Tíminn - 17.04.1975, Blaðsíða 11

Tíminn - 17.04.1975, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 17. april 1975. TÍMINN 11 Hann sefur vært þessi snáði, og það er ekki annað að sjá en honum líði vel. Þótt hann sé ekki enn farinn að tjá sig eða láta verulega að sér kveða í þeim heimi, sem hann leit fyrst augum fyrir fáeinum dögum, virðist hann finna, að honum er sýnd umhyggja. Þó að allar mæður óski þess, að börnin þeirra verði heilbrigð og hraust, eru sumar þeirra ekki nógu tillitssamar við þau, þegar þau eru ef til vill viðkvæmust, það er meðan þau eru enn í móðurkviði. Allt of margar mæður reykja á meðgöngutímanum og hafa þannig slæm áhrif á heilsu barnsins, sem þær ganga með, — auk þess sem þær valda sjálfum sér heilsutjóni. Mæður, það er ekki nóg að taka fullt tillit til barnsins eftir að það er fætt. Þá gæti það verið of seint. SAMSTARFSNEFND UM REYKINGAVARNIR V104

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.