Tíminn - 11.04.1975, Síða 17
Föstudagur 11. apríl 1975.
TÍMINN
17
:
FLAUELSKÁPUR
eru hlýjar
I KULDANUM
gLL:....!::.
Sendum gegn póstkröfu samdægurs
SUAAARDEKK
á gömlu verði
520 — 12-4 strigalaga kr. 3.294
550 — 12-4 strigalaga kr. 3.192
615— 13-4 strigalaga kr. 4.144
500/520 — 14-4 strigalaga kr. 4.158
590 — 14-4 strigalaga kr. 4.129
645 — 14-4 strigalaga kr. 4.495
640 — 15-4 strigalaga kr. 5.332
165/380 — 15-4 strigalaga kr. 5.321
Véladeild HJÓLBARÐAR
Sambandsins ^
Vestfirðingar sitja i fyrirrúmi
hjá Landfara þennan daginn.
Einhvern næsta daginn geta það
kannski verið Austfirðingar, ef
þeir verða duglegir við skrift-
irnar. Snúum okkur svo að efn-
inu.
Hafðu nú, bóndi minn,
hægt um þig.
Guðmundur P. Valgeirssoni Bæ
skrifar:
„Það er dálitið undarlegt og
eftirtektarvert, hvað oft hefur
flogið fyrir i fjölmiðlum i ýms-
um samböndum nú að undan-
fömu, að bændur væru ekki
orðnirnema 10% af þjóðinni eða
tæplega það. Mér hefur ein-
hvem veginn fundizt eins og út
úr þessu mætti lesa: Hafðu nú,
bóndi minn, hægt um þig. Þú
ert ekki orðinn skits virði. Það
er engin ástæða til þess að hossa
þér hátt.
Hefur ekki hagspekingur
ihaldsins og ritstjóri þess blaðs,
sem ég veit ekki betur en sé
viðurkennt blað Sjálfstæðis-
flokksins, haldið þvi fram á
Heimdallarfundi, að ástæðu-
laust væri fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn að leggja mikið upp úr
bændum (ræðan birtist i
Búnaðarblaðinu siðasta, eða út-
dráttur úr henni). Þeir væru
ekki orðnir nema 10% af
kjósendum, og Sjálfstæðisflokk-
urinn „ætti” ekki nema 2% af
þessum tiu prósentum. Hitt félli
Framsóknarflokknum i skaut.
Það væri þvi ekki eftir neinu að
slægjast. Ganga mætti að sönnu
út frá þvi, að Sjálfstæðisflokk-
urinn tapaði þessum 2%, ef
hann fengist til þess að sam-
þykkja fullkomlega stefnu rit-
stjórans. En fylgi myndi vinnast
margfalt upp aftur i' þéttbýlinu.
Það væri engin ástæða fyrir
flokkinn að gera ekki hreint til
dyranna hjá sér i þessu efni.
Þjóðin á við margs konar
fjárhagsörðugleika að striða.
Fjárlög eru skorin niður, og
heyrzt hefur að lánsfjárhöft séu
I uppsiglingu. Enn er ekki vitað
með vissu, hvar þetta kemur
niður né hvernig. En gæti verið,
að þetta tal um prósentin tiu
væru óljós bending i þá átt, að
verið sé að gera upp, hvort
nokkur ástæða sé til að sinna
þörfum þessa litla brots af þjóð-
inni? Er það óhugsandi, að
draumur Jónasar ritstjóra og
sálufélaga hans geti rætst. Spyr
sá, sem ekki veit.”
Ekki einmenningskjör-
dæmi
Kristjáni frá Garðsstöðum
finnst að vonum, að dálitið hafi
skolazt orð hans, er Landfari
endursagði fyrir nokkru. Þau
fjölluðuum kosningafyrirkomu-
lag. Hann segir i nýju bréfi:
„Þeim, sem litið hefur til með
oröum minum, hefur orðið á i
messunni. Einmennings-
kjördæmi hef ég taliö og tel enn
hina mestu firru. Ég varpa
fram þeirri spurningu, hvernig
skipta bæri Reykjavik i ein-
menningskjördæmi. Hins vegar
tel ég, að uppbótarkerfið beri að
endurskoða. En það er vanda-
verk að leysa það sómasamlega
af hendi”.
Snjór og söluskattur
1 bréfi frá Vestfirðingi, sem
ekki vill láta nafns sins getið,
koma þessi orð:
„í snjóþungum byggðarlög-
um verður að nota sterka bila og
dýra i rekstri til þess að sækja
börn I skólann. Þannig verður
kostnaður við þetta miklu meiri,
þar sem fannalög eru.heldur en
þar sem sjaldan og litið snjóar.
Af þessum akstri verður svo að
borga rikinu söluskatt.
Ég spyr: Er þetta sanngjörn
fjáraflaleið, og er þetta að gera
öllum jafnt undir höfði? Mér
finnst miklu frekar, að með
þessu sé skattur látinn koma af
auknum þunga ofan á erfiðleika
af náttúrufarinu.”
Eftirsóttasta dráttarvclin
Zetor 4718—47 hö.
er sú vél sem mest selst. Zetor
4718 er millistærS sem sameinar kosti
minni og stærri véla. Uipur og
aflmikil dráttarvél með fullkomnum
búnaði, s. s. loftþjöppu, vökvahemlum,
lyftudráttarkróki og stillanlegu
loftpúðasæti svo eitthvað sé nefnt.
Kostar með öryggishúsi og miðstöð
um kr. 673 þús. .
Zetor 5718—60 hö. og
Zetor 6718—70 hö.
Þær hafa meiri og betri tæknibúnað
en flestar aðrar dráttarvélar, svo sem
vökvastýri, tveggja hraða aflúrtak
(vinnudrif), loftþjöppu og vökvalyftu
dráttarkrók. Rúmgott, upphitað hús
og stillanlegt loftpúðasæti.
5718 koslar um kr. 953 þús.
6718 kostar um kr. 1.030 þús.
Zetor Crystal 85 hö.
er stærsta, aflmesta og fjölhæfasta
dráttarvélin frá Zetor. Ein tæknilega
fullkomnasta vélin á markaðnum,
með meiri og betri tæknibúnaði en
aðrar dráttarvélar.
Kostar um kr. 1.140 þús.
í fyrstu keyptu bændur Zetor dráttarvélarnar vegna þess að
þær voru mun ódýrari en sambærilegar vélar. Það eru þær enn.
En nú er fengin reynsla af afköstum þeirra, endingu og
rekstri. Þess vegna eykst eftirspurnin.
í öllum dráttarvélunum er „Zetormatic", fjölvirkt vökvakerfi,
sem fullnýtir dráttarafl og er stillanlegt á mismunandi starfsrásir.
Biðjið um mynda- og verðlista, með yfirliti um tæknilegan
búnað. Leitið frekari upplýsinga sem fyrst.
ISTEKK"
Lágmúla 5 Sími 84525
J
■