Tíminn - 11.04.1975, Page 13

Tíminn - 11.04.1975, Page 13
Föstudagur 11. apríl 1975. TÍMINN 13 Umsjón: Sigmundur Ó. Steinarsson JÓN SIGURÐSSON. Jón varð stigahæstur íslandsmótið í borðtennis hefst í kvöld í Laugardalshöllinni KEFLVÍKINGURINN Jón Sigurösson varð stigahæstur I stigakeppni Borðtennissambands tslands. Jón hlaut 42 stig, en næstur kom hinn efnilegi unglingur úr Erninum Gunnar Finnbjörnsson, með 36 stig. Þessir tveir snjöllu borðtennisspilarar tryggðu sér rétt til að leika I öðrum flokki ásamt þeim Björgvin Jóhannessyni úr Gerplu (33 stig) og Ragnari Ragnarssyni, Erninum 30 stig). Þeir Jón, Gunnar, Björgvin og Ragnar veröa I sviðsljósinu i kvöld, en þá byrjar íslandsmótið I borðtennis I Laugardalshöllinni. Spurn- ingin er, hvort þeim tekst að ná meistaratitlinum af Islandsmeistar- anum Hjálmari Aðalsteinssyni úr KR. íslandsmótið hefst i kvöld kl. 20 með tvenndarkeppni og tviliðaleik og siðan verður haldið áfram á morgun, en þá fer fram keppni I ung- iingafl. — kl. 15.30. Á sama tima á sunnudaginn fer fram keppni I karla- og kvennaflokki. — sagði Dave Mac Kay, framkvæmdastjóri Derby ,,ROY McFarland er tilbúinn I slaginn og ég er viss um' að ég hef sett hann inn i iiðið á réttu augna- bliki”,sagði Dave Mackay, fram- kvæmdastjóri Derby, eftir að lið hans hafði tryggt sér sigur yfir tJlfunum á miðvikudagskvöldið á Basebali Ground. Allir eru sam- mála þvi, að Mackay hefði gert rétt með að setja inn i liðið þá Mc- Farland og Francis Lee, scm hef- ur verið meiddur I hné sl. 7 vikur. Þessir snjöllu leikmenn fengu sjálfstraust og þeir eiga örugg- lega eftir að vera dýrmætir fyrir Derby I hinni hörðu baráttu sem er framundan. Eftir leikinn á miðvikudags- kvöldið, stendur Derby með pálmann i höndunum, en nú liður senn að lokum leiktimabilsins i Englandi — aðeins þrjár umferðir eftir og Derby með tveggja stiga forskot. Staðan á toppinum er nú bessi i 1. deildarkeppninni: Derby.......39 20 9 10 66:40 49 Liverpool ...39 18 11 10 55:37 47 Stoke ......39 17 13 9 64:46 47 Everton.....39 15 17 7 52:38 47 Ipswich.....38 21 4 13 58:39 46 Þessi lið koma til með að berj- ast um meistaratitilinn og eins og sést stendur Derby bezt að vigi. Derby á eftir að leika tvo leiki á heimavelli — gegn West Ham og Carlisle — og siðan gegn Leicest- er á útivelli. Liverpoolá eftir að leika við Carlisle og Q.P.R. á heimavelli og Middlesborough á útivelli. Stoke á eftir að leika gegn Newcastle heima og Sheff. Utd. og Burnley á útivelli. Everton á eftir að leika gegn Sheff. Utd. heima og Newcastle og Chelsea á útivelli. Ipswich á eftir aðleika gegn Q.P.R. og West Ham heima og Leeds og Man- chester City á útivelli. Mikil barátta er einnig i 2. deildinni, en þar er Manchester United nú þegar búið að tryggja sér sæti I 1. deild næsta keppnis- timabil og upp fara tvö önnur lið. Baráttan um hin tvö 1. deildar- sætin, sem eru laus, á eftir að vera spennandi. Staðan er nú þessi á toppinum I 2. deild: Man.Utd......39 24 8 7 59:29 56 Sunderland ..38 18 13 8 62:32 49 Aston Villa ...37 20 8 9 61:31 48 Norwich 38 17 12 8 50:32 48 ROY McFARLAND......fyrirliði Derby. UNDRABARNIÐ VALDI MANCHESTER UNITED „ROY McFARLAND ER TIL- BÚINN í SLAGINN" „Þessi strókur er alveg einstakur", segir Tommy Docherty, framkvæmdastjóri United um hinn 16 óra gamla Jonathan Clark UNDRABARNIÐ frá Swansea JONATHAN CLARKE, sem hefur verið aðal keppikefli stóru félaganna I Englandi að undan- förnu, hefur valið Manchester United — Jón, eins og hann er kallaður, skrifaði undir atvinnu- mannasamning við United daginn eftir að hann hætti I skóla. Þó að hann sé aðeins 16 ára gamall, hef- ur hann verið aðalmaðurinn i varaliði United að undanförnu. A laugardaginn, þegar aðeins hálf- ur mánuður var siðan hann skrifaði undir samninginn á Old Trafford, var hann valinn til að fara með United-liðinu til Southmapton, þar sem liðið lék gegn Dýrlingunum á The Ðell. Tommy Docherty, fram- kvæmdastjóri Manchester United,sagði: — „Þessistrákurer alveg einstakur.” Aftur á móti Moore fékk hæstu einkunn BOBBY MOORE, hinn 34 ára gamli leikmaður Fulham, fær nú enn eitt tækifærið á Wemb- ley. Hann stjórnaði enska iandsliðinu til sigurs á Wembley i HM 1966, en leikur nú gegn sinum gömlu félögum úr WestHam á Wembley i bik- arúrslitaleiknum 3. mai n.k. En það var einmitt Bobby Moore sem stjórnaði West Ham-liðinu til sigurs gegn Preston 1964 á Wembley, þeg- ar Lundúnafélagið vann sinn fyrsta og eina bikarsigur. Enska dagblaðið Sunday People, sem gefur leikmönn- um einkunnir fyrir leik sinn, gaf Moore 10 fyrir fyrri leik Fulham gegn Birmingham sl. laugardag. Þetta er hæsta einkunn, sem gefin er, og það er ekki á hverjum degi, sem leikmenn fá 10. Moore átti þarna stórleik, hann lék af sinni fyrri snilld — ávallt ró- legur og lék yfirvegaða knatt- spymu. var Harry Griffith’s fram- kvæmdastjóri Swansea daufur I dálkinn; hann sagði: — „Þarna sjáum við á eftir enn einum stráknum frá Swansea.” En Harry viðurkenndi að Swansea hefði hvorki aðstöðu né peninga tilað keppa við stóru félögin, sem bjóða mikið i efnilega stráka. — „Jón er bezti strákurinn, sem ég hef séð svo langt sem ég get munað aftur i timann,” sagði Harry. -^Ég man eftir Charlton, Haynes og Viollet. Jonathan er miklu betri en þeir voru. Hann spilaði eins og atvinnumaður að- einsláára gamall, en spurningin er bara, hvað getur félagið gert úr honumí’. Jimmy Murphy, fyrrum þjálfari landsliðs Wales, hefur horft á beztu skóladrengi þróast, vaxaogþroskastá Old Trafford i næstum 30 ár. Hann segir:„— Það finnast ekkþ'margir unglingar sem likjast Jonathan. Hann á svo auðvelt með að leika knatt- spymu, og hann leikur knatt- spyrnu af eðlisávisun. Það veröur ekki langt aö biöa þar til hann verður orðinn bezti lands- liðsmaður Wales.” Það voru mörg félög sem höfðu augastað á Jonathan Clarke og hann fékk boð frá mörgum um að koma til þeirra. En hann ákvað aöeins að heimsækja tvö lið — Manchester United og Everton. Andrúmsloftið á Old Trafford réði úrslitum, þegar hann ákvað að skrifa undir atvinnumanna- samningin viðUnited. Don Ciarke faðir Jonathans sagðist aldrei hafa reynt að hafa áhrif á soninn — „strákurinn varð að ráða þvi sjálfur, hvert hann færi. Eftir að hann hafði undirritað samninginn viö United, sagði ég honum að hann hefði tekið rétta ákvörðun. Það hefði verið mjög auðvelt að fá pening fyrir hæfileika piltsins. Við þurftum að loka dyrunum á mörg freistandi boð frá mörgum stórum félögum,” sagði Don að lokum. í sumar mun Jonathan leika með unglingalandsliði Wales, en næsta keppnistimabil verður hann með United-liðinu I hinni geysilega hörðu baráttu i 1. deild. Hann stendur fyrir framan erfiða þolraun og það verður gaman að fylgjast með þessu undrabarni i baráttunni um Englands- meistaratitilinn næsta timabil. AAikla- túns- hlaup Ármanns — byrjar aftur ó laugardaginn SL. HAUST efndi frjálsiþrótta- deild Armanns til keppni i hlaup- um á Miklatúni fyrir börn og unglinga. 1 vetur hefur keppni þessi legið niðri, en nú er ætlunin að byrja aftur af fullum krafti. Fer fyrsta hlaupið á þessu ári fram NÆSTKOMANDI LAUG- ARDAG á Miklatúni, og HEFST KL. 14.00. Eru allir, sem áhuga hafa á þátttöku,hvattir til að vera með, þvi ætlunin er að hlaupið verði tvisvar i april og tvisvar i mai, og munu þeir, sem hlut- skarpastir veröa I hverjum flokki fá verðlaun að loknu siðasta hlaupinu. EG HLAKKA AAJQG MIKIÐ TIL SÝNINGAR- INNAR Á ÍSLANDI" — segir Natalína Krasheninnikova, silfurhafi á HM í nútíma fimleikum ★ Sovézkur fimleikaflokkur væntanlegur til íslands „Ég hlakka mjög mikið til sýn- ingarinnar á tslandi”, sagði hin frábæra fimleikakona, Natalina Krasheninnikova, sem er vænt- anleg hingað til landsins um næstu helgi með hóp sovézks fim- leikafólks, sem heldur sýningu i Laugardalshöllinni. Þessi fræga fimleikakona er Sovétmeistari I nútimafimleikum og silfurverð- launahafi I HM-keppninni 1973. — „Ég óska að fimleikaaðdáendur á islandi fái fullkomlega að njóta þeirrar listar, sem nútimafim- leikar eru”. — Sjálfri finnst mér þessi iþrótt dásamleg. Ég vona svo sannar- lega að sýningar okkar muni efla álit Islendinga, á þessari dásam- legu iþrótt.” 6 stúlkur og 2 piltar eru I fimleikaflokknum, og þar að auki tveir loftfimleikamenn, sem sigruðu i tvimenningskeppni á Sovétmeistaramótinu 1974. Frægustu stúlkurnar eru þær Krasheninnikova og Galina Lry- lenko, sem varð HEIMSMEIST- ARI i hópæfingum 1973. Þessar tvær stúlkur eru þekktar fyrir mjög góða frammistöðu i stærstu mótum I Sovétrikjunum og stór- um alþjóðlegum mótum i nútima- fimleikum. Það er ekki að efa, að fimleika- flokkurinn á eftir að vekja athygli og hrifningu þeirra, sem leggja leið sina I Laugardalshöllina, til að sjá flokkinn sýna listir sinar þar. r«í! ^Rðw \■ >\^ MUNIÐ ibúðarhappdrætti H.S.Í, 2ja herb. íbúðað verðmæti kr. 3.5D0.000.- Verðmiða kr. 250.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.