Fréttablaðið - 05.03.2005, Side 46
„Þetta var bara áhugamál sem vatt upp
á sig,“ segir Emil Þór Vigfússon, bola-
hönnuður með meiru. Hann segist hafa
orðið var við mikinn áhuga á hvers
kyns bolum og ákveðið að láta slag
standa í nóvember á síðasta ári og
blanda sér í baráttuna. „Þetta er orðin
alveg rosaleg tíska,“ segir hann og
bendir réttilega á að tvær búðir sem
selja eingöngu boli eru á næstum því
sama blettinum á Laugaveginum.
Bolatískan er orðin allsráðandi meðal
yngra fólksins og skemmtilegar áletr-
anir hafa selst mjög vel. „Það er gaman
að ganga í Kringlunni og sjá ungu
krakkana í bolum sem ég hef gert,“
segir Emil Þór.
Málsvari minnihlutahóps
Salan hefur gengið vonum framar og
hafa bolir eins og Ég þekki Ásgeir Kol-
beins og Ég deita bara módel rokið út
eins og heitar lummur. „Mér fannst
þessir hópar, það er að segja þeir sem
þekktu Ásgeirs Kolbeins og þeir sem
deituðu módel, vera minnihlutahópar
sem vantaði einhvern málsvara,“ seg-
ir Emil Þór og bætir við að nýverið
hafi komið út bolur með mjög áreiðan-
lega staðreynd, Rauðhærðir eru betri í
rúminu. „Ég hef þetta eftir mjög
áreiðanlegum heimildum,“ segir hann,
án þess að stökkva bros á vör. „Ef ein-
hverjir sjá þetta sem kaldhæðni þá er
það bara þeirra mál, fólk verður bara
að lesa á milli línanna,“ bætir hann
við.
Bolir fyrir útlendinga
Þetta er ekki aðalatvinna Emils og
hann segist ekkert hafa orðið ríkur á
þessu, þetta sé svona meira til gamans
gert, þó öllu gríni fylgir alvara. „Ég
ætla að færa mig aðeins meira út í
grafískari boli, þó að þessir bolir með
þessum yfirlýsingum haldi auðvitað
áfram.“ Hann langi til að búa til boli
sem séu ekki einskorðaðir við íslensk-
an húmor, heldur séu markaðsvara sem
ferðamenn geti keypt sér, enda sé það
mjög góður markaður, því hingað komi
fjögur hundruð þúsund ferðamenn á
ári. „Auðvitað verður húmorinn ennþá
til staðar, hann verður kannski grafísk-
ari,“ segir Emil, sem vill þó ekkert gefa
upp hvenær bolirnir komi nákvæmlega
út, en það verði einhvern tímann í
næsta mánuði. ■
30 5. mars 2005 LAUGARDAGUR
BREYTTUR HEIMUR
VACLAV HAVEL BARÐIST FYRIR
LÝÐRÆÐI Í GÖMLU TÉKKÓSLÓVAKÍU
„Haldið samfélag við þá sem leita sannleik-
ans og forðist þá sem hafa fundið hann.“
Fullkomna
ríkið?
Það er ekki öllum gefið að stjórna,
og sitt sýnist hverjum um stjórn-
völd hvers tíma. Er lýðræði besta
lausnin, eða ættum við ekki frekar
að fela stjórnunina þeim sem vita
betur? Engin aðferð við að velja
valdhafa hefur hins vegar verið
hafin yfir mögulega misnotkun.
Gott dæmi er kannski nýafstaðnar
kosningar í Úkraníu, þegar eitrað
var fyrir Viktor Júsjenkó í aðdrag-
anda lýðræðislegra kosninga. Lík-
legt er að heimspekingurinn Platon,
sem var uppi á fjórðu öld fyrir
Krist, hefði hlegið dátt að þessum
tilburðum mannsins að koma á lýð-
ræði, enda taldi hann sig, með bók-
inni Ríkið, hafa hannað svo fullkom-
ið kerfi að samfélagið gæti reitt sig
á stétt góðviljaðra stjórnenda. Það
voru einmitt þeir stjórnendur sem
strengdu þess heit að koma á nýrri
stjórnarskrá Frakklands þann 17.
júní 1789.
Platon sjálfur tilheyrði dekur-
hópi ríkra menntamanna í Aþenu
sem höfðu ímugust á lýðræðinu og
töldu sig hæfa til þess að stjórna, án
þess að þar kæmi til einhver almúg-
ur með kosningarétt. Platon taldi að
öllu stjórnmálavaldi væri best borg-
ið í höndum sjálfskipaðrar stéttar
heimspekilegra stjórnenda sem
kölluðust verndarar.Hæfni þeirra
til að gegna þessu embætti væri
fólgin í æðra hugarstarfi þeirra,
sem tryggt væri með erfðum, og
menntun myndi gera þá óeigin-
gjarna í einkalífinu og guðum líka í
hæfileikum sínum til að greina hvað
væri gott fyrir borgarana.
Hinir svokölluðu verndarar
Platons urðu hins vegar fyrirmynd-
ir og hugmyndalegir forfeður
úrvalshópa, aðalsstjórna og sjálf-
skipaðra ofurmenna sem hafa ávallt
réttlætt harðstjórn sína á grund-
vellli þess að þeir viti best.
Byggt á bókinni Hugmyndir
sem breyttu heiminum sem kom
út hjá Eddu fyrir skömmu.
ÉG TEK 130 Í BEKK OG
HVERNIG FINNST ÞÉR ÉG?
Bolir með skemmtilegum
áletrunum seljast mikið og
Emil ákvað að taka þátt í því
kapphlaupi.
EMIL ÞÓR VIGFÚSSON Þetta var bara
áhugamál sem vatt upp á sig.
Bolir Emils Þórs Vigfússonar hafa vakið mikla athygli að undanförnu í búðinni
Dogma, og hafa þeir rokið út eins og heitar lummur. Sjálfur hefur Emil lítið látið fyrir
sér fara en Freyr Gígja Gunnarsson hafði uppi á honum og ræddi við hann um bolina.
Fólk verður bara að
lesa á milli línanna