Tíminn - 29.04.1975, Page 14
14
TÍMINN
Þriöjudagur 29. april 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
9
Báðir hættu að vinna, er þeir sáu hann. Rambo beið þess
að þeir kæmu.
— Þetta er ömurleg sjón, sagði sá við ritvélina. Það
brást aldrei.
— Vissulega, svaraði Rambo. — Næst áttu að segja,
hvað ertu, strákur eða stelpa. Svo áttu að segja, ertu of
blankur til að eiga f yrir klippingu? A ég að ef na til sam-
skota?
— Mér er sama um útlitið á honum, kjafturinn er verri,
sagði Teasle.
— Er eitthvað nýtt, sem ég ætti að vita, Singleton?
spurði hann manninn við talstöðina.
Hann sat þar, hávaxinn og traustlegur. Andlit hans var
nærri ferkantaðog bartanir voru snyrtilegir og náðu rétt
niður fyrir eyrun.
— Stolinn bíll, sagði hann.
— Hver sér um það?
— Ward.
— Fyrirtak, sagði Teasle og sneri sér að Rambo. —
Komdu þá. Þaðer bezt að Ijúka þessu af.
Þeir gengu yfir þvert herbergið, niður gang að bak-
hluta hússins. Fótatak og raddir heyrðust út um opnar
dyr beggja vegna. Skrifstof ufólk var í f lestum herbergj-
um en lögreglumenn i öðrum. Gangurinn var skínandi
hvítur og terpentinulyktin slæm. Á enda gangsins var
vinnupallur undir óhreinum hluta loftsins, grænlitum,
sem enn var ómálaður. Rambo las miðann, sem festur
var við vinnupallinn: HVÍT MÁLNING BÚIN. MEIRI Á
MORGUN: LÍKA BLÁ TIL AÐ MÁLA YFIR RAUÐU
ÚTIVEGGINA.
Þá opnaöi Teasle dyrnar að skrifstof u í enda gangsins.
Rambo hikaði sem snöggvast.
Ertu viss um að þú viljir halda þessu áfram? spurði
hann sjálfan sig. Enn er ekki of seint að beita fortölum.
Til hvers? Ég hef ekkert gert af mér.
Svona nú, komdu þér inn, sagði Teasle. — Þú hefur
stef nt að þessu. Það voru mistök, að ganga ekki strax inn
í herbergið. Þetta hik við dyrnar virtist gefa til kynna
hræðslu hans. Það vildi hann ekki. En ef hann færi inn
eftir að Teasle hefði skipað honum það, myndi líta svo
út, sem hann væri að hlýða skipun. Það vildi hann ekki
heldur. Hann gekk inn — áður en Teasle gafst tóm til að
ítreka skipun sína.
Það var lágt undir loft og höfuð hans nam nærri við
loftið á skrifstof unni. Rambo fannst hann svo inniluktur,
að hann langað til að nema staðar. En hann lét það ekki
eftir sér. Á gólfinu var ábreiða, græn og slitin líkt og
gras sem er snöggslegið. Á vinstri hönd — bak við
skrif borðið/var byssuskápur. Hann veitti athygli hleðslu-
stórri byssu með hlaupvídd 44. Hann minntist hennar úr
æfingabúðum sérsveitanna. Ein öflugasta byssan sem
framleidd var. Með henni mátti skjóta gegnum fimm'
þumlunga þykkt stál eða drepa f íl. En bakslagið var svo
mikið, að honum féll ekki byssan.
— Sestu á bekkinn, strákur, sagði Teasle. — Hvað heit-
ir þú?
— Kallaðu mig bara strák, sagði Rambo. Bekkurinn
var meðfram veggnum á hægri hönd. Hann setti svefn-
pokann við bekkinn og settist niður sérlega beinn og stíf-
ur.
— Þetta er ekki fyndið lengur, piltur minn. Hvað heitir
þú?
— Ég er líka kallaður Piltur. Þú mátt kalla mig það, ef
þú vilt.
— Það geri ég sannarlega, sagði Teasle. — Málin eru
komin á það stig, að ég kalla þig hvern f jandann sem
mér sýnist.
SJÖUNDI KAFLI
Ungi maðurinn var honum meiri skapraun en hann gat
afborið. Teasle óskaði þess eins, að losna sem fyrst við
hann af skrifstof unni svo hann gæti hringt. Klukkan var
hálf fimm. Ef hann reiknaði tímamismuninn var klukk-
an líklega eitthvað um hálf eitt í Kaliforníu. Ef til vill
var hún ekki lengur hjá systur sinni. Hún hafði kannski
farið út að borða með einhverjum. Hann velti fyrir sér
með hverjum hún hefði farið. Hvar? Hann var fullur ó-
þreyju eftir því að hringja. Þess vegna eyddi hann svo
miklum tíma með unga manninum. Persónuleg vanda-
mál máttu ekki hafa áhrif á starfið. Einkalífið tilheyrði
heimahúsum. Ef persónuleg vandamál ætluðu að taka af
mönnum ráðin, þá neyddu þeir sig til að vinna hægar og
nákvæmar. Það ætlaði ef til vill að borga sig í þetta
skipti. Pilturinn vildi ekki segja til nafns. Eina ástæða
fólks til að leyna slíku var sú, að það hafði eitthvað að
fela. Óttaðist kannski að flett yrði upp á því í flótta-
skránum. Þetta var kannski meira en ungur og þrjóskur
maður. Hann ákvað að fara hægt í sakirnar og komast að
hinu sanna. Hann settist við hornið á skrif borðinu, and-
spænis unga manninum, og kveikti sér rólega í sígarettu.
— Viltu reykja? spurði hann.
Þriðjudagur
29. april
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Horft
um öxl á flótta” eftir Aksel
Sandemose. Guðmundur
Sæmundsson les þýðingu
sína, fyrsta lestur af þrem-
ur.
15.00 Miðdegistónleikar: Is-
lenzk tónlist.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurf-regnir).
16.40 Litli barnatiminn. Anna
Brynjúlfsdóttir stjórnar.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18 45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Frá upphafi kvenrétt-
indabaráttu á Islandi. Lúð-
vik Kristjánsson rithöfund-
ur flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins.
Ragnheiður Drifa Stein-
þórsdóttir kynnir.
20.50 Ráðgjöf i skólum. Jónas
Pálsson skólastjóri flytur
fyrsta erindi sitt.
21.20 Myndlistarþáttur i um-
sjá Magnúsar Tómassonar.
21.50 Fróðleiksmolar um
Nýja testamentið. Dr.
Jakob Jónsson talar um
fjármál frumsafnaðanna.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöidsag-
an: „Tyrkjaránið” eftir Jón
Ilelgason. Höfundur les (9).
22.35 Harmonikulög. Ray-
mond Siozade leikur.
23.00 A hljóðbergi. Af bram-
ani og einum skálki. — Zia
Mohyeddin les fjórar spak-
ar sögur frá Indlandi, við
hljómlist Deben Bhatta-
charya.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
29. april
20.00 Fréttir og veður
20.30 Pagskrá og auglýsing-
ar
20.35 Helen — nútimakona
Bresk framhaldsmynd. 10.
þáttur. Þýðandi Jón O. Ed-
wald. Efni 9. þáttar: Helen
flytur i kjallaraibúðina, sem
Harold, vinnufélagi hennar,
hefur boðið henni. Frank
fær fréttir um, að hún sé
farin að búa með karl-
manni, og likar honum það
stórilla. Hann tekur að
njósna um mannaferðir til
og frá húsinu. Harold, sem
raunar er kynvillingur, býð-
ur Helenu á tónleika og fær
vin sinn til að gæta barn-
anna á meðan. Frank verð-
ur piltsins var, þegar hann
heldur heim áleið og veitist
harkalega að honum. Siðan
heldur hann á fund Helenar
og reynir enn að ná sáttum,
en án árangurs.
21.30 Rir- Bresk heimilda-
mynd um Rinarhéruð og
sögu þeirra. Myndin er öll
tekin úr þyrlu. Flogið er frá
upptökum árinnar i sviss-
nesku ölpunum og henni
siðan fylgt rúmlega 1300
kilómetra leið til sjávar.
Litast er um á sögufrægum
stöðum og rifjaðir upp at-
burðir úr sögu Rinarlanda.
Þýðandi og þulur Stefán
Jökulsson.
22.15 Heimshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur Jón Hákon Magnússon.
22.45 Dagskrárlok.