Tíminn - 13.04.1975, Qupperneq 1
TARPAULIN
RISSKEMMUR
iWWWI
SLONGUR
BARKAR
TENGI
HFHORÐUR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6-SÍMI (91)19460,
84. tbl. — Sunnudagur 13. april 1975—59. árgangur
Landvélarhf
Hvað gera þau í tómstundum?
I DAG
er rætt viö Vilhjálm Hjálmarsson,
menntamálaráðherra, um fristundir,
búskap og fleira.
UT5ED UM
LAUSN í GENF
FB-Reykjavik. Allt bendir nú til
þess, að ekki verði lokið samning-
um um hafréttarmálin, á haf-
réttarráðstefnunni, sem' nií stend-
ur yfir i Genf. A þingi Sameinuðu
þjóðanna ihaust hafði upphaflega
verið ráðgert, að Genfarráðstefn-
an myndi geta gengið frá sam-
komulagi um hafréttarmálin, og
siðan yrði komið saman i Caracas
I júli i sumar, og samkomulagið
undirritað. Nú er hins vegar útlit
fyrir að af þessu geti ekki orðið,
og búizt við, að halda verði enn
aðra ráðstefnu, áður en endanlegt
samkomulag næst, og undirritun
Flytja verður inn kartöflur í
júlí vegna geymsluvandræða
Talið er að heildaruppskera á
kartöflum siðastliðið haust hafi
verið um 160 þús. tunnur, að þvi
er segir i frétt frá Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins. Sam-
kvæmt mælingum sem gerðar
voru i kartöflugeymslum um
mánaðarmótin spet.-okt. var talið
að um 130 þús. tunnur af kartöfl-
um væri til i landinu fýrir utan
það sem einstaklingar rækta til
heimilisnota. Aætluð mánaðar-
neyzla okkar er talin vera um 9-10
þúsund tunnur, ársneysla 108-120
þúsund tunnur. Ef ekki kæmi til
óeðlilega mikil rýrnun i’ geymslu,
þá væri nægilegt til af islenzkum
karötflum til að fullnægja mark-
aðsþörfinni. En erfiðleikar á
geymslu kartaflna valda þvi, að
reikna má með að flytja þurfi inn
kartöflur i júli i ár. Kartöflufram-
leiðendur á Suðurlandi hafa átt
við að striða sivaxandi tjón af
völdum geymslu-kvilla.
Einn alvarlegasti kvillinn staf-
ar af Phoma-sveppi, sem var svo
til óþekktur hér á landi fyrir fá-
einum árum. Þessi sveppur hefur
vfða valdið tjóni á norðlægum
slóðum á undanförnum árum, en
svo til eingöngu, þar sem vélvæð-
í gær gerði bæjarfógetinn á Seyðis-
firði út leiðangur til Loðmundar-
fjarðar til að ganga úr skugga um
mannaferðir þar. í firðinum, sem er i
eyði, hafa sést ljós og sögusagnir eru
um dularfullar mannaferðir þar. Þá
hafa sést spor i snjónum en enginn
veit með neinni vissu hvað þarna er á
ferðinni, en væntanlega leiðir leið-
angurinn menn i allan sannleika um
málið. > 0
ing við kartöflu upptöku er mest.
A fundi sem nýlega var haldinn
i Þykkvabæ að frumkvæði yfir-
matsmanns garðávaxta, var
helzta ástæðan talin fyrir auknum
kvillum i kartöflum aukin vél-
væðing, og of mikill hraði á vélum
við upptöku.
Neytendur kvarta yfir útlits-
ljótum kartöflum og framleiðend-
ur eru ekki sáttir við matið, þegar
kartöflur flokkast i annan flokk.
Þótt kartöflur, séu ekki skemmd-
ar, en útlitsljótar, þá eru þær ekki
settar i I. flokk þess vegna geta
verið i öðrum flokki ágætis mat-
arkartöflur en áferð þeirra ekki
eins og bezt verður kosið.
Unnið verður að þvi að finna
leiðir til að draga úr tjóni af völd-
um upptöku- og flokkunarvéla,
þvi treysta kartöfluframleiðend-
ur á Rannsóknastofnun landbún-
aðarins og þá sérstaklega Bú-
tæknideild að þegar i haust verði
gerður itarlegur samanburður á
upptökuvélum og geymslum og
allri meðferð kartaflna.
getur farið fram, að sögn
Þórarins Þórarinssonar alþingis-
manns.sem um þessar mundir er
staddur i Genf.
Timinn hafði samband við
Þórarinn nú fyrir helgina og
spurði frétta af ráðstefnunni.
Sagði hann, að aðallega hefðu að
undanförnu verið haldnir fundir i
fámennum undirnefndum, en auk
þess hefðu einstök svæðasamtök
eins og ,,77’^^ialdið fundi, Eru það
þróunarrikin,,'‘sérn kallast „77”,
en þau voru upphaflega þetta
mörg, en eru nú orðin eitthvað um
eitt hundrað talsins. Mjakast
ákaflega hægt i samkomulagsátt,
að sögn Þórarins.
— Aðallega hafa farið fram við-
ræður að tjaldabaki, og þar af
leiðandi veit maður ekki ná-
kvæmlega, hvað hefur þokazt, en
þetta gengur þó haldur i rétta átt,
sagði Þórarinn. — Það eru eigin-
lega allir orðnir sammála um, að
ráðstefnunni ljúki ekki hér i Genf,
eins og ráðgert hafði verið. Telja
menn, að eina ráðstefnu þurfi að
minnsta kosti enn, áður en til
undirritunar gæti komið. Er talað
um, að hún verði haldin t.d. i Vin,
Nýju Dehli, Nairobi, eða þá i New
York næsta vetur.
— Mikið fjölmenni er hér á ráð-
stefnunni, en skráð þátttökuriki
eru um 150 talsins. Talið er, að
hér séu um 2000 fulltrúar, eða
jafnvel fleiri. Sumir þeirra eru
hér þó ekki allan timann og alltaf
eru menn að fara og koma.
Skráðir fulltrúar Kanada eru t.d.
70, 25 frá Danmörku, og jafn-
margir frá Noregi, en á annað
hundrað fulltrúar eru frá Banda-
rikjunum. Margt eru þetta sér-
fræðingar, sem koma og eru
stuttan tima i einu.
— Mesti árangurinn til þessa
hefur ef til vill náðst i Evensen-
nefndinni. Sú nefnd starfar eigin-
lega utan ráðstefnunnar, en
Amarshinge forseti hafréttarráð-
stefnunnar tilnefndi i þessa nefnd
milli 20 og 30 lögfræðinga, sem
eiga sæti á ráðstefnunni. Þeir
eiga að vinna að sérstökum tillög-
um, og hefur nefndin starfað af
miklu kappi. 1 þessari nefnd eru
lönd, sem bæði hafa verið með
okkurogá móti. Hefur þarna ver-
ið mest fjallað um efnahagslög-
söguna, og má segja, að þarna sé
i stórum dráttum komið sam-
komulag um 200 milna efnahags-
lögsögu, en siðan á eftir að semja
um margvislegar undanþágur.
Vita menn ekki hvernig þeim
málum lyktar.
— Þarna er einn hópur, sem er
orðinn nokkuð stór, hópur rikja,
sem eru strandlaus, eða strand-
litil. Þau krefjast alls konar sér-
réttinda fyrir sig. Annað deilumál
er einnig ofarlega á baugi, en það
varðar sund milli landa. Verði
landhelgin færð út i 12 milur geta
þessi sund mörg hver lokazt. Ef
til þess kemur vilja stórveldin
tryggja það, að þau geti haldið
áfram siglingum um sundin, eins
og verið hefur áður. Aðaldeilu-
málið stendur um kafbáta, þ.e.
hvört þeir megi sigla áfram um
sundin neðansjávar eða ekki. Til
þessa hefur herskipum verið
heimilt að koma inn fyrir 12 milna
landhelgi, ef talið hefur verið, að
þau séu þar i friðsamlegum til-
gangi. Vilja menn nú, að kaf-
bátarnir hlýti sömu reglum, þ.e.
sigli ofansjávar, en það vilja eig-
endur þeirra ekki samþykkja.
— Annað deilumál er komið
upp, en það varðar allsherjar-
stofnun þá, sem ráðgert hefur
verið að koma á fót, og eigi að
hafa með höndum nýtingu hafs-
botnsins utan efnahagslögsögu
strandrikjanna. Um valdsvið
þessarar stofnunar hefur verið
mikill ágreiningur milli stórveld-
anna og þróunarlandanna. Þó
virðist heldur vera að færast i
samkomulagsátt hvað þetta
snertir.
— Allt þetta miðar i samkomu-
lagsátt, en þó ekki nægilega mikiö
Framhald á bls. 39.
Heimilisdýrin okkar
DAG
er fjallað um páfagauka og fleiri fugla.
VILT ÞU GISTA I
SVEIT í SUMAR?
FB-Reykjavik. í nýjasta heftinu
af Frey er birt eyðuhlað, þar
sem fólk i sveitum landsins er
beðið að veita upplýsingar um
húsnæði, sem það gæti hugsað
sér að leigja um skemmri eða
lengri tima fólki úr þéttbýli.
Þegar liafa borizt upplýsingar
um húsnæöi, cn enn scm komið
er, er þar aðallega um að ræða
ibúöarhús, sem ekki er búið i, að
þvi er Agnar Guðnason, blaða-
fulltrúi Búnaðarfélags Islands,
tjáði blaðinu.
A sfðasta Búnaðarþingi
hreyfðu þeir Jónas Jónsson rit-
stjóri Freys og Agnar Guðnason
þessu máli fyrst, og kom þá
þegar fram áhugi manna á að
gefa fólki kost á dvöl i sveit. Er
nú verið að safna upplýsingum
um það. hvar helzt sé hægt að fá
húsnæði i þessum tilgangi, hvort
möguleikar séu á veiðiskap i ná-
grenninu, og hversu langt frá
verzlunarstöðum dvalar-
staðirnir eru, svo nokkuð sé
nefnt.
Helzt hefur verið reiknað með
þvi, að fólk fengi húsnæði og
morgunverð, en sæi svo sjálft
um aörar máltiðir, en ekki hefur
endanlega verið gengið frá þvi,
og verður ekki gert fyrr en fyrir
liggja upplýsingar um þá staði,
sem til greina kunna að koma.
Agnar Guðnason sagði. að i
Sviþjóð væru að minnsta kosti
200 sveitabýli, sem byðu upp á
þessa þjónustu. Þar borgaði
gesturinn 10 krónur sænskar
fyrir nóttina, en ekkert fæöi
væri innifalið i þvi verði. Þessi
starfsemi mun einnig vera i öðr-
um löndum svo sem Danmörku.
og alls staðar njóta mikilla vin-
sælda.
Akveðið er að hafa milliliða-
kostnað sem minnstan, og þvi
hefur verið komið á samstarfi
við stjórn Landssambands
veiðifélaga, en á vegum þess
hefur verið opnuð skrifstofa á
fyrstu hæð Bændahallarinnar.
Þar verða gefnar upplýsingar
um þá staði og heimili, sem taka
vilja á móti gestum til dvalar.
Skrifstofan er opin frá kl. 16 til
19 virka daga, nema laugardaga
frá 9 til 12. Gert er ráð fyrir, að
þegar i sumar verði nokkurt
framboð á gistingu á sveita-
heimilum.
Agnar sagði. að tilgangurinn
með þessu starfi væri að stuðla
að auknum kynnum milli stétta
og vonandi vináttu milli
heimilisfólksins og dvalargesta,
sem gæti leitt til aukins skiln-
íngs og aukins samstarfs milli
stétta i framtiðinni.