Tíminn - 11.04.1975, Side 4
4
TÍMINN
Föstudagur 11. aprll 1975.
NÝLEGA kynntu Vauxhall-verk-
smiöjurnar I Englandi nýjan bll,
scm framleiðsla er nú hafin á. Er
þetta hinn nýi Vauxhall Chevette,
minnsti bill, sem framieiddur er
af General Motors.
Chevette komst á teikniboröið
árið 1971, er þörfin fyrir minni bil
en Vauxhall Viva var orðin áber-
andi (Chevette er 20 stn styttri en
Viva).
Eitt ár er nú liðið frá þvi að
fyrstu reynslubilarnir af Chevette
voru settir I hendurnar á gagn-
rýnum bilaunnendum frá eyöi-
mörkum Sahara til frostkaldra
norðurhéraða Sviþjóðar.
Vauxhall Chevette er tvlmæla-
laust sá bill, er bilakaupendur
munu hafa augastaö á, ekki sizt á
íslandi, á tímum siaukins bensin-
kostnaðar. Billinn er knúinn af
1256 cz vél (68 bremsuhestöfl), en
það er sama sparneytna vélin og
knýr Vauxhall Viva.
Chevette frá Vauxhall mun
væntanlega koma til tslands með
vorinu. Um útflutningsverð er þvi
miður ekki hægt að segja að svo
stöddu.
Hver vill koma
að sippa?
Vorið er i nánd, og ungviðið tek-
ur fram sippuböndin. En það
eru ekki bara krakkarnir i
barnaskólunum, sem hafa gam-
an af þessum skemmtilega leik.
Hún Lilian Wicks sveiflar sippu-
bandinu af hjartans list, þótt
hún sé komin á áttræðisaldur-
inn, og barnabörnin hennar full-
yrða, að hún sé þolnari en þau
öll til samans. ,,Og svo fipast
hún næstum aldrei”, segja þau i
hrifningartón. „Bara þegar
Kim vill endilega sippa með
henni.” Lilian Wicks býr i South
Brent, Devon, i Bretlandi, og
Kim er að sjálfsögðu hundurinn
hennar, sem fylgist með henni
af áhuga og hrifningu á með-
fylgjandi mynd.
Nýi Vauxhali-billinn — Vauxhall Chevette.
AAINNI GERÐ
VAUXHALL-BÍLA
Veit hann það?
Bandariska leikkonan Merle
Oberon og hollenzki leikarinn
Robert Wolders giftust fyrir fá-
einum vikum, og þá var einmitt
þessi mynd tekin. I texta undir
myndinni, sem við fundum i er-
lendu blaði, stóð, að brúðgum-
inn væri 38 ára og brúðurin 57.
Þetta er nú ekki alveg sannleik-
anum samkvæmt (kannski
hefur það lika bara verið prent-
villa), þvi að Merle Oberon er
ekki 57 ára, heldur 68. bótt.
ótrúlegt megi virðast. Merle,
sem áður var þekkt undir nafn-
inu Queenie Thompson, er af
Indiánaættum og var talin i hópi
fegurstu kvenna hér fyrr á ár-
um. Við fáum reyndar ekki
betur séð en að hún tilheyri
þeim hópi ennþá. Þetta er i
fjórða sinn, sem leikkonan gift-
ist. Fyrst var hún gift Ungverj-
anum Alexander Korda, þá
Frakkanum Lucien Ballard og
siðan Bruno Pagliali, sem er
mexikanskur.
Jú, ég veit, að það er hátnótt, en
það hafa verið hérna innbrots-
þjófar, svo ég hélt, að þú vildir
athuga málið.