Tíminn - 03.05.1975, Síða 2

Tíminn - 03.05.1975, Síða 2
2 TÍMINN Laugardagur 3. mai 1975. SVISSNESKA LANDSUÐIÐ í BRIDGE KEPPIR HÉR STJÓHN Bridgefélags Reykja- vikur hefur boðiö svissneska landsliðinu til keppni og mun það spila viðbeztu bridgemenn lands- ins dagana 3.-9. mai n.k. t liði Svisslendinga eru heims- frægir bridgemeistarar, sem um árabil hafa spiiað f landsliði þe irra. Þeirra frægastur er Jean Besse, 60 ára. Hann hefur spilað fyrir Sviss á 16 Evrópumótum og 4 Olympfumótum. Einnig átti hann sæti i landsliði Evrópu, sem spilaði um heimsmeistaratitilinn fMonaco 1954. Fyrirliði landsliðs- ins er J. Ortiz-Patino, 45 ára. Hann hefur spilað á 12 Evrópu- mótum og 3 Olympiumótum. Aðr- ir liðsmenn eru Tony Trad, 42 ára, nýbakaður heimsmeistari í parakeppni, Pietro Bernasconi, Frh. á bls. 15 FYRSTI AFANGI FELAGS- HEIAAILISINS Á PATREKS- FIRÐI TEKIN í NOTKUN SJ-Patreksfirði — Mörg undan- farin ár hefir staðið yfir bygging félagsheimilishúss á Patreks- firði. Verkinu miðaði lengi vel mjög hægt áfram aðallega vegna fjárskorts. Siöustu sextán til átján mánuðina hcfir verið unnið með litlum töfum að byggingar- framkvæmdunum og ríkt hér mikill áhugi um framgang máls- ins. Bæði iðnaöarmenn og al- menningur hafa lagt af mörkum gjafavinnu við bygginguna, og er nú svo komið að tekinn var i notk- un fyrsti áfangi félagsheimilis- hússins 1. maí. Byggingin er teiknuð af Sigur- jóni heitnum Sveinssyni, arkitekt og byggingafulltrúa Reykjavik- urborgar, og fór á sínum tima fram samkeppni um gerð teikn- ingarað húsinu.Byggingameistari er Jón Björn Gíslason, húsa- smfðameistari, Patreksfirði. Kostnaður við bygginguna er greiddur þannig: Félagsheimila- sjóður greiðir 40% byggingar- kostnaðar, sveitarsjóður Pat- rekshrepps 40% og eigendafélög- in 20%. Haldið verður áfram byggingarframkvæmdum við húsið og standa vonir til þess, að hægt verði að fá fé til þess að Ijúka þeim hluta byggingarinnar, sem nú þegar hefir verið steyptur upp á þessu og næsta ári. í tilefni þessa áfanga efndi bygging- arnefndin til kaffisamsætis i hús- inu 1. mai. Þar voru ýmis skemmtiatriði, svo sem leiksýn- ingar, söngur o.fl. Kl. 20 um kvöldið frumflutti Leikfélag Pat- reksfjarðar tvo einþáttunga eftir Jónas Jónasson: Beðið eftir jarð- arför og Tvö undir ljósastaur. Jónas Jónasson hefir dvalið hér að undanförnu og unnið að þvi að setja einþáttungana á svið. Að leiksýningunni lokinni var al- mennur dansleikur i félags- heimilishúsinu. Yfir helgina verða svo samkomur i húsinu. A laugardagskvöld verður almenn- ur dansleikur og Kl. 21 á sunnu- dagskvöld leiksýning Leikfélags Patreksfjarðar. DR. MARCEL R. de Quervain, forstjóri snjó- og snjóflóðarann- sóknastofnunar svissneska rikis- ins i Davos i Svisslandi, heldur fyrirlestur á vegum Almanna- vama rikisins, Verkfræði- og raunvfsindadeildar Háskóla ís- lands og Raunvisindastofnunar Háskólans um snjóflóð og snjó- flóðavarnir i ölpunum i Norræna húsinu þriðjudaginn 6. mai 1975 kl. 17.00. Eftir fyrirlesturinn verður sýnd kvikmynd um snjó- flóð og snjóflóðavarnir. öllum er heimill aðgangur. Heildarvelta Kaupfélags Þingeyinga 1250 milljónir NÝLEGA var haldinn aðaifundur Kaupfélags Þingeyinga haldinn á Húsavik. A fundinum mættu 116 fuiltrúar, félagsstjórn, endur- skoðendur og kaupfélagsstjóri. Úlfur Indriðason Héöinshöfða stjórnaði fundinum. Hann flutti skýrslu félagsstjórnarinnar og sagði frá helztu framkvæmdum félagsins. Höfðu fjárfestingar orðið minni á árinu 1974, en oftast áður. Bar þar hæst viðbótarbygging Mjólk- ursamlags K.Þ. allmikil véla- kaup vegna endurskipulagningar á Brauðgerð, ýms önnur minni verkefni var unnið að á árinu. Finnur Kristjánsson kaupfé- lagsstjóri las og skýrði reikninga félagsins. Heildarvelta kaupfé- lagsins nam kr. 1.250 milljörðum. Þar af nam sala í verzlunarbúð- um um 580 milljónum króna. Vörusaian hafði vaxið um 42% miðað viö næsta ár á undan, en allur rekstrarkostnaður hafði hækkað um 63%, þar af launa- kostnaður um 48%. Kaupfélagið greiddi f vinnulaun kr. 123.762.878,00. Á árinu 1974 hafði féiagiö iánað byggingarefni til félagsmanna sinna i Húsavik og sveitum Þing- eyjarsýslu fyrir rúmlega 60 milljónir króna, enda varð mikil uPPbygging f héraðinu öiiu, meginhluti þessa byggingarefnis var greiddur fyrir áramót. Rekstursniðurstaða varð lakari en undanfarin ár, munaði þar mestu um hækkun kostnaðar, vaxtahækkun og gengistöp, Iftils- háttar reksturstap var þvi á árinu eöa 1.159.000 kr. Engin sérstök óhöpp höfðu átt sér stað i rekstrinum og vöru- rýrnun litil. Miklar umræður fóru fram um reikninga kaupfélagsins, sem sýndu áhuga og samstarfsvilja fundarmanna um rekstur félags- ins. Nú er ljóst að kaupfélagið fær ekki þá fyrirgreiðslu viðskipta- bankanna, sem geri þvi mögulegt að halda áfram að lána út bygg- ingarefni og veita ýmsa þá fjár- málalegu þjónustu, sem félagið hefur áður gert. Urðu um þetta miklar umræður, enda óttast menn að þetta lami mjög allar framkvæmdir og uppbyggingu i héraðinu. Úthlutað var úr minningasjóði Þórhalls Sigtryggssonar verð- launum, þau hlaut Valdemar Ing- ólfsson forstöðumaður Véla- og varahlutadeilda, fyrir sérlega vel unnin störf. Úthlutað var úr Menningarsjóði K.Þ. kr. 335.000,00 til ýmissa menningarmála i héraðinu. Aðalmál fundarins var Byggða- þróunin og Samvinnufélögin, urðu um það miklar umræður og ályktanir gerðar. Kosningar, úr félagsstjórn áttu að ganga Úlfur Indriðason og 111- ugi Jónsson, þeir báðust undan endurkosningu. Var þeim þökkuð mikil og góð störf i þágu K.Þ. Kosnir voru i stjórnina Böðvar Jónsson Gautlöndum og Egill Gústafsson Rauðafelli. Að kvöldi fyrri fundardags var efnt til kvöldvöku i Félagsheimil- inu undir stjórn Sigurjóns Jó- hannessonar, skólastjóra. Fóru þar fram ýmiss konar skemmti- efni og var þar fjölmenni saman- komið. Að afloknum aðalfundi kom fé- lagsstjórn saman og skipti meö sér verkum. Formaður var kos- inn Teitur Björnsson Brún, vara- formaður Baldvin Baldursson Rangá, ritari Jóhann Hermanns- son Húsavik. A fundinum var eftirfarandi samþykkt gerð. Aðalfundur K.Þ. haldinn 22. og 23. april 1975 beinir þvi til alþing- ismanna Norðurlandskjördæmis eystra, að vinna að þvi, að sam- vinnufélögin i kjördæminu fái nú þegar eðlilega bankafyrirgreiðslu i samræmi við fjölþætta starf- semi sina, vaxandi dýrtið og verðmæti vörubirgöa. Gerir fundurinn kröfu um eftir- farandi atriði: 1. Að rekstrarlán út á sauðfjár- afurðir verði stórhækkuð og veitt fyrr en nú er. 2. Að kaupfélögunum verði veitt sérstök fyrirgreiðsla vegna sölu byggingarefnis, en greiðsla þess dregstaf eðlilegum ástæðum þangað til veðlán til bygginga- framkvæmda eru afgreidd frá stofnlánadeild landbúnaðarins og frá hinu almenna veðlánakerfi Veðdeildar Landsbankans. Það er álit fundarins, að fáist ekki leiðrétting i þessu efni, þá geti kaupfélögin ekki lengur veitt þá fyrirgreiðslu um byggingar og framkvæmdir og stuðlað að upp- byggingu og hagfeldri byggða- þróun i kjördæminu. Bænadagur Þjóðkirkjunnar: Beðið um frið d jörðu HINN almenni bænadagur er á morgun, Biskup tslands óskar eftir þvf, að þjóðin sameinist þann dag i BÆN UM FRID A JÖRÐ. Um þetta segir biskup: „Þrátt fyrir það, sem gert hef- ur verið til þess að draga úr spennu milli stórvelda, er vigbún- aðarkapphlaup þeirra i algleym- ingi. Njósnadufl fylla höfin, gervihnettir eru hvarvetna á gægjum i geimnum, og birgðir morðtækja hrúgast upp. Æ fleiri valdhafar geta nú ógnað með ger- eyðingarvopnum. Hermdarverk öfga- og ofbeldismanna og gifur- mæli óhlutvandra lýðskrumara minna á, hvað i vændum gæti ver- ið. Vér skulum þvi á þessum bænadegi samhuga og með kristnum bræðrum og systrum allra landa biðja Guð að frelsa oss frá illu. Vér skulum biöja Guð að styrkja allan góðan vilja og láta vit og góðfýsi, réttlæti og sann- girni ráða i viðskiptum manna. Vér skulum biðja Guð vors lands að gefa islenzku þjóðinni aukinn styrk og þroska i fylgd friðarhöfð- ingjans sanna, Jesú Krists.” * Varð úti í Hestfirði G.S.-ísafirði — Sjötugur maður, Magnús Jónsson, skáld frá Skógi i Rauðasandshreppi, varð úti s.l. þriðjudagskvöld f Hest- firði. Magnús hafði verið að kenna bókband I Reykjanes- skóla, en á þriðjudag hélt hann áleiðis til ísafjarðar á gömlum bíl er hann átti. Magnús mun hafa fest bilinn I lækjarsprænu I Hestfirði og ekki náð honum upp aftur. Hélt hann þvl af stað fót- gangandi I átt að Hvitanesi og varð úti á þeirri göngu. Veður var mjög slæmt á þess- um slóðum s.l.þriðjudagskvöld og var Magnús heitinn mjög illa búinn. Lfk Magnúsar fannst á miðvikudagskvöld, er jeppabif- reið sem var á leið til ögurness með farþega fann likið á vegin- um. Magnús Jónsson var fæddur 1905 og bjó i Hnifsdal. Hann var hagyrðingur góður. Hátiðisdagur verkalýðsins — 1. maf — varhafdinn hátiðlegur um allt land með hefðbundnum atriðum eftir þvi, sem veður leyfði á hverjum stað. 1 Reykjavik voru þrfr útifundir —og er önnur myndin frá fund- inum á Lækjartorgi. Hin myndin sýnir matreiöslumenn f göngu dagsins, en þeir skrýddust einkennisklæðnaði stéttarinnar f til- efni nýgerðs samkomulags. Sýning á norrænni list A MORGUN verður opnuð i Listasafni tslands sýning á norrænum listaverkum I eigu safnsins. Sýningin er liður I norrænni listaviku, sem hleypt er af stokkunum samtimis á Norðurlöndum öiium. Listasafnið á alls 336 verk eftir skandinavfska listamenn og verður úrval þeirra verka á sýningunni. — Listsýningin stendur til 12. maí. Listasafnið er opið frá 13.30— 19 á sunnudögum, en 13.30— 16.00 aðra daga. Timamynd: Gunnar. Kunnur Islands- vinur heldur fyrirlestra um norræna þjóðhætti DR. BO ALMQUIST, prófessor I Dublin flytur tvo fyrirlestra I boði heimspekideildar Háskóla ts- lands. Mánudaginn 5. mai nk. flytur hann fyrirlestur sem nefn- ist: Vikingar I irskri þjóðtrú og þjóösögum, og þriðjudaginn 5. maf nk flytur hann fyrirlestur sem nefnist: Tengsl norrænna og Irskra munnmæla. Báðir fyrirlestrarnir verða haldnir i stofu 101, Lögbergi og hefjast kl. 17.15. öllum er heimill aðgangur að fyrirlestrum þessum. Dr. Bo Almquist, sem er hér I boði heimspekideildar Háskóla tslands, ér prófessor i þjóðfræð- um og gegnir forstöðumanns- starfi við þjóðfræðideildina i Uni- versidy College, Dublin. Hann nam þjóðsagnafræði við Uppsala- háskóla og kenndi við þann skóla um árabil. Einnig lagði hann stund á islenzku við Háskóla ís- lands, var hér sænskur sendi- kennari um árabil og hefur frá- bært vald á islenzku máli. Doktorsritgerð sina, Norrön nid- diktning, Traditionshistoriska studier i versmagi, (Uppsala 1965), sem fjallar um fornnor- rænan niðkveðskap, varði hann viö Uppsalaháskóla.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.