Tíminn - 05.04.1975, Page 1
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
Lu M...........................................ii. i ..
Landvélar hf
1'
\'a T
VID FAUM FRUMMYND
IRNAR ÚR FERDABÓK
EGGERTS OG BJARNA
SJ-ReykjavIk — Danska vlsindafélag-
ið hefur gefiö tslendingum frumgerð
mynda þeirra, sem eru I Ferðabók
Eggerts Ólafssonar og Bjarna Páls-
sonar og fleiri myndir, sem danskir
listamenn gerðu um leið en ekki komu
I bókinni. Forseti tslands dr. Kristján
Eldjárn hefur fengið bréf frá Visinda-
félaginu þessa efnis, en myndirnar eru
hér á landi I láni vegna endurútgáfu
Feröabókarinnar sl. sumar.
— Þaö er rausnarlegt af Danska
visindafélaginu að gefa okkur þessar
merku, sögulegu teikningar, sagði
Sigurður Bjarnason sendiherra I
Kaupmannahöfn þegar við höfðum tal
af honum vegna þessa máls. Ég hef átt
töiuverð viðskipti við Visindaaka-
demluna, sem er I sama húsi og Is-
lenzka sendiráðið og samvinna okkar
hefur verið ánægjuleg.
— Þetta eru geysifallegir hlutir sem
viö eignumst nú. Vlsindafélagið lánaöi
bókaútgáfunni Erni og örlygi myndir
þessar vegna endurútgáfu ferðabókar
þeirra Eggerts og Bjarna, en I henni
birtast myndirnar I fyrsta sinn lit-
prentaðar. Fáeinar myndir höfðu áöur
veriö litprentaöar I afmælisbæklingi
Danska visindafélagsins. Siðan átti að
senda myndirnar til Danmerkur aftur,
en þá hafði verið beðið um að þær yrðu
á sýningu I Norræna húsinu I tilefni af
þjóöhátiðarárinu. Að henni lokinni átti
enn að senda myndirnar til Kaup-
mannahafnar, en dráttur varð á að
Danska visindafélagið gæfi fyrirmæli
um hvernig þeirri sendingu skyldi
hagaö og loks kom tilkynning um að
myndirnar færu ekki frá Islandi,
ákveðið hefði verið að gefa þær hing-
að.
Ekki mun hafa veriö ákveðið hvar
myndir þessar hljóta framtiðarstað.
j."'■ ■,
Fjöldi beztu
bátanna er
nú til sölu
fj.—Reykjavik — ,,Ég fullyröi, að
á annan tug af okkar beztu bátum
eru til sölu og helzt út úr land-
inu,” sagði Jón Ármann Héðins-
son, alþm., I samtali við Timann I
gær, en Jón er einn eigenda út-
gerðarfyrirtækisins Hreifa á
Húsavik. Mun Tómas Þorvalds-
son, útgerðarmaður I Grindavik,
aö öllum Hkindum kaupa afla-
skipið Héðin Þ.H. af Hreifa.
Jón kvað mögulegt að selja bát-
inn úr landi, en þeir vildu heldur
hafa hinn háttinn á, ef mögulegt
reyndist. „Það þýðir ekkert að
vera að standa i þessu, þegar
ekkert er hlustað á okkur, sem
rekum skip vel,” sagði Jón. „Það
er ekki einu sinni hlustað á beiðni
okkar um fjármagnsfyrirgreiðslu
meðan milljónatugum er ausið I
miður og illa rekna útgerð.
Ég get nefnt sem dæmi, að skip
eins og Héðinn er með fjórar
nætur gangandi, en við fáum bara
sömu fyrirgreiðslu og maöur,
sem er með eina nót i gangi. Þetta
er auðvitað ekki hægt, og meðan
ráðamenn kalla hvitt svart og
svart hvitt er engin leið að standa
i þessu.”
r
FIB kannar möguleikana
á benzínsparnaði: SS.ÍÆLr
tvisvar á árí
Starfsmenn við Sigöldu hóta
vinnustöðvun vegna ,,samnings-
svika" Energoprojekt
gébé—Rvik — A fimmtudaginn
héldu stéttafélögin I Rangár-
vallasýslu og nefnd frá viösemj-
endum júgóslavnesku verktak-
anna við Sigölduvirkjun, fund
með Landsvirkjun og lögðu
fram kröfurog gerðu grein fyrir
ástandi mála. Eins og kunnugt
er, hafa vandræði og erfiðleikar
skapazt milli starfsmanna
virkjunarinnar og verktakanna,
telja starfsmenn að verktakarn-
ir hafi ekki staðið við gerða
samninga. Tlminn leitaöi nán-
ari upplýsinga um mál þetta hjá
Sigurði Óskarssyni, starfs-
manni Verkalýðsfélaga Rang-
árvallasýslu.
— Á fundinum á fimmtudag-
inn gerðu stéttafélögin Lands-
virkjun grein fyrir þvi hvaö
ábyrgir yfirmenn Energopro-
jekt sýna undirrituðum
samningum litla virðingu með
siendurteknum brotum, sagði
Sigurður. — Má þar nefna sér-
staklega viröingarleysi verk-
takanna gagnvart öryggis- og
brunamálum. Tók Siguröur
fram I þessu sambandi, að
brunahanar væru brotnir á
vinnustaðnum og hefðu verið
það I nokkra mánuði án þess að
nokkur tilraun væri gerð til að
gera við þá, brunaslöngur væru
notaðar til að dæla vatni úr
skurðum og sjúkrabifreiðar
notaðar i snatt. — Flest önnur
öryggismál eru svo eftir þessu, Frh. á bls. 15
sagði Sigurður.
Þá bentu stéttafélögin einnig
á óreiöu I launagreiöslu og
timaskýrslum og á tortryggni
fólks gagnvart ávisunum
stiluðum fram i timann, og
áánægju vegna tilrauna við aö
sniðganga það ákvæði
samninga að greiða hluta launa
i peningum.
— Stéttafélögin og viðkom-
andi nefnd frá viðsemjanda
júgóslavanna, gerði Lands-
virkjun ljóst, að verði ekki um-
svifalaus og algjör kúvending á
þessum vinnubrögðum fyrir-
BH—Reykjavik — Við erum með
þessu að reyna að spara benzln,
sagði Sveinn Oddgeirsson, fram ■
kvæmdastjóri Félags islenzkra
bifreiðaeigenda I gær við blaða-
mann og ijósmyndara Timans, er
þeir hittu hann niðri i Lækjar-
götu, þar sem hann var önnum
kafinn við aö stöðva bifreiöar og
rabba við bifreiðarstjórana.-----
Ekki aðeins með þvi að stöðva þá
og rabba við þá, heldur einnig að
fá þá i lið með okkur við athugun
á þvi, hversu mikið megi spara,
með þvi að stilla bifreiðarnar
reglulega, en þetta atriði er
geysimikilvægt.
— Þessi athugun er þannig
hugsuð, að við íáum nokkra bif -
reiðarstjóra til þess að fylgjast
með eyðslu bifreiðar sinnar i
vikutima. Aö vikutima liðnum er
farið með bifreiðina i stillingu á
vegum viðkomandi bifreiðaum-
boðs, og siðan er fylgzt með
eyðslunni i vikutima að henni lok-
inni.
Við spurðum Svein að þvi, hvaö
hann áliti mega spara með reglu
legu eftirliti með stillingum gang-
kerfis bifreiðarinnar.
— Það er nú það, sem við erum
að reyna að finna með þessari at-
hugun, þvi að hún hefur ekki fariö
fram áður hér á landi. En að þvi
er við höfum komizt næst hafa
rannsóknir leitt i ljós, að eftir 5000
km akstur á nýstilltum Volks-
wagen mátti spara 2 lltra á
hverja hundrað kilóm • með þvi
að stilla hann.
Hversu oft þarf að stilla bifreið,
svo að vel sé?
— Ég held, að stilling vor og
haust sé lágmark, svo að vel sé.
Hversu margir bilar veröa
teknir i þessa athugun?
— Við skiptum bifreiðunum i 3
stærðarflokka, og við erum að
reyna að ná i 3-4 úr hverjum
flokki.