Tíminn - 11.04.1975, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Föstudagur 11. aprll 1975.
FORSÆTISRÁÐHERRA:
Launajöfnunarstefnan
verður að ríkja áfram
BH-Reykjavik. — ,,Það er von
rikisstjórnarinnar, að með ráð-
stöfunum hennar I efnahagsmál-
um og kjarasamningum, sem ný-
lokið er, sé lagður grundvöllur að
farsælli efnahagsþróun. Mikið er i
húfi, að takist að finna farsæla
lausn j og ekki siður, að eftir-
leikurinn verði ekki óvandaður i
þetta sinn. t framhaldssamning-
um verður að vicða þau
meginsjónarmið, sem fylgt hefur
verið við þessa úrlausn, sem nú
þegar er fengin. Þá reynir á
félagsþroska og þegnhollustu
bæði vinnuveitenda og
launþega,” sagði Geir
Hallgrimsson, forsætisráðherra,
er liann ávarpaði aðalfund
Vinnuveitendasambands islands
I gær.
Forsætisráðherra ræddi þróun
efnahags- og kjaramála undan-
farinna ára i ræðu sinni, sem
hann lauk með þessum orðum:
„Hastarleg umskipti til hins
verra i efnahagsmálum, ör
verðbólga og mikill greiðsluhalli i
viðskiptum við útlönd,hafa að
undanförnu sett svip sinn á þróun
efnahagsmála hér á landi eins og
raunar i flestum nálægum lönd-
um. Hér eru þó sviptingarnar, i
tölum, hlutfallslega meiri en i
flestum öðrum. Þessi umskipti
eru þeim mun tilfinnanlegri sem
hugmyndir manna um kjarabóta-
möguleika og útgjaldaáform,
bæöi hjá einstaklingum, opinber-
um aöilum og öðrum, mótuðust i
rikum mæli af velgengni undan-
farinna fjögurra ára. Við rikjandi
aöstæður i efnahagsmálum i
heiminum verðum við að sætta
okkur við, að lifskjör þjóðarinnar
geti ekki batnað um sinn. For-
gangsverkefnið á sviði efnahags-
mála er að tryggja fulla atvinnu
og atvinnuöryggi. Til þess að ná
þessu markmiði, jafnframt þvi að
hamlaö sé gegn verðbólgunni,
verðum við að halda i við okkur
og sniða okkur stakk eftir vexti.
Þetta ætti okkur að vera vel unnt,
þvi að hlutskipti okkar er, þrátt
fyrir allt, gott, samanborið við
flestar þjóðir aðrar. Þrátt fyrir
andstreymi i efnahagsmálum er
hér ekkert atvinnuleysi, ólikt þvi
sem er i ýmsum nálægum lönd-
um. Mikil óvissa ríkir i efnahgs-
málum heimsins um þessar
mundir. Við verðum þvi að keppa
að þvi, allkr sem einn, að gæta i
hvivetna þess hófsemis, sem er
forsenda atvinnuöryggis. Við
þessar aðstæður hvilir sú ábyrgð
á þeim, sem standa fyrir atvinn-
urekstri, að leita allra leiða til
þess að koma sem mestu jafn-
vægi á rekstur og framkvæmdir
til þess að tryggja örugga at-
vinnu. Fyrirtækin verða eins og
aðriraðsætta sig viðþrengri hag
sinn, en þvi er treyst, að þau ræki
skyldur sinar við þjóðfélagið,
þótt á móti blási. A það mun nú
reyna, hvort við verðum þess
umkomin að snúast við vandan-
um af viti. Það liggur i eðli okkar
þjóðskipulags, að skilningur og
stuðningur almennings og sam-
taka hans er forsenda árangurs i
þessum efnum. Einhliða aðgerðir
hins opinbera standast ekki til
lengdar ef almennur skilningur
er ekki fyrir hendi á nauðsyn
þeirra.”
Aðalfundur
VSÍ
A AÐALFUNDI VSI i gær voru
kosnir tveir fundarstjórar, Ing-
ólfur Finnbogason og Margeir
Jónsson. Meðal fundarstarfa i
gær voru ræður formanns VSI og
forsætisráðherra, en auk þess
flutti Ólafur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri VSl, skýrslu og
lagði fram endurskoðaða reikn-
inga. Þá fóru fram kosningar og
umræður. Loks sátu fundarmenn
boð félagsmálaráðherra siðdegis.
1 dag hefst aðalfundurinn kl. 10
en lýkur i kvöld.
Frá aðalfundi VSI I gær. Jón
H. Bergs, formaöur sam-
bandsins, i ræöustóli.
FORMADUR VSÍ:
KAUPGREIÐSLUVÍSITALAN
VERÐI ADEINS LÁTIN MÆLA
HÆKKUN FRAMFÆRSLU-
KOSTNAÐAR AD HLUTA
Forsætisráðherra Geir
Hallgrimsson ávarpar aöal-
fund VSÍ.
BH-Reykjavik. — „Þau félög,
sem þegar hafa samþykkt sam-
komulag Vinnuveitendasam-
bands islands og Alþýöusam-
bands islands frá 26. f.m.,geta
r'ei.tt sig á stuðning VSÍ, ef svo
færi, að staðbundnar vinnudeilur
héldu áfram, vegna þess aö ein-
stök verkalýösfélög kunna að
hafna samkomulaginu, og vera
má aö á einstökum sviöum at-
vinnulifsins kunni VSt aö þurfa að
gripa til verksviptingaraögerða
til aðstoðar félagsmönnum sin-
um, sem standa vilja viö
heildarsa mkomulagiö. Til sliks
myndi VSl þó aðeins gripa sem
nauðvarnaraögerða, en ekki til
árása.”
Þannig komst Jón H. Bergs,
formaður Vinnuveitendasam-
bands Islands^að orði, i ræðu
sinni, er hann flutti við setningu
aðalfundar Vinnuveitendasam-
bands Islands, er hófst I gær. I
niöurlagi ræðu sinnar sagði Jón.
H. Bergs m.a.:
„Framundan eru samninga-
viðræður um kjarasamninga til
langs tima eftir 1. júni. Til þess,
að um slikt náist samkomulag,
verður liklega ekki hjá þvi komizt
að taka upp einshvers konar
verðtryggingu launa, enda munu
viðræður fyrst og fremst snýast
um þetta atriði, þar eða þegar
hafa verið veittar miklar launa-
hækkkanir, sem hljóta að teljast
liður i samningagerðinni til lengri
tima. I sambandi við breytingar á
vísitölukerfinu er i hópi vinnu-
veitenda helzt rætt um, að
kaupgreiðsluvisitalan verði að-
eins látin mæla hækkun fram-
færlsukostnaðar að hluta, eins og
tiðkast i nágrannalöndum okkar,
að visitalan verði endurskoðuð
sjaldnar, t.d. tvisvar á ári i stað
fjórum sinnum og að við út-
reikning vfsitölunnar verði tekið
tillit til breytinga á
viðskiptakjörum þjóðarinnar.
Með þessu er stefnt að þvi, að
draga úr verðbólguáhrifum visi-
tölukerfisins og afskiptum rikis-
valdsins af kjarasamningum,
þegar viðskiptakjör versna.
Höfuðmarkmiðið hlýtur að vera
að gera kjarasamninga, sem
tryggja fulla nýtingu atvinnu-
tækja þjóðarinnar og draga úr
verðbólgunni, sem leikið hefur at-
vinnurekstur Islendinga, gjald-
miðil landsmanna og þjóðar-
heildina svo grátt. Þróun kjara-
mála i sumar og haust mun fara
mjög eftir breytingum verðlags
hér á landi og i helztu viðskipta-
löndum okkar næstu mánuði.
Enn reynir á samstöðu félags-
manna Vinnuveitendasambands
tslands, þvi verður að treysta, að
félagsmenn samtakanna og
aðildarfélög láti ekki i neinu
undan kröfum, sem ganga lengra
en samningar heildarsam-
takanna ráðgera. Félags-
mennirnir geta treyst á stuðning
og aðgerðir Vinnuveitendasam-
bandsins gegn slikum kröfum.
Mönnum er skylt að hafa i huga,
aö undanlátssemi kann að grafa
undan heildarsamkomulagi, sem
þjóðfélaginu er mikil nauðsyn á
að riki á vinnumarkaðinum, en
með algerri samstöðu auka
vinnuveitendur efnahagslegan
styrkleika á Islandi.”
BREYTINGAR Á UMFERÐAR-
LÖGGJÖFINNI STÖÐVA
LJÓTAN LEIK Á VÉLSLEÐUAA
FB-Reykjavik. Vélsleðum fer
stööugt fjölgandi hér á landi, en
engar reglur eru cnn til um með-
ferð þeirra, skráningu eða þau
réttindi, sein ökumenn þeirra
þurfa aö hafa til þess að mega
aka sleðunum. Þrátt fyrir það eru
þetta kraftmikil ökutæki, sem
hægt er að komast á yfir 100 km
hraða á klukkustund, og finnst
sumum, að hér sé varla um
barnaleikföng að ræða, þött nokk-
uð bcri á því, að börn og ungling-
ar fái að þjóta um á sleðum for-
eldra sinna.
Nýlega æröu nokkrir vélsleða-
menn um 30 hross, sem eru i eigu
Ólafs Ólafssonar bónda i Garös-
horni, rétt viö Akureyri. I hrossa-
hópnum voru margar fylfullar
hryssur. Æröust hrossin, þegar
vélsleöamennirnir komu þjótandi
þar aö, scm þau voru. Hlupu þau
af stað og náöust ekki fyrr en
fram hjá Krossastaðaá á Þela-
m örk.
Ólafur Ólafsson bóndi sagði i
viðtali við Timann, að vélsleða-
akstur væri ekki óalgengur i
grennd við sig, enda byggi hann
skammt frá Akureyri og Skiða-
hótelinu þar, en einmitt þar um
kring væru menn mikið að leika
sér á sleðunum. Sagði hann, að
mjög bagalegt væri, að sleðarnir
skyldu ekki vera merktir á nokk-
ivinnustofan s.f.-^®.
Kaupfélag
i»'Skagf irðinga
lag Húnvetninga Kaupfélag
Eyfirðinga
'taGrimur &
Kaupfélag
r*ÍRavertlun
rs Sveinbjörnsson
Kaupfélag
Héraðsbúa
Kaupfélag
Borgfirðinga
Verzlunin
-» Verzlun Fr. F.i
urn hátt, þvi að ekki er hægt að
kæra akstur manna á þeim, nema
þegar svo vel vill til, að ökumenn-
irnir þekkist. Engin merki eru á
sleðunum, sem hægt er að gefa
upp, ef kæra þarf.
Ólafur sagði, að sleðamennirnir
hefðu ekið meðfram hrossahópn-
um eftir að hann fældist, svo ekki
væri annað hægt að sjá, en að þeir
hefðu verið að reyna sig við
hrossin til að sjá hver kæmist
hraðast. Ólafur sagði ennfremur,
að I fyrra hefðu sleðamenn ekið
hring eftir hring i kringum
hrossahóp þarna i nágrenninu, og
auðsýnilega verið að æra hrossin
aðyfiriögðu ráði i það skiptið.
Ólafur W. Stefánsson i dóms-
málaráðuneytinu skýrði Timan-
um frá þvi, að i undirbúningi væri
frumvarp um breytingar á um-
ferðarlögum, þar sem komið yrði
inn á notkun snjósleðanna, skrán-
ingu og annað, sem þeim við
kemur. Sagði hann, að frumvarp-
ið ætti að geta komið fram og
jafnvel afgreitt fyrir þing-
slit nú i vor. I þessu frumvarpi
verður einnig fjallað um skrán-
ingu bila, en mikið hefur verið
rætt um það að undanförnu, að
breyta skráningu bifreiða. Enn
fremur verður þarna kveðið á um
vátryggingarfjárhæðir, svo nokk-
uð sé nefnt.
Sjö stelpur i Stykkishólmi
Æfingar hafa staðið yfir hjá
leikfélaginu Grimnir Stykkis-
hólmi, siðan i marz,,á leikritinu
„Sjö stelpur” eftir Erik Thor-
stensson. Leikfélagið áformar
frumsýningu á verkinu i
Stykkishólmsbiói kl. 21.00 á
morgun.
Leikendur eru 12 og.leikstjóri
verksins er Þórir Steingrimsson
en honum til aðstoðar er Dag-
björt Höskuldsdóttir. Leikmynd
önnuðust Björgvin Þorvarðar -
son og Þorsteinn Aðalsteinsson i
samvinnu við Trésmiðjuna Osp,
en alls starfa við sýninguna 18
manns.
Þetta er 9. verkefni leik-
félagsins frá stofnun þess 1967.
Raðgert er að sýna verkið viöar
en I Stykkishólmi.
Stelpurnar sjö leika (taliö f.v. og byrjaö I aftari röö) Dagmar
Kristjánsdóttir, Magöalena Bragadóttir, Rut Leifsdóttir,Jóhanna Rún
Leifsdóttir, Súsanna Þorvaröardóttir, Harpa Agústsdóttir og Ingveldur
Björgvinsdóttir.