Tíminn - 08.04.1975, Side 19

Tíminn - 08.04.1975, Side 19
Þriðjudagur 8. aprfl 1975. TÍMINN 19 1 Framhaldssaga ! ÍFYRIR BÖRN S Mark Twain: Tumi gerist leyni- lögregla ég lyfti lurknum”, hélt Silas frændi áfram, „gleymdi ég skapara minum og mundi ekki eftir neinu öðru en beiskju hjarta míns — megi guð fyrirgefa mér. Og svo sló ég. Andartaki siðar var ég alveg hræðilega sorgbitinn og aumur. Ég var alveg eyði- lagður og sundur- kraminn og sá eftir þvi, sem ég hafði gert, en ég hugsaði til fjöl- skyldu minnar, og vegna hennar faldi ég likið i runnanum og bar það siðan út á tóbaksakurinn og fór siðan þangað út i nátt- myrkrinu og gróf það þar . . En nú spratt Tumi upp úr sæti sinu og hrópaði: „Ég hef það”. Og hann veifaði með hendinni svo glæsilega til gamla Silasar frænda og sagði: „Seztu niður. Það hefur verið framið morð, en Silas frændi hefur ekki framið það og á enga sök á þvi”. Það varð svo hljótt, að maður hefði getað heyrt saumnál detta. Silas lét fallást undrandi og ruglaður ofan á stól sinn, án þess að þær Sallý og Benný tækju eftir þvi, af þvi að þær voru allt of undrandi og gáðu ekki annars en stara galopnum augum á Tuma án þess að vita, hvað þær gerðu. Og Verndum votlendi meðan tími er til Fjórða rit Landverndar komið út Sj-Reykjavík — „Venjulega er ekki farið að tala um verndun lif- rlkis landsvæða fyrr en þau eru komin á blað hjá einhverju fram- kvæmdaráðinu.” Svo fórust prófessor Arnþóri Garðarssyni orð á fundi, sem haldinn var I til- efniUtgáfu fjórða rits Landvernd- ar, sem fjallar um votlendi á ís- landi og vernd þess. Að sögn Arn- þórs er nú búið að rækta upp um 1/4-1/3 af láglendismýrum á landinu og taldi hann vafasamt að það hefði haft skaðleg áhrif á fuglalif enn sem komið er, en mál væri komið til að vera á verði og auka rannsóknir til að byggja á. Viða um lönd skipuleggja menn nú aðgerðir til verndar votlendi, og er þar átt við mýrar, vötn, fjörur og grunnsævi Ut á sex metra dýpi. 1 Suður Evrópu og Afriku er brýnna aðgerða þörf til vemdar fuglalifi, en svo er ekki hér enn sem komið er, — höfum við þvi allt að vinna en engu að tapa að taka þátt i samstarfi um vemdun votlendis, sagði Arnþór Garðarsson. I bókinni Votlendi eru ritgerðir ellefu sérfræðinga skrifaðar fyrir almenna lesendur en jafnframt með það i huga að kynna mönnum íhinum ýmsu sérgreinum afstöðu annarra visinda- og fræðimanna til sama efnis, votlendis. Ritinu er skipt i fjóra megin- kafla. Fyrstu fimm greinarnar fjalla um islenzkt votlendi og lif- riki þeirra. Þær rita Þorleifur Einarsson, Steindór Steindórsson frá Hlöðum, Hákon Aðalsteins- son, Agnar Ingólfsson og Arnþór Garðarsson. Þá skrifa þeir Asgeir L. Jónsson, Óttar Geirs- Afhenti trúnaðar- bréf á Kúbu Haraldur Kröyer afhenti hinn 31. marz 1975 forseta Kúbu, dr. Osvaldo Dorticós Torrado, trúnaðarbréf sitt sem send.iherra íslands á Kúbu með aðsetri i Washington, D.C. son, Ingvi Þorsteinsson og Gunn- ar Ólafsson um búskaparnytjar. Og loks fjalla Helgi Hallgrims- son, Hjörtur E. Þórarinsson og Arnþór Garðarsson um verndunarmál. Aftast I bókinni er skrá um is- lenzkt votlendi með upplýsingum um legu, stærð og gróðurfar mikilvægustu svæðanna. Votlendi er skipt I þrjá flokka i skránni með tilliti til verndar. I A-flokki eru 28 svæði, sem skilyrðislaust ber að vernda og mælt er með að njóti forgangs hvað verndun snertir. í B-flokki eru einnig 28 svæði, sem talin eru hafa mikið náttúruverndargildi. I C-flokki eru um 70 svæði, sem eru litt þekkt og flestókönnuð. Aðeins tvö votlendissvæðanna eru friðuð, friðland Svarfdæla og Mývatns- svæðið. I riti Landverndar er mælt með tiltölulega vægum friðunaraðgerðum gagnvart öðr- um svæðum, sem fælust I tak- mörkun jarðarasks og fram- ræslu. Rit Landverndar hafa verið gefin Ut 12000-2200 eintökum og er verði stillt i hóf. Sala á þeim fer vaxandi og lltið eftir af fyrstu bókunum, en áður hafa verið gef- in Ut Mengun, Gróðurvernd og Landnýting. Kaflar Ur ritunum hafa veriö notaðir sem kennslu- efni i menntaskólum og Háskólanum. Rit Landverndar fást i Bóksölu stúdenta, og i bókaverzlunum Al- menna bókafélagsins og Máls og menningar. En meginsalan er beint frá skrifstofu Landverndar, Skólavörðustig 25. Þá hefur Landvernd gefið Ut sjötta veggspjald sitt um um- hverfismál og er það að þessu sinni helgað votlendi. Ljósmynd eftir Hjálmar R. Bárðarson prýð- ir spjaldið. Þá er i ráði að láta gera merki til að lima á bila til áminningar um umhverfismál. Arnþór Garðarsson hefur rit- stýrt bókinni um votlendi. Kápu- mynd gerði Aslaug Sverrisdóttir. Hákon Guðmundsson formaður Landverndar ritaði formálsorð. Þroskaþjálfar — Fóstrur Foreldrafélag þroskaheftra á Suðurlandi óskar að ráða þroskaþjálfa eða fóstru til starfa við skóla þroskaheftra barna á Sel- fossi. Upplýsingar gefur Jóna Ingvarsdóttir, forstöðukona, simi 99-1869 kl. 1-6 virka daga. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur og fyrri störf, sendist formanni félagsins, Sigurfinni Sigurðssyni, Skólavöllum 6, Selfossi. SINFÓNIUHLJÓMSVÍiT ÍSLANDS SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNfA Tónleikar i Háskólabiói fimmtudaginn 10. april kl. i 20.30. Stjórnandi: Karsten Andersen Einlaikari: Vladimir Ashkenazy Efnisskrá: Beethoven-Coriolan forleikur. Beethoven-Pianókonsert nr. 2 Haydn-Sinfónia nr. 94 Stravinsky-Sáimasinfónia. AÐGÖNGUMIÐASALA: BókabúS Lárusar Blöndal SkólavörSuslig Simar: 156S0 Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar Auslurstræti 18 Simi: 13135 SINFOMI HLJOMSVFIT ISLANDS KÍKISl lAAHI’ID Kjósarsýsla Framsóknarfélag Kjósarsýslu efnir til aimenns stjórnmála- fundar i Fólkvangi Kjalarnesi sunnudaginn 13. aprll kl. 14.00. Frummælandi veröur Jón Skaftason alþingismaöur, Kristján B. Þórarinsson fundarstjóri. Allir velkomnir,stjórnin. Aðalfundur miðstjórnar Aöalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins veröur haldinn i Reykjavik 18. april næst komandi. Þeir aöalmenn, sem ekki sj£i sér fært að mæta eru beðnir um að tilkynna það flokksskrif- stofunni að Rauðarárstig 18, simi 24480. r Arnesingar Sumarfagnaður Framsóknarfélagsins verður haldinn aö Borg i Grimsnesi miðvikudaginn 23. april (siöasta vetrardag) og hefst kl. 21. Dagskrá auglýst siðar. Skemmtinefnd. Framsóknarvist F.U.F. Hafnarfirði Siðasta kvöldiö i þriggja kvölda spilakeppni verður fimmtudag- inn 10. april kl. 8.30 I iönaðarmannasalnum aö Linnetsstig 3. Sérstök kvöldverðlaun. Allir velkomnir. Stjórnin. Framsóknarvist að Hótel Sögu Siðasta spilakvöldiö I þriggja kvölda Framsóknarvistinni verður að Hótel Sögu fimmtudaginn 10. april. Nánar auglýst siöar. Framsóknarfélag Reykjavikur. Aðalfundur Aðalfundur FulltrUarráðs framsóknarfélaganna I Reykjavik veröur haldinn I Hótel Esju laugardaginn 14. april kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Stjórnin. Fóstrur Dagheimilið Laufásborg óskar að ráða fóstru til starfa á vöggustofu. Upplýsingar hjá forstöðukonu i sima 1-72-19. Bita-harðfiskur Munið okkar vinsælu bita-ýsu. — Pantanir sendist i pósthólf 49, Nes- kaupstað, eða hringið i sima 97-7226 milli 12 og 14. — 100 gr. pakkningar. CLIPPER H.F. Neskaupstað. A is&j Félagsráðgjafi Staða félagsráðgjafa við Félagsmála- stofnun Kópavogskaupstaðar er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum starfs- mannafélags Kópavogs. Umsóknum er frá greini aldri, menntun og fyrri störfum sé skilað til undirritaðs fyrir 20. mai n.k. sem jafnframt veitir nánári upplýsingar á Félagsmálastofnun- inni, Álfhólsvegi 32. Félagsmálastjórinn i Kópavogi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.