Tíminn - 29.04.1975, Page 8

Tíminn - 29.04.1975, Page 8
8 TÍMINN Þriðjudagur 29. apríl 1975. Ráðherrarnir ráði sjálfir hvort þeir veita vín eða ekki Sem kunnugt er voru áfengismál nokkuð rædd á Alþingi fyrir ára- mót og kom þá m.a. fram tillaga um afnám vlnveitinga á vegum hins opinbera. Þessari tillögu var visaö til allsherjarnefndar sam- einaðs þings og hefur nefndin nú skiláð áliti, þar sem segir, aö það sé mat nefndarinnar, að Alþingi geti ekki sett ráðherrum reglur I þessum efnum „heldur sé það þeirra sjálfra að ráða slnum veit- ingum, eins og aöstæður bjóða hverju sinni”, eins og það er orðað I nefndarálitinu. Nefndin segir, að ákvörðun menntamálaráðherra um að veita ekki áfengi I móttökum eða veizlum, sem hann býður til, hafi vakið verðskuldaða athygli, en á það beri að llta, að afnám vinveitinga á vegum rlkisins hafi ekki úrslitaáhrif á almenna vinneyzlu, frekar en aðrar takmarkaðar ákvarðanir. „í þessum efnum stoða skammt boöog bönn”, segir enn frcmur I nefndaráliti allsherjarnefndar, en I henni eiga sæti þeir Ellert B. Schram (S!, Ólafur G. Einarsson (S), Jón Skaftason (F), Magnús Torfi Ólafsson (SFV), Jónas Arnason (Ab) og Lárus Jónsson (S). IMGFRETTIR Vilja fella niður söluskatt, sem greiddur er vegna snjómoksturs INGI Tryggva- son (F) fylgdi I gær úr hlaði i efri deiid frum- varpi, er hann og Steingrimur Hermannsson (F) flytja um breytingu á lögum um söluskatt. Er tillagan þess efnis, að heimilt sé að endurgreiða sveitarfélögum og öðrum þeim, sem kosta snjó- mokstur á vegum eða götum, sannanlegan greiddan söluskatt af þessum framkvæmdum. í framsöguræðu sinni gat Ingi Tryggvason um kostnað við snjó- mokstur á nokkrum stöðum.m.a. Akureyri. I greinargerð með frumvarpinu segir: „Eins og kunnugt er, hefur söluskattur hækkað mjög á und- anförnum árum og hlutdeild hans i tekjuöflun rikisins farið vax- andi. Eftir þvi sem upphæðir söluskatts hafa hækkað, hafa betur komið i ljós ýmsir vankant- ar á lögum þeim, sem sett voru um söluskatt. 1960, enda hafa ver- ið gerðar á þeim allmiklar breyt- ingar. Með frumvarpi þvi, sem hér er flutt, er lagt til að heimilað verði að endurgreiða sveitarfélögum og öðrum hliðstæðum aðilum, t.d. mjólkurflutningafélögum, greiddan söluskatt af snjó- mosktri. Kostnaður við snjómokstur er mjög misjaft eftir landshlutum. Þá er einnig misjafnt, hvernig framlag rikisins til snjómoksturs nýtist hinum ýmsu byggðarlög- um. Á sumum þjóðvegum kostar Vegasjóður allan snjómokstur, annars staðar eru vegir ruddir á kostnað Vegagerðar tvisvar i viku eða sjaldnar, allviða, jafnvel i þéttbýlum og snjóþungum sveit- um, kostar Vegagerðin snjó- mokstur að fullu aðeins einu sinni á ári. Ef menn þurfa að ryðja veg- ina oftar, verður helmingur kostnaðar að koma frá heima- mönnum. Þung rök má færa fyrir þvi, að samgöngur á landi séu jafnnauðsynlegar allan ársins hring og þvi sé eðlileg skylda samfélagsins að gera það sem unnt er til að vegum sé haldið opnum án sérstaks kostnaðar fyr- ir þá, sem búa við snjóþyngsli eða lága vegi, sem ekki verjast fyrir snjó. Skattheimta til almennings- þarfa verður seint með þeim hætti, að öllum þyki fullu jafnrétti framfylgt. Söluskatti fylgir t.d. sá galli, að fjárhagsleg óhöpp eða skaðar geta orðið tekjulind fyrir rikissjóð. t þjóðfélagi, sem stefnir aðauknu félagslegu réttlæti, hlýt- ur að vera eðlilegt og sjálfsagt að nema burt þau lagaákvæði, sem auka misrétti með þeim hætti, að óviðráðanlegir örðugleikar við lifsframfærslu séu gerðir að tekjulind fyrir samfélagið. örðugar vetrarsamgöngur i bæ eða byggð af völdum vegleysis eða snjólaga eru eitt þeirra at- riða, sem afkomumismun valda. Með frumvarpi þvi, sem hér er flutt, er gert ráð fyrir heimild rik- issjóðs til að leiðrétta að nokkru þennan aðstöðumun.” Ríkisstjórnin kannar möguleika á frekari fyrirgreiðslu til staerri togaranna Togaradeilan til umræðu í neðri deild í gær: A FUNDI neðri deildar i gær kvaddi Magnús Kjartansson (Ab) sér hljóðs utan dagskrár og spurðist fyrir um það hvað ríkis- stjórnin hefði gert eða hvað hún hygðist gera til að vinna að lausn togaradeilunnar. Sagði hann, að þetta mál varðaði ekki aðeins togaramenn heldur væri mikið I húfi fyrir verkafólk I landi, sem sagt hefði verið upp störfum i frystihúsum vegna verkfallsins. Geir Hall- grímsson for- sætisráðherra sagði, að staða stóru skuttog- aranna væri erfiðari en ann- arra fiskiskipa, þar sem það hefði sýnt sig, að þær ráð stafanir, sem rfkisstjórnin hefði beitt sér fyrir i þágu sjávarút- vegsins almennt hefðu ekki megnað að koma i veg fyrir tap- rekstur stóru togaranna. Forsætisráðherra sagði, að rikisstjórnin hefði fylgzt náið með gangi samningaviðræðna og haft samband við báða deiluaðila, og minnti á þau fyrirheit, sem rikis- stjórnin hefði gefið ASl og sjó- mönnum sérstaklega með Iviln- unum i skattamálum, þ.e. að skattfrjálsar brúttótekjur hækk- uðu, úr 8% i 10%. Auk þess hefði sá timi, sem áður þurfti til að hljóta þessar Ivilnanir verið lækkaður úr 6 mánuðum I 4 mán- uði. Þá sagði Geir Hallgrimsson forsætisráðherra, að rikisstjórnin væri að kanna möguleika á frek- ari fyrirgreiðslu við stærri togar- ana, en ekki væri timabært að gera grein fyrir þeim tillögum nú. Hins vegar sagðist hann vilja gera grein fyrir þremur atriðum i þvi sambandi: 1. Möguleika á þvi að létta greiðslubyrði stærri togaranna fyrst um sinn og einkum á þessu ári með þvl að flytja af- borganir slikra greiðslna, t.d. stofnlánaskuldir, fram I tim- ann. 2. Kikisstjórnin mun taka til meðferðar kröfu útgerðar- manna um greiðslur vegna lögbindingu kaups og kjara yf- irmanna á togaraflotanum i kjölfar togara verkfallsins 1973. 3. Loks muni rikisstjórnin stuðla að þvi að samið verði um ýms- ar vanskilaskuldir til ákveðins lengri tima. Varðandi þá spurningu, hver afstaða rikisstjórnarinnar væri til sölu isíenzkra togara úr landi, svaraði forsætisráðherra, að rikisstjórnin hefði ekki tekið neina afstöðu til þess, þar sem engin beiðnium slikthefði enn þá komið fyrir hana. En forsætisráð- Viðlagatrygging íslands er taki við af Viðlagasjóði LAGT hefur veriö fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um Viölagatryggingu islands sem ætlað er að taka við af Við- lagasjóöi, er starfi hans lýkur. Segir i 1. grein frumvarpsins, að sett skuli á fót stofnun, er hafi það hlutverk að tryggja gegn tjóni af völdum náttúru- hamfara og skuli stofnun þessi nefnast Viðlagatrygging ís- lands. Gert er ráð fyrir þvi, að Við- lagatrygging Islands vátryggi gegn beinu tjóni af völdum eftirtalinna náttúruhamfara: Eldgosa, jarðskjálfta, skriðu- falla, snjóflóða og vatnsflóða. i frumvarpinu segir enn- fremur, að vátryggingaskyld- ar séu allar húseignir og lausafé, þar með taldar vöru- birgðir, vélar og tæki, sem brunatryggðar eru hjá vátryggingarfélagi, er starfs- | leyfi hefur hér á landi. Trygg- ingarskyldan nær einnig til lausafjár, sem tryggt er sam- settri tryggingu, er innifelur brunatryggingu, enda flokkist slik trygging undir eigna- tryggingar. Nánar segir frá þessu frumvarpi siðar. herra kvaðst vilja leggja áherzlu á það, að fiskifloti landsmanna væri sem fjölbreyttastur. Það væri t.a.m. ljóst, enda þótt stærri togaratnit hefðu átt við rekstrar- örðugleika að striða, að þeir væru nauðsynlegir til sóknar á djúp- miðin. Magnús Kja rtansson (Ab) þakkaöi forsætisráð- ' herra fyrir svörin. Sagðist hann álita, að ekki hefðu átt sér stað neinar alvarlegar við- ræður millij deiluaðila. Verkfallið heföi nú staðið I þrjár vikur. Lagði hann áherzlu á, að rikisstjórnin beitti sér I málinu og sagðist ekki telja óeðlilegt, að hún.tryggði rekstur stóru togaranna. Eftir þvi væri beðið. Viðurkennt væri af báðum deiluaðilum, að hægt væri að semja fljótlega. Pétur Sig- urösson (S) tók næstur til máls. Sagði hann, að mikið væri i húfi f y rir Reykjavik, Hafnarfjörð og Akureyri, þar sem fiskiðnaður á þessum stöðum byggöist á tog- araútgerðinni. Sagði hann, að of hægt miðaði i þessu máli, enda þótt ljóst væri, að togarasjómenn á minni togurunum myndu njóta góðs af bátakjarasamningunum. Þá gerði þingmaðurinn að um- talsefni lögin frá 1973 og taldi, að þeim þyrfti að breyta. Loks sagði hann það vera álit sitt, að stærri togaramir hefðu verið hraktir Framhald á 19. siðu Frumvarp um jórnblendið orðið að lögum Frumvarp rlkisstjórnarinn- ar um járnblendiverksmiöju á Grundartanga I Hvalfirði var afgreitt sem lög frá Alþingi á laugardaginn. Frumvarpið var samþykkt eftir 3. umræðu I neðri deild með 19 atkvæðum gegn 8. TIu þingmenn voru fjarverandi, en þrlr þingmenn sátu hjá. Það voru stjórnar- þingmennirnir Ragnhildur Helgadóttir, Ingvar Glslason og Sverrir Hermannsson. Nafnakall fór fram um 3. grein frumvarpsins er varðar eignaraðild tslendinga. Sú grein var samþykkt með 21 at- kvæði gegn 8. Meðal þeirra, sem greiddu atkvæði á móti, var Ragnhildur Helgadóttir. Fjórir þingmenn sátu hjá, Ingvar Glslason, Magnús Torfi ólafsson, Sigurlaug Bjarnadóttir og Sverrir Her- mannsson. Gylfi Þ. Gíslason: íslenzkir skákmenn ráðnir til kennslu skákíþróttar Gylfi Þ. Gislason (A) hefur lagt fram frumvarp um skákkennslu. t frumvarpinu er gert ráð fyrir, að ráðherra sé heimilt að skipa Islenzka skák- menn I fast starf til kennslu I skák. Skilyrði sé, að skákmaður hafi hlotið stórmeist- aratitil eða annan alþjóðlegan tit- il I skák. Laun skulu vera há- markslaun menntaskólakennara. 1 greinargerð með frumvarpinu segir flutningsmaöur m.a.: „Lengi hefur verið mikill áhugi á skák á Islandi. Skákkunnátta er mjög útbreidd og hefur farið vax- andi. Jafnframt hafa tslendingar eignazt marga afburða skák- menn, og hafa ýmsir þeirra kom- izt I fremstu röð skákmanna, ekki aðeins á Norðurlöndum, heldur einnig á heimsmælikvarða. Ástundun skákiþróttarinnar er meöal hollustu og beztu tóm- stundaiðkana, sem völ er á, Eng- in leið er liklegri til þess að vekja áhuga ungs fólks á taflmennsku og efla þann áhuga, sem fyrir er, en sú, að það eigi þess kost að njóta tilsagnar i skák og tefla við snjalla skákmenn á vegum skóla þess, sem það sækir. Nokkuð hefur kveðið að þvi, að góðir skákmenn tefldu við skólafólk. En þvi starfi þyrfti að koma i fast horf. Þess vegna er lagt til i frv. þessu, að ráðherra sé heimilt að ráða skákmenn til þess að kenna skák I skólum og tefla við skóla- fólk. Er þá eðlilegt, að þeir, sem mestum árangri hafa náð á al- þjóðavettvangi, gangi fyrir um slik störf, ef þeir óska þess, en nokkrir íslendingar hafa nú öðl- azt stórmeistaratitil og aðra al- þjóðlega titla i skák. Flutnings- manni frv. er ljóst, að slikt starf mætti skipuleggja á margan hátt og að mörg sjónarmið gætu komið til greina við val á skákmönnum til slikra starfa. Þess vegna eru ákvæði frv. almenn heimildará- kvæði um aðalatriði málsins, þ.e. að efnt verði til skákkennslu i skólum og að beztu skákmenn þjóðarinnar eigi kost á sliku starfi, ef þeir óska þess, og ætti það að geta verið þeim stuðningur við iðkun skáklistarinnar. Fram- kvæmd málsins yrði i hendi ráð- herra, og væri eðlilegt, að hann hefði um framkvæmdaratriði öll samráð við samtök skákmanna.” Efnahagsráð- stafanirnar samþykktar Frumvarp rikisstjórnarinnar um ráðstafanir i efnahagsmálum var afgreitt sem lög frá Alþingi á laugardaginn. Smávægilegar breytingar voru gerðar á frum- varpinu I efri deild og varð þvi að senda það aftur til neðri deildar til endanlegrar samþykktar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.