Tíminn - 13.04.1975, Blaðsíða 40
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UM LAND ALLT
fyrir gæði
Guðbjörn
Guðjónsson
Heildverzlun Siðumúla 22
Simar 85694 & 85295
SIS-FOMJll
SUNDAHÖFN
m u
...zr ■ ml
G
dÐI
fyrirgúöan mai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖO SAMBANDSINS
Við erum í tíunda sæti í neyzlu „sterkra drykkja"
en í 30. sæti þegar létt vín og bjór eru tekin með
SJ-Reykjavik —tslendingar eru
i 30. sæti i töflu um meðal-
áfengisneyzlu á hvern ibúa i 35
löndum árið 1972, sem blaðinu
hefur borizt frá Afengisvarna-
ráði. Þetta ár neyttum við 2,8
litra af hreinum vinanda á
mannsbarn, þar af 2,5 litra i
sterkum drykkjum en afgangs-
ins i léttum vfnum. Meðalvin-
neyzla á mann hér árið 1972 var
2 litrar, og til samanburðar má
geta þess að meðalvinneyzla
Frakka var 1071 á mann og þeir
drukku samtals 16,9 litra af
hreinum vinanda á mann það
árið,og eru efstir á töflunni. Við
erum eina þjóðin á töflunni þar
sem engin bjórneyzla er með-
talin i áfengisneyzlunni.
Ef við litum aðeins á neyzlu
sterkra drykkja eru aðeins tiu
þjóðir fyrir ofan okkur og i' þess-
ari röð', Pólverjar, Ungverjar,
Bandarikjamenn, Spánverjar,
V-Þjóöverjar, Kanadamenn,
Júgóslavar, Lúxembúrgarar, A-
Þjöðverjar og Sviar.
Þrjár efstu þjóðirnar á töfl-
unni hvað heildaráfengisneyzlu
snertir, Frakkar, Portúgalir og
Italir, drekka hinsvegar minna
en við af sterkum drykkjum.
Apemgisseyzia A hvern ibOa I YMSUM LQTODM
Sterkir drykkir
í loo % áf., 1:
Létt vín
í 1 :
Sterkt öl
í 1 :
Neyalan samtale
í loo i áf.,T:
FA ISFIRÐINGAR LINDARVATN
FYRIR
VETURINN?
— Mjög áríðandi að
til framkvæmdanna
segir bæjarstjórinn
Gsal-Reykjavik — Neyzluvatn Is-
firðinga er oft gruggugt vegna
rigninga, en vatn þeirra er svo-
kallað yfirborðsvatn. Að sögn
Bolla Kjartanssonar, bæjarstjóra
á lsafirði,er að vænta úrbóta hvað
þetta áhrærir á næstunni, og er
þess vænzt að framkvæmdum
verði lokið fyrir veturinn.
— Það er stefnumark okkar að
setja plastlögn frá vatnsinntaki
okkar upp i lindir, sem eru i 450
metra hæð, 3,5 km. frá inntakinu
— og þar með verðum við með
gott lindarvatn beint i vatnsveitu-
kerfið. Við höfum verið með þetta
t undirbúningi i nokkur ár og
keyptum t.d. allar plastlagnir á
siðasta ári.
Bolli sagði að raunar væri ekki
nema 3-4 mánaða verkti'mi i þess-
ari hæð, og þvi' þyrfti að hraða
framkvæmdum.
— í þessu tilviki, sem og mörg-
um öðrum á sviði bæjarfram-
kvæmda, verðum við að leita eftir
lánum til slikra stórfram-
kvæmda, — og raunar stöndum
viö og föllum meö þvi, hvort við
fáum slikt lán eða ekki. Við biðum
nú eftir svari, en eins og ég sagði
áöan er verktimi stuttur á þess-
um slóðum, þar sem lindarvatniö
er, — og þvi verðum við helzt að
fá svar frá þeim lánastofnunum,
sem við höfum leitað til, i siðasta
lagi i mai.
Þessi vatnsveituframkvæmd er
áætluð upp á 23 millj. kr.
— Með þessu verður alveg gjör-
breyting, þvi að með lindarvatn-
inu verðum við komin með það
bezta vatn sem hægt er að fá hér á
landi. Yfirborðsvatnstakan er
alltaf meingölluð, þvi afrennsli af
heiðum og beitarlandi kemur inn i
vatnsbólið og þrátt fyrir það að
vatnið er sigtað, er það ekki
nægjanlegt.
1. i'rakkland 2.3 lo7 4o 16,9
2. Portúgal 0,9 loo 16 13,7
3. Italía 1,9 111 13 13,6
r • Spánn 2,9 64 36 12,3
3. Veotur-Þýskaland 2,9 22 145 12,1
b. Austurríki 2.4 34 lo4 11,6
7. Lúxemborg 2,8 42 124 11,5
8. Sviss 2,0 44 74 lo,8
9. Ungverjaland 3,0 4o 59 9,7
io. Belgía 1,6 10 134 9,5
li. Astralía l,o 9 127 8,5
12. Tékkóslóvakía (l97l) 2,3 13 145 8,3
13. Nýija-Sjáland (1971) 1,0 7 121 7,9
14. DEmmörk 1,5 7 I08 7,7
15. Kanada 2.9 • 5 84 7,7
16*. Júgóslavía (l97l) 2,8 27 3o 7,5
17. Stóra-Bretland 1,0 4 I06 6,9
18. Holland 2,3 8 66 6,8
19. Austur-Þýskaland 2,7 5 lo7 6,5
2o. Bandaríkin 3,o 6 73 6,4
21. Rúmenía (l97o) 2,4 23 22 6,3
22. Pólland 3,8 6 35 6,3
23- Búlgaría (l97l) 2,0 19 • 35 'í.’1
24. Svíþjóð 2,6 8 49 5,8
25. Irland (l97l) 1,5 2 73 5,3
26. Pinnland 2,2 5 49 5,1
27. Noregur 1,7 3 38 3,9
28. Kýpur 1,8 8 2o 3,8
29. Suöur-Afríka 1,0 lo 13 2,9
3o. Island 2,5 2 2,8
31. Perú (1971) 1,4 1 21 2,6
32. Mexíkó 1,1 0 28 2,4
33. Kúba (1971) 1,0 1 21 2,2
34. ísrael 1,1 4 lo 2,1
35. Tyrkland 0,4 1 1 o,5
Vilia endurbyaainau frystihússins á Bíldudal strax!
gébé-Rvlk. — Atvinnumál á
BHdudal standa og falla með
frystihúsinu, sagði Theódór
Bjarnason sveitarstjóri I viðtali
við Timann nýlega. Eigandi
frystihússins á staðnum er Fisk-
veiðasjóður, sem keypti húsið af
Arnfirðingi hf., sem varð gjald-
þrota fyrir 5-6 árum. — Húsið
þarfnast mikilla endurbóta og
tækjabúnaður allur er úr sér
genginn, sagði Theodór. Ég gizka
á, að það myndi kosta um 80-90
milijónir að gera frystihúsið vel
starfhæft á ný, en eins og er er
varla hægt að kalla það starfhæft.
— Húsið sjálft er orðið mjög
lélegt, enda litið sem ekkert verið
haldið við undanfarin ár. Þaö er i
rauninni áratugum á eftir kröfum
nútimans og þarf verulegt átak til
að færa það i gott horf á ný, sagði
Theodór.
Það er fyrirtækiö Boði hf. á
Bildudal, sem hefur fyrstihúsið á
leigu frá Fiskveiöisjóði, en for-
ráðamenn Fiskveiðisjóðs vilja
selja frystihúsið, og það einhverj-
um „traustum” heimamönnum.
— Einhver klofningur er kominn
upp á milli heimamanna, en Boöi
hf. hefur áhuga á að kaupa
frystihúsið. Nýlega var stofnað
nýtt félag, Fiskvinnslanni þeim
tilgangi að kaupa frystihúsið, en
hvort félagiö um sig hefur ekki
fjárhagslegt bolmagn til að kaupa
húsiö, svo vonir standa til að
hægt veröi að sameina þessi tvö
fyrirtæki svo kaupin geti. farið
fram sem fyrst.
— Eins og áður segir, þarf veru-
legt átak til að koma vinnslu i
frystihúsinu I gott horf, en tækja-
búnaður þar er mjög úr sér
genginn, og gamladags, sagði
Theodór. — Þess má geta I þvi
sambandi að flökunarvélar
þekkjast þar ekki og aöeins tvö
frystitæki af sex eru nothæf. Þá er
fyrirkomulag allt mjög úrelt og
mjög ábótavant.
Fiskveiðisjóður vill veita
heimamönnum peningafyrir-
greiðslu við kaup frystihússins,
og Framkvæmdastofnun rikisins
hefur gefið fyrirheit um það
sama. Þá hefur Byggingasjóður
einnig tjáð sig fúsan til að lána
25% af þvi fé, sem þarf til
uppbyggingar hússins.
— Það er enginn vafi á þvi, að at-
vinnulif hér stendur og fellur með
frystihúsinu, sagði Theodór. —
Aðeins einn stór linubátur er nú
gerður út frá Bildudal en hann er
um tvö hundruö tonn að stærð.
Þetta myndi gjörbreytast en ef af
endurbyggingu frystihússins
yrði, og tel ég t.d. liklegt, að
einhverjir af þeim 15 rækjubát-
um, sem héðan stunda rækju-
veiðar, myndu þá snúa sér aö
linuveiðum.
—• Mikil óánægja rikir hjá mönn-
um á Bíldudal með hvernig er
haldiö á þessum málum og lýsa
þeir yfir ábyrgð á hendur Fisk -
veiðisjóöi og Framkvæmda-
stofnun á þeim seina-
gangi, sem hefur verið á máli
frystihússins, sagöi Theodór.
Menn vilja einhverjar aðgerðir,
og það frekar fyrr en seinna.
Komið hefur til tals, aö kaupa
skuttogara á BIldudal,og þaö I
félagi við Tálknfriðinga og
Patreksfiröinga. Af þessu getur
þó ekki orðið, nema frystihúsiö
verði endurbætt að verulegu leyti.
TRYGGVASKALI ÆSKULÝDS-
HEIMILI SELFOSSHREPPS
Gsal-Reykjavik. Nýlega var
skipaður æskulýðs- og
iþróttafulltrúi á Selfossi og var
Jón Stefánsson, Iþróttakennari,
ráðinn i þaö starf. Eins og
kunnugt er, hefur Selfoss-
hreppur keypt Tryggvaskála og
mun æskulýðsstarfsemi fara að
verulegu leyti fram I þvi hús-
næði.
— Hlutverk æskulýðsráðs er að
sjá um æskulýðsstarfsemi i
hreppnum, — opið hús og aðra
félagsstarfsemi, sagði Jón
Stefánsson, er Timinn hafði tal
af honum.
Jón sagði, <.ð lita mætti á
Tryggvaskála sem nokkurs
konar bráðabirgðafélagsheimili
Selfoss, þvi að auk þess sem
æskulýðsráð ætti þar inni fyrir
sina starfsemi, myndi húsnæðið
leigt út öðrum félagssamtökum.
1 ein tvö ár hefur engin
skipulögð æskulýðsstarfsemi
verið á Selfossi, eða allt frá þvi
kjallara sundhallarinnar var
lokað ’ æskulýð hreppsins, en
þar haiói verið diskótek til
skams tima.
— Það virðist vera mjög mikill
áhugi á æskulýðs- og iþrótta-
málum hér á staðnum og
Tryggvaskáli verður formlega
opnaður fyrir æskulýðsstarf-
semi á þriðjudaginn. 1 skálan-
um hafa veriö gerðar ýmsar
smábreytingar i þessu sam-
bandi og ég mun einnig verða
með skrifstofu hér i húsinu,
sagði Jón Stefánsson.
Myndin hér til vinstri er frá
Selfossi og bendir svarta örin á
Tryggvaskála.