Tíminn - 29.04.1975, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 29. apríl 1975.
Kristinn Hallsson syngur hiutverk Papagenos úr Töfraflautunni eftir
Mozart i einu atriðanna I Afmælissyrpu.
80 listamenn koma
fram í Afmælissyrpu
SKEMMTIDAGSKRA sú, sem
tekin var saman i tilefni 25 ára af-
mælis Þjóðleikhússins og sýnd
starfsfólki og boðsgestum á af-
mælisdegi leikhússins 20. april,
hlaut svo góðar viðtökur, að
ákveðið hefur verið að hafa
nokkrar sýningar fyrir almenn-
ing. Sú fyrsta var s.l. sunnudags-
kvöld fyrir fullu húsi og næsta
sýning verður á sunnudaginn
kemur (4. mai). Um 80 listamenn
koma fram i Afmælissyrpu, en
þar eru fluttir þættir úr verkum,
sem sýnd hafa verið i Þjóöleik-
húsinu á liðnum rum. Má þar
nefna verk eins og Islandsklukk-
una, Gullna hliðið, Pétur Gaut.,
Gisl, Ó, þetta er indælt strið,
Kabarett, Fiðlarann á þakinu,
May Fair Lady, Leðurblökuna,
Coppeliu, Þrymskviðu svo eitt-
hvað sé nefnt.
Gisli Alfreðsson hefur tekið
afmælissyrpu saman og stjórnað
flutningi, Carl Billich er hljóm-
sveitarstjóri en Birgir Engilberts
gerir leikmyndir.
Skagfirskar konur halda
basar og kaffisölu
KVENNADEILD Skagfirðingafé-
lagsins i Reykjavik heldur basar
og kaffisölu i Lindarbæ fimmtu-
daginn 1. mai nk. kl. 2 sd. Deildin
hefur um árabil haft ýmis áhuga-
mál að starfa að, og hefur starf-
semin einkum verið tengd við
málefni Skagafjarðar, sem ofar-
lega eru á baugi hverju sinni, Það
er einlæg ósk að allir velunnarar
félagsins leggi leið sina i Lindar-
bæ 1. mai og styrki þannig gott
málefni.
Nýjung, sem kemur ferðafólki vel:
Tjaldað með
einuhandtaki
HAFINN er innflutningur á nýrri
tegund ferðatjalda. Eins og
myndirsýna, er tjaldið á þaki bif-
reiðanna. Tjaldið er reist með
einu handtaki og tekur það að-
eins um eina minútu, enn fremur
fer aðeins ein minúta i að fella
það ogganga vel frá öllu. Nýjung
þessi mun auðvelda útilegur og
ferðalög og þá ekki siður þeim
mönnum, er búa vilja i tjöldum i
ferðalögum, einnig þó að dvalið
sé i stórum bæjum Allir öröug-
leikar og leit að tjaldstæðum eru
horfnir, hægt er að tjalda svo að
segja hver sem er, jafnvel i bila-
stæðum, Mikinn sparnað getur
nýjung þessi skapað þeim sem oft
þurfa að leita gistingar á ferða-
lögum sinum, þar sem að hótel-
herbergi eru mjög dýr nú á dög-
um.
Það er innflutningsfyrirtækið
Festi i Reykjavik, sem flytur
tjöldin inn.
Félagar úr björgunarsveitinni flytja einn hinna slösuðu frá borði I Húsavfkurhöfn á sunnudaginn
Alvarlegt slys um
borð í Lifeline
Gsal-Reykjavik — Þrir menn af
brezka björgunarskipinu Lifeline
slösuðust mikið I fyrradag, er
hlekkur úr keðju siitnaði og slóst i
mennina. Hlutu mennirnir allir
mikil sár en þó er enginn þeirra
talinn i lifshættu.
Slysið varð um hádegisbilið, er
verið var að vinna að björgunar-
aðgerðum. Við höggið féll einn
mannanna i sjóinn en fljótlega
tókst að bjarga honum. Svo
heppilega vildi til að yfirhjúkr-
unarkonan á sjúkrahúsinu á Sel-
fossi var stödd i Flatey er slysið
varð og gerði hún að sárum
mannanna, — sem allir hlutu opin
Sam-
staða
briggja
um
1. maí
BH-Reykjavik. —Samstaða hefur
náðzt um sameiginlega kröfu-
göngu og útifund á vegum þriggja
aðila 1. mai n.k. Hér er um að
ræða FuIItrúaráð verkalýðsfélag-
anna i Reykjavik, Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja og Iðn-
nemasamband íslands. Undirrit-
uðu fuiltrúar þessara samtaka 1.
mai-ávarp og ræðumenn verða
frá þessum aðilum á útifundi,
scm haldinn verður á Lækjar-
torgi.
Heita má, að hér sé um algera
samstöðu að ræða, i ávarpi og
kröfum. Þá undirritaði Guð-
mundur Hallvarðsson fulltrúi
Sjómannafél. Rvikur, ávarpið
með fyrirvara, hvað snertir tvær
greinar þess, þar sem bein gagn-
rýni er á stefnu rikisstjórnarinn-
ar i efnahagsmálum og i kröfu-
göngunni ganga hernámsand-
stæðingar undir kröfuborðum þar
sem þess er krafizt að herinn og
NATO viki. Er það gert án sam-
þykkis annarra aðila að göng-
unni, en átölulaust af þeirra
hálfu.
Samstaða sem þessi er nýjung
1. mai, og má geta þess, að
fimmtán ár eru siðan fulltrúi
BSRB hefur flutt ræðu 1. mai.
Iðnnemasambandið hefur gert
sér dagamun 1. mai og tekið þátt i
kröfugöngum og útifundum, en
þetta er i fyrsta skipti, sem INSI
undirritar 1. mai-ávarpið og einn-
ig I fyrsta skipti, sem stúlka er
ræðumaður þess 1. mai.
beinbrot, — unz frekari hjálp var
fengin.
Björgunarskipið hélt þegar
áleiðis til Húsavikur og á móti
skipinu komu læknar af sjúkra-
húsinu ásamt félögum úr björg-
FIMMTUPAGINN 1. mai heldur
söngflokkurinn Hljómeyki tón-
leika i Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut í Reykjavik. Gestir
Illjómeykis á þessum tónleikum
eru Jósep Magnússon flautuleik-
ari, Páll Gröndal cellóleikari og
Jónas Ingimundarson pianóleik-
ari.
A efnisskrá Hljómeykis eru ein-
göngu gamlir og nýir brezkir
söngvar. Söngvar eftir gömlu
meistarana Henry Purcell,
Thomas Morley, Orlando Gibbons
og John Dowland og svo nýlegri
söngvar frá 19. og 20. öldinni eftir
Edward Elgar, John Hind, C.N.
gébé Tvik — Akveðið hefur verið
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga Akur-
eyri, að hætt verði að smiða skip i
Skipasmiðastöð KEA.
Það var árið 1940 sem Skipa-
smiðastöð KEA tók til starfa og
hafa þar verið smiðaðir 107 bátar
og skip, allt upp i 165 tonn.
Stærsta skipið, sem smíðað var
þar, var hið aflasæla happaskip,
Snæfell, sem Útgerðarfélag KEA
á og gerði út i rúm 30 ár, eða til
ársloka 1973. er þvi var lact.
unarsveitinni á staðnum. Þegar
til Húsavikúr var komið voru hin-
ir slösuðu fluttir út á flugvöll, þar
sem flugvél beið þeirra og flutti
þá til Akureyrar.
Stanford, Richard Rodney Bennet
og Benjamin Britten.
Margir þessir söngvar hafa
ekki heyrzt hérlendis fyrr en nú,
þ.á.m. lagaflokkurinn Five flow-
ersongs eftir Benjamin Britten.
Fyrrnefndir gestir Hljómeykis
leika svo tvö trió eftir Haydn og
Martinu, einnig leikur Jónas Ingi-
mundarson með nokkrum
söngvanna.
Þetta verða einu sjálfstæðu tón-
leikar Hljómeykis að þessu sinni
og hefjast þeir klukkan 8:30.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Siðasti báturinn, sem Skipa-
smiðastöð KEA smiðaði, var Sól-
rún EA 251, sem er 27 tonna eik-
arbátur, en hann var afhentur
eiganda, Sólrúnu h.f. Arskógs-
sandi, þann 1. marz sl.
Skipasmiðastöð KEA hefir
einnig i fjölda ára rekið innrétt-
ingaverkstæði, þar sem smiðað-
ar eru eldhúsinnréttingar, glugg-
ar, hurðir o.fl. og mun sú starf-
semi halda óbreytt áfram.
Ung skáld og æsku•
Ijóð á fjölunum
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur ákveðið
að endurtaka i kvöld ljóða- og
söngdagskrána UNG SKALD OG
ÆSKULJÓÐ vegna mikillar að-
sóknar. Dagskrá þessi var flutt
siðasta vetrardag á Litla sviðinu i
Leikhúskjallaranum og hlaut hin-
ar ágætustu undurtektir. Hér er
um að ræða ljóð og söngva eftir 20
höfunda, einkum þá, sem enn eru
ungir að árum, en einnig æskuljóð
nokkurra eldri höfunda. Flytj-
endur eru leikararnir: Edda Þór-
arinsdóttir, Herdis Þorvaldsdótt-
ir, Margrét Guðmundsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson og Ævar R.
Kvaran. Meginþungann af tón-
listarflutningnum ber söngtrióið
Þrjú á palli (Edda, Halldór Krist-
insson og Troels Bendtsen),
ásamt Carl Billieh. Stefán Bald-
ursson hefur stjórnað sýningunni
og valið efnið ásamt leikurunum.
Sýningin hefst kl. 20:30, og geta
áhorfendur setið við borð og notið
veitinga meðan á sýningu stend-
ur.
Leshringir
1 VETUR og vor hafa 3 leshringir
verið starfandi hjá kvenfélögum i
Eyjafirði og á Akureyri. Þetta
eru kvenfélög i Saurbæjar- og
Hrafnagilshreppum og um
sumarmál lýkur tveim leshring-
um hjá Kvenfélagasambandi
Akureyrar. Allirlásu leshringirn-
ir sama efni hjá Bréfaskólanum,
þ.e. „Fundarstjórn og fundar-
reglur” og allir hafa þeir sýnt
mjög góða ástundun og áhuga.
Leiðbeinandi allra leshringanna
er Gunnlaugur P. Kristinsson.
Hljómeyki í Félags
stofnun stúdenta
KEA hættir skipasmíði