Tíminn - 03.05.1975, Side 4
4
TÍMINN
Laugardagur 3. mai 1975.
En, hvemig á að fá biflugurn-
ar til að gefa eitrið frá sér, og
það ekki aðeins við venjulegar
aðstæður? Eistneskum visinda-
mönnum, undir stjórn Paul
Alles.dósents, hefurnú tekizt að
leysa þetta vandamál. Þeir hafa
útbúið litið, handhægt tæki, sem
gerir kleift að safna eitri frá tiu
til fimmtán bikúpum samtimis,
og tekur það ekki nema hálfa
klukkustund.
Biflugumar gefa frá sér eitr-
ið, þegar þær eru truflaðar, eða
verða hræddar. Vandinn var að
skapa nauðsynlega truflun i
mörg þúsund flugna fjölskyldu,
án þess að skaða allt biflugna-
samfélagið. Veikt raflost, sem
framleitt var af jafnstraums-
ræki, reyndist vera áhrifamesta
aðferðin. I kúpunni er komið
fyrir glerplötu með rafskautum,
sem tengd eru við tækið. Eftir
„meðhöndlun”, liggja dropar af
þessu krystallaða eitri á gler-
plötunni — verðmætt hráefni
fyrir mörg lyfjafyrirtæki.
Tilraunir, sem biflugnarækt-
endur i Eistlandi, Úkrainu og
fleiri sovétlýðveldum hafa gert,
sýna, að tækniútbúnaðurinn
angrar bfflugurnar ekki, þvert á
móti virðist hann auka starfs-
fjör þeirra.
-K-k-k-k-K-k-k-k-k-k-K-k-K-K-k-K-K-k-K-k-k-k-k-K-K-K-KI-***-*-*-****-*-**-*-**-*
Norðurpólsleiðang
ur þessa órs hafinn
Leningrad (APN) Sovézkur
leiðangur, sem þetta ár mun
rannsaka Norðurheimskauts-
svæðið er nýlega lagður upp frá
Leningrad með flugvél til heim-
skautasvæðanna. Foringi leið-
angursins, landfræðingurinn N.
Blinov, sagði fjölmiðlum, að
,,Sever-27”, en svo er leiðangur-
inn nefndur, muni hafa bæki-
stöðvar i Tjerskij, nálægt mynni
Kolymafljóts við Austur-
Slberfuhaf, en þaðan verður
send skiptiáhöfn á isjakastöðina
„nórðurpóll 22”, sem rekur um
hafið. Smáhópar visindamanna
munu hafa viðkomu á 175 mis-
munandi stöðum á heimskauta-
svæðinu. Meðal annars verður
einn hópur á hinum landfræði-
lega Norðurpól.
Ennfremur verða teknar loft-
myndir af öllu heimskautsland-
inu. Jafnframt verða gerðar
neðanjarðarrannsóknir i neðri
lögum jökultindsins, og reynt
verður að rannsaka geislun sól-
ar og ljósfræðilegt ástand yfir-
borðs hafsins. Þær upplýsingar
sem fást, verða notaðar til að
kortleggja aflfræði hinna miklu
breytinga og til að gera stærð-
fræðileg likön af loftslagi
Norðurheimskautsins. Leiðang-
ursmennirnir eru alls 50, og þeir
hafa flugvél og þyrlu til afnotá,
auk alls nútima útbúnaðar.
Fyrsta verkefni leiðangursins
verður að senda hóp til hins nær
óaðgengilega heimskauts.
Ein milljón
sérfræðinga d óri
Frá æðri menntastofnunum i
COMECON-löndunum lýkur ár-
lega brottfararprófi u.þ.b. ein
milljón sérfræðinga, — þar af er
um helmingurinn verkfræðing-
ar. 1 samanburði viö árið 1950
hefur stúdentafjöldi i Búlgariu,
Ungver jalandi, Póllandi,
Tékkóslóvakiu og Rúmenlu þre-
faldazt, en i Austur-Þýzkalandi
og Alþýðulýðveldinu Mongóllu
hefur hann fjórfaldazt. Á þessu
sviði hafa Sovétrikin veitt hin-
um sóslalisku löndum mikils-
verða hjálp. 50 þúsund sér-
fræðingar, sem nú eru starfandi
I sósialisku rikjunum, að Sovét-
rikjunum frátöldum, hafa hlotiö
menntun sina I Sovétrikjunum.
Græðandi eitur
Ófríð, en blíðlynd
Sækýr eru ekkert augnayndi en sædýrasafni i Kaliforniu og læt-
þær eru eigi að siður bliðlyndar, ur þarna vel að honum Jack,
eins og nöfnur þeirra á landi. sem er vörður i safninu.
Þessi á myndinni á heima I
t læknislist alþýðunnar hefur
hunang biflugunnar frá örófi
alda verið þekkt sem læknislyf
við mörgum sjúkdómum. Nú-
tima læknislist nýtir einnig ann-
að efni, sem þetta nytsama
skordýr gefur frá sér, það er að
segja bíeitrið. Það er meðal
annars notað i lyf gegn þursabiti
og taugabólgu.
*********************
Högum okkur
ekki eins
og kanínur
Samtök sem berjast á móti of-
fjölgun fóru nýlega f mótmæla-
göngu að bústað brezka for-
sætisráöherrans að Downing
Street 10, til að vekja athygli á
baráttu sinni. Kröfðust mót-
mælendur að tekin verði upp al-
menn fræðsla um getnaðar-
vamir og hafin barátta fyrir aö
hver hjón eignist ekki nema tvö
böm.
Til að undirstrika kröfurnar
klæddust mótmælendur búning-
um, sem minna á kanínur og
báru skilti, sem á var letraö. —
Högum okkur ekki eins og
kaninur —.
DENNI
. DÆMALAUSI
„Gcrið svo vel að rétta mér gul-
ræturnar. A-ha-ha-ha-ha.