ..5:2
TERRY CONROY.....hefur skor-
að 7 mörk i 4 sfðustu leikjum
Stoke.
2. deild:
Blackpool—W.B.A............2:0
Bolton—Sunderland........0:2
Hull—York................2:0
Man.Utd.—Oldham..........3:2
Norwich—Fulham...........1:2
Orient—Oxford............1:1
Portsmouth—Millwall......1:0
Sheff.Wed.—Southampt.....0:1
ISTAÐAN
1. DEILD
Everton 37 15 16 6 50-35 46
Liverpool 38 18 11 10 53-37 45
Stoke 38 16 13 9 61-48 45
Ipswich 37 20 4 13 55-37 44-
Derby 36 18 8 10 62-47 44
Middlesbro 37 16 11 10 50-36 43
Bumley 37 16 9 12 62-58 41
Sheff. Utd. 36 15 10 11 62-58 40
Manch. City 37 16 8 13 48-50 40
Leeds 36 14 11 11 49-39 39
QPR 38 15 9 14 50-49 39
West Ham 37 12 13 12 55-49 37
Wolves 37 13 10 14 54-49 36
Newcastle 37 14 8 15 55-64 36
Birmingh 37 13 8 16 48-52 34
Coventry 37 10 14 13 48-57 34
Arsenal 36 11 10 15 42-43 32
Chelsea 37 9 13 15 40-64 31
Leicester 36 9 11 16 38-53 29
Tottenham 37 10 8 19 42-56 28
Luton 37 8 10 19 36-60 26
Carlisle 37 10 3 24 38-55 23
2. DEILD
Man. Utd. 38 23 8 7 58-28 54
Sunderland 38 17 13 8 61-32 47
Aston Villa 35 18 8 9 56-30 44
Norwich 36 16 12 8 47-32 44
Bristol C. 36 18 7 11 40-26 43
Blackpool 37 14 15 8 36-23 43
Fulham 38 13 14 11 44-35 40
Hull 38 13 13 12 37-51 39
Oxford 38 14 10 14 38-48 38
WBA 35 14 9 13 42-36 37
Southampt 37 13 10 14 47-49 36
Notts Co. 37 11 14 12 42-49 36
Orient 37 9 18 10 25-36 36
Bolton 37 13 9 15 40-38 35
Portsmouth 37 12 10 15 39-45 34
York City 37 13 7 17 46-50 33
Nott. For. 37 10 13 14 38-47 33
Oldham 38 9 13 16 36-43 31
Millvall 37 10 10 17 38-46 30
Nýtt frá Englandi:
Þrjú lið á toppinn!
DERBY sýndi stórgóðan leik I
gærkvöldi, þegar liðið vann sigur
yfir Manchester City (2:1) á
heimavelli sinum Baseball
Ground. Það var mikil harka i
ieiknum til að byrja með og voru
þá fjórir menn bókaðir strax —
Asa Hartford hjá City og Davies,
Rioch og Nish hjá Derby. Rioch
(45 min.) kom Derby á bragðið
með góðu marki og siðan skoraði
hann aftur (53min) eftir sendingu
frá Davies — Skot hans af 20
metra færi skall i marki City við
geysileg fagnaðarlæti áhorfenda.
Marsh var bókaður i siðari hálf-
leik og stuttu eftir bókunina, þá
gaf hann sendingu á Colin Bell,
sem minnkaði muninn i 2:1.
Ipswich var einnig I sviðsljós-
inu I gærkvöldi, en Ipswich og
Vinstrihandarskyttan snjalla úr
FH, Gunnar Einarsson, mun að
ölium likindum fara I keppnis-
ferðalag með v-þýzka liðinu
Göppingen til Bandarikjanna og
S-Ameriku I sumar. Eins og við
höfum sagt frá, þá er Gunnar á-
kveðinn að gerast leikmaður með
Göppingen, liðinu sem Geir Hall-
steinsson lék með. Þegar Iþrótta-
siðan hafði samband við Gunnar
I gærkvöldi, sagði hann, að for-
ráðamenn Göppingen hefðu
hringt til hans fyrir páska og
spurt, hvort hann gæti ekki komið
til V-Þýzkalands i júni. Gunnar
sagði, að hann gæti það, og myndi
Derby skutust upp að hliðinni á
Everton — 46 stig. Angeliu-liðið
vann góðan sigur yfir Birming-
ham á heimavelli sinum Portman
Road. Ken Burns tók forustuna
fyrir Birmingham, en bak-
vörðurinn Ian Collard jafnaði
með þrumuskoti af 25 metra færi
og siðan bætti Ipswich við tveim-
ur mörkum — Clive Woods og
Mick Lambert — áður en Bob
Hatton skoraði annað mark
Birmingham. Þeir Kevin Beattie
og David Johnston áttu stórleik
hjá Ipswich.
30 þús. áhorfendur voru á Fil-
bert Street þegar Leicester vann
góðan sigur yfir West Ham (3:0).
Þetta er mesti áhorfendafjöldi
sem hefur verið á heimavelli
Leicester i vetur og áhorfendurn-
hann fara til V-Þýzkalands, strax
eftir að hann væri búinn að ljúka
stúdentsprófi.
Göppingen er búið að senda
Gunnari samning, sem hann mun
skrifa upp á hér heima og af-
henda forráðamönnum félagsins
við komuna til V-Þýzkalands.
Gunnar sagði, að Göppingen
myndi nota sumartimann til að
ferðast og láta leikmenn félagsins
þannig kynnast betur. Nú er á
prjónunum keppnis- og kynning-
arferö til S-Ameriku og Banda-
rlkjanna, þar sem Göppingen-lið-
iö mun leika og kynna handknatt-
leik. -SOS
ir fóru svo sannarlega ekki von-
sviknir heim. Frank Worthington
skoraöi fyrsta mark heimamanna
úr vitaspyrnu og siðan skoraði
Garland tvö mörk á tveimur
siðustu min. leiksins og kórónaði
þar með sigur Leicester-liðsins,
sem fjarlægist nú óðfluga hættu-
svæðið á botninum.
En litum nú á úrslit leikja i
gærkvöldi:
Carlisle—Burnley..........4:2
Derby—Man.City ...........2:1
Ipswich—Birmingham .......3:2
Leicester—WestHam ........3:0
Sheff.Utd.—Leeds..........1:1
2. deild:
Brigtol C.—Bristol R......1:1
Millwall—Aston Villa......1:3
Nott.For.—Sheff.Wed.......1:0
York—Blackpool............0:0
Joe Laidlaw skoraði tvö af
mörkum Carlisle-liðsins, sem er
nú óstöðvandi á heimavelli. Aston
Villa tryggði stöðu sina I 2. deild
með góðum sigri I Lundúnum.
Mörk liðsins skoruðu Hamilton,
Leonard og Little — SOS
STAÐAN
Staðan á toppnum i 1. deildar-
keppninni er nú þessi:
Everton......37 15.16 6 50:35 46
Ipswich.......38 21 4 13 58:39 46
Derby.........37 19 8 10 64:48 46
Liverpool....38 18 11 10 53:37 45
Stoke.........38 16 13 9 61:48 45
Staðan á botninum er nú þessi i
1. deild:
Leicester....37 10 11 16 41:53 31
Chelsea.......37 9 13 15 40:64 31
Tottenham... .37 10 8 19 42:56 28
Luton.........37 8 10 19 36:60 26
Carlisle......38 11 3 24 42:57 25
Gunnar til
S-Ameríku
KNATTSPYRNUPUNKTAR
KNAPP ER KOMINN!
Hann stjórnaði æfingu hjá KR í gærkvöldi og honum
verða gefnar frjálsar hendur með landsliðið
TONY KNAPP, þjálfari KR-liðs-
ins, kom til landsins I gær og
stjórnaði hann fyrstu æfingunni
hjá KR-liðinu á Melavellinum I
gærkvöldi. Knapp verður að öll-
um likindum landsliðsþjálfari á-
fram og mun hann nú fljótlega
fara að undirbúa landsliðið fyrir
átökin gegn A-Þjóðverjum og
Frökkum, sem eru væntanlegir
hingað eftir tæpan mánuð.
Iþróttasiðan frétti i gær, að hon-
um myndi verða gefnar frjálsar
hendur með undirbúning lands-
liðsins, en hann, og Jens Sumar-
liðason verða I landsliðsnefnd, og
stjórn KSt hefur nú augastað á
þriðja manninum i nefndina. Það
má þvi búast við, að Knapp fari
að rifja upp leikkerfið með lands-
liðsmönnum okkar nú næstu dag-
ana.
JÓN HERMANNSSON fyrirliði
Ármannsliðsins nefbrotnaði i æf-
ingaleik gegn Vikingi um páks-
ana. Jón lenti I árekstri við einn
Vikingsmann og lauk þvi á þann
hátt, að Vikingurinn sló með
krepptum hnefa I andlitið á Jóni,
með þeim afleiðingum að hann
nefbrotnaði. Leiknum lauk með
sigri Ármanns 4:2 og var leikur-
inn grófur og harður. Armann og
Vikingur léku siöan annan æfing-
arleik og lauk honum með jafn-
tefli 2:2. Þá léku Vikingar æfing-
arleik gegn KR og varð jafntefli
3:3.
Framararbrugöu sér til Selfoss
um páskana og léku þar æfingar-
leik gegn heimamönnum. Fram-
arar sigruðu 3:0 og skoraði hinn
ungi og efnilegi miðherji liðsins
Steinn Jónsson fyrsta mark liðs-
ins. Framarar binda miklar vonir
við Stein.sem er 18 ára gamall og
marksækinn leikmaður. Þá skor-
TONY KNAPP.
aði Marteinn Geirsson úr vlta-
spyrnu og Kristinn Jörundsson
bætti þriðja markinu við.
KEFLVÍKINGAR unnu sigur
yfir Breiðablik 2:1 i Litlu-Bikar-
keppninni. Leikurinn fór fram I
Keflavik og var mjög slakur.
Hörður Ragnarsson skoraði
fyrsta mark Keflvikinga á
keppnistimabilinu og siðan jafn-
aði Hinrik Þórhailsson 1:1, en
Steinar Jóhannsson skoraöi
sigurmark Keflvikinga. Þá gerðu
FH-ingar jafntefli við Skagamenn
i keppninni 1:1 á Kaplakrikavell-
inum.
Staðan er nú þessi I Litlu-bikar-
keppninni:
Akranes ..........3 1 2 0 5:3 4
Keflavik...........3 1 1 1 2:3 3
Breiðablik .......3 0 2 1 3:4 2
Hafnarfjörður......1 0 1 0 1:1 1
EYJAMENN unnu sigur yfir
Val 2:1 i sögulegum æfingaleik i
Eyjum um páksana. Þar átti
„heimadómari” skemmtilega
þætti og kryddaði hann leikinn
með furðulegum dómum. Eyja-
menn komustyfir 2:0 með mörk-
um frá Tómasi Pálssyni og
óskari Valtýssyni, sem skoraði
úr vafasamri vitaspyrnu. Ingi
Björn Albertsson minnkaði mun-
inn I 2:1 og upp úr þvi lét dómari
leiksins ljós sitt skina. Hann
dæmdi eitt sinn hornspyrnu á Val
og þegar Eyjamenn voru að fara
til að framkvæma hana, þá veif-
aði annar linuvörðurinn. Eftir
linuvörðinn, benti hann á vita-
punktinn og dæmdi víti.
Hann sagði, að einn Vals-
maður hefði snert knöttinn með
hendi inni i teig áður en knöttur-
inn fór út fyrir endamörk. óskar
Valtýsson framkvæmdi vita-
spyrnuna, en Sigurður Dagsson,
markvörður Vals, gerði sér litið
fyrir og varði hana. Dómarinn
var ekki ánægður og lét hann
framkvæma spyrnuna aftur, þar
sem hann sagði að Siguröur hefði
hreyft sig i markinu, áður en
spyman var framkvæmd. óskar
tók vitaspyrnuna aftur — skaut
hann þá fram hjá markinu. Vals-
menn spurðu þá dómarann, hvort
hann vildi ekki láta framkvæma
vitaspyrnuna i þriöja sinn.
VALSMENN léku tvo aðra æf-
ingaleiki um páskana^ A skirdag
gerðu þeir jafntefli við Breiðablik
2:2. Hinrik Þórhallsson og Guö-
mundur Þórðarson komu Blikun-
um yfir 2:0, en þeir Alexander Jó-
hannessonog Kristinn Björnsson,
jöfnuðu. Valsmenn sigruðu siðan
Armenninga 1:0 á laugardaginn
og skoraði Bergsveinn Alfonsson
eina mark leiksins. —SOS