Tíminn - 03.05.1975, Blaðsíða 4

Tíminn - 03.05.1975, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Laugardagur 3. mai 1975. En, hvemig á að fá biflugurn- ar til að gefa eitrið frá sér, og það ekki aðeins við venjulegar aðstæður? Eistneskum visinda- mönnum, undir stjórn Paul Alles.dósents, hefurnú tekizt að leysa þetta vandamál. Þeir hafa útbúið litið, handhægt tæki, sem gerir kleift að safna eitri frá tiu til fimmtán bikúpum samtimis, og tekur það ekki nema hálfa klukkustund. Biflugumar gefa frá sér eitr- ið, þegar þær eru truflaðar, eða verða hræddar. Vandinn var að skapa nauðsynlega truflun i mörg þúsund flugna fjölskyldu, án þess að skaða allt biflugna- samfélagið. Veikt raflost, sem framleitt var af jafnstraums- ræki, reyndist vera áhrifamesta aðferðin. I kúpunni er komið fyrir glerplötu með rafskautum, sem tengd eru við tækið. Eftir „meðhöndlun”, liggja dropar af þessu krystallaða eitri á gler- plötunni — verðmætt hráefni fyrir mörg lyfjafyrirtæki. Tilraunir, sem biflugnarækt- endur i Eistlandi, Úkrainu og fleiri sovétlýðveldum hafa gert, sýna, að tækniútbúnaðurinn angrar bfflugurnar ekki, þvert á móti virðist hann auka starfs- fjör þeirra. -K-k-k-k-K-k-k-k-k-k-K-k-K-K-k-K-K-k-K-k-k-k-k-K-K-K-KI-***-*-*-****-*-**-*-**-* Norðurpólsleiðang ur þessa órs hafinn Leningrad (APN) Sovézkur leiðangur, sem þetta ár mun rannsaka Norðurheimskauts- svæðið er nýlega lagður upp frá Leningrad með flugvél til heim- skautasvæðanna. Foringi leið- angursins, landfræðingurinn N. Blinov, sagði fjölmiðlum, að ,,Sever-27”, en svo er leiðangur- inn nefndur, muni hafa bæki- stöðvar i Tjerskij, nálægt mynni Kolymafljóts við Austur- Slberfuhaf, en þaðan verður send skiptiáhöfn á isjakastöðina „nórðurpóll 22”, sem rekur um hafið. Smáhópar visindamanna munu hafa viðkomu á 175 mis- munandi stöðum á heimskauta- svæðinu. Meðal annars verður einn hópur á hinum landfræði- lega Norðurpól. Ennfremur verða teknar loft- myndir af öllu heimskautsland- inu. Jafnframt verða gerðar neðanjarðarrannsóknir i neðri lögum jökultindsins, og reynt verður að rannsaka geislun sól- ar og ljósfræðilegt ástand yfir- borðs hafsins. Þær upplýsingar sem fást, verða notaðar til að kortleggja aflfræði hinna miklu breytinga og til að gera stærð- fræðileg likön af loftslagi Norðurheimskautsins. Leiðang- ursmennirnir eru alls 50, og þeir hafa flugvél og þyrlu til afnotá, auk alls nútima útbúnaðar. Fyrsta verkefni leiðangursins verður að senda hóp til hins nær óaðgengilega heimskauts. Ein milljón sérfræðinga d óri Frá æðri menntastofnunum i COMECON-löndunum lýkur ár- lega brottfararprófi u.þ.b. ein milljón sérfræðinga, — þar af er um helmingurinn verkfræðing- ar. 1 samanburði viö árið 1950 hefur stúdentafjöldi i Búlgariu, Ungver jalandi, Póllandi, Tékkóslóvakiu og Rúmenlu þre- faldazt, en i Austur-Þýzkalandi og Alþýðulýðveldinu Mongóllu hefur hann fjórfaldazt. Á þessu sviði hafa Sovétrikin veitt hin- um sóslalisku löndum mikils- verða hjálp. 50 þúsund sér- fræðingar, sem nú eru starfandi I sósialisku rikjunum, að Sovét- rikjunum frátöldum, hafa hlotiö menntun sina I Sovétrikjunum. Græðandi eitur Ófríð, en blíðlynd Sækýr eru ekkert augnayndi en sædýrasafni i Kaliforniu og læt- þær eru eigi að siður bliðlyndar, ur þarna vel að honum Jack, eins og nöfnur þeirra á landi. sem er vörður i safninu. Þessi á myndinni á heima I t læknislist alþýðunnar hefur hunang biflugunnar frá örófi alda verið þekkt sem læknislyf við mörgum sjúkdómum. Nú- tima læknislist nýtir einnig ann- að efni, sem þetta nytsama skordýr gefur frá sér, það er að segja bíeitrið. Það er meðal annars notað i lyf gegn þursabiti og taugabólgu. ********************* Högum okkur ekki eins og kanínur Samtök sem berjast á móti of- fjölgun fóru nýlega f mótmæla- göngu að bústað brezka for- sætisráöherrans að Downing Street 10, til að vekja athygli á baráttu sinni. Kröfðust mót- mælendur að tekin verði upp al- menn fræðsla um getnaðar- vamir og hafin barátta fyrir aö hver hjón eignist ekki nema tvö böm. Til að undirstrika kröfurnar klæddust mótmælendur búning- um, sem minna á kanínur og báru skilti, sem á var letraö. — Högum okkur ekki eins og kaninur —. DENNI . DÆMALAUSI „Gcrið svo vel að rétta mér gul- ræturnar. A-ha-ha-ha-ha.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.