Fréttablaðið - 06.03.2005, Page 60

Fréttablaðið - 06.03.2005, Page 60
32 6. mars 2005 SUNNUDAGUR Stoltur faðir og ÍR-ingur HANDBOLTI Þeir voru margir ÍR- ingarnir sem áttu erfitt með að fela tilfinningar sínar um síðustu helgi þegar ÍR lyfti langþráðum titli í handboltanum. Einn þeirra var Hólmgeir Einarsson, formað- ur handknattleiksdeildar ÍR, sem hefur lagt ómældan tíma og kraft í að gera ÍR að stórveldi í hand- boltanum síðustu fimmtán ár. „Ég get ekki lýst því hvernig mér leið þegar við lyftum bikarn- um í Höllinni,“ sagði Hólmgeir þegar hann var beðinn að lýsa til- finningum sínum um síðustu helgi. „Það var frábært að sjá ár- angur erfiðisins detta í hendurnar á manni. Ég rétt náði að halda aft- ur af tárunum en það voru ekki allir svona sterkir. Þetta eru einu launin í þessu starfi en annars hef ég aldrei séð eftir tímanum sem ég hef sett í starfið. Ekki einni mínútu.“ Þessi dugmikli maður er fædd- ur og uppalinn á Hofsósi í Skaga- firði. Hann hefur alla sína tíð unnið í sjávarútvegi. „Ég hef mikið verið í slorinu og líkað vel. Svo er ég líka í fiskamerkinu þannig að mig vantar eiginlega bara sporð til að breytast í fisk,“ sagði Hólmgeir kátur og jákvæð- ur eins og hann er oftast. Á sínum yngri árum var Hólm- geir í fótbolta og frjálsum íþrótt- um. Sérstaka áherslu lagði hann á langhlaupin enda veitti ekki af til að eyða allri orkunni sem hann býr yfir. Ofvirkur „Ef ofvirkni hefði verið til í gamla daga þá hefði ég verið flokkaður ofvirkur. Ég gekk á sín- um tíma undir nafninu Spútnik enda var ég aldrei kyrr. Ég á enn í vandræðum með að sitja aðgerða- laus,“ sagði Hólmgeir en hann segir að menn verði að vera svo- lítið ofvirkir til þess að taka þátt í hugsjónastörfum eins og hann sinnir. Það er ekki bara handboltalið ÍR sem hefur blómstrað hjá Hólmgeiri því börnin hans hafa öll látið verulega að sér kveða í íslenskum handboltaheimi. Elsti sonur hans, Einar, er atvinnumað- ur með Grosswallstadt í Þýska- landi og íslenskur landsliðsmaður. Dóttir Hólmgeirs, Guðrún Drífa, er einnig íslenskur landsliðsmað- ur enda einn besti hornamaður landsins og leikur þessa dagana með FH. Yngsti sonur Hólmgeirs, Björgvin Þór, er einnig bráðefni- legur en hann leikur með 3. flokki ÍR en er þrátt fyrir ungan aldur farinn að fá tækifæri með meist- araflokki. Skagfirðingurinn kraftmikli getur þó ekki alfarið eignað sér heiðurinn af góðu lífsverki því á bak við öfluga menn er oftast ekki síðri kona. Konan á bak við Hólm- geir Einarsson heitir Þórleif Frið- riksdóttir en hún kemur einnig úr Skagafirðinum. Þau hafa verið lífsförunautar í rúm 30 ár. Ómetanleg eiginkona „Það er nauðsynlegt að eiga góðan og þolinmóðan maka til þess að geta staðið í þessu. Þar bý ég vel. Hún hefur líka ódrep- andi áhuga á handbolta og hefur staðið þétt við bakið á krökkunum í gegnum súrt og sætt. Svo má ekki gleyma að hún hefur þvegið ansi margar þvottavélar af krökk- unum því ósjaldan biðu þrjár fullar íþróttatöskur af skítugum æfingafötum við þvottavélina,“ sagði Hólmgeir en Þórleif er einnig dugleg að mæta á leiki. „Hún mætir á alla þá leiki sem hún getur og hefur gaman af. Það er ómetanlegt að hafa slíka konu á bak við sig.“ Uppeldisstarf fer Hólmgeiri greinilega vel og hann segist fá mikið út úr því sem hann gerir. „Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á að vinna með krökkum. Mér finnst það mjög gefandi og svo er gaman að sjá uppskeruna, sama í hvaða mynd það er,“ sagði Hólmgeir sem segir mikilvægt að foreldrar standi þétt við bakið á börnunum sínum. „Við sátum ekki hérna heima þegar þau komu heim af leikjum og spurðum hvað þau skoruðu mörg mörk. Við mættum á leik- ina. Að mínu mati skiptir það gríð- arlegu máli fyrir krakkana að for- eldrar séu duglegir að styðja við bakið á þeim. Þeir þurfa að vera til staðar og hjálpa þeim við að fara á réttu brautirnar því freist- ingarnar eru á hverju horni. Ég hef því miður í mínu starfi horft á eftir mörgum stórefnilegum íþróttamönnum hverfa á rangar brautir,“ sagði Hólmgeir sem er stoltur maður og fer ekki leynt með það. „Ég er stoltur faðir og ÍR-ingur. Ég er mjög ríkur maður að því leyti hvað börnunum mín- um og félaginu hefur gengið vel.“ Hólmgeir gat ekki tekið þátt í undirbúningnum fyrir bikarúr- slitaleikinn sem skyldi þar sem hann fékk kransæðastílfu eftir undanúrslitaleikinn gegn ÍBV og var nýkominn úr hjartaþræðingu þegar leikurinn fór fram. Hann þarf að fara í aðra þræðingu fljót- lega. „Það var slæmt að detta svona aðeins úr hópnum fyrir bikarleik- inn en Haukur Loftsson varafor- maður er alveg búinn að standa sig eins og hetja. Hann á heiður skilinn fyrir sitt starf,“ sagði Hólmgeir, ávallt tilbúinn að hrósa öðrum. Hann segist reyndar hafa haft áhyggjur af Hauki um tíma – svo kröftuglega hafi hann unnið. „Ég sagði honum að ef hann færi ekki að slaka á þá þyrfti ég að losa rúmið við hliðina á mér á spítalan- um,“ sagði Hólmgeir og hló dátt. Fékk gula spjaldið Hólmgeir lítur á þetta áfall eins og hvern annan kappleik. Hann hafi fengið gula spjaldið og verði að passa sig á því að fá ekki það rauða. „Sem betur fer fékk ég bara gult spjald og ég er afskaplega þakklátur fyrir að spjaldið var gult en ekki rautt. Það sem var samt jákvæðast var að það kom alveg hópur af fólki til þess að vinna að þessum úrslitaleik fyrir okkur. Það var alveg ótrúlegt að sjá hvað fólk var viljugt að hjálpa okkur,“ sagði Hólmgeir sem veit manna best að íþróttafélög á Ís- landi væru ekki rekin án hjálpar góðra manna og fyrirtækja. „Ef fyrirtækin sem stæðu á bak við okkur væru ekki svona sterk og góð þá væri þetta starf hvorki fugl né fiskur. Við erum mjög þakklát fyrir þann stuðning sem við höfum fengið frá okkar bakhjörlum,“ sagði Hólmgeir en næst á dagskrá hjá honum er að berjast fyrir að fá íþróttahús hjá ÍR. „Við erum landlaust félag en erum loksins komnir á teikniborð- ið hjá borginni og draumurinn er að leika í eigin húsi á hundrað ára afmæli félagsins sem er árið 2007,“ sagði Hólmgeir Einarsson. henry@frettabladid.is Hólmgeir Einarsson uppskar ríkulega eftir fimmtán ára starf hjá handknattleiksdeild ÍR um síðustu helgi þegar ÍR varð bikarmeistari. Hann er stoltur af sínu starfi, sem hann hefur aldrei þegið krónu fyrir, og er einnig stoltur af börnunum sínum en hann er eini faðirinn á landinu sem á bæði börn í karla- og kvennalandsliði Íslands í handknattleik. Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR, ber Hólmgeiri vel söguna: Mikils metinn af öllum HANDBOLTI „Hólmgeir er gríðarlega duglegur og kraftmikill maður. Það má eiginlega segja að hann sé svona létt of- virkur. Það er alveg sama hvað hann tekur sér fyrir hendur. Það er allt gert af miklum krafti og klárað. Hólm- geir er líka skemmti- legur að því leyti að það er alveg sama hvað gengur á, það er alltaf stutt í húmorinn og léttleikann. Annað með Hólmgeir er að hann er alltaf til staðar og það er alltaf hægt að ná í hann. Alveg sama hvað er mikið að gera hjá honum,“ segir Júlíus Jónasson, þjálfari bikarmeistara ÍR, um yfirmann sinn, Hólmgeir Einars- son. „Það er auðvelt og skemmtilegt að vinna með Hólmgeiri og óhætt að segja að hann sé mikils metinn af öllum. Það hefur allt staðist í rekstrinum hjá honum og allir fá laun á umsömdum tíma og annað slíkt. Hann hugsar mjög vel um okkur og er einstakur persónuleiki. Það er óhætt að segja að hann sé hetja í augum allra enda hefur hann unnið kraftaverk hjá ÍR. Það var gaman að verða meistari en öllum fannst enn skemmtilegra að vinna fyrir framan Hólmgeir því við vorum smeykir við að hann kæmist ekki á völlinn sök- um veikindanna,“ sagði Júlíus Jónasson. henry@frettabladid.is JÚLÍUS JÓNASSON Fagnar hér bikarmeistara- titli ÍR um síðustu helgi. AFREKSFÓLK Börn Hólmgeirs – Guðrún Drífa og Einar – eru bæði landsliðsmenn í handknattleik. Hólmgeir er eini faðirinn á landinu sem á börn í báðum landsliðum. KAMPAKÁTUR MEÐ BIKARANA Hólmgeir Einarsson uppskar ríkulega eftir 15 ára starf hjá ÍR um síðustu helgi er ÍR varð bikarmeistari. Hann sést hér kátur, og stoltur, með bikarana sem ÍR fékk fyrir sigurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.