Tíminn - 20.04.1975, Side 19

Tíminn - 20.04.1975, Side 19
Sunnudagur 20. apríl 1975. TÍMINN 19 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gfslason. Rit- stjórnarskrifstofur f Edduhúsinu við Lindargötu, sfmar Í8300 — 18306. Skrifstofur I Aöalstræti 7, sfmi 26500 — af- greiðslusfmi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I lausa- sölu kr. 35.00. Áskriftargjald kr. 600.00 á mánuöi. Blaðaprent h.f. V___________________________________________J Bók og manndóð Einhvers staðar finnast þau orð mikils hugsuð- ar, að Gutenberg hafi verið mestur óþurftarmað- ur menningar i heiminum. Nú er það auðvitað dagsatt, að i gegnum prentvélar þjóðanna flæða ótrúleg kynstur blaða og bóka, sem dengt er á mannskepnuna i gróðaskyni einu, ef ekki af enn- þá verri hvötum, og leiða beint og óbeint til for- heimskunar, mannlifsspjalla og haturs á hnetti okkar, sem alltaf er að skreppa saman og þarfn- ast meira samlyndis og umburðarlyndis en nokkru sinni fyrr. Ekki er heldur fyrir það að synja, að ýmsir þættir fornrar menningar hafi farið forgörðum, þegar hin prentaða bók varð til- kvæm öllum, er hana girntust. Að einhverju hlið- stæðu höfum við orðið vitni á þessari öld, er tækni og viðskipti hafa þokað gömlum háttum inn i rökkrið á baksviði timans — þar á meðal vissu- lega mörgu, sem heyrði til sannri, djúprættri menningu og veitti lifi fyrri kynslóða fyllingu og hamingju. Þetta eru boðaföll hins þunga straums tilver- unnar, er ekkert veitir viðnám. Visubroti skýtur upp að þessum orðum skrifuðum: „Það vitir eng- inn veginn, þótt villist fárátt barn”. Sérhverju nýju geta fylgt miklir vankantar, en það er manndómsverk kynslóðanna, sem veita nýjung- unum viðtöku, að fella þær að lifi sinu og þörfum, eða lif sitt að þeim á þann veg, að þær verði til mannfélagsbóta. Gutenberg hefur orðið mestur skaðræðismaður menningar, sagði hugsuðurinn. Við skulum orða þetta á annan veg: Hin prentaða bók hefur á liðn- um öldum lokið öllum þjóðum og alþýðu allra landa upp nýjum heimi og veitt gömlum og nýj- um hugsunum i farvegi, sem kvislast um alla heimsbyggðina. Galdurinn er að láta grön sia — skilja rjómann frá undanrennunni eins og þú, les- andi góður, gerðir kannski i æsku i búri eða mjólkurhúsi foreldra þinna heima á sveitabæn- um, þar sem þú ólst upp. Þessar þenkingar um hið prentaða mál, bók- ina, eru hér festar á blað vegna þess, að Vil- hjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra hef- ur borið fram frumvarp um almenningsbókasöfn, þar sem gert er ráð fyrir auknu rekstrarfé þeirra, er nemur riflega sjötiu milljónum króna á ári. Þarna er að þvi stefnt, að almenningsbókasöfn, sem öll hafa verið næsta getulitil, nema þar sem forráðamenn sveitarfélaga hafa tekið þau upp á arma sér af sérstökum myndarskap, hljóti þá búbót, er nokkru nemur. Þegar hún verður af hendi reidd, kemur til kasta bókavarða og ann- arra forsjármanna bókasafna að láta hana verða stofnun sinni og þeim, sem hennar eiga að njóta, þann búhnykk, sem til er stofnað. Láta hana þjóna andlegri grósku, þroska og manndáð. Þar má i minni hafa þau dæmi, sem gefizt hafa i landinu, að með vönduðu og skipulegu vali á bókum til lestrar handa fólki hafa bókasöfn orðið gildur þáttur i uppeldi og menningarsókn i heil- um héruðum og þau siðan aftur markað djúp spor i heildarsögu þjóðarinnar. Þar sem þeim fjár- munum, sem almenningsbókasöfnunum kunna nú að bætast fyrir tilstilli menntamálaráðherr- ans, verður veitt viðtaka með sliku hugarfari, má vænta, að sáningu fylgi uppskera. The Times: Veðurhernaður kann að verða mögulegur Afleiðingarnar eru ófyrirsjáanlegar og gætu orðið ógnvekjandi VEÐURSTJÓRN sem nýtt vopn f hernaöi er ef til vill senn f sjónmáli og afleiðingarnar gætu orðið ógnvekjandi fyrir alla heimsbyggðina. Visinda- menn á vegum herstjórna hafa fengizt við þetta verkefni alllengi. Þessi hernaðaraðferð er nýjasta skerfið á þeirri leið, sem hafin var með notkun eit- urefna til gróðureyðingar i Vfetnam. Aö sögn hafa hernaðarlegar áætlanir I þessu efni verið samdar i beinum tengslum við rannsóknir borgaralegra vis- indamanna og tilraunir þeirra með aðferöir viö þokudreif- ingu, myndanir skýja og þrumuveðurs, áhrif á hvirfil- byli og framköllun regns og snjókomu. Edith Brown Weiss prófess or, sem er lektor i stjórnmál- um og tækni við Princeton-há- skóla, ritar um þetta efni i nýjasta hefti tímaritsins Sur- vival, sem Alþjóðastofnun um herfræðilegar rannsóknir gef- ur út. Fjallar hún þar einkum um möguleikana á notkun þessara aðferða i þágu hern- aðar. PRÓFESSORINN segir frá þvi I grein sinni, að rann- sóknastofnun undir stjórn varnamálaráðuneytis Banda- rikjanna sé farin að vinna að framkvæmd rannsóknaáætl- unar, sem nái nálega til allrar jarðarinnar. Ætlunin sé að „reyna veðurbreytingar” i þvi augnamiöi að stjórna veður- fari og loftslagi, og reyna að komast að niðurstöðu um sennilegar afleiðingar. Enn- fremur segir hún, að reynt hafi verið að reikna fyrirfram út áhrifin af tilfærslu mengun- arefna I gufuhvolfinu og fjar- lægingu ozonlagsins. Tiðast yrði þessum aöferð- um sennilega beitt sem eins konar hliðarráðstöfunum til stuðnings árásum á óvinaher. Unnt ætti að vera aö leyna herflutningum með tilbúinni þoku eða skýjaþykkni. Dreif- ing þoku eða skýjaþykknis ætti einnig aö geta orðið til þess að auðvelda loftárásir, árásir herskipa og ekki hvað sizt til að hjálpa kafbátum að hæfa mark sitt. Auövitaö kemur til greina margs konar önnur nýting veðurbreytinga i hernaöar- þágu. Nota má þokudreifingu eða mögnun hvassviðris til hindrunar umferð um strandhéruð óvina eins og bent hefur verið á, og einnig ætti að mega tefja siglingar óvina- flota með þessu móti. VERULEGA aukin- úrkoma ætti að geta valdiö erfiðleikum viö flutning herliös eða að- flutning vista og vopna, til dæmis með spillingu eða eyöi- leggingu vega um frumskóga og votlendi. Eins getur „skýjasáning” til fannkomu tafið og jafnvel hindrað hvers konar samgöngur i fjalllendi. Kunnar eru aðferðir til hindr- unar haglmyndun og ætti eins að mega fara öfugt að til þess að eyöileggja uppskeru á óvinasvæði. „Viðleitnin til að ná valdi á fellibyljum og hamla gegn þeim gætileitttil þess, að unnt ' yröi aö auka úrkomu eða vind- hraöa slikra veðra. Ef sú.yrði raunin væri unnt að valda flóðum I strandhéruðum, og eins ætti ef til vill að mega takast að breyta stefnu stór- - viðrisins,” segir prófessor Weiss. Hún segir ennfremur að áhugi á beitingu veður- og loftslagsbreytinga beininis I hernaði sé tiltölulega nýr. Grunur hafi leikið á nýtingar- möguleikum slfkra breytinga i langdregnum styrjöldum, enda þarf óhjákvæmilega nokkurn tima til að áhrifanna gæti, gagnstætt þvi, sem gildir til dæmis um kjarnorkuvopn- in. EINSTÖK riki kynnu að geta notfært sér veðurbreytingar til þess að spilla veðurlagi hjá óvinunum og auka þeim van- liðan. Þannig geta leiðtogar tiltekins rikis látið dreifa skýj- um yfir eigið land I öruggri vissu um, að það dragi úr eða auki úrkomu handan landa- mæranna. Eins ætti að vera unnt að láta flugvélar dreifa loftbelgj- um, sem springa eftir tiltekinn tima. Reikna má út I hvaða átt og hve hratt loftbelgina rekur, og þegar þeir springa eftir hinn tiltekna tima losna ryk- agnir, sem i þeim eru, ef til vill i mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Þannig má breyta úrkomu og ef til vill valda fannkomu. Prófessorinn bendir á, að loftslagshernaður gefi mögu- leika á að herja I laumi, þar sem þjóðirnar, sem fyrir slik- um árásum verði, muni kenna náttúruöflunum um óveðurs tjónið, sem þær verða fyrir. Eins megi notfæra sér veður- lagið i pólitiskum tilgangi, með þvi að ala á gruninum um, að óvinariki valdi spill- ingu tiðarfars, hvort sem sú er raunin eða ekki. „Þetta gæti stóraukið spennu og árekstra, sem náttúruhamfarir geta valdið, til dæmis með upp- skerubresti vegna þurrka eða flóöa.” HERNAÐARSÉRFRÆÐING- AR benda þó á ýmsa ann- marka i þessu sambandi. Til dæmis liggur sá möguleiki i augum uppi, aö aðferöirnar eöa afleiöingar þeirra geta ekki gertgreinarmun á vini og óvini og því bitnað á veitand- anum, og auk þess geta þær valdið almennum borgurum erfiðleikum ekki siður en hernum. Aðferðunum er held- ur ekki unnt að beita með til- ætluðum árangri nema þegar veðurfarið uppfyllir viss skil- yrði, en hin réttu skilyrði er ef til vill ekki að finna nema i vissum hlutum heims á viss- um árstima. Þess er einnig að geta, aö þessar aðferðir eru alls ekki sérlega kostnaðarsamar. Af þvi leiðir aftur, að árásarriki má búast við gagnárás þess, sem það ræöst á. Athuganir frá gervihnött- um, jarðeðlisrannsóknir og nýting likana til rannsókna gera sérhverju riki kleift að komast að raun um öll veruleg brot á hugsanlegum alþjóða- samningum um bann við veðurfarsbreytingum. En hitt er ákaflega erfitt, að komast að raun um og sanna minni- háttar breytingar af þessu tagi. PRÓFESSOR Weiss vekur at- hygli á þvi, að undangengin ár hafi oröið vart eindreginnar viðleitni til að koma I veg fyrir veðurfarsbreytingar i hernað- artilgangi eða efna til eftirlits með þeim. Sovétmenn og Bandarikjamenn hafi til dæm- is gengið frá samkomulagi um þetta efni i júli i fyrra. t september i haust báru Sov étmenn fram uppkast að samþykkt um þetta efni á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóð- anna. Þar var að þvi stefnt, „að banna allar athafnir, sem ætlað er að breyta umhverfi eða veöurfari, hvort heldur er i hernaðartilgangi eða ekki, ef þær eru ósamræmanlegar varðveizlu alþjóðlegs öryggis, velferð og hollustuháttum.”, Fyrsta nefnd allsherjar- þingsins samþykkti þetta upp- kast samhljóða, en sjö sátu hjá (þar á meðal fulltrúi Bandarikjanna). Ætlunin er, aö uppkastið verði tekið til meðferöar að nýju I vor á af- vopnunarráðstefnunni I Genf. Weiss prófessor bendir á, að þetta fylgi viö uppkastiö gæti þýtt, „að hjá okkur sé aö hefj- ast nýtt timabil samningavið- ræðna og samþykkta um betri stjórn en áður á nýtingu löfts- lags og veðurfars I þágu mannkynsins”. Hægt verður að láta fellibyl.... ....herja á strönd óvinarfkis — JH

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.