Tíminn - 18.04.1975, Page 1
Bílsturtur
Dælur
Drifsköft
x -- _________________n. i
Landvélarhf
BLÖNDUVIRKJUN:
50 KM3
UNDIR
LANDS
LÓNIÐ
gébé Rvík — Eitt brýnasta verk-
efni í Húnaþingi, er að leysa þann
geigvænlega orkuskort er hrjáir
héraðið. — Allt bendir til þess, að
hagkvæmt sé að virkja Blöndu, og
eru rannsóknir þar að lútandi i
fullum gangi, að sögn Jakobs
Björnssonar, orkumálastjóra.
Eini ókosturinn við Blönduvirkj-
un er sá, að mikið afréttarland fer
undir vatn eða um 50 ferkm.
Rannsóknarstofnun Landbúnað-
arins hefur verið falið að kanna á-
hrif hugsaniegrar virkjunar á
beit og gróður, en fundur verður
haidinn með heimamönnum, á-
samt fulltrúum iðnaðarráðuneyt-
isins og orkumálast jóra, á
Blönduósi I næstu viku. Verður
þar gerð grein fyrir virkjuninni
og hvernig hún er fyrirhuguð I
stórum dráttum, hún kynnt
<--------------------------
Kortið sýnir hina fyrirhug-
uðu Blönduvirkjun og lónið
(1), sem verður. Vatninu
verður veitt um Þristiklu (2)
Austur-Friðmundarvatn (3)
og Gilsvatns (4) til stöðvar-
hússins (5). Frá stöðvarhús-
inu eru aðeins um 8 km I
byggðalínuna, sem merkt er
með brotnu striki efst á kort-
inu.
<--------------------------1
17.500 FERM. VÖRU-
SKEMMUR RÍSA SENN
heimamönnum, og athuguð við-
brögð þeirra, sem eiga þarna af-
réttarland, sem myndi fara undir
vatn.
Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins hefur verið falið að kanna á-
hrif Blönduvirkjunar á beit og
gróður, og mun sú vinna vera á
lokastigi. Athugað mun vera, hve
mikil skerðing verður á afréttar-
landi bænda. Siðar mun svo vera
rætt um bætur til bænda, ef þeir
verða fyrir tjóni vegna virkjunar-
innar. Bætur geta orðið i einu eða
ööru formi, annað hvort bætt i fé,
eða að ræktað verði upp land i
stað þess sem undir vatn fer, en
enn er of snemmt að tala um
hugsanlegt samkomulag milli
yfirvalda og bænda um þetta atr-
iði. Afstaða þessi skýrist öll eftir
fyrirhugaðan fund á Blönduósi,
eins og áður er sagt frá.
ÍFramhald á bls. 8.
SJ-Reykjavík „Hvað er það, sem
knýr lækni, sem áður hefur ekki
hvað sizt hampað heiðri og sið-
ferðisvitund læknastéttarinnar i
málflutningi sínum,til að beita i
rökræðum tilhæfulausum róg-
burði i garð þeirra, sem eru á
annarri skoðun? Það virðist helzt
sem læknirinn skeyti hvorki um
skömm né heiður”. Svo fórust
Elisabetu Gunnarsdóttur i mið-
stöð Rauðsokka orð i gær, er við
leituðum umsagnar félaga i
Rauðsokkahreyfingunni um um-
mæli Guðmundar Jóhannessonar
læknis i umræðuþætti um fóstur-
eyðingar i sjónvarpsþætti á mið-
vikudagskvöld. Guðmundur sagði
þá m.a. að Rauðsokkar hefðu
hvatt ungar konur til áð fara til
Englands til fóstureyðingar án
þess að freista þess fyrst að fá
FB-Reykjavik. Miklar bygginga-
framkvæmdir standa nú yfir inni
við Elliðavog, nokkru fyrir innan
Kleppsspitalann, en þar er verið
að reisa miklar vöruskemmur á
vegum Innflutningsdeildar Sam-
leyfi til aðgerðarinnar hér heima.
Kvaðst Guðmundur þekkja dæmi
um þetta.
Tilgangur Rauðsokkahreyfing-
arinnar með þessu hefði verið að
geta fært fram tölur um mikinn
fjölda islenzkra kvenna, sem leit-
aði fóstureyðinga erlendis, þvi
máli til stuðnings að fóstureyð-
ingar yrðu gefnar tiltölulega
frjálsar hér á landi. — Þetta eru
óheiðarleg vinnubrögð, sagði
Guðmundur Jóhannesson læknir
ennfremur i sjónvarpsþættinum.
,,Við i Rauðsokkahreyfingunni
hljótum að lýsa undrun okkar á
grófum aðdróttunum Guðmundar
læknis. Sliku verður ekki unað á-
tölulaust og munum við svara
þessu nánar á opinberum vett-
vangi”, sagði Elisabet Gunnars-
dóttir ennfremur i gær.
bands isl. samvinnufélaga. Verð-
ur þarna um að ræða 17.500 fer-
metra hús, en kjallarinn undir þvi
er 4.500 fermetrar að flatarmáli.
Búið er að ganga frá kjallaran-
um, og reisa súlurnar, sem vegg-
irnir verða reistir upp við, en ekki
er gert ráð fyrir, að lokið verði við
bygginguna, eða hún tekin i notk-
un, fyrr en eftir tiu til tólf mánuði.
Myndin sýnir veggsúlurnar, sem
þegar er búið að reisa.
Sauðkræklingar
hefja framleiðslu
d sérstökum
Færeyingamör
Gsal-Reykjavik — Kaupfélag
Skagfirðinga á Sauðárkróki hefur
tekið upp þá nýbreytni í starfi
slnu, að vinna mör á sérstakan
hátt til útflutnings á Færeyja-
markað. Hér er um að ræða soð-
inn mör, svonefndan Færeyja-
mör, og þykir frændum okkar
hann mikið lostæti. Þá hefur
Framhald á bls. 8.
„TILHÆFULAUS RÓGBURÐUR"
Reykjavíkurborg:
VANTAR 700 MILLJÓNIR I ÁÆTLUN MEIRIHLUTANS
ÞRÁTT FYRIR NIDURSKURD Á FRAMKVÆMDUM VID NÝ
BYGGINGASVÆÐI OG FRAMLÖGUM TIL FÉLAGSMÁLA
BH—Reykjavik — A borgarstjórnarfundi I gær var til um-
ræðu niðurskurðurinn á fjárhagsáætlun borgarinnar, og
deildi Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, hart á meirihlutann fyrir það, hvernig að mál-
um hefur verið staðið.
— Það er komið á daginn, sem ég spáði I desember, að
fjárhagsáætiun Reykjavfkur, eins og þá var gengið frá
henni, myndi ekki standast lengi, sagði Kristján Bene-
diktsson I ræðu sinni. Nú vantar tæpar 700 milljónir króna
til þess að ná endunum saman. Þessar 700 milljónir eru
þannig til komnar, að vegna almennra verðhækkana I
launagreiðslum og fleira vantar 300 milljónir) I aukinn
halla á rekstri strætisvagnanna vantar 170 milljónir, og
siðan eru 220 milljónir, sem reiknað er með að verði sem
aukning á óinnheimtum eftirstöðvum tekna um áramót.
Samtals gerir þetta um 700 milljónir króna.
Meirihluti borgarráðs hefur lagt fram tillögur um,
hvernig bregðast eigi við þessari fjárvöntun. Tillögur
meirihlutans eru þær, að fjármagn til gatnagerðar verði
lækkað um 170 milljónir, framkvæmdir við skólabygging-
ar, heilbrigðisstofnanir, iþróttamannvirki og til fram-
kvæmda á sviði félagsmála verði lækkaðar um tæpar 300
milljónir. Sparað verði á rekstrarliðum, aðallega þannig
að frestað verði ráðningu nýrra starfsmanna, sem búið
var að áætla fyrir o.fl., og nemi sá sparnaður 60 milljón-
um. Þá liggja nú fyrir nákvæmar upplýsingar um tekjurn-
ar, og er talið, að tekjur borgarsjóös muni að óbreyttum
reglum geta orðið 66 milljón krónum hærri en áætlað var i
desember.
Þessi fjárhagsvandræöi borgarinnar eiga sér að sjálf-
sögðu fleiri en eina ástæðu. Þar má meðal annars nefna
siðustu gengisfellingu, og dýrtiðaraukningu af hennar
völdum, skuldasöfnun borgarinnar á siðastliðnu ári, sem
gerir henni erfiðara fyrir að rétta úr kútnum, og gifurleg-
an kostnað við rekstur borgarinnar. 1 þvi sambandi má
benda á, að fram kom I desember sl., þegar f járhagsáætl-
unin var samþykkt, að af 6 þús. millj. króna áætluðum
tekjum á þessu ári færu hátt I 5 þús. millj. I reksturinn. A
góðu árunum var siður um það hugsað að halda rekstrin-
um I skefjum. Nú reynist hins vegar erfitt að feta sig til
baka, þrátt fyrir dálitla tilburði i þá átt.
Af 60 milljónum, sem ráðgert er aö spara I rekstrinum
núna, eru 52 milljónir minnkun á gatnalýsingu, þannig að
aðeins er um að ræða raunverulegan sparnaö upp á 8
millj., eða 0,2% af heildarrekstrarkostnaði.
Sé niðurskuröurinn sundurliöaður I helztu liði, lita þeir
þannig út:
Fræðslumál................................ 13,2 millj.
Listir, Iþróttir og útivera .............. 65,6 millj.
Heilbrigðismál............................ 11,0 millj.
Félagsmál................................ 200,0 millj.
Ahaldakaup................................ 7,0 millj.
Lægri tala til afborgana................. 100,0 millj.
( Þessi siðasta tala er þannig til komin, að kosningavlxl-
illinn, sem var upp á 600 milljónir, var til 3ja ára. Nú er I
athugun hvort ekki sé hægt að fá að greiða hann á 5 árum).
En hversu alvarlegur, sem þessi niðurskurður er, hlýtur
það þó að teljast alvarlegast, hversu mjög er skoriö niður
á sviði framkvæmda við ný byggingasvæði, en þetta hlýt-
ur óhjákvæmilega að stuðla að þvi, að enn færri lóðir veröi
til úthlutunar næstu árin, og enn færri lóðir tilbúnar hjá
Reykjavikurborg. Niðurskurðurinn nær m.a. til þriggja
nýrra byggingasvæða, sem eru þessi, niöurskurðar-
upphæðin I milljónum fylgir:
Eiðsgrandi................................... 2,5 millj.
Stokkaselshverfi I Breiðholti II............ 10,0 millj.
Seláshverfin................................ 41,7 millj.
Þetta þýðir það, að byggingarframkvæmdum hlýtur að
seinka að minnsta kosti um eitt ár, og má öllum ljóst vera,
hver alvara er á ferðum.
Viö fulltrúar Framsóknarflokksins I borgarstjórn höf-
um, i samráði viö borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins,
borið fram ýmsar breytingartillögur. Við óttumst niður-
skurö framkvæmda á nýbyggingarsvæðum. Við viljum
ekki fella Stokkaselshverfið út af áætluninni. Tillögur okk-
ar ganga út á þaö, að niðurskurður við þjónustustofnanir
borgarinnar verð minni. Viö leggjum áherzlu á atvinnu-
aukandi framkvæmdir, sem gætu til dæmis orðið til þess
aö efla Vinnuskólann, ef þröngt yröi meö unglingavinnu i
sumar. Hins vegar viljum við fá meiri tekjur. 100 milljónir
I hækkuðum aðstöðugjöldum, og einnig viljum við láta
hækka gjöld af kvöldsöluleyfum, sem veriö hafa óbreytt I
10-12 ár.
Breytingartillögur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins
og Alþýðubandalagsins við niðurskurðartillögur meiri-
hlutans eru þessar:
Tekjur: Þús.kr. Þús.kr.
t stað: Komi:
Kvöldsöluleyfi .... 1.000 5.000
Aðstöðugjöld 827.000 926.000
Gatnagerðargjöld .... 219.400 237.100
Gjöld: Nýbygging gatna ... 366.393 327.243
Nýbygging holræsa ... 150.560 138.720
Eignabreytingar. Gjöld: Byggingarframkvæmdir. Skólabyggingar ... 589.800 639.800
Hluti rikissjóðs ... 325.000 331.000
Nýir leikvellir ... 10.000 23.500
Barnaheimili 52.000 82.000
Framlag til stofnana I þágu aldraðra ... 68.000 100.000
Framlag til Framkvæmdasjóðs, þar af kr. 25.000 þús. v/togarakaupa ... 100.000 125.000
Nýr liður: Til atvinnuaukandi framkvæmda eftir nánari ákvörðun atvinnu- málanefndar og borgarráðs 0 22.190